Vísir - 20.06.1935, Blaðsíða 26

Vísir - 20.06.1935, Blaðsíða 26
26 VÍSIR Happdrætti Háskóla íslands. Háskóli íslands er hvort- tveggja í senn óskabarn þjóðar vorrar og fjöregg hennar. Um hann stendur þjóðin óskift, og sómi hans er sómi hennar sjálfrar. Háskóli vor var stofn- aður 17. júní 1911 á aldar- afmæli Jóns Sigurðssonar for- seta og verður varla sagt, að hann hafi getað skapast undir meiri heillastjörnu en þeirri, sem hin mesta þjóðhetja vor átti sér. Það er alkunnugt, að fjár- hagslega séð var stofnun Há- skóla íslands meira af vilja en mætti. Háskólinn átti í upphafi ekki einu sinni von um það, sem honum var þó bráðnauð- synlegt, veglegt hús, þar sem honum væri borgið með full- komið næði á komandi tímum. Honum var holað niður í stofu- bygð Alþingishússins við Aust- urvöll, og við þau húsakynni hefir hann orðið að búa frá því er hanp var stofnaður eða um nálega 24 ára skeið. Sem betur fer hefir vöxtur og viðgang- ur þessarar æðstu menta- stofnunar þjóðar vorrar orðið sá, að gömlu húsakynnin eru orðin Háskólanum allsendis ónóg. Við þau verður með engu móti unað lengur. Þetta er ekki einungis á vitorði forráða- manna þjóðar vorrar, heldur veit þjóðin það öll. Og nú hefir verið hafist handa með sam- þykki þings og stjórnar og stuðningi fjölda góðra manna hér á landi um að ráðast í að Ijdta því Grettistaki að reisa veglega háskólabyggingu í Reykjavik. Aðferðin til fjár- söfnunar i því skyni er: Happdrætti Háskóla íslands, sem hér skal að nokkuru lýst, svo að lesendum þessa blaðs verði fullljóst, hvað hér er um að íæða. Þeir, sem vilja kynna sér ýt- arlega, hvernig happdrætti Há- skóla íslands er háttað, fá ör- uggasta fræðslu um það efni í lögum þess, en þó einkum i reglugerðinni um happdrættið, sem nú hefir verið prentuð í aðalatriðum i snotru hefti, sem hapjjdrættið hefir látið gefa út. Happdrættið starfar í 10 flokkuin frá mars til desember og tekur því yfir eitt ár í senn. Tveir fyrstu mánuðir hvers árs ganga frá, enda er sá tími nauð- synlegt hlé til þess, að hægt sé að Ijúka við reikningsskil og undirbúa rækilega viðskifti næstkomandi árs. Samgöngur hér á landi eru allerfiðar tvo fyrstu mánuði ársins, og mundi þar af leiðandi vera örðugt að starfrækja happdrættið á þeim tíma. Vegna mismunar á flokkun- um fær happdrættið nokkurs konar fasta viðskiftamenn á ári hverju. Gjaldið, sem greitt er fyrir þátttökuna, er jafn- hátt fyrir alla flokka, og Iiggur það í augum uppi, að mjög óheppilegt er að hætta þátttöku eftir að menn hafa byrjað að skijita við happdrættið. Sá mað- ur, sem það gerir, hefir greitt gjald sitt fyrir fæstu og minstu hajijiavonirnar, en missir, ef liann skerst úr leik, allar happa- vonir síðari drátta ársins, sem eru miklu fleiri og stærri, eins og síðar mun sýnt. Sá, sem kaupir happdrættis- miða i fyrstu flokkum hvers árs, er i raun réttri að greiða aðgangseyri að síðari dráttun- um og kaupa sér þar með rétt tii þess að taka þátt í hinum fjölmörgu, stóru vinningum, sem dregnir eru út síðara hluta ársins og þá einkum i desem- ber. Af þessu leiðir, að sá, sem ekki hefir tekið þátt í happ- drættinu frá byrjun hvers árs, getur ekki fengið að koma inn í siðari flokkana nema með þvi móti, að hann greiði andvirði miða sinna frá upphafi. Þetta gera sumir, og er það ekki óskynsamlegt, því að yfirgnæf- hlutur í 5. flokki 1935 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Dráttur fer fram 10. júlí 1935 Falli vinninaulr ó miðann er oigandi skyl- d»r tíl að kaupa Vj hlut i 6.