Vísir - 24.12.1934, Blaðsíða 16
VISIR
EFTiR KOLBEIN DÖGLA
Simbi gamli var vel þektur í
vesturbænum.
Lítill maSur vexti meö grátt
bartaskegg, sem var tíská hérna
á árunum, þegar hann var upp á
sitt besta. Nú var hann oröinn
gamall og hrumur. Hokinn í herö-
um með kreptar, sinaberar hendur.
Og stórgerða andlitið í mörgum
fellingum og ótal ellirúnum —
kenjóttur og skrítinn karl aS
mörgu.
Simbi var gamall skútuskip-
stjóri, en hafði nú oröiö ekki ann-
aö fyrir stafni, en að bæta net,
dytta að ýmsu og gera viS hitt og
þetta smávægilegt fyrir karlana,
sem réru út á mið og enn drógu
þorskinn.
Hann bjó í gömlum, uppgjafa
beituskúr niður við vörina, er hann
hafði látið þilja innan fyrir all-
mörgum árum. Börnin hans höfðu
nú reyndar altaf verið að ympra
á því við hann, að flytja sig til
þeirra. — En þegar hún Salvör
gamla, konan hans, hafði nú getað
hokrað þarna í skúrnum, þar til
hún fluttist yfir í paradísina, þá
ætti honum ekki síður að vera þaö
vorkunnarlaust, að vera í skúrnum
þar til hann færi burt fyrir fult
og alt. Og hann kunni svo dæma-
laust vel við sig þarna, innan um
gömlu bátana, tjörulyktina og
slorið — og hér var blessað sjáv-
arloftiö svo hressandi, þegar hann
kom út á morgnana, signdi sig,
tók í nefið og góndi upp í loftið
með spádómssvip um veðráttufar-
ið'og muldraði: „Ja — einhvern-
tíma hefði maSur nú farið á sjó-
inn í öðru eins \eðri, drottinn
minn!“
Þarna í skúrnum liðu dagarnir
í lífi Simba gamla hver af öðrum,
án þess hann yrði þess sérstak-
lega var, þó að reyndar grautaði
hann í almanakinu öðru hverju,
til að sjá hvenær nýtt tungl kæmi,
eða hvenær dagurinn væri lengst-
ur eða skemstur o. s. frv. — Þann-
ig liöu þessir tilbreytingarlau.su
dagar þess lífs er morrar óljóst og
sljótt á öldum tímans og gleymsk-
unnar, er tekur ekki lengur full-
an þátt í lífi umhverfisins, baráttu,
störfum og breytingum tímans.
Nú nálguöust jólin. — Þessi
merkilegu straumhvörf ársins, er
breyta þessum hversdagsblæ lífs-
ins tvo til þrjá daga, með helgi-
kyrð jólanna.
Þorláksmessa. —• Fólksstraum-
urinn rennur um göturnar eins og
æðandi, straumsterkt vatnsfall.
Allir eru aö flýta sér. Það er eins
og alt sé í uppnámi í borginni.
Allir eru að kaupa fyrir jólin. Og
allir eru of seinir, aö því er virð-
ist. —• Verslunargluggarnir eru
uppljómaðir af ljósum og jóla-
varningi. — Kaupmennirnir láta
dyrnar á verslunum sínum standa
upp á gátt, svo margir komist inn
um þær í einu, þegar mikið liggur
við.
Innan um þessa fólksmergð er
nú Simbi gamli að brjóta sér
braut, þótt reyndar hrektist hann
úr leið eins og hjálparlaust og
uppgefið rekald á bylgjum í ólg-
andi stórsjó. Hann er símuldr-
andi fyrir munni sér, sem enginn
heyrir né veitir eftirtekt nema
hann sjálfur: „Hvílíkur bölvaður
asnaskapur fyrir hann, karlfausk-
inn, gamlan og lasburða, að hafa
flækst niður í bæ í þvílíkum stór-
sjó. Og stofnað sér með því hreint
og beint í beinan lífsháska.“
Loks rakst Simbi garnli upp á
sker og staðnæmdist upp á gang-
stétt, fyrir framan stóran sýning-
arglugga, uppljómaðan allskonar
varningi. Og þarna gat hann
nokkurn veginn dregið andann og
hreyft sig, óháður öllum olnboga-
skotum. Þarna var aðeins eitt par
fyrir framan gluggann og horfði
með aðdáun á gljáandi potta og
pönnur, skaftpottar og hakka-
maskínur, er var til sýnis í glugg-
anum.
