Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 4

Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 4
4 JÖLABLAÐ VISIS hann einnig gefið honum heila til að hugsa og álykta, og ætti það að bæta honum upp mismuninn á kröftum. Er þess vegna nokkur hér viðstadd- ur, sem vill berjast við þetta tígris- dýr, án þéss að nota vopn?“ Dauðaþögn fylgdi þessu boði Af- kuns, og þegar allir höfðu hafnað því, mælti hann: „Ágætt, þá skal ég gera það.“ Síðan lagði hann frá sér vopn sín -'og allt er gæti hindrað hreyfingar hans, og tók sér því næst stöðu á litlu sléttlendi nálægt runnum þeim, sem tígrisdýrið mundi stökkva út úr. Eft- ir að merki hafði verið gefið, börðu þeir, sem reka áttu dýrin, bumbur sínar, og hið ógurlega villidýr kom í ljós út úr rumjunum. Þegar Jehang- ire keisari sá stærð dýrsins, lék um varir hans illgirnislegt bros. Hann var fullviss um, áð enginn mannleg- ur maður gæti barizt vopnlaus við slíka ófreskju. Afkun nálgaðist hægt, en tígrisdýr- ið stóð í sörnu sporum og urraði grimmilega. Þegar hann átti eftir fáein fet að dýrinu, stökk það á mót- stöðumann sinn. En um leið tókst Sheer Afkun með snarræði sínu að sveifla sér á bak tígrisdýrinu, og dýr- ið og maðurinn veltust um í æðis- gengnum átökum. Á næstu augna- blikum var erfitt að greina hvað var að ske. Eitt augnablik varð hlé á bardaganum, og sást þá, að Shere Afkun hafði lilotið sár, sem blæddi ákaft úr. Aftur réðst hann á tígris- dýrið og i þetta sinn tókst hon- um að grípa með vinstri handiegg um liáls þess, og lierða að með heljarafli. En liálstakið var ekki nægilegt til að kyrkja tígrisdýrið, því að hálsinn á slíkum dýrum er eins og trjábolur, en það neydd- ist samt sem áður til að halda kjaftinum opnum. Og nú skeði það sem menn hafði sízt grunað. Shere Afkun tróð bægri liendinni og handleggnum eins langt upp í tígrisdýrið eins og hann gat, og lok- aði þannig fyrir barkaopið. Nú náði bardaginn hámarki sínu. Mað- urinn og tígrisdýrið veltust og hentust til í þessum hryllilegu faðm- lögum, og áhorfendunum fannst líða heil eilífð unz dýrið fór að sína merki þess, að endiriim færi að nálgast. Sliere Afkun liélt stöðugt taki sínu um báls dýrsins, og að lokum tók það siðasta kippinn og allur máttur þess var þrotinn. Stundarkorn lá Shere Afkun lireyfingarlaus við hliðina á tígrisdýrinu. Jeliangire, sem hafði varla þorá'ð að draga andann meðan á bardaganum stóð, vonaði að Afkun mundi ekki rísa á fætur aftur, en honum varð ekki að von sinni, — Shere Afkun reis á fætur. Hann vár reikull í spori og lionum blæddi ákaft úr sárum sínum, en hann var lifandi. Fregnin um afrek þetta flaug eins og eldur í sinu um allt ríkið og jafnvel keisarinn sjálfur varð að votla Shere Afkun aðdáun sína. Jehangire keisari var viti sínu fjær af öfundsýki. Ást hans til Mher-uI-Nissa óx með degi hverjum. Nokkrir mánuðir liöfðu liðið síðan Shere Afkun hafði barizt við tígrisdýrið og Jehangire liafði borizt til eyrna önnur saga um af- rek, sem Shere Afkun hafði unnið. Einn af hirðmönnum keisar- ans, sem vildi vinna hylli hans, liafði leigt 40 illræðisménn til að fara til heimilis Shere Afkun og myrða hann. Þeir höfðu komið þar að næturþeli, meðan hann var sofandi, en einn af þeim liafði þá skyndilega fengið samvizkubit af þessu óhæfuverki, sem þeir voru í þann veginn að vinna, og hafði hrópað: „Hvílíkir níðingar er- um við, að ráðast fjörutíu að einum sofandi manni?“ Þetta var nóg til að Shere Afkun vaknaði og bjóst til varnar. Með sverði sínu felldi hann sex þexrra, særði nokkra en liinir di-eifðust á flótta. Shei-e Afkun var nú ljóst orðið, að setið var um líf hans, og á- VISIR óskar öilum lesendum sínum obiÉUjhCL lóía !

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.