Morgunblaðið - 14.12.1930, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.12.1930, Qupperneq 3
V ■SHIIIlllllllllllllllllllllHIIIIIIWIIIIIIIIIIIIilllllllllllllllllllI 2¥lorsutibia$*3> Otgef.: H.f. Árvakur, Iteykjavlk Ritatjörar: Jön KJartanason. Valtýr Stefánsson. \ Rltstjörn og afgrelCsla: t Austurstræti 8. — Simi 500. = Auglýslngastjóri: E. Hafberg. = Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Slmi 700. Heimaslmar: = Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. = E. Hafberg nr. 770. S Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuOi. = Utanlands kr. 2.50 á mánuðl. = I lausasölu 10 aura eintakiB. 20 aura með Lesbök. = aniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiii Frá Finnlandi. Wallenius látinn laus. Helsingfors, 13. des. United Press. — FB. Rjetturinn hefir látið lausa sex af þeim, sem ákærðir eru fyrir þátttöku í brottnámi Stáhl- bergs, þar á meðal Wallenius hershöfðingja, Kuus Jaerui her- deildarforingja o. fl. Dr. Jask- •ari, skrifari kommúnistafjelags- ins Suomenlukko, hefir ekki verið látinn laus. Hann er tal- inn hafa átt frumkvæðið að brottnáminu. Helsingfors 13. des. United Press. FB. Tilkynt hefir verið, að allir hinir ákærðu verði látnir lausir gegn tryggingu, nns dómur fellur í málinu. Wý stjóm mynduð í Frakklandi Briand er enn utanríkismála- ráðherra. París, 13. des. United Press. — FB. Steeg, sem er radikal sósíal- asti, heppnaðist stjórnarmyndun í morgun. Steeg er nýlendu- málaráðherra og forsætisráð- herra, Leygues innanlandsmála- ráðherra, Cheron dómsmálaráð- herra, Briand utanríkismálaráð- herra, Barthou hermálaráð- herra, (Sarhaut flotamálaráð- herra, Chautemps mentamála- .ráðherra, Loucher verslunar- xáðherra, Boret landbúnaðar- Táðherra, dr. Griande verka- :málaráðherra. U ppreisnartilraun á Spáni. Madrid, 13. des. United Press. FB. Tilraun til stjórnarbyltingar var gerð í landamæraborginni Jaca á Norður-Spáni. Leiðtogi uppreisn- armanna var Mangada herdeildar- foringi. Herlið var þegar sett á •vettvang og einangraði það upp- reisnarmenn eftir skamrpa orustu. Nokkrir menn fjellu. 'United Press hafði tal af sparn- aðarráðherranum í morgun, sem kvað uppreisnina bælda niður. ’Tilkynt hefir verið opinberlega að uppreisnarmenn hafi lagt á flótta undan hinum konunghollu hersveitum, sem sendar voru til Jaca til þess að bæla niður upp- reisnina. Allir uppreisnarmenn voru handteknir og skotfæra og vopnabirgðar þeirra teknar. — ^T'alið er, að á annað hundrað ma'nna hafi særst, en á milli 10 og 20 fallið. ViBnnstððvnnin hjá Sambandinu. Innbrot og spellvirki. í Tímanum í gær skýrir Jón Árnason framkvæmdastjóri frá vinnustöðvuninni við garnastöð Sambandsins. Frásögn hans um stimpingarnar, sem áttu sjer stað þar á fimtudaginn, kemur heim við það, sem hjer hefir verið sagt. Hann segir ennfremur frá því, að starfsstúlkur garnastöðv arinnar hafi verið ráðnar yfir allan tímann með föstum samn- ingi. Að formenn verkalýðsf je- laganna