Morgunblaðið - 14.12.1930, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.1930, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ „— Húsmæður hafa líkamlegan og andlegan þroska barna og tmg- linga heimilisins á valdi sínu. Og á þeirra herðum hvílir skyldan að sjá um það, að heilbrigði og starfs- þrek fullorðna fólksins bíði eigi tjón fyrir óhentugt og of fáþætt fæði að efnafari“. Góður heimilisfaðir gefur konu sinni bókina Mataræði og þjóð- þrif, og gerir henni með því kleift að gegna skyldu sinni gagnvart heimili og fjölskyldu. Fagrar kvikmyndaleik- konur, er vita hvers virði það er, að hafa mjúka og fallega húð, nota LUX- Hinar fegurstu konur heimsins nota eingöngu Lux-handsápu. handsápu eingöngu. Eins og allar stúlkur, sem nota sápu þessa, hrósa þær henni fyrir það, hve vel hún freyði og að ilmurinn sje svo góður. LOX-handsápan hvít eins og snjór og ilmar af ang- andi blómum. „Takið bara eftir hvernig fólk þyrpist í kringum þá stúlku, sem hefir fallegan hörunds- lit! Hver stúlka getur haft fallega húð, ef hún hugsar um það. Lux- bandsápan er einmitt hjálpin til að húðin verði falleg og haldi mýkt sinni“. Hin vinsæla kvikmyndaleikkona Paramountsfjeiagsins cý CL' Kostar 66 aura. LUX Hcmd SAPA w-Lrm A R I S T 0 N cigarettan vinnur álit fleiri og fleiri neytenda. Vel vafðar, valið virginia tóbak. Kosta 1 krónu 20 stykkin. x Ahyggjir minka, 30 erfiðt, tfmi og 2 fægilögnr spar- J ast með þvi að ® nota r P F/EGILOGUR BC a o 8 a o * tk Þessi undirbúningur var því framkvæmdur með mjög mikl- um árangri, og enginn efi á því, að hann hefir átt þátt í þeim „happasælu úrslitum“, sem fengust með gula láninu. Þá var jafnframt gengið í það, að koma öðrum þjóðum í skilning um það, að Islendingar hefðu, árið 1921, veðsett toll- tekjur sínar. Stjórnin hefir sjeð það þegar í hendi sjer, að ef hægt væri að telja erlendum fjármálamönnum trú um þetta, þá hlyti það að hafa geysi mik- il áhrif. Og það leið ekki á löngu þar til stjórnin fór að verða vör við árangurinn. Hún varð vör við það, og skýrði frá því með miklum fagnaðarlátum, utan þings og innan, að hún ,ræki sig á veðsetninguna' hvar sem hún kæmi. Reyndar var fjármálaráðherrann með alla umboðsmennina úti um heim, að tala um, að ísland nyti alls- staðar trausts, og „dyr“ stóðu allsstaðar ,,opnar“, en þetta mun þá eiga að skiljast svo, að „veðsetningin“ hafi verkað svona vel. Þetta tvent sýndist nú vera æði merkilegur undirbúningur undir lántöku, annarsvegar að spilla fjárhagnum raunveru- lega, og hinsvegar reyna að lioma því inn hjá lánardrottn- unum tilvonandi, að við værum talsvert verri en við erum. En þetta er ekkert annað en stað- reynd. Jeg býst við, að alt tal- ið um ,,Kúlu-Andersen“, sje á sömu bók lært. Þær sögur munu eiga að sýna, hverskonar fólk Lslenska stjórnin sje vön að skifta við. Þá var ýmislegt fleira reynt, sem ekki var beinlínis fjármál- um við komandi, en gat þó haft áhrif á álit þjóðarinnar. En það vita allir, að lánardrottnar spyrja um fleira en efnin ein. Þeir fara líka talsvert eftir því, hvernig mann sá hefir að geyma, sem