Tíminn - 15.12.1964, Page 2

Tíminn - 15.12.1964, Page 2
TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 15. desember 1964 Mánudagur, 14. desember. NTB-París. — Ráðherrafund- ur Atlantshafsbandalagsins hefst í París á morgun, og mun Paul Henry Spaak, utanríkis- ráðherra Belgíu, stjórna fyrsta fundinum. Dean Rusk, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, ræddi við de Gaulle, forseta Frakklands, í einn og hálfan tíma í dag, og sagði á eftir, að viðræðurnar hefðu verið vin- samlegar og mjög gagnlegar. Á ráðherrafundinum verður rætt á breiðum grundvelli um ástandið í alþjóðamálum, ekki sízt sambandið milli austurs og vesturs, Berlínarmálið, kín- versku atómsprengjuna og Kýpurmálið. NTB-New York. — Rapacki, utanríkisráðherra Póllands, hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag, og lagði þar til, að haldin yrði af- vopnunarráðstefna. Myndu öll Evrópuríki, Bandaríkin og Sovétríkin taka þátt í þessari ráðstefnu. NTB-Tel Aviv. — Levi Eskol, forsætisráðherra ísrael, baðst í dag lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt, eftir sérstakan ríkis- stjórnarfund í dag. NTB-Nairobi. — .Tomo Keny- atta, forsetí lýðveldisins Kenya sem öðlaðist sjálfstæði í síðustu viku, sagði í þinginu í Nairobi í dag, að Kenya myndi hafa jákvætt hlutleysi sem grund- vallarreglu í utanríkismálum, og myndi ekki leyfa íhlutun annarra ríkja, hvorki frá vestri né austri. NTB-New York. — Ríkis- stjórnin á Kýpur hefur lýst stuðningi sínum við, að friðar- sveitir Sameinuðu þjóðanna á Kýpur verði á eyjunni í cnn aðra þrjá mánuði. Núverandi tímabil rennur út 26. desember NTB-London. — Woolton lávarður, sem var birgðamála- ráðherra í síðari heimsstyrjöld inni og síðar formaður íhalds- flokksins, lézt á mánudagínn, 81 árs að aldri. íhaldsflokkur- inn vann þrennar kosningar í röð undir, hans forystu. NTB-London. — Stormur og mikill sjór gerði mörgum skip- um erfitt fyrir á Norðursjón- um í dag. Fjöldi skipa sendi út neyðarmerki, og fóru björgun arskip út til að aðstoða þau. Eitt skip, Navidad, lenti á sand rifi rétt fyrir utan evjuna Ame- land og kom hollenzkur drátt,- arbátur því til hjálpar. NTB-París. — Halvard Lange utanríkisráðherra Noregs sagði í dag, að lausn á vandamálurn þeim, sem nú steðja að Atlants hafsbandalaginu, væri ekki fyi ir hendi í augnablikinu, en vai aði við of mikilli svartsýni, Lange situr ráðherrafund NATO í París. IKISSTJORNIN SVARAR EKKI Nefnd ASI og BSRB hefur gert tillögur til grundvallar framhalds Með 2 til reiðar í Þorscafé KJ-Reykjavík, 14. des. Það er ekki óalgegnt að mann- söfnuður mikill safnist saman fyr- ir utan dyrnar á Þórscafé um það bil sem dansleikjum lýkur þar á nóttunni. Er fólk þá oftast í bíl- um, og umferðarhnútar vilja gjarn an myndast á Nóatúni og í Braut arholtinu. Á sunnudagskvöldið kom svo maður með tvo til reið ar, upp á gamla móðinn, að dyrum danshússins, og hefur sennilega viljað bjóða einhverri dömunni „heimikeyrslu“ á hestbaki. Ekiki kom þó til þess að einhver af dömunum sem komu af dansleikn lun fengi að sitja gæðinginn, því lögreglan fjarlægði bæði mann og hesta af staðnum, enda var maður inn töluvert undir áhrifum