Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 20

Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 20
4 20 fylgzt með fæðingu Jesú og um- búnaði lians i jötunni á Betli- hemsvöllum. Þegar lestri og söng var lokið og hver hafði óskað öðrum gleðilegra jóla í saklausri ein- feldni og trú, voru jólagjafirn- ar bornar inn, nýir skór og stórt jólakerti. Hvílík dýrð var ekki að eiga kertið sitt sjálfur! Og hvílíkur munur var ekki að sjá gömlu baðstofuna alla upp- ljómaða af ljósum! Þegar búið var að úthluta kertunum og skónum, kom Jón* bróðir minn úr haustvertiðinm. Breyttist það í nýjan jólafögn- uð, að sjá hann koma fannbar- inn inn í baðstofuna, eftir 12 stunda hvíldarlitla göngu frá Heiðarbæ í Þingvallasveit. Hví- likur fögnuður að fá hann heim, sem einann vantaði í hópinn, og það i þessu veðri! Nú fyrst var jólagleðin fullkomin. Ekki máttum við spila á að- fangadagskvöldið, en í allskon- ar leiki máttum við fara. Jafn- vel máttum við taka hljóðfærið okkar og spila á það, blessaða v greiðuna; það mátti svo sem skemmta sér við hana og skoppa eftir hljóðfallinu í henni, þegar spilað var á hana af list. Það þurfti svo sem ekki að vera neitt dauft kvöldið það, sem hún fékk að vera í gangi af krafti. Snemma vöknuðum við ung- lingarnir á jóladagsmorguninn við það, að okkur var fært kaff- ið og kúfaðir diskar af lumm- um og vöflum í rúmið. — Þá var strax á eftir sungið og les- ið, áður en farið var út til að gegna skepnunum. Eg eignaði mér hest, sem hét Hegri. Hon- um mátti eg til með að gefa svolítinn aukabita á afmælis- daginn minn; hann var svo þæg- ur og góður, og mér þótti svo ósköp vænt um hann. Þá flýttu yngri drengirnir sér einnig á fætur til að gefa sínu fé: horn- um, leggjum og kjálkum. Það stóð lika heima, að þegar þessu var lokið, voru askarnir bornir inn með hnausþykkum rúsínu- graut úr tómri mjólk, og gríðar- stór kaka og kæfa með. Já, nú gat maður þá farið að borga spilaskuldina við Simba, og það vel úti látið. Kallaði eg nú á hann afsíðis með askinn minn, — því síður vildum við láta aðra sjá þessi skuldaskipti, — og kvaðst nú geta borgað vel. En þegar eg ætlaði að fara að byrja/ þvertók hann fyrir að taka neitt af mér og sagðist vera sjálfur svo ríkur; svo mætti aldrei * Jón lifði aðeins þessi síðustu jól. Dó haustið 1889. JÓLABLAÐ VlSIS Nmáþættir. Furidnir peningar. „Eyrarb.,16. marz 1890: Bóndi einn hér á Eyrarbakka, Vigfús Halldórsson i Simbakoti, ætlaði í gær að rífa sundur til elds- neytis gamia kistu, er hann átti. Hann byrjaði á þeim enda kist- unnar, sem handraðinn var í, og þá varð hann þess var, að nokkrir peningar hrundu úr leynihólfi, sem var innan á kistugaflinum undir handrað- anum. Þegar hann fór að að- gæta þetta betur, fann hann þar peningapoka með 79 spesíum 42 ríkisdölum einum fírskild- ing og einum túskilding. Leyni- hólf þetta var fyrir öllum gafli kistunnar, frá handraða niður að botni og út til beggja hliða. Peningunum var raðað í pok- ann þannig, að þrír og þrír voru hver við hliðina á öðrum. Pokinn var úr lérefti og var saumaður i gegn milli hverra raða, svo eklci gat hringlað neitt í þeim. Hann fyllti einnig mátu- lega út í allt hólfið. 27 spesí- urnar voru frá rikisstjórnarár- um Kristjáns 7.; 48 frá ríkis- stjórnarárum Friðriks 6. og tvær frá ríkisstjórnarárum Kristjáns 8. — Elzta spesían hefir verið mótuð árið 1787, sú yngsta 1840. Yngsti ríkisdalur- inn 1842, og firskildingurinn 1836 og túskildingurinn 1654. Allir peningarnir vógu 6 pund. Kistu þessa keypti Vigfús í maí- mánuði 1888, á uppboði eftir Hjört bónda Þorkelsson á Bola- fæti i Ytrihrepp. verzla á' jóladaginn. Gaf hann mér aldeilis upp alla skuldina, hálfa köku og 30 grautarspæni; þvilík gjöf! Svona urðu allir góðir á jólunum. Margir hafa áður lýst jólamat í fyrri daga og sleppi eg því liér. En margar vinnukonur treindu sér jólakertið fram á góu, og gamall maður dó hjá mér 1918, um Jónsmessu, og átti hann þá mikið eftir af jólaketi sínu. Vanalega vöktu allir yfir spil- um alla annarsdagsnótt. — Þá voru ekki eins margar skemmtanir og nú, nema þeir, sem lyftu sér upp til kirkju. En hvað um það; við eldra fólkið höldum okkar