þeir fela fje sitt til varðveislu, því að oft er örugg- ari skuldastaður hjá fátækum manni og heiðarlegum, en hjá prettvísum manni, þótt eitthvað eigi. Það var því unnið að því, að lýsa þjóðinni alment. Og lýsingin varð eitthvað á þessa leið: Við hliðina á blátækum bænd um, sem flestir eru að flýja sveitirnar, er braskaralýður kauptúnanna. Braskaralýður þessi gerir ekki annað en að eyða fje í allskonar óheilbrigða glæfra, og hefir með þessu at- hæfi sóað um 30 miljónum króna. Þetta veldur svo geysi- háum lánsvöxtum í bönkunum, og verða bændur að borga þá, þó að þeir að vísu fái svo sem engin lán, því að braskararnir fá alla peningana(!). Hvernig þeir borga vextina úr því að þeir fá ekki lán, verða lesend- urnir að segja sér sjálfir! Yfir þessum ,,Grimsbylýð“ er svo gerspilt, langskólagengin embættismannastjett. Hvað þess ir embættismenn leyfa sjer, er óskaplegt. Rjettarfarið er dæmi upp á það. í undirrjetti halda menn „stauparjett“, þ. e. dóm- arinn klingir við sökudólginn, og hæstirjettur fremur justits- morð. Á þessum úldna og fyrirferð- armikla sorphaugi glóa svo fáeinar samvinnuskóla-perlur. Og upp á þær á að taka lánið. En ekki var þó alt þetta tal- ið vera nóg, hækkun fjárlag- anna, hækkun skattanna, um- framgreiðslur, skröksagan um veðsetninguna og lýsingin á við- skiftamóraí og rjettarfari í landinu. Það varð að grípa til ein- hvers lokaráðs, einhvers veru- lega áhrifamikils, sem athygli hlaut að vekja út í frá. Það var ekki víst, að útlendir stórlax- ar tækju eftir því, sem sagt var hjer heima, þó að ræðis- menn og aðrir fulltrúar eigi að láta vita, hvað fram fer. Það var ekki víst, að þeir reyndust eins árvakrir og fulltrúarnir hans Einars Árnasonar. Og þá var það, að stjórnin fann upp sitt mikla meistara- stykki, það, sem hlýtur að tryggja minning hennar í fjár- málunum um ókomna tíma, og sem vafalaust hefir borið nafn hennar út um heiminn: Islands- bankamálið. Hafi erlendir fjár- málamenn verið í vafa áður um fjármálaþroska íslenskra stjórn arvalda, þá hlaut nú sá vafi að hverfa. Banki sá, sem um skeið var aðalbanki landsins og seðla- banki, banki, sem bar nafn landsins, banki, sem ríkið átti iStórfje í og skipaði meiri hluta stjórnarinnar, var lagður niður við trog. Bráðabirgðaskoðun á bankanum gaf það svar, að hann ætti fyrir skuldum. Upp á það var honum lokað. Strang- ari skoðun, sem knúin var fram eftir langa rnæðu, gaf það svar, að bankinn væri dálítið neðan við núllið. Skeyti komu úr ýms- um áttum og bentu á, að nú hefði verið tekið eftir okkur úti um heiminn, en þess var vand- lega gætt að hafa þau að' engu eða gera þvert á móti. Að vísu komu vondir menn og hindruðu hina áhrifamiklu aftökuathöfn. En nóg var þó að gert til þess að sýna viljann. Og nóg komst inn í nýja frumvarp- ið til þess að sýna, hvers þeir mega vænta, sem fje sínu hætta hingað. Eftir allan þennan undirbún- inng var ekki furða, þó að lán- taka stjórnarinnar yrði með dá- lítið sjerstökum litblæ. Enda var ekki laust við, að svo væri. Fyrst eru allir umboðsmenn "ínars Árnasonar á hnotskóg. Síðan er hver