Simbi gamli stóð þarna um
stund og horfði á glampandi eld-
húsáhöldin og ljósadýrðina í
glugganum, algerlega hugsunar-
laust. Því ekkert ætlaöi hann að
fá sér af slíkum hlutum. En nú
lifnaði yfir Simba. Nú mundi hann
það alt í einu, til hvers hann haíöi
eiginlega flækst niður í bæ. En sú
tilviljun, að hann skyldi stranda
þarna. Alveg á réttum stað. Þetta
var eins og yfirnáttúrleg leiðbein-
ing. Simbi tók upp tóbakspontuna
og skelti henni upp í aöra nösina
og sogaði hressilega upp í nefið,
áður en hann geklc inn í verslun-
ina
Margt fólk var í versluninni.
Simbi beið góöa stund eftir af-
greiðslu. Loks kom að honum.
„Eitthvað ættir þú að fá þér
fyrir jólin, Simbi minn,“ sagði af-
greiðslumaðurinn, er þekti hann
vel.
„jú — 'eg ætlaði nú reyndar aö
vera búinn að fá það fyrir löngu.
En það hefir altaf gleymst. Við
gömlu mennirnir erum svo fjári
gleymnir,“ sagði Simbi. „Eg ætla
bara að fá eina rottugildru.“
„Lívað segirðu ?“ sagði af-
greiðslumaðurinn, er hélt að sér
liefði misheyrst.
„Eina rottugildru,“ endurtók
Simbi.
„Rottugildru ?“ sagði afgreiðslu-
maöurinn.
„Já — rottugildru“, sagði Simbi.
„Það er svoddan ekki sen rottu-
gangur hjá mér. Eg hefi ekki frið
á næturna fyrir þeim, fyrir utan
hvað þær fordjerfa. Og ekkert
g'agn að kattarskömmunum. En eg
æ.tla nú ekki að láta rotturnar éta
mig upp á jólunum.“
„Alveg rétt — augnablik," sagði
afgreiðslumaðurinn.
Eftir litla stund kom afgreiðslu-
maðurinn með litla rottugildru og
sýndi Simba.
„Nei — eg vil þessa ekki, það
er ekkert gagn í svona litlum
gildrum. Eg vil stóra vírgildru,
sem veiðir margar í einu,“ sagði
Simbi gamli.
Simbi fékk stóra vírgildru sem
var eins og fuglabúr í laginu, og
hélt heimleiðis. Margir litu bros-
andi á eftir Simba með rottugildr-
una, óumbúna, dinglandi í annari
hendinni.
Svo kom aðfangadagurinn. —
Og ein stór rotta i gildruna hjá
Simba.
Þegar Simbi var kominn á fætur
og sá hve vel hann hafði veitt
varð hann glaður mjög.
„Jæja — heillin — svo þér hefir
])ótt hangikjötsbitinn hans Svenna
míns góður. — En það verður nú
seinasti biti í þinn háls, skal eg
segja þér. —• En þú verður nú
samt að bíða svolítið dauða þíns,
Eg hefi ekki tíma til að þjónusta
þig,“ sagði Simbi, um leið og hann
tók gildruna og setti hana undir
borðið er stóð hjá rúminu hans.
Litlu síðar fór Simbi burt og
lokaði skúrnum. Hann var vanur
að fara heim til hans Sveins sonar
síns, er bjó þar skamt frá, á að-
fangadaginn til að hjálpa þar
heima við með ýmisleg smástörf,
að höggva brenni í eldinn, sækja
kol og fleiri álíka störf. -— En
heima í skúrnum hans beið rottan
dauða síns i gildrunni.
Það var langt liðið á kveldið,
er Simbi kom aftur heim og var
þá kátglaður. Hann hafði fengið í
staupinu hjá syni sínum, og eina
brennivínsflösku með sér. Hann
Svein var honum góður, blessaður
drengurinn, það mátti hann eiga.
Hann var sannarlega eftirmyndin
hans föður síns.
Simbi fékk sér góðan sopa úr
flöskunni. „Blessað tárið, altaf hit-
ar það manni íyrir brjóstið." taut-
aði Simbi.
Svo fór Simbi að hátta. Slökti
ljóstýruna á lampanum, er stóð á
borðinu og breiddi yfir sig.
Hvað var nú þetta! — tíst og
nag? — Hvað annað, en ekki sen
rotturnar, eins og fyrri nóttina.
En nú mundi Simbi eftir gildr-
unni. Hann var orðinn svo gleym-
inn, að hann mundi ekki nei’tt
stundinni lengur.
