Morgunblaðið - 14.12.1930, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
23
Dagbik.
o Edda 593012167 — I.
Fyrirl. (Jhv.)
I.O. O.F 3 = 11212153 == h.in.
atkvæðagr,
Veðrið (i gær kl. 5): Lægðin,
sem var vestan við Bretlandseyjar
hreyfist NA eftir, svo að lægðar-
miðjan (725 mm.) er nú vestan
við Færeyjai* á milli Skotlands og
íslands. Hún virðist nú hreyfast
mjög hægt og byrjuð að fyllast
upp. Á N og A-landi er allhvöss
og sums staðar hvöss A-átt með
allmikilli rigningu víða og 3—5
stigá^ hita. Um SV-hluta landsins
er hins vegar kyrt veður og úr-
komulítið. Á austurströnd Græn-
lands er N-læg átt með snjókomu
og 4—10 stiga frosti og á hafinu
suðvestur af Islandi mun vera
hvast á NV. Á morgun verður N-
NA-læg átt um alt land, töluverð
úrkoma á N- og A-landi og hvass-
viðri eða stormur við V- og NV-
land. Um SV-hluta landsins verð-
ur úrkomulítið, en allhvast eða
hvast á NV- úti fyrir.
Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn-
ingskaldi á NV eða N. Urkomu-
lítið.
Sjómannastofan hefir í ár,
eins og á undanförnum árum,
fengið ýmsar jólagjafir til út-
lendra sjómanna. Eru nýkomn-
ir jólabögglarnir frá Noregi og
Danmörku, og meðal dönsku
bögglanna eru nokkrir frá
drotningunni. Fjársöfnun fer nú
fram hjer í bænum til jólajhá-
tíðar, eins og í fyrra, og var
tninst á það í blaðinu í gær.
„Söfnunarsióðurinn“ er á horn-
inu á Bankastræti og Lækjar-
götu. Er það kassi fyrir sam-
skotafje, en fyrir ofan björg-
unarhringur með rafljósum og
nafni Sjómannastofunnar. Aðra
jólahátíð heldur Sjómannastof-
an í Hafnarfirði um jólaleytið
eða milli jóla og nýárs, og eru
þeír Hafnfirðingar, sem vilja
leggja fram skerf til þess, beðn-
ir að koma gjöfum sínum tii
Jóels Ingvarssonar skósmiðs í
Hafnarfirði. — Fjöldi sjómanna
frá ýmsum þjóðum er á árx
hverju á jólahátíð Sjómanna-
etofunnar, og hafa sjerstaka á
nægju af þeim samkomum. Eru
þar margir, sem ekki hafa verið
heima í mörg ár, en jafnan hah
ið jólin í sjómannastofum, sití
árið í hverju landi. T. d. var
einn norskur sjómaður á jóla
samkomu Sjómannástofunnar í
fyrra og voru það 15. jólin, sem
hann hafði ekki verið heima,
heldur haldið þau í sjómanna-
stofum víðsvegar um heim. —
Þótti honum ekki minst til koma
jólahátíðarinnar hjerna.
Hið íslenska kvenf jelag h<ú
ur fund á mánudaginn kemur f
hótel Skjaldbreið. Fjelagskon-
ur mega taka með sjer gesá.
„Byltingamennina í kommún-
ístaflokknum" talar Tíminn un
í gær. Fáir munu þekkja þá
kommúnista, sejn ekki eru bylt
ingamenn. Þekkir Tíminn þá?
Er ritstjórinn að gefa í skyn.
að maður einn honum nákom-
inn (J. J.) sje meðal þeirra
kommúnista, sem ekki eru byít
ingamenn?
„Endurómar af hrópum er-
lendra æsingamanna hafa bor-
ist hipgað ,tiL landsins, og. vald-
ið ókyrð í hinu friðsama, ísl.
þjóðfjelagi". Eftirfarandi