Forvitin rauð - 01.05.1976, Qupperneq 14

Forvitin rauð - 01.05.1976, Qupperneq 14
-JV- %6LWWór A Kvem'mi 1 öllum þeim umræð'uin sem átt hafa sér stað manna á meðal jafnt heima sem opinberlega varðandi petta blessaða og nú orðið leiðinda kvennaár, hefur þeirrar tilhneig- ingar all oft gætt að gera í eitt skipti fyrir öll fullkomið grin að konum, sérstaklega þeim sem háð hafa baráttu hér sem víðast hvar annars staðar í heiminum gegn undirokun og smán. Kvennaráðstefna SÞ i Mexikó sýndi okkur að mannkynið er svo sundrað milli ólikra efna- hagskerfa, að nánast engin von er i augsýn um ánnan og betri heim, nema að annað kerfið sigri hitt. En hvort kerfanna veitir konum jafnt sem körlum fullan rétt til atvinnuþátttöku, félagsþátttöku, menntunar og andlegrar hamingju og heilbrigðis? Hvort kerfið skapar öllum manneskjum það lifsviðurværi, sem allar manneskjur eiga að búa við? Það er staðreynd, að efna- hagur og félagsleg aðstaða manna ákvarðar alla aðra stöðu þeirra i þjóðfélaginu. Það er enn kunnari staðreynd, að mönnum er mismunað eftir efnahag, en aðeins i þeim þjóðfélögum þar sem auðæfi fámennrar yfirstéttar ráða allri framvindu og þróun i þjéðfélaginu. Þess vegna er staða kvenna. t.a.m. á Vestur- löndum þ.e. i auðvaldsþjóðfélögum eins og á Islandi gjörólik stöðu M ÖLML/SHEPEnGín tCJRCREDT I ^ ErtER -ELRSRMmnER þeirra i löndum sésialismans, og á ég þá helst við Kina og Albaniu og þau lönd sem nýverið hafa hlotið sjálfstæði og frelsast undan ásælni og yfirráðum heimsvaldastefnunnar hvernig sem hún hefur birst. Auðvitað mátti búast við þvi, að kvennaráðstefnan bæði hér heima og i Mexikó yrðu á einhvern hátt notaðar i þvi skyni að halda uppi áróðri fyrir einhverja ákveðna stjórnmálalega stefnu, annað gat aldrei komið til greina, þegar fulltrúar ólikra stétta eru saman komnir. Það skiptir engu máli af hvoru kyninu stéttirnar eru, þær eru fyrir hendi og um þær snýst öll heimsins vél. Kvennaráðstefnan i Mexikó og allar aðrar ráðstefn- ur kvenna úr öllum stéttum, sýna enn ljósar en fyrr að fullkomnu jafnrétti manna og kynjanna verður aldrei náð fyrr en þessu eigin- 'gjarna frelsi einstaklingsins til að afnema frelsi annarra einstaklinga verður afnumið með kollvörpun auðvaldsskipulags- ins. En litum nú á aðgerðir islendinga á kvennaári. Allar þjóðir heims, sem vilja teljast siðmenntaðar urðu þrátt fyrir andstöðu að verja tíma og smá- fjárupphæðum til að "halda i heiðri" þetta kvennanna ár. En hvernig? Hvað mun gert? Okkar borgaralega samfélag heiðrar konur fyrir vel unnin störf að liknarmálum, friðarmál- um, uppeldismálum, þ.e. þessi störf sem þykja svo vel við hæfi kvenna. Hvað með allar þær milljónir kvenna sem lepja dauð- ann úr skel ásamt mönnum og börnum? Hvað með undirokaðar skúringakonur skrifstofuveldis- ins? Fyrir hvað verða þær konur heiðraðar? Hljóta þær kannski frh. á bls. 8

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.