áfeng j is. viðræðum í útsvarsmálunuim. Eins og kunnugt er náðist ekki sam- komulag hjá fulltrúum fyrr- greindra aðila og ríkisstjórnarinn ar um beina læikkun gjalda, en nefndin var þá sammála um, að eðlilegt væri að ráðstafanir væru gerðar af opinberra hálfu að greiða úr tímabundnum erfiðleik um, sem skapazt hafa hjá nokkr um hluta skattgreiðenda, og var lagt til, að þetta yrði gert með því að útvega sikattgreiðendum lán. í blaði starfsmanna ríkis og bæja, sem er nýútkomið, er skýrt frá tillögum launþegasamtakanna, frá 26. okt. s. 1. og fara þær hér á eftir. „Nefnd A.S.Í. og B.S.R.B. hefur kynnt sér greinargerð nefndar þeirrar, sem framkvæmdi athugun á skattálagningu 1964 og telur til- lögur þær, er greinargerðinni fylgdu, allsendis ófullnægjandi, þar eð hækfcun skatta og útsvara í hlutfalli við tekjur allflestra laun þega undanfarin tvö ár sé svo ískyggileg, að brýn nauðsyn sé * 1 á beinni eftirgjöf á álögðum gjöld um á árinu 1964. Vill nefndin nú leggja eftirfar andi tillögur til grundvallar fram haidsviðræðum: Greiðslur útsvars og tekjuskatts verði lækkaðar, og upphæð þeirr ar lækkunar miðuð við fjölskyldu stærð. Þannig verði ákveðin lækk un fyrir hvern einstakling og síð an sérstaklega ladkkun vegna konu og barna og annarra á framfæri gjaldþegns. Þetta nái til allra þeirra ein- staklinga, a) sem ekki hafa sjálfstæðan at- vinnurekstur, eða eru meðeigend ur í fyrirtæikjum þeim, sem gefa upp laun eða hluta af launum þeirra, b) sem eigi hafa orðið berir að því að vantelja tekjur sínar til skatts á skattárinu. Áður gefinn afsláttur sveitafé- laga frá lögboðnum útsvarsstiga dragist frá við uppgjör samikvæmt endanlegum reglum um gjalda- lækkun. í'ramhaid á 14 síðu. Listmuna- sýning í ... Gallery 16 BÓ-Reykjavík, 12. des. Tvær listakonur, Sigrún Jónsdóttir og Hedi Guð- mundsson (frá Austurríki) hafa opnað sýningu í Gall- ery 16 á Klapparstíg. Sigrún sýnir þar batik, messuklæði og upplýst alt ari með batikmyndum, borð dúka, kjóla og gluggatjöld. Má gpta þess, að Kópavogs- kirkja hefur keypt messu- hökul, sem Sigrún sýnir þarna. Einnig sýnir hún rya-teppi úr íslenzkuim efn- um. Þarna eru einnig vegg skreytingar er nota má sem inniglugga. Hedi Guðmundsson sýnir steintau, borðbúnað, katla og pönnur, skálar og flösk T] ur. Steintauið er gert úr innfluttum leir. Þær Sigrún höfðu sanrtinnu um gerð borðbúnaðar, dúka og íláta. Þetta er sölusýning, opin daglega kl. 1—10 til Þor- láfcsmessuikvölds. Helmingur kennara og nemenda í Danmörku á móti afhendingunni Aðils-Khöfn, 14. desember. Umræðufundur um handritin var haldinn" í! Héllerup Gymnas- ium á laugardagskvöldið og lagði Ole Halding, stud. -mag., þar fram skýrslu um heimsóknir til ýmissa lýðháskóla, og kom þar fram, að þar ríkja skiptar skoðanir um afhendinguna. Taldi Halding, að um helmingur kennara og nem enda í dönskum háskólum væru á móti afhendingu. Á fundi þessum var Stefán Karlsson framsögumaður, og fékk hann 30 mínútur til framsögunn ar, en aðrir ræðumenn fengu 10 og 5 mínútur. Ræðutíminn var því alltof stuttur. Engin ný rök komu fram á þessum fundi, en Ole Halding, stud. mag., lagði fram skýrslu um ferðir fjögurra fulltrúa