„Æ, það ert þá bara þú, sem
ert að emja og jamta. Jú — nú
geturðu látið eins og þú vilt í nótt,
á morgun áttu að deyja, heyrirðu
það, ótætis kvikindið þitt, þú
heldur kannske að eg fari að setja
þig á, sem ert búin að eyðileggja
fiskinn fyrir mér í allan vetur —
ehe — aldeilis ekki kella mín, það
verður nú ekkert af því.“
Simbi teygði sig eftir flöskunni,
sem hann hafði látið undir kodda-
hornið sitt, og hallaði sér síðan
út af.
En Simbi gat ekki sofnað.
Hann lá góða stund vakandi, og
altaf ýlfraði og tísti í kvikindinu í
gildrunni, er hamaðist og braust
urn til að leita sér útgöngu úr
fangelsisfjötrunum. En henni var
um megn að brjótast út úr þessu
rammbygða fangelsi. Hér gagnaði
henni ekki neitt tennurnar, þetta
eina vopn er náttúran hafði lagt
henni til að brjóta sér farborða
og leita sér lífsviðurværis með, í
tilverunni. En nú mátti hún bíða
hér eftir sínurn dauðadónii, með
sárum hugarkvölum á jólanóttinni
—• og játa yfirburði og sterkleika
hins mikla manns er hafði fjötrað
írelsi hennar.
Klukkan sló í skúrnum hans
Simba.
Enn vakti Simbi. — Enn ham-
aðist rottan í gildrunni.
Nú rumskaði eitthvað í Simba.
„Þú ert náttúrlega svöng, kvikind-
is greyið þitt,“ sagði Simbi alt í
einu. — „Ekki get eg látið þig
drepast úr hungri á jólanóttina."
Simbi kveikti ljós á lampákríl-
inu. Sveiflaði ofan af sér sæng-
inni og fór fram úr á bláu, ís-
lensku prjónabrókunum, og byrj-
aði að róta til í kistugarmi í öðr-
um enda herbergisins. Þar geymdi
hann matbjörg sína.
Hann tók upp stórt sax, þvi
smærri hníf fann hann ekki við
hendina. Hann skar smásneið af
hangikjötslæri, er þarna var, vaf-
ið innan í léreftsdulu. Síðan tók
hann þrjá sykurmola upp úr litl-
um stampi. Þar á eftir læsti hann
kistunni vandlega. Nú tók hann
gildruna og sgtti hana upp á borð.
Rottan tísti og ýlfraði ámátlega
og hljóp hrædd til og frá um gildr-
una.
„Suss —■ suss — láttu ekki
svona béskotans aulinn þinn. Eg
sem ætla að fara að halda þér
veislu. Þér hefir víst aldrei verið
boðið í veglegri veíslu,“ tautaði
Sirnbi gamli.
Svo tók Sirnbi hangikjötssneið-
ina og brytjaði hana niður og lét
molana falla niður í gildruna.
Sykurmolana vætti hann i brenni-
vínsdropum og lét þá svo fara
sömu leið.
Síðan settist Simbi á rúmbríkina
og horfði hugfanginn á rottuna í
gildrunni. —•
Rottan nartaði gráðug í hangi-
kjötsagnirnar, ])ví hún var orð-
in mjög soltin, fitjaði upp á trýn-
ið svo skcin í nagtennurnar, og
gaut hrædd litlu mórauðu augun-
um á Simba. En ])egar hún tók til
við sykurinn gleymdi hún stað og
stund. Hvílíkar dájsemdir og sæl-
gætismatur, þetta fékst nú ekki á
hverjum degi í lífi hennar. Og
hvað hann var góður þessi mjúki,
sterki vökvi sem var í hvítu mol-
unum. Hann tók líka burt alla
hræðslu úr brjósti hennar.
Nú var ekki agnarögn eftir af
sykrinum, en einhver mylsná af
hangikjötsbitunum. — Rottan
rorraði um gildruna völt á fótun-
um. Hún reis upp á afturlöppun-
um og teygði sig upp eftir gildr-
unni og glápti óhræddum forvitnis-
augum á Simba, er lá frarn á borð-
ið og horfði líka á hana.
„Svo þér þykir gott brennivín,
fyllisvínið þitt litla,“ sagði Sirnbi
gamli.
Simba gamla þótti orðið garnan
að rottunni og horfði með mikilli
eftirtekt á allar hennar hjákátlegu
hrcyfingar og tiltektir. Hún slag-
aði um gildruna eins og drukkinn
maður og lét öllum verstu skrí-pa-
látum. Og nú var það Simbi gamli,
sem skríkti og hló.
