Vísir - 20.06.1935, Page 32

Vísir - 20.06.1935, Page 32
I 32 VÍSIR VerksmiOjurnar á Barónsstíg 2 í Reykjavik. Þegar komið er inn á hornið á Slcúlagötu og Bar- ónsstíg í Reykjavík, blasir við þriggja hæða stórhýsi, 56 metra langt og 14 metra breitt. Þetta hús var reist á árunum 1933—'3k og eru þar ná starfrækt þrjú verk- smiðjufyrirtæki: BRJÓSTSYKURSGERÐIN NÓl, SÁPU- VERKSMIÐJAN HREINN og SÚKKULAÐIVERKSMIÐJ- AN SIRÍUS. 1 þessum verksmiðjum vinna samtals um ¥) manns, undir sameiginlegri yfirstjórn, og skal hér gefið nokkurt yfirlit um starfsemi þeirra. Brjöstsykurs' gerðin Nöi Sápuverksmiðjan Hreinn fyrst rekin í húsinu Skjaldborg við Skúlagötu, og þar var hún enn, er eigendur Nóa keyptu hana árið 1930, en vorið 1934 fluttist hún í verksmiðjuhúsið við Bar- ónsstíg 3. Voru henni ætluð þar fullkomin húsakynni og jafnframt keyptar til hennar nýtísku vélar, og út- lendur sérfræðingur fenginn til að fullkomna starfsemi hennar. Hreins-vörurnar eru þegar orðnar að góðu kunnar um land alt, og framleiðir verksmiðjan nú orð- ið f jöldamargar vörutegundir, svo sem allskonar sápu- tegundir (kristalsápu, grænsápu, stangasápu, handsáp- ur margar tegundir, raksápu og sápulög), allskonar kerti, skóáburð, állar tegundir, gólfáburð í ýmsum lit- um, fægilög, ræstiduft, vagnáburð, baðlyf að ógleymdu sjálfvirka þvottaduftinu .,Hreins hvítt', sem nú er mjög að ryðja sér til rúms á íslenskum markaði. var stofnuð árið 1920 og starfaði fyrst um sinn á Óðinsgötu 17, í tveim herbergjum og með næsta ófull- lcomnum tækjum. Bjó hún til 6 tegundir af brjóstsykri og varð brátt vinsælt fyrirtæki. Leið ekki á löngu, þar til brjóstsykursgerðin varð að flytja í rúmbetri húsa- kynni, og varð það úr, að reist var verksmiðjuhús á Smiðjustíg 11. Voru þau húsakynni stórum betri en verksmiðjan hafði áður átt við að búat og jókst nú starf- semi henriar að miklum mun. Tók Nói nú að búa til konfekt, saftir, soyjur og gosdryklci, eftir að hafa keypt Gosdrykkjaverksmiðjuna Kaldá. Þessa gosdrykkjaverk- smiðju seldi Nói síðan Ölgerðinni Egill Skallagrimsson árið 1934, er Nói fluttist í nýju húsakynnin á Baróns- stíg 2. Starfsemi Nóa er orðin geysimikil, og framleiðir verksmiðjan um 30 tegundir af brjóstsykri, karamell- ur, konfekt, tyggigúmmi, gerduft, eggjaduft, soyur, saft, edik o. fl. — Er hér alt unnið í fullkomnustu vélum og úr besiu fáanlegu hráefnum, enda hafa vörur verk- smiðjunnar áunnið sér vinsældir neytenda um alt land. hefir verið starfrækt í Reykjavík um allmargra ára skeið, og er löngu orðin landsmönnum lcunn. Hún var Súkkulaðiverksmiðjan Siríus var upphaflega danskt fyrirtæki, eign hins heimskunna firma Galle & Jessen í Kaupmannahöfn og starfrækt i fríhöfninni í Khöfn. En þegar markaðurinn hér á landi og víðar erlendis lokaðist vegna innflutningshafta, var að mestu tekið fyrir starfsemi þessarar verksmiðju. Þá var það áirið 1933, að eigendur Nóa sömdu við Galle & Jessen um kaup á verksmiðjunni og var hún síðan flutt hingað í ársbyrjun 1934 og hóf starfsemi sína í byrjun apríl það ár í verksmiðjuhúsinu á Barónsstíg 2. 1 fyrstu áttu Galle & Jessen % af hlutafé verksmiðjunnar, en ný- lega hefir hlutur þeirra verið keyptur af eigendum Nóa, svo að nú er fyrirtæki þetta o r ð i ð alíslenskt. Súkkulaðiverksmiðjan Siríus framleiðir sömu góð- kunnu súkkulaðitegundirnar, sem hér hafa verið seldar með merki hennar um fjöldamörg undanfarin ár, og hvert mannsbarn hér á landi þekkir: S i r í u s s ú k lc u- l a ð i (konsum), F á n a s ú k k u l a ð i og „3 4 4 4“,sem allt er suðusúkkulaði, en auk þess býr verksmiðjan til margar tegundir af átsúkkulaði og iðnaðarsúkkulaði ( Overtræk-súkkulaði).

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.