Forvitin rauð - 01.05.1976, Blaðsíða 7
amUBMHHU
Eg er 45 ára gömul verkakona, búsett i Reykjavik.
Ekkja með 5 börn. Þrjú þeirra eru sjálf farin að
búa, en tvö þeirra eru enn á minu framfæri. Eg vinn
sem gangastúlka á sjúkrahúsi (i ræstingu) og mánaðar-
launin eru 55.231 kr. fyrir 4o stunda vinnuviku.
_____________ 0 ___________________
Aður bjó ég i litlu þorpi úti á landi. Maðurinn
minn var sjómaður - gerði út eigin trillubát. Við
byrjuðtim búskap okkar fyrir 27 árum i tveimur leigu-
herbergjum. Þar eignuðumst við 2 fyrstu börnin.
Siðar lceypttim við hæð i húsi, 3 herb. og eldhús.
Þar urðu börnin 5. A þessu timabili - sem og reyndar
alltaf - vann maðurinn minn mikið. Eg vann lika
alltaf i frystihúsinu þegar færi gafst frá barn-
eignum. Þegar elsta barnið var á fermingaraldri
réðumst við i að byggja. Við fluttum inn 1 ^2 ári
siðar - var þá mikið ófrágengið. Við unnum öll
mjög mikið i byggingunni sjálf, bæði fyrir og eftir
að við fluttum inn.
Tæpu ári seinna veiktist maðurinn minn alvarlega,
og átti hann i þeim veikindum i l/2 þriðja ár, eða
þar til hann dó árið 1968.
Þegar hann veiktist seldum við bátinn og veiðar-
faerin og ég byrjaði að vinna á simstöðinni i þorpinu.
Ég átti fullt i fangi nueð að sjá fyrir börnunum og
klára húsið, sem við i bjartsýni okkar höfðum haft
132 m2 auk bilskúrs.
Fyrir tæpum 2 árum fluttist ég til Reykjavikur,
þar sem börnin urðu að sækja skóla. Eg seldi húsið
og keypti i staðinn 88 m2 ibúð i fjölbýlishúsi -
sem var þð 2oo.ooo kr. dýrari en stóra húsið i
þorpinu. Eg er enn að borga af lifeyrissjóðsláni
sem ég fékk þegar ég var að klára húsið.
Kaup mitt á sjúkrahúsinu hrekkur engan veginn
fyrir nauðþurftum og vinn ég þvi framreiðslustörf á
kvöldin og þegar ég á frihelgi á sjúkrahúsinu.
Þrátt fyrir þessa aukavinnu er mjög erfitt að láta
peningóina endast út mánuðinn og leggja fyrir til að
borga t.d. fasteignagjöld og afborganir af áðurnefndu
lifeyrissjóðsláni. Hlutir eins og fatakaup og
skemmtcinir koma ekki til greina - en ég reykií
Saga þessarar konu, sem sjálfsagt á sér margar
hliðstæður, sýnir að ekkert getur tryggt sómasamlega
afkomu ófaglærðrar konu. Þðtt hún komist i
sæmileg efni með giftingu, þá hrapeir hún niður i
verkalýðsstéttina við fráfall eiginmannsins. Ekki
einu sinni stðrt einbýlishús getur tryggt félagslegt
öryggi, ef það er á skökkum stað á landinu ofl flytja
þcirf úr dreifbýli á höfuðborgarsvæðið - þá er staða
konunnar sem islensks öreiga .fullkomnuð.
Gr.X.
KQMVrfim.. ■
I Einkenni:
Heiti efnisins er Veika-
kynið. Gerð þess - mjúkur,
eftirgefanlegur likcimi
samansettur úr H20 og
undirgefni. Er 5 tveimtir
fótum, með vinnusamar
hendtir og fæðir af sér
afkvæmi. Fraunleitt i
auðvaldsþ j 6ð félaginu.
II Leiðbeiningar Byrir notkun:
Kona skal
Fæðast lfk ömmu
Gráta
Eiga kjðla
Og dúkkur
Biða eftir að
Verða stðr
I brjðstahaldara
Og hælaskóm
Eins og mamma
Æfa sig að sauma
Vaska upp
Og láta undan
LÍta undan
Vera sæt
Ekki eins og strákur
Ekki frek
Ekki gera svona
-Það er ókvenlegt
Láta þetta vera
-Það er hættulegt
Biða eftir manni
Sem er duglegur
Eins og pabbi
-Kann að ákveða
Eins og afi
-Skipuleggja
Og gera við bila
Eins og Geiri frændi
Og giftast hontun
Eignast börn og börur
Og lifa heimíngjusöm
Uppfrá þvi
Fyrst i tveggja
Svo i þriggja
Alltaf að byggja
Köttxir sat við stýri
Keyrði út i mýri
Og úti er ævintýri
Þórdis Richardsdóttir