— 10. ftokk* Endurnýion til 6. fl. 24. júlí—3.ágúst 1935 gegn afhending þessa mtða. Úmboðsmaður happdrwttisins. Söluverd 30.00 Endurnýjunar- verð 6.00 andi þorri vinninganna er í að þeir vinni mikið i fyrstu síðari flokkunum. Þó er öllum dráttunum. viðskiftamönnum happdrættis- Eins og sjá má af eftirfarandi ins ráðlegast að taka þátt í þvi vinningaskrá, eru vinningarnir frá byrjun hvers árs, enda þótt mjög mismunandi í flokkun- fremur litlar líkur séu fyrir því, um: 1. fl. hefir 200 vinninga, samtals 36.200 kr. Hæst 10.000 kr. 2. — — 250 — — 47.000 — — 10.000 — 3. — — 250 — — 48.800 — — 10.000 — 4. — — 300 — , — 56.600 — — 10.000 — 5. — — 300 — — 63.400 — — 15.000 — 6. — — 350 — — 71.600 — — 15.000 — 7. — — 400 — — 83.400 — — 20.000 — 8. — — 450 — 4 — 90.200 — — 20.000 — 9. — — 500 — — 103.900 — — 25.000 — 10. — — 2000 — — 448.900 — — 20.000 — Samtals eru vinningarnir, 1500000 eða 70%. eins og lög mæla fyrir, 5000 að Ef athugað er, hve mikið af tölu af 25000 hlutum, og kemur innkomnu fé fyrir selda miða er því vinningur að meðaltali á greitt út í hverjum flokki, í fimta hvern hlut. En fjárhæð vinninga, þá verður úlkoman vinninganna er 1050000 af þessi hér um bil: f 1. fl. 24% eða tæpur fjórði partur. - 2. — 31.5%. - 3. — 32.5% eða tæpur þriðjungur. _ 4. — 38%. - 5. — 42%. -6. — 48% eða ekki enn helmingur. - 7. — 56%. _ 8. — 60%. - 9. — 68% eða ekki alveg lögmælt meðaltal. - 10. — <299% eða þreföld upphæð iðgjalda. Þessar tölur sýna betur en nokkuð annað, hve óhyggilegt er að hætta viðskiftum við happdrættið eftir að hafa borg- að fyrir fyrstu flokkana. Það er jafnvel ekki frágangs- sök, að byrja viðskifti á undan 9. drætti, og borga fyrir alla hina, þvi að tveir síðustu drætt- irnir hafa helming allra vinn- inga að tölunni (2500) og meira en helming allrar vinn- ingafjárhæðarinnar, eða 552800 lcrónur af 1050000 krónum. Á sama númer getur i happ- drætti Háskóla íslands fallið vinningur í öllum flokkum, og eykur það likurnar til þess, að menn hljóti háa vinninga. Ef stærstu vinningar i öllum flokk- um lentu í sama númeri, mundi það færa eiganda sínum hvorki meira né minna en 185.000 kr. á heilan miða á einu ári! Þegar lokið er endurnýjun og sölu miða i ákveðnum flokki, fer fram dráttur til þess að vita, hverjir hljóta skuli vinninga þess flokks. Drættir fara jafnan fram 10. dag mánaðarins eða 11., ef þann 10. ber upp á helgidag. í 10. flokki eru vinn- ingar þó svo margir, að drátt- urinn tekun tvo daga, 10. og 11. desember. Vinnmgar samtals: 1 vinningur á 50.000 kr 2 vinningar - 25.000 — 3 — - 20.000 — 2 —- - 15.000 — 5 — - 10.000 — 10 — _ 5.000 — 25 — - 2.000 — 75 — . 1.000 — 187 — 500 — 725 — 200 — 3965 — 100 — 5000 Gerist viðskiftamenn happ- drættisins strax i dag, ef þér eruð það ekki áður. Með þvi leggið þér stein í væntanleg 50.000 kr. 50.000 — 60.000 — 30.000 — 50.000 — 50.000 — 50.000 —- 75.000 — 93.500 — 145.000 — 396.500 — 1.050.000 kr. húsakynni veglegustu menta- stofnunar íslands og öðlist tæki- færi til að eignast stórfé fyrir tiltölulega lítið gjald.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.