Vísir - 22.03.1949, Qupperneq 2
2
V I S I R
Þriðjudaginn 22. marz 1949
*
!
í
i
l
i
i
[
Þriðjudagur,
22. marz, — 8i. dagur ársins.
(Einmámiöur byrjar).
Sjávarföll.
Árdcgisílóö kl. 11.50.
ÆLl
Næturvarzla.
Næturlæknir er i Læknavarö-
stofunni, sími 5040. Næturvörö-
ur er i Laugavegs Apóteki, sími
1616. Næturakstur annast
Hreyfill. Sími 6633.
11 bátar róa frá
Höfn í Hornafirði.
Á þessari vertiö róa alls ell-
efu bátar úr verstöðinni aö
Höfn í Hornafirði og hefir afli
bátanna verið allgóður er gefiö
hefir á sjó, en fyrrihluta vertíð-
arinnar voru gæftir óvenjulega
stiröar. Megnið af af'la Horna-
fjarðarbátanna hefir verið flutt
út ísvariö og eru nú farnir um
sjö bátsfarmar af ísvörðum
fiski.
Dýrasta auglýsing
í heimi.
Stórblaöiö Chicago-Tribune
flutti nýlega þá dýrustu aug-
lýsingu, sem um getur í sögu
dagbíaðanna. Öll forsíða blaðs-
ins var prentuð á nýja tegund
afþurrkunarklúta. í auglýsing-
unni stóð, aö er menn heföi
þvegið prentsvertuna af klútn-
um mætti nota hann til heimilis-
þaría. AÖeins „efniö“ í forsíð-
una kostaði nær 300 þúsund
krónum, en auk þess var kostn-
aðurinn gífurlegur við prent-
unina og allt, sem henni fylgir.
fylgir.
Mishermi
var það í VísHí gær, að ílakiö
af vélbátnum Gunnvöru heföi
verið selt á 1000 krónur, en
söluverð þess var kr. 6150.00.
Glatt á hjalla
annað kvöld.
Annaö kvöld hefir Bláa
stjarnan kvöldskemmtunina
„Glatt á hjalla“, í Sjálfstæðis-
húsinu. Skemmtun þessi hefir
öðlazt mjög miklar vinsældir
meðal bæjarbúa og hafa að-
göngumiðar jafnan selzt upp á
svipstundu og færri fengið en
vildu. Sýningin hefst kl. 8.30 í
kvöld.
I
Aflahæstur á Vest-
fjörðum.
Vélbáturinn Einar Hálfdáns
frá Bolungarvík er*aflahæsti
báturinn á þessari vertíð af
Vestfjarðabátum. Nemur há-
setahlutur á honum frá áramót-
um hálfu níunda þúsundi krón-
um. Skipstjóri á bátnum er
Hálfdán Einarsson. Afli hjá
Vestfjarðabátum hefir yfirleitt
verið allsæmilegur þegar á sjó
hefir gefið.
óhagstæður vöruskipta-
jöfnuður í febrúar.
Vöruskiptajöfnuðurinn var
óhagstæður um 10 millj. króna
i febrúar. Nam verðmæti inn-
flutningsins 33 millj. kr., en út-
flutningsins 23 millj. kr. Mest
var flutt út af hraðfrystum
fiski í febrúar, eöa fyrir 12
millj. kr„ ísfiskútflutningurinn
nam 7 millj.
Sendið gjafirnar
í dag.
Bazar Sjálfstæðiskvennafé-
lagsins Hvatar verður i Lista-
mannaskálanum á morgun og
skulu þær félagskonur, sem
enn hafa eigi komið gjöfum
sínum á bazarinn til skila, koma
þeim i dag til Maríu Maack,
Þingholtsstræti 25 eða til ein-
hverrar annarrar’konu úr baz-
arnefndinni.
Félag austfirzkra kvenna.
í desembermánuði árið 1941
komu nokkrar austfirzkar kon-
ur, sem búsettar e'ru hér syðra,
saman hér í Reykjavík og á-
kváðu að vinna að því að stofna
íélag með þeim konum, sem
hér dvelja og af austfirzku
bergi eru brotnar. Aðalstarf
„Félags austfirzkra kvenna“ er
aö halda við kynningu milli
kvenna af Austurlandi, sem í
Reykjavík dvelja, en auk þess
að rét ta hjálparhönd þeim
Austfirðingum sem hér dvelja
og einhverrar hjálpar eða
styrks þurfa og koma þá eink-
um til greina sjúklingar. Til
þess að afla fjár til þeirrar
styrktarstarfsemi hefir félagið
einu sinni á ári „bazar“. Hinn
25. þ. m. — þ. e. á föstudaginn
kemur — efnir félagið til hins
árlega bazars síns, sem haldinn
verður að þessu sinni í Templ-
arahúsinu, salnum uppi. Er
þess að vænta að Austfirðingar
og aðrir þeir, sem tengdir eru
Austfjörðum á einhvern hátt
minnist þessarar viöleitni hinna
austfirzku kvenna og líti inn á
bazar þeirra.