sögustúd- enta við Kaupmannahafnarhá- skóla til margra lýðháskóla í land inu, og kom þar mjög á óvænt í ljós, að lýðháskólarnir eru alls ekki á einu máli um afhending- una. Halding sagði, að það væri alls ekki um neina samstöðu með afhendingunni að ræða þar, eins og fullyrt hefur verið af ýmsum stjórnmálamönnum. Að hans á- liti, þá er um helmingur bæði kennara og nemenda við þá há- skóla, sem heimsóttir hafa verið, andvígir afhendingu Kvað hann t.d. atkvæðagreiðslu hafa farið fram við Vestbrik Höjskole, og hefði meirihlutinn þar verið á móti afhendingunní Háskólalektor dr. phil. Bent; Nordhjem skrifar í Politiken í dag og segist hafa fengið í hend- ur mótmæli „til ríkisstjórnar og þjóðþings“, undirrituð af Hand i ritanefndinni 1964 ásamt korti, þar sem hann getur tekið þátt í mótmælunum. i Síðan skrifar Nordhjem; —] „Það er fljótgert að kasta kort inu í pappírskörfuna, en það er miklu erfiðara að líta framhjá herferðinni gegn afhencfingu ,, ís- lenzku handritanna, sem verður stöðugt umfangsmeiri. Það er á-j stæða til að óttast, að ríkisstjórnin' ákveði að fresta eða hætta við afhendinguna, og að samband okk' ar við ísland verði enn einu sinni fyrir áfalli vegna misnotkunar Dana.” Að lokum skrifar Nordhjem: — „Við verðum aðeins að vona, að ríkisstjórniii gleymi því ekki, að í handritamálinu er um að ræða mikilvæga stjórnmálalega grundvallarreglu. Það yrði skamm arlegt fyrir landið, et ekkert yrði úr afhendingaráformunum. Það myndi verða sérstaklega skammar legt af því að við höfum ríkis- stjórn og þjóðþingsmeirihluta, sem, að minnsta kosti gagnvart öðrum löndum, stefnir að alþj.leg- um skilningi og réttlátu afnámi nýlendukerfisins“. NYJUNG MYNDAVÉLUM KJ-Reykjavík, 10. des. AGFA-umboðið kynnti á dögun- um fyrir blaðamönnum nýjung í framleiðslu myndavéla og fleira frá AGFA verksmiðjunum, sem hér er á boðstólum frá þeim. Nýjungin sem fyrir okkur var kynnt er nefnt RAPID-kerfi, og er þannig að í þar til gerðar myndavélar eru notaðar 35 mm filmur sérstaklega útbúnar fyrir RA.PID vélarnar, og þarf ekiki að þræða þær, heldur aðeins að stinga filmunni í, loka vélinni og færa síðan filmuna. Eru. fram- leiddar fimm mismunandi gerðir af myndavélum þessum. Mynda- vélar þessar eru alveg sérlega góð ar fyrir byrjendur. Öil stærstu og þekiktustu filmu- og ljósmyndavéla félög í Evrópu og í Japan hafa tekið upp RAPID-kerfið, nema KODAK, en ástæðan til þess er sú að Kodak reyndi að skapa ein- okun á svipuðum vélum sem þeir komu fram með árið 1963. | Á blaðamannafundinum kynnti i Hilmar Helgason framkvæmda- ■ stjóri AGFA-umboðsins margar ! aðrar framleiðsluvörur AGFA I verksmiðjanna, svo sem aðrar gerð ir myndavéla, kvikmyndatöku og sýningarvélar, AGFA-segulbönd ' sem notuð eru af 80% allra út- ! varpsstöðva í Evrópu, og að ó- gleymdum AGFA litfilmunum CT 18 sem notið hafa sívaxandi vin- sælda hér á landi sakir hinna skýru lita, skerpu og ljósnæmi sem filmur þessar bjóða upp á. Hilmar ílelgason framkvæmdastjóri og Stefán Thorarensen, en á borðinu fvrir framan'þá eru^íokk- ur sýnishorn af framleiðsluvörum AGFA-verksmiðjanna. (Tímamynd-G.E.).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.