Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 18

Vísir - 22.12.1944, Blaðsíða 18
18 JÖLABLAÐ VlSIS Helluland. og þar var Sölvi Jónsson. Ekki man eg hver var þar oftast við færið. Veiðarfæri voru hin sömu notuð og gert hafði verið á há- karlaskipum; hefir svo- mikið verið ritað um þær veiðiaðferð- ir og veiðarfæri, -að eg tel óþarfa að fara að lýsa því hér. (Sbr. „Hákarlaveiðar og hákarla- menn“, „Virlcir dagar“ o. fl. o. fl.) — Það er ekki að orðlengja það, að þarna á ísnum var eg í fhnm daga. I myrkri á kveldin gengum við heim að Hellulandi og gistum þar í bexta yfirlæti. Snemma að morgni var svo far- ið út á ísinn. Það var um hálf- tíma gangur frá Hellulandi út að vökunum í ísnum. Veður var oftast vont. Nær því alltaf nöpur norðangola og frost og oft mikil fannkoma, tímum saman. En verkið var erfitt, sem flestir höfðu, að draga hákarlinn í land, yfir ó- sléttan ísinn. Voru tveir og tveir um hvern hákarl og svo var veiðin ör, að alltaf varð að halda vel áfram. — Þegar hákarl kom upp, var hann skorinn á kvið, og tekin úr honum lifrin og önnur innýfli; lifrin var látin í stamp og þegar Iiann var orð- inn fullur, var honum ekið í land og tæmdur í tunnur. Stein- ar voru látnir í magana og þeim sökkt í sjó. Sóknirnar voru látnar liggja yfir nóttina, var þá ætíð á þeim, að morgni, haus af hákarli, þvi félagar hans höfðu étið hann upp til agna. Eg skoðaði i marga hákarla- maga, og voru þeir alveg tómir af öðru en þessum hákarli, er þeir höfðu étið og hákarlainn- ýflum, nema stöku sinnum skeljabrot og einu sinni stykki af sel, spik og skinn samfast; hafði hákarlinn auðsjáanlega glefsað stykki úr selnum. — Jón í Nesi lofaði mér tvisvar eða þrisvar að vera við sókn- ina og dró eg í hvert sinn há- karl. Jónas bróðir Jóns var við sóknina við og við; var hann ekki fiskinn, sögðu menn; keip- aði hann oft ákaft, en það töldu hákarlamenn óheppilegt. Einu sinni krækti hann hákarl, og krækti í hann um miðju; stóð svo hákarlinn, sem var lítill (um 2 metra langur) þversum fyrir í vökinni og var það margra klukkutíma vinna að stækka vökina, svo að hægt væri að ná honum upp. Þetta tafði veiðina og hlaut veiðimað- urinn mörg ónotaleg orð, en liann var hinn mesti geðprj'ðis- maður og sagði fátt. — Daginn eftir að eg kom út- eftir, sást það, um morguninn frá Hellulandi, að Skagafjörður var aftur að fyllast af ís. Var þá ísbreiðan komin inn undir Drangey og náði alveg yfir fjörðinn. Þegar út á ísinn kom, sá eg, að Jón í Nesi hafði byssu sína með sér. Sagði hann mér að hann hafði séð seli liggja á ísskörinni, en frá vökunum, þar sem við vorum, var spöl- korn þangað. Kvaðst hann æfla að ganga þangað og mætti eg koma með sér ef eg vildi. Jú, eg var nú ekki á móti því. Brátt fundum við að ísinn fór að verða varasamur. Gekk Jón á undan og fór mjög varlega. Var hann þó. dálítið „hýr“, og hafði brennivínsflösku í vasan- um. Var honum sérstaklega um- hugað um mig og bannaði mér að ganga nema í spor sín. Vakir sáum við á milli jaka, gutlaþi sjórinn þar, golgrænn, djúpt niðri. — Selina sáum við hrátt. Voru þeir tveir, stórir selir og lágu á flötum jaka í ísröndinni við auða sjóinn. Gætti nú Jón þess að fara þar, sem háan jaka bar á milli okkar og selanna. Fleiri seli sáum við þar, fram með ísröndinni. —- Isinn gisn- aði, eftir því sem nær dró auða sjónum, og fór að verða mjög hættulegur. Jón setlist niður, lét hvellhettu á púðurpinna byss- unnar og liamphnoða á milli pinnans og bógsins; hinn gætni og þaulvani veiðimaður gleymdi engri varfærni. Svo þokuðumst við fram ísinn, að stóra jakan- um, sem við vissum að var rétt hjá selunum. Þegar þangað var komið var ísinn lítið eitt farinn að hreyfast undir okkur, var ekki frosinn saman. Gægð- ist nú Jón upp fyrir jakann, með byssuna spennta. „Guð al- máttugur, það er ekki til nokk- urs hlutar“, sagði hann. „Líttu á, drengur.“ Eg gægðist þá líka upp fyrir. Flati jakinn var ekki nema svo sem 10 metra frá okk- ur og þar lágu selirnir og virt- ust ekki taka eftir neinni liættu. Tveir stórir, gráir landselir. En á milli þeirra og okkar var smá ísliröngl, sem sjórinn lyfti með hverri smábáru í norðangjóst- inum. Það var ekkert viðlit að ná í sel, úti á jakanum, þótt hann væri drepinn. „Guð al- máttugur í himins-himninum“, (það var orktæki hans), sagði Jón, „að sjá skepnu-kvikindið liggja þarna í drápsfæri og geta É^ekki náð í það.“ Mér sýndist hann skjálfa af veiðihuga og svitinn spratt út á enni hans. „Kannske jakann reki upp að seinna í dag“, hvíslaði eg skjálf- andi af spenningi og veiði- græðgi. „Nei, nei“, sagði Jón, „farðu upp á jakann og styggðu skepnurnar, áður en eg skýt.“ Eg fór upp á jakann og selirnir létu þá ekki á sér standa að steypa sér í sjóinn. — Svo fór um þá veiðiferð. — Síðar um daginn fylltist fjörðurinn af hafís, voru aðeins smávakir á stöku stað. Fimmta daginn, sem eg var á ísnum, kom maður, skyndilega, hlaupandi af landi út á veiði- stöðvarnar, og sagði, að ísinn væri að brotna frá landinu, komin stór völc innst við fjarð- arbotninn. Var þó norðanátt all- snörp, og kafald, en það er kunnugra en frá þurfi að segja, að straumar bera stundum haf- ís á móti vindi, ótrúlega hart. Varð nú uppi fótur og fit að draga upp færin og flýttu allir sér i land, var aðeins lifrar- stampurinn fluttur og veiði- áhöld, en hákarlsskrokkar nokkrir skildir eftir. — Ekkert varð þó úr þessu ísreki, enda var það minna en orð var á gert í fyrstu; seig ísinn að landi aft- ur og var landfastur lengi eftir það. Eg var nú búinn að fá nóg af hálcarlaveiðinni í bráð, enda hákarl nú orðinn tregari. — Sölvi þurfti og að fara heim, til annarra verka. Við kvöddum því félaga okkar og fólldð á Hellulandi, með þökk fyrir skemmtilega, en erfiða samveru og gengum heim í sótsvartri norðanhríð og hörkufrosti. Drangey.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.