Musica.
Nýtt liefti af fónlistarritinu
Musica er komið út og flytur
margvíslegt efni úr heimi tón-
listanna. Ritið er prentað á
vandaöan pappir og prýtt
mörgum myndum.
Nýtt blað hefur
göngu sína í Eyjum.
Sjálfstæðisfélag Vestmanna-
eyja hefir gefið út nýtt blað er
nefnist „Fvlkir“ og mun það
koma út vikulega. Ábyrgðar-
maöur blaðsins er Guðlaugur
Gíslason, en ritnefnd, sem er
kosin af fulltrúaráði flokksins
i Eyjum sér um útgáfu blaðs-
ins. *
öil
Cýa(frn$ ocf c^amaná
Sridyeþraut —
— (jettu hú —
HnAAyáta hk 7/5
A —
¥ Á, 10,6,5
* Á,4
* Á,3
* —
V D.,9,8,7
♦ D,5
*D,7
* 10,7,6,4
¥ —
♦ 7.2
* 5.2
Spaði er tromp. Norður á út
og Suður og Norður fá alla
slagina.
Ráðning á skákþraut nr, 8:
Dc4—fx.
Bezíu auglýsing-
arnar.
Smáanglýsingar Vísis eru
tvímælalaust beztu og ódýrustu
auglýsi: ; :.rnar, sem Reykja.
víkurblöoin hafa upp á að
bjóða, Hringið- i - ítna 1660. og
þá verður auglýsingin skrífuð
niðtir yður að fyrirháínarlausu.
Skrifstofa Vísis, Austurstræti
7, f:r opin dagit rá kl. 8 ár-
degis til kl. 6 siödegis
32.
Eina leit eg auðarsnót
að því máttu gæta
víst hún gerir vegabót
ef virðar slíku sæta.
Hún er nokkuð höfuðstór
harla mittisdigur,
fótur hennar fjarska mjór
fær þó tíðum sigur.
En þegar hún endar skeið
óðar snýr til baka,
sína gengur sörnu leið .
sárt þó gjörir kvaka.
Þf r mærir þessa slóð
þvernauðugir ganga
eí hún revnist ekki góð
oit þeir. falla ;i vánga.
Þá er nærri þunclur brands
Jiegna fallna drégur
síðan upp til tma íands
sá' er þægilegur.
Ráðning á gátu nr. 31 :
Tíminn; blöðin: dagur og nótt.
Þegar
hugrekkið bregst'þá bregst
líkamin,”.. öruggur hugur
gerir öruggar fætur, lamað-
urhugur, gerir lamnðar fæt-
ur. — Spakmæii.
.* »7' -■ u£Í.Ö 'í 'Usilíí'Á
Lárétt: 1 Kaklur, 5 slár, 7
tveir eins, 8 ferðaðist, 9 lyfseð-
ill, 11 mannsnafn, 13 líkams-
hluta, 15 elskar, 16 hvolfdu, 18
tvíhljóði, 19 veitingar.
Lóðrétt: 1 Dökkur, 2 gróða,
3 landi, 4 ending, 6 lýstuð, 8
hóta, 10 manni, 12 frumefni, 14
gtímu, 17 ósamstæþir.
Lausn á krossgátu nr. 714:
Lárétt: t Tútinn, 5 áði, 7 P.
U., 8 Á. O., 9 S. K„ 11 Rist, 1.3 ;
vor, 15 var. 16 Amor, 118 Ra, 19
rafal.
Lóðrétt: 1 Tvisvar, 2 táp, 3
iSur, 4 Ni, 6 kotran, 8 ásar, ic>
koma, 12 IV, 14 rof, 17 Ra.
! Uíl ! íifl ) (; • (jy , ,1 , } fj
Matthías Einarsson læknir.
7. júní 1879 — !5. nóv. 1948.
Þú ert fallinn, fölnaður sem
gras,
en frægðarljómi minning
þína gyllir.
Hvort þjóðin eignast annan
Matthías,
sem auða skarðið látins aftur
fyllir,
þar um spádónr skal eg
eng.um eyða,
á því svarið framtíðin að
greiða.