ferðin gerð eftir aðra. Var svo komið, að varla i'ór svo maður úr landi, að ekki væri sagt í gamni, að hann myndi eiga að leita fyrir sjer um lán handa ríkinu. Allir vissu, að peningamark- aðurinn var ágætur. Hver fregn in kom eftir aðra um lántökur annara með mjög aðgengilegum kjörum. En altaf stóð á íslenska láninu. Sumir framsóknarmenn- irnir voru farnir að segja það við menn, að það myndi ekki þurfa að taka neitt lán! Sendi- menn Reykjavíkur út af virkj- un Sogsins gátu engin ákveðin lánstilboð fengið, af þeirri al- veg eðlilegu ástæðu, að menn biðu eftir þvi að sjá, hver kjör in yrðu á ríkisláninu. Var ympr- að á 6%%, og sýndi það skoð- Til að sauma, bæta, stoppa í sokka og ljereft og brodera eru PFAFF- saumavjelar bestar. — Einkasali. Magnús Þorgeirsson, Bergstaðastræti 7 Sími: 2136. un erlendra fjármálamanna á því, hverju ,,undirbúningur“ stjórnarinnar hafði áorkað síð- an 1926, er Jón Þorláksson fjekk á lakari peningamarkaðí miklu hagstæðara lán. Og svo kom loks fregnin um að lánið væri fengið, fregnin, sem kom fyrst með farþegum á skipi frá útlöndum, og var mót- mæltj af fjármálaráðherra, fregnin, sem var prentuð í Austfirðingi Árna frá Múla áð- ur en fjármálaráðherrann með alla umboðsmennina vissi til, að nokkurt íslenskt ríkislán hefði verið boðið út í London. Það má vel segja það, &ð kjörin á láninu voru ekki verri en við mátti búast, eftir þvír hvað stjórnin hafði gert fjrrir sjer. Það má meira að segja fullyrða, að kjörin hafi orðið skárri en stjórnin gat vænst, og hefir landið þar notið viðskifta Landsbankans við Hambros- banka og þess trausts, sem þau viðskifti hafa skapað. ‘ Banka- stjóri sá, sem lánið tók (því að það er ekkert nema mont, þeg- ar J. J. segir, að „við Magnús^ Sigurðsson“ hafi tekið lánið) hefir getað sýnt sínum gömlu viðskiftamönnum fram á, að aðfarir stjórnarinnar væri ekki rjett spegilmynd af viðskiftum þjóðarinnar, heldur einstakt fyr irbrigði. En þrátt fyrir þetta, að lánið var skárra en við mátti búast, og þrátt fyrir aðstoð Landsbank ans, er þetta lán ógurlegt áfall fyrir landið, þung fjárhagsleg byrði og álitshnekkir, sem seint verður bættur. Það er hlutfalls- lega mikið verra en lánið 1921, sem tekið var undir þeim erfið- ustu kringumstæðum, og sýnir greipilega afturför frá 1926, afturför, sem kostar landið mil- jónir á miljónir ofan, beinlínis og óbeinlínis. Tilraun Tímans að segja rangt frá um afföllin a láninu er óbein játning þess, að sjálft stjórnarliðið finnur það, hvílíka niðurlæging við er- um komnir í fyrir aðgerðir iltr- ar stjómar. Samanburðurinn við þær þjóðir, sem nú verða að sæta mestum ókjörum á pen- ingamarkaðinum, undirstrikar þennan sama sannleika. Gula lánið mun um ókomin ár standa eins og viðvörunarmerki. Það sýnir, hvernig fer fyrir þeirrí ötjórn, sem sóar fje, talar á- byrgðarlaust og hagar sjer yf- irleitt eins og ógætinn ungling- ur. Þjóðin getur ekki fengið ann- að upp í tjónið en það, að afla sjer af þessari dýru reynslu þeirra hygginda, að láta ekkí slíkt koma fyrir aftur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.