Þegar Sirnbi hafði skemt sér dá-
litla stund, við að horfa á rottuna,
kom einhver jólahugleiðing yfir
hann. Hjartnæniar og viðkvæmar
tilfinningar brutust um í huga hans.
„Þetta var nú bara lítið kvik-
indisgrey, sem var að hjarga sér og
sínum í' tilverunni, með sínar til-
finningar innanbrjósts. Og kannske
át'ti hún börn í holunni sinni, agn-
artæfan sú arna. Hún var kannske
mamma eða pabbi og börnin biðu
grátandi heima — og það á jólun-
um. Eg hefði átt að drepa þig
strax. En á jólunum — það
get eg ekki. —• Það er næst-
um synd að drepa smærri kvikindi
en þig á jólunum,“ tautaði Simbi,
um leið og hann klóraði sér í höfð-
inu. — „Nei — mig dreymir víst
ekki fallega í nótt, ef eg kvel þig
svona, skömmin þín litla.“ —
Simbi teygði sig eftir utanyfir-
buxunum sínum, er lágú á rúmgafl-
inum, smeygði sér í þær og setti á
sig skóna. Hann tók gildruna þegj-
andi aí borðinu og gekk út og nið-
ur í fjöru með hana, dálítinn spöl
frá skúrnum. Þar lét hann hana
niður og sagði um leið:
„Jæja, greyið mitt — það er vist
best, að eg gefi þér lif, af því að
það eru jóhn, og fjölskyldan er ef
til vill sorgbitin heima.“ Svo opn-
aði hann gildruna, Og rottan var
ekki sein á sér að hverf.a,
„Gleðileg jól! — En eftir hátíð
er enga miskunn hjá mér að finna.
Mundu það,“ kallaði Simbi gamli á
eftir henni.
Síðan lallaði Simbi heim í skúr-
inn 6in.n með tórna rottugildruna.
Hann stóð lengi úti og horfði á
norðurljósin, er sveifluöust um
himinhvolfið meS leifturhraða og
stjörnurnar, er tinclruðu á dökk-
bláu himinhvolfi næturinnar. En
hvaða hugsun hefir farið um huga
hans, er ekki gott að segja. Ekki
var hún um kvikindið, sem hann
hafði þyrmt. Hann var eflaust bú-
inn að gleyma því. — Hann var
svo hræðilega gleyminn. — Þegar
Simbi kom inn, fékk hann sér einn
dramm úr flöskunni hans Sveins
sonar s’ms, og hallaði sér síðan út af.
Eftir litla stund hefði hver og
einn, er átt hefði leið fram hjá
skúrnum hans Simbá gamla, getað
heyrt hann hrjóta hátt og sællega í
friðsælum svefni gleymskunnar.
GLEÐIIÆG JÖL!
L jósm yndaslofa
Karls Ólafssonar.
éY-k Ns'4. S\'4 .^4 ^M/^. ^14 ^M/^ ^M/;. ^M/^ ^M/^ ^M^. ^M/^ .-M4 ^M/^. .v'J/y. _vM4 ^M4
ZÁý? 'éÁS? 'SS’ §4^ §&£ Áág* §4g> íáS1 k'J?
M
CvM £.
- m..’
^M4
^M 4
^M/^
M
GLEÐILEG JÓL!
OsM-fe.
0>M4
^M/i-
m
Á. Einarsson & Funk.
^14
Ék JÉi
A'/í: eéþi- '4 N'!L ^'4. SM4 ^>4 .^14 .^04 j$,i4 R14 .^14 jM4 N-'/-. ^'4. SS'4 .^4 .^14 .^14 ^14 .^4 .^14
Ms? gáS Sáá> Lký §4^
jM4
^M^.
^M/^.
^M/^
M
H
GLEÐILEG JÓL!
Símon Jónsson.
M
M
m
^M/tf.
-S'Þ./. .vML .>$'4 .0J4 .->14 .^14 .»$14 ^14 ^14 ^14 ^\]4 _v,M4 ^14 ^14 ^,14 ^14 N'i4 -S',4 SN'L jM4 -A'L- ^>4’
W? W? && jjjJ? íM? ^ ^ m é᧻ íMp Mzir
GLEÐILEG JÖL! GOTT NÝTT ÁU!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Versl. Lilju Hjalta,
Austurslræli 5.
LÍLL «) Aýfí. T'Þ '" F f" '^T|
ilcmigbfataftrcinguö eg (itutt
aus.0,3 34 1300
GLEÐ1LEG JÓL!
_\M 4
M
^M4
^14
M
^M/^
^M4
Il/f. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
sendir viðskiftavinum sínum nm land alt
bestu jóla og ni'jáirsóskir.