Forvitin rauð - 01.05.1976, Page 15

Forvitin rauð - 01.05.1976, Page 15
js' ÓlAKA ÍE.TKIM o& Le*ÍK --- UM KnWASFVfLh/M&vA/A 9 Eftirfarandi grein er tekin úr samtali Klöru Zetkin (fræg rússneslc baráttukona) og Lenins um vandamál kvennabaráttunnar i Rússlandi eftir Októberbyltinguna 1917. Kennisetningin verður að benda ótvirætt á að raunverulegt frelsi kvenna fæst aðeins með leiðum kommúnismans. Skýra verður fastlega út hin órjúfarilegu tengsl á milli hinnar þjóðfél- agslegu og mannlegu stöðu kvenna og einkaeign- arinnar á framleiðslutækjunum. Það mun draga skýra og éafmánanlega marlclinu milli stefnu okkar og feminisma. Og það mun einnig skapa grundvöll fyrir þvi að skoða kvennaspurninguna sem hluta hinna þjéðfélagslegu vandamála, vandamáls verkalýðsins og tengja hana þann- ig stéttarbaráttu öreiganna og byltingunni föstum böndum. Kommúniska kvennahreyfingin verður að vera fjöldahreyfing, hluti hinnar almennu fjöldahreyfingar. Ekki aðeins öreiga- lýðsins, heldur allra arðrændra og kúgaðra, allra fórnardýra auðvaldsins eða annars herradóms. I þvi liggur þýðing hennar fyrir stéttarbaráttu öreigalýðsins og fyrir hið sögulega sköpunarverk hans, þjéðfélag komm- únismans.......Við verðum að vinna til fylg- is við okkur milljénir hinna vinnandi kvenna i borgunum og þorpunum. Vinna þaer fyrir baráttu okkar og sérstaklega fyrir hina komm- únisku umbreytingu þjéðfélagsins. An kvenna getur ekki verið um að ræða neina raunverulegí fjöldahreyfingu. Meginreglur skipulagsins byggjast á hugmyndafræðilegri skoðun okkar. Ekkert sér- skipulag fyrir konur. Kommúnisk kona er félagi i Kommúnistaflokknum á sama hátt og kommúniskur karlmaður, með sömu réttindi og skyldur. Það getur ekki verið neinn á- greiningur hvað þetta snertir. Þé megum við ekki loka augunum fjtrir þeirri staðreynd, að flokkurinn verður að hafa einingar, áarfshópa, nefndir eða þess háttar, sem hafa það sérstka starf á höndum, að virkja fjölda hinna vinn- ,1 andi kvenna, að koma á sambandi milli þeirra og flokksins. Ég á ekki einungis við öreigakonur, hvort sem þær vinna i verksmiðjunni eða heima við. Fátæku bændakonurnar, konur smáborg- aranna - þær eru einnig undir auðvaldið seldar og enn frekar en áður eftir strið. öpéli- tisk, 6þjóðfélagslegt, vanþroska hugarfar þessara kvenna, einangrað starfssvið þeirra og allir lifshættir, þetta eru stað- reyndir. Það væri fáránlegt að sjást yfir þær, alveg fáránlegt. Við þurfum á viðeig- andi einingum að halda til að starfa meðal þeirra, sérstakar áróðursaðferðir og skipulagsform. Þetta er ekki feminismi, þetta er raunvirk, byltingarsinnuð markvisi... Þvi er það rétt fyrir okkur að setja fram kröfur, sem eru hliðhollar konum. Þetta er engin"minimum" endurbóta stefnuskrá i skilningi sósialdemókrata II.Alþjóðasam- bandsins. Þetta er engin viðurkenning okkar á þvi, að við trúum á eilifleika, eða jafnvel langvarandi drottnun burgeisanna og rikis þeirra. Þetta er engin tilraun til að þóknast konum með endurbótum og beina þeim af vegi byltingarbaráttu. Þetta eru engin endurbótasinnuð svikráð. Kröfur okkar eru raunvirkar ályktanir, sem við höfum dregið af brýnustu þörfunum, hinni skammarlegu niðurlægingu kvenna i borgaralegu þjóðfél- agi, óferjandi og óalandi. Við sýndum þannig, að við viðurkennum þessar þarfir, og að oklcursé niðurlæging konunnar ljós, for- réttindi karlmannsins, að við hötum, já, hötum allt og munum eyða öllu sem lcvelur og kúgar verkakonuna, húsmóðurina, bóndakonuna, eiginkonu smákaupmannsins, já og i mörgum tilvikum konur eignastéttanna. Þau réttindi þjóðfélagslegu reglur, sem við krefjumst af burgeisaþjóðfélaginu konum til handa, sýna, að við skiljum stöðu og hagsmuni kvenna og munum taka tillit til þeirra undir alræði öreigalýðsins. Ekki, að sjálfsögðu, eins og end\irbótasinna er háttur, að stinga þær svefnþorn og fara með þær eins og strengja- brúður. Nei, að sjálfsögðu ekki; heldur eins framhald á næstu siðu

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.