Þú áttir leið hjá lágunr
sjúkrabeð,
hvar löngum þjáður eftir
hjálp vann kalla;
þú lagðir störf þín, gott og
tryggt nreð geð,
á Guðs og manna kærleiks-
fórnar stalla;
þú gekkst á hólnr við helju
tvítugfalda,
en hafðir sigur, velli náðir
halda.
En hópur sá, er heiman fylgir
þér
og hinzta sinni veitir brautar-
gengi,
bjarta, ljúía minning með sér
ber,
mun hún snerta hugans
innstu strengi,
því til vor enginn aftur konr
til baka,
sem andvarp hinzta þessa lífs
vann taka.
Allri þrenging önd þín leyst
er frá,
yfirstigin takmörk lífs og
dauða.
Horfnir vinir heilsað þér
nú fá,
hvar að lengur kennir engra
nauða.
Jarðlífs leiíar grafarskautið
geymir,
en gengnum sporum sérhver
af oss gleymir.
ólafur Vigfússon,
Laugaveg 67.
Leiðrétting.
í gær misritaðist nafn sigur-
vegarans í drengjaflokki brun-
keppninnar. Hann heitir réttu
nafni Magnús Ármann.
Spilfundur í kvöld.
Kvennadeild Bridgefélags
Reykjavíkur helclur spilafund í
Breiðfirðingabúð i kvöld kl. 8. |
Hvar eru skiþin?
Ríkisskip: Esja var á Akur-
ureyri í gær á austurleið. Hekla
fór frá Reykjavík á hádegi í
dag austur um land í hringferð.
Herðubreið átti að fara frá
Reykjavik kl. 23 í gærkvöldi til
Vestfjarða með viðkomu á
Arnarstapa. Skjaldbreið var á
Salthólmavík í gær. Þyrill er í
Reykjavík. Súðin er á leiö frá
ítaliu til íslands. Hermóður.
var á Patreksfirði í gær.
Skip Einarsson & Zoéga:
Foldin er á ísafirði. Spaarnes-
room fermdir í Ams.terdam 22.
þ. m. i stað Lingestroom og í
Antwerpen 23. þ. m. Reykjanes
fór frá Port Harbour 21. Jj. m.
áleiðis til íslands.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 20.20 Tónleikar Tónlist-
arskólans: Brandenborgarkon-
sert nr. 5 eftir Bacli. (Dr. Vic-
tor Urbantschitsch, Árni
Björnsson, Björn Ólafsson,
Katrín Dannheim, Indriði
Bogason, dr. Heinz Edelstein
og Einar Waage leika). —
20.40 Erindi: Stormur yfir As-
íu ; II.: Umbrot og byltingar.
(Baldur Bjarnason, magister).
— 21.05 Tónleikar (plötur). —
21.15 Upplestur: „Ljóti andar-
unginn“ eftir PI. C. Andersen
(Einar Pálsson leikari les.) —
211.40 Tónleikar (Plötur). 21.45
Á innlendum vettvangi (Emil
Björnsson fréttamaður). 22.15
Endurteknir tónleikar: Tón-
verk eftir Debussy (plötur). —
Veðrið.
Fyrir NA’ Íand er alldjúp
lægð á hreyfingu NA-eftir. —
Grunn lægð yfir Grænlands-
hafi.
Horfur: SV stinningskaldi
eða allhvass og él fyrst, en síð-
an S og SA kaldi og lítilshátt-
ar snjókoma. Léttir sennilega
til með NA kalda i nótt.
10 þúsund
króna lán óskast. — Vil
borga alit að 10 prósent
vexti. Góð trygging. Þeir,
sem vildu sinna þessu,
leggi tilboð inn 4 afgr.
bláðsins merkt „98“.
Tónllstarblaðið MUSICA
6. tbl. 1. árg. er nú komið út.
Er blaðið fjölbreytt að vanda; og eru m. a.
greinarnar: Vér veslingar„ eftir Björgvin Guð-
mundsson tónskáld; 100 ára dánanninning
Chopin; viðtal við Kristinn Ingvarsson orgelleik-
ara; Víðsjá; Tónlistarlífið; og m. fl.
1 heftinu eru auk þess þrjú lög eftir Björgvin
Guðmundsson tónskáld.
Nýir áskrifendur geta enn fengið
blaðið frá byrjun.
Tónlistarblaðið MUSICA
Laugavegi 58.
Áskriftarsímar 3311 og 3896.
IÐNNÁM
' Gctum tekið ungan mann til náms í járn- og málm-
steypu. Nánari uppl. á skrifstofunni, Mýrargötu 2.
-H/F
• ííjí >d i 1 i!í • iuí 1 'irs 1. ð' ■ iVt 6 i' , <; :