hugljúfu endur- minningum frá bernskuárunum um jólin í heiðri, þegar við sát- um við hné föður og móður og trúðum í barnslegu sakleysi á fæðingu Krists og velgerðir guðs til okkar mannanna. Gömul kona ein hér í bæn- um, Þorlaug Árnadóttir, ættuð af Mýrum, segir svo frá: „Sigriður Ilafliðadóttir, Kol- beinssonar, hefir kona heitið, sem dáin er fyrir allmörgum ár- um vestur á Mýrum. Hún var vinnukona hjá síra Guðmundi heitnum Vigfússyni, er siðar varð prófastur, er hann flutt- ist að austan vestur að Borg á Mýrum. Hún giftist ári siðar Jóni bónda Sigurðssyni frá Hjörsey; hún var síðari kona hans. Þau eignuðust son, er Guðjón heitir, síðar bóndi á Ánabrekku á Mýrum. Faðir Sigríðar, Hafliði Kol- beinsson, var einn i „Kambs- málinu“ og varð að sigla fyrir það á Brimarhólm. Honum græddist fé erlendis, því hann var snillingur að atgerfi, og samhaldssamur mjög. Komu fram eftir hann látinn 800 rík- isdalir, sem voru á vöxtum ut- anlands, síðan hann var þar, og erfði Sigríður dóttir hans það fé. Hann drukknaði á Eyrar- bakka fyrir 40 árum. Ekki komu fram neinir peningar eft- ir ltann hér, og furðaði það margan, því hann var haldinn peningamaður. Munir hans voru seldir á uppboði. En nokk- uru síðar dreymir Sigriði dótt- ur hans, að faðir liennar kem- ur til fiennar og segir við hana: „Peningarnir eru í gaflinum“. Hann sagði ekki i hvaða gafli, og þvi hafði hún ekki gagn af draumnum. En draumurinn styrkti grun hennar, að faðir hennar hefði látið peninga eftir sig, og fólgið vandlega, svo sem hann átti lund til. Honum hafði einhverju sinni orðið það að orði, að utanlands, þar væru vandgeymdir peningar. Dóttir hans vakti einu sinni máls á því, að hann segði sér í trpn- aði, hvar hann geymdi peninga sina. „Nei, ekki gjöri eg það“, svaraði hann. „Þú átt vin og þú segir honum, og svo á hann vin og hann segir honum.“ Meira fékk hún ekki. I hvaða gafli voru pening- arnir geymdir? Hvar annarstaðar en í kistu- gaflinum á kistugarminum hans Vigfúsar í Snnbakoti. Þetta flaug Þorlaugu óðara í hug, er hún las um peningafundinn. Enda kem- ur aldur peninganna allvel heim við það, að svo gæti ver- ið; yngsti peningurinn er frá 1842. — Þær Þórlaug og Sig- ríður voru samtíða eftir að Sig- ríður kom vestur, og sagði hún lagsystur sinni sögu þessa. Voru þær vinkonur alla tíð, eftir að þær kynntust. Sigríður var kona vönduð til orðs og æðis og vel látin alla ævi. Það var árið 1846, sem Guð- mundur prófastur Vigfússon flutti frá Stóra-Núpi að Borg. Ævilok Hafliða Kolbeinssonar. Hafliði Kolbeinsson átti, eft- ir dómi hæstaréttar, að sitja æfilangt í fangelsi, en fékk það- an lausn og kom aftur út hing- að (að mig minnir 1848) og settist að hjá Þorleifi bróður sínum á Háeyri á Eyrarbakka. Hafliða var margt vel gefið; hann var gáfumaður og góður. læknir, og fyrir þá sök gekk hann eigi að útivinnu í Kaup- mannahöfn, eins og altitt var um menn í hans stöðu á þeim tímum, en í þess stað var hann öllum stundum í sjúkrahúsi þeirra. I frítimum sínum hafði hann á 16 árum eignazt og dreg- ið saman eittlivað um 800 rdl. Veturinn síðasta, sem Hafliði lifði (1848—49) bar svo til einn morgun, að formaður einn þar á Eyrarbakka, Magnús i Foki, gengur í bæinn á Háeyri, spyr Þorleif Kolbeinsson, hvort hann geti ekki léð sér mann til róðurs í dag, þvi að einn af há- setum sínum sé veikur. Þorleif- ur kveðst engan mann hafa. 1 þessu vaknar Ilafliði og seg- ir: „Eg held það sé mátulegt að eg konri, mig langar til að vita hvort eg er búinn að týna ára- laginu.“ ViðL það fer Magnús. En Hafliði fer að klæða sig. Meðan hann er að því, segir hann við Þorleif bróður sinn: „Það var kynlegur draumur, sem mig dreymdi i nótt. Mig dreymdi, að ég var að hlaupa upp brimgarðinn hérna útifyrir og þótti mér sjórinn vera svo heitur, að hann ætlaði að brenna mig um bringspalirnar." Veður var gott þenna dag, hægur á útsunnan, en milli dag- mála og hádegis var komið svo mikið brim við Eyrarbakka, að ég heyrði sjávarhljóðið upp að Hjálmholti, þar sem é'g átti heima. I því brimi fórst Haf- liði Iíolbeinsson og þeir allir á skipinu með Magnúsi í Foki.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.