hjer í bænum muni hafa vitað um þann samning síðan í haust. Þess vegna sje það undarlegt, að alt í einu sje nú risið upp til þess að fá kaup- gjaldssamninginn rofinn, eftir að hann hefir verið í gildi síð- an í haust. Daginn áður en .sósíalista- broddarnir rjeðust með ofbeldi á garnastöðina, segir J. Á., að formaður verkakvennaf jelags- ins Framsókn hafi komið á tal við sig, og farið fram á, að ltaupið yrði hækkað, en hann hafi neitað því, að svo yrði gert. Á föstudagsnóttina gætti lög- reglan að því við og við, hvort nokkuð markvert gerðist í nánd við garnastöðina, en varð ekki vör við neitt; alt var með kyrr- um kjörum. Fyrir fótaferðartíma sendu isósíalistabroddarnir nokkra ,,varðmenn“ inn að stöð, eflaust í þeim erindum að verða þess áskynja, hvort nokkurt verka- fólk leitaði þangað til vinnu. Þessi vörður sósíalistabrodd- anna var við stöðina allan dag- inn. Úr því að ekkert var hugs- að um vinnu þar, álitu eigendur stöðvarinnar að ekkert sjerstakt myndi koma fyrir. En er fram á daginn kemur, frjetta þeir á skotspónum, að gert muni hafa verið innbrot í stöðina. Tilkyntu þeir lögregl- unni orðróm þennan. Er að var gáð, hafði veyið brotist inn í garnastöðina, opftað þar fyrir vatnshana, svo að vatnið flaut þar yfir salt og gærur, syo að salt bráðnaði en gærur skemd- ust. Blaðinu er ekki kunnugt um, hvaða spellvirkjar hafa verið þar að verki. En varðmenn Hjeð ins voru í námunda víð stöðina. Sósíalistabroddarnir halda uppi algerðu verkbanni gegn Sambandi ísl. samvinnufjelaga hjer í bænum. Sambandið á vör- ur í Goðafossi, sem eigi hafa verið hreyfðar. Gærur komu til þess með Suðurlandi frá Borg- arnesi. Sennilegt er, að þær fari til Borgarness aftur. Frá þýska þinginu. Berlín, 13. des. United Press. — FB. Ríkisþinginu var frestað í gær til 3. febrúar n. k. Ýmsar tillögur um vantraust 'á Curti- usi, Wirth og Treviranusi voru feldar. MORGUNBXjAÐIÐ Samskotin. I gær bárust Morgunblaðinu um 2000 krónur í samskotafje til aðstandenda þeirra, er fór- ust með Apríl. Tvö þúsund krónur á einum idegi er góð byrjun. En upp- hæðin þarf að tífaldast áður en lýkur. Svo margir Reykvíkingar hafa beint og óbeint gagn af starfi sjómannanna, að það væri ekki til of mikils ætlast, að safnað’ist sem svaraði einni krónu á mann í bænum. Heimilisfeður, sem lítil hafa peningaráð! Leggið fram sem svarar einni krónu á heimilis- mann. Kornið fyllir mælirinn. Kennið börnunum ykkar, sem álast upp í þessum bæ, að líf og velferð sjómannanna og að- standenda þeirra kemur öllum við! I návist Stalins. Riga, í nóvember. Boris Bajanoff, fyrverandi starfsmaður Stalins og skrifari í stjórnmálaskrifstofunni, hefir nýlega skrifað grein í blöð rú- menskra flóttamanna um einka- líf Stalins. Hann segir m. a.: ,,Rauði-keisarinn“ er enn þá innilokaðri en ein/valdsherrar keisaradæmisins. Ibúð hans er í lágu húsi í Kreml. Er hún að nokkru leyti í kjallara. Um- kringd er hún traustum vígbún- um lífverði. Ótrúlegum erfiðleikum er það bundið, að komast inn í í- búð þessa. Stalin er einangrað- ur. Hann tekur helst ekki á móti neinum. Aðeins tveir vild- arvinir fá að koma þar inn fyr- ir dyrustaf. Stalin er eins og keisararnir, hræddur um, að menn sitji um líf sitt. Því vill hann sem sjaldnast vera í fjöl- menni. Venjulega borðar hann einn, örsjaldan býður hann manni máltíð með sjer. Borðstofa Stalins er löng og mjó. Langt borð fyllir rúm stof- unnar að mestu. Einkaeldhús hefir Stalin ekki. Mat sinn fær hann úr almenningseldhúsi í Kreml. Þaðan fá flestar fjöl- skyldur í Kreml mat sinn. Máltíðir þær, sem Stalín býð- ur gestum, eru ekki ríkmenn- legar, eftir því sem menn eiga að venjast í Vestur-Evrópu. Þar eru þrír rjettir matar. Efnaðir menn í öðrum löndum Evrópu hafa betra daglegt viðurværi en Stalín. En á núverandi rússnesk an mælikvarða eru þetta sæl- keramáltíðir, sem engir geta veitt sjer nema æðstu menn ráð- stjórnarinnar. Stalin er enginrr gleðskapar- maður undir borðum. Hann et- ur mat sinn þegjandi, tyggur vandlega, og virðist jafnframt vera í djúpum þönkum. Að máltíðinni lokinn fer hamTut að glugga. Sest hann þar í hægindastól sinn og reyk- ir pípu — þegjandi. Lítur hann þá við og við á gesti sína, og sýnir þeim það alveg ótvíræð- lega, hve hann telur sig vera þeim óendanlega fremri. Hann hefir mestu fyrirlitningu á öll- Bækur tll lölaulafa. BIBLÍA 5,00 til 25,00. — Nvj-i testamenti 4,50, 5,50. — Sálniabækur 6,25 til 18,00. — Passíusálmar 5,00, 7,00. — Helgist þitt nafn, eftir V. Snævarrf 3,50, 5,00. — Almenn kristnisaga eftir Jón Helgason biskup 4 bd. ób. 27,00, ib. 45,00. — Kristnisaga íslands eftir Jón Helgason biskup 2 bd. ób. á 10,00 hvort, — Frá heimi fagnaðarerindisins eftir Ásmund Guömundsson dósent ib. 15,00. — Fimm höfuðjátningar, eftir Sig. P. Sivertsen próf. ób. 8,00. •— L)ag- bókin mín, eftir Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú, ib. 4,00. 1— Píslarsagan, með myndum, ásamt hugvekjum, eftir sr. Fr. Hallgrímsson, ib. 5,00. — Páll post- uli, eftir Magnús Jónsson próf. ib. 13,50. — Hundrað hugvekjur 10,00 o.fl. o.fl. HEIMSKRINGLA ób. 16,00, ib. 26,00. — Menn og menntir I—IV, eftir Pál E. Ólason próf., ib. 100,00 og, 120,00. — Saga Reykjsrvíkur, eftir Klemens Jónsson, ib. 25,00. — íslensk lestrarbók, Nordals, ib. 15,00 og 18,00. — ís- lenskt þjóðerni og íslandssaga eftir Jón ASils, hvort á 10,00 ib. — Fyrirlestr- ar Þorvalds Guðmundssonar ib. 15,00. — Alþingismannatal ób. 10,00, ib. 13,50. — Undirbúningsárin eftir sr. Fr. Friðriksson ib. 10,00. — Iceland eftir Þorst. Þorsteinsson, útg. af Landsbanka Íslands, ib. 10,00. — Norður um höf eftir Sigurgeir Einarsson ib. 17,50. — Ennýall, eftir dr. Helga Pjeturss, 10,00. — Síldarsaga Islands, eftir Matthías Þórðarson 10,00. — Havets Rigdomme eftir sama 13,50. — Goethe: Faust, ísl. þýðing, ib. 15,00. — Schiller: Mærin frá Orleans ib. 7,00. — Á íslandsmiðum eftir Loti ób. 6,00, ib. 9,00. — Vestan um haf, ljóð og sögur frá Vestur-íslendingum, 15,00. — Ieelandie Lyrics ib. 15,00, 25,00. — Vesalingamir eftir Victor Hugo ib. 21,00. — Mtaður og kona eftif Jón Thoroddsen ib. 10,00. — Piltur og stúlka eftír Thoroddsen ib. 8,00. — Mataræði og þjóðþrif eftii' dr. Björgu C. Þorlákson ób. 5,50. — Bókin mín eft- ir Inguuni Jónsdóttur ib. 6,50. — Saga Snæbjamar í Hergþlsey ób. 7,00, ib. 10,00, o. fl. o. fl. Flestar bækur Gunnars Gunnarssonar á dönsku. LJÓÐABÆKUR: Hannes Hafstein — Einar Benediktsson — Herdís og Ólína Andrjesdætur — Guðni. Friðjónsson — Þorst. Erlingsson — Davíð Ste- fánsson — Steingr. Thorsteinsson — Jón Thoroddsen — Jónas Hallgrímsson — Jakob Thorarensen — Jón Magnússon — Böðvar frá Hhífsdal o. fl. o. fl. — Hafræna, sjávarljóð og siglinga, 10,00. — Svanhvít 1,75, ib. 6,00. — Islensk söngbók 5,00. MYNDIR úr menningarsögu Islands eftír Sigfús Blöndal og Sig. Sig- tryggsson, ób. 5,00, ib. 7,50. — Myndir Guðm. Thorsteinsson 8,00. Myndir Ríkharðs Jónssonar 12,00. ORÐABÓK Blöndals ób. 75,00, ib. 100,00. — Dönsk-íslensk orðabók 18,00. -r- íslensk-ensk orðabók 18,00. — Ennfremur orðabækur frá þýsku, frönsku, ensku á dönsku — o. fl. orðabækur. BARNABÆKUR. MeS Htmyndwm: Hans og Greta 3,00. — Öskubuska 3,00. — Stígvjelaði kötturinn 3,t)0. — Kynjaborðið 3,00. — Með mynd.um: Gosi, æfintýri gerfipilts 4,00. — För Gulívers til Putalands 1,50. — Tumi þum- all 2,50. — Þrautir Heraklesar 2,50. •— Ferðir Múnchhausens baróns 2,50. — Æfisaga asnans 2,00. — Refurinn hrekkvísi 2,00. — Skeljar 1,50. — Dreng- imir mínir 3,00. — Dvergurinn Rauðgrani 3,50 — o. fl. o. fl. Auk þess fjöldi myndabóka fyrir yngstu bömin meö litmyndum af1 dýrum o. fl. Mikið úrval erlendra bóka fyrir unglinga, pilta og stúlkur. , NÓTNABÆKUR: íslenskt söngvasafn 1. hefti 6,00, ib. 8,00. 2. hefti ób. 6,00, ib. 8,00. (í íslenskri söngbók eru allir textamir við lögin úr söngvasafn- inu). — Glettur 3,00 og 4 sönglög 4,00 eftir Pál ísólfsson. — íslensk þjóðlög Svbj. Sveinbjömsson 5,50. — íslensk þjóðlög Max Raebel (nýtt hefti) 3,00. — Harmonia, præluditun og sorgarslagir fyrir ímmóhittm (Bfynj. Þorláks- son) 2,00. ERLEND JÓLAHEFTI: Julstámning (sænskt) — Julehelg (norskt) —- Juleroser — Julestjcmen — K F.U.K. Julebog — Juleklokken — o. fl. o. fl. — Tatler Xmas — Graphic — Punch Almanae — Sketch —• Sphere-Truth — o. fl. o. fl. — Svikmöllen — Peter og Ping — Knold og Tot — Blæksprutten koma með Gvllfossi. Hamsun: August — G. G.: Jón Arason — Andrée-bókin — Kr. Guð- niundsson: Sigmar —• o. fl. — koma aftur í vikunni. Stereoskopmyndimar fra Alþingishátíðinni koma með næstn ferð Lyra. Kaupið jólagjafirnar í . J^jl^ Bokaverslun Sigfðsar Eymundssonar. SKOÐIÐ Ensloi húfurnar í gluggunum hjá okkur í dag. Þar er húfan, sem yður mun líka. Fallegir litir, fallegt snið, ódýrar húfur. hm \ nýja sýningargluggann í Templarasnnði 3. Mikið úrval af landlagsmyndum. Fallegri en nokkru sinni áður. Ólafur Magnússon. Kgl. hirð-ljósmyndari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.