Vísir - 24.12.1956, Page 28

Vísir - 24.12.1956, Page 28
JÓLABLAÐ VÍSIS |!& hélt Eiður áfram. „Ég lét Rósu j Efstabæ fá þá, svo hún gæti komist, á sjúkrahús.“ Það ýarð algjör þögn. Eiður horfði á föður sinn en af svip hans gat hann ekkert ráðið. „Þú misskilur mig, pabbi. Ég iek ekki að mér allra erfiðleika þó ég hjálpi henni. Hún er unnusta mín.“ „Ertu þá hættur við að hugsa til að brjóta athafnamennina á bak aftur til að upphefja hina?“ sagði faðir hans. Eiður horfði á föður sinn. Hann undraðist hvað hann sagði 'þetta þykkjulaust og án þess að ibreyta um svip. „Þó við höfum ekki verið á -eitt sáttir, hefi ég aldrei ætlað mér það,“ sagði Eiður. „En ég beld ég hafi vérið að leita að sjálfum mér og sú leit komið þannig út,“ ,Það er gott að heyra,“ sagði Gunnbjörn kaupmaður heldur dáufleg'a. Annars var hann þegar staðráðinn í því, að vera ekki á móti ráðahag sonar síns og Rósu. Það gat margt verra komið fyrir Eið en að taka að sér fátæka, heilsulitla stúlku. Þó hann hefði aldrei haft sér- legar mætur á Jóni í Efstabæ, fann hann einhverja handleiðslu i þessu. Sonur hans hafði verið áð komast á hættulegt stig sem hann efaðist um að hefði orðið honum heppilegt fyrir framtíð- ina. En þetta gat miklu breytt. Það var bezt hann talaði sjálfur og strax við konu sína og dóttur. María var svo kvíðandi yfir þessu ósamkomulagi þeirra feðganna, sem hafði þó jafnað sig af sjálfu sér, svo var fyrir að þakka. „Þér er þá alvara með þetta, Eiður?“ sagði faðir hans eftir þessa yfirvegun. Eiður horfði hálf undrandi á hann. „Já, það er eins og ég’ hefi sagt þér,“ sagði hann. „Ég vissi það þó ég spyrði svo. En ég var að hugsa um að tala um þetta við hana móður þína og Sillu.“ „Því skyldi ég ekki gera það sjálfur,“ sagði Eiður snögglega. „Nei, sjáðu nú til, hún mamma þín var leið yfir missætti okk- ar í gær. Ég vil sannfæra hana um, að Það sé allt búið.“ Gunnbjörn tók af sér gler- augun og lagði aftur bókina, sem hann var nýbúinn að opna. Þó hann léti ekki á því bera var honum svolítið órótt gagn- vart konu sinni og dóttur. Hvað mundu þær eiginlegá segja um þennan fyrirhugaða ráðahag?“ „Komi hér einhver að spyrja eftir mér, verð ég við eftir hádegið,“ sagði Gunnbjörn um leið og hann fór út af skrifstof- unni. ,,Ó, hvað mér brá,“ hrópaði María, þegar maður- hennar kom allt í ejnu inn í borðstof- una. „Hverju gleymdirðu,: Gunnbjörn?“ „Engu, alls engu,“ svaraði hann heldur stutt. „Hefur þá eitthvað komið fyrir?“ sagði hún óttaslegin. Maðurinn þagði og gekk út að glugganum, ,Ó, Gunnbjörn, því anzarðu ekki?“ „Þú talar svo mikið, að ég kemst ekki a@ý‘ sagði hann svo- lítið ergilegur. María stundi óþolinmóð og þagði. Þó gat hún ekki lengi setið á sér: „Ég vona þið Eiður hafið tal- að saman í morgun,“ sagði hún hvíslandi. „Já, við höfum gert það.“ „Láttu ekki svona kona. Ekki höfum við gert svo mikið af því að rífast um dagana. Þessi missætt okkar er nú lítið meira en byrjun og algjör lokaþáttur á því sviði. Mér kom það líka mjög' á óvart, ef sonur minn yrði til þess að vekja óróa.“ „Það er satt,“ anzaði María. „Slíkt væri algjörlega ólíkt honum.“ „Eiður hefur fengið annað á- hugamál. Hann er heitbundinn Rósu í Efstabæ." „Heitbundinn Rósu í Efsta- bæ,“ hrópaði konan. „Ertu að ganga af göflunum, kona. Þarftu að hrópa þetta um allt húsið.“ „Ó, hvernig í ósköpunum getur hann Eiður látið sér detta þetta í hug. Ég hefi heyrt að stúlkan sé dauðheilsulaus og' ó- burðug sýnist hún vera. — Og hver sem sér nú hann Jón gamla í Efstabæ.“ „Heyrðu María. Nú segir þú ekki eitt einasta orð. Það er 'skipun mín til þín og Sillu, að ef þið getið ekki tekið þessu vel, þá steinþegið þið. Það get- ur margt verið miklu verra en það, þó Eiður fái sér konu, sem einhver telur honum ekki sam- boðna. Það verður Eiður, sem tekur við verzluninni af mér, en Silla giftist einhverjum, sem þú verður ánægð með.“ Þegar Silla kom inn sat móð- ir hennar á legubekknum í horninu við gluggann og grét. Hún komst brátt að því, af hverju hryggð hennar stafaði. Sem snöggvast varð henni all- mikið um þessa ákvörðun bróð- ur síns, en hún var nú þannig gerð, að hún setti hlutina aldrei lengi fyrir sig. — Hún hlakkaði til jólanna, til allra skemmtan- anna, sem byrjuðu strax á ann- an, — og svo allra heimboð- anna, í læknishúsið, á prests- setrið og víðar í þessari skárri hús. „Við skulum ekki vera.að hugsa um hann Eið, mamma,“ sagði stúlkan. „Þó hann sé foezti strákur, þá veiztu hvernig hann er. Þegar við erum að gaspra saman, þá er hann með hugann einhvers staðar langt, langt í burtu. Ég get ekki öfundað stelpugreyið, að fara að taka svona mann að sér, ef hann hættir þá ekki þegar minnst' varir að hugsa um hana.“ „Það er lítil von til þess,“ sagði móðir hennar hnúggin. „Þú veizt nú hvernig hann Eið- ur er. Það sem hann tekur- að sér á annað borð er ekki laust úr greipum hans.“ Gunnbjörn hafði hlustað á þær mæðgur með stakri þolin- mæði. Það fór sem hann hafði grunað, að þetta myndi koma þeim úr jafnvægi. Hann end- urtók sín lokaðorð í þessu máli og sagði, — að á móti stúlkunni yrði ekki mælt eitt einasta orð. slíkt til tæki myndi verða illa séð og gæti haft hinar alvarieg- ustu afleiðingar. María reyndi að hressa sig upp, áður en hún fór fram í eld- húsið að sjá um matinn. „Ertu eitthvað lasin?“ sagði Mekken gamla eMhússtúlkan þeirra. ,,Þú ert svo föi og tekin til augnanna, að það er rétt eins og þú hafir grátið." „Sést það svona á mér?“ sagði konan hnuggin. „Þú ert nú eins og ein af fjölskyldunni, Mekk- en, og fyrst útlit mitt fór ekki fram hjá eftirtekt þinni, þá máttu gjarnan vita hvað veldur ógleði minni. Hann Eiður kvað vera trúlofaður, og hann valdí þá úr. Láttu þér ekki verða mikið um, stúlkan er dóttir hans Jóns gamla í Efstabæ, Rósa er hún kölluð.“ „Þettá þykja mér talessaðar fréttir,“ sagði Mekken gamla. Þau í Efstabæ eru af traustum og góðum stofni Jromin, og þótt erfiðleikarnir hafi verið þeim æði þungir í skauti nú um tíma, þá mun því lokið fyrst svona er komið, og betri dagar blasa við. Hin dóttir Jóns er trúlofuð Úlf- ari á Vegamótum. Þú kannast við það fólk, María.“ „Það mátti svo seín segja mér fyrirfram, Mekken, að ekki var mikið að í þínum augurn^ fyrst það var Eiður, sem átti tiltæk- ið. Veiztu ekki að Jón í Efsta- bæ hefur legið hálfgert við sveit seinustu ár?“ ,’,Ég var að segja þér, María, að hann hefur átt erfitt. Ann- ars ættir þú sízt að setja fá- tæktina út á stúlkuna. Mig minnir að ein viss manneskja ætti lítið nema fötin sem hún stóð i,'ef hún kom í þetta hús. En hún var ekki úr héraðinu og engir hér þekktu ástæður henn- ar.“ „Þökk fyrir sneiðina,11' sagði María og það var niðurbældur grátur í rödd hennar. „Það var engin sneið til þín, góða mín,“ anzaði Mekken gamla. „Mér finnst aðeins^ að við verðum að gá fyrst að, hvað næst stendur okkur sjálfum, áð- BDHÐALMAIÖK f I þurfa að vera á hverju skrifborði. \ Fást í bókaverzlunum og ritfanga- | verzlunum eða beint frá okkur. -— j I Kaupmenn og kaupfélög l V' l Engin auglýsing er jafn áhrifamikil og Hringið til okkar í síma ] 640 og fáið upplýsmgar. iF NÁMSGRE IN AR : 1*« * SmBwhmtÁ i ¥- t, íslenzk réttritun, Islenzk bragfræði, Danska fyrir byrjendur, Danska, frambaidsflokkur, Enska fyrir byrjendur, Enska, framhaldsflokkur, Franska, Þýzka, Esperantó, SáÍarfræði, SkipuL og starfsh. samvinimfélaga, Fundarstjórn og fundarreglur, Bóreikningar, Bókfærsla i tve’mur flokkum, Reikningur, Algebra, Eðlisfræði, Mótorfræði í tveim flokkum, Landbúnaðarvélar og verkfæri, Siglingafræði, Skák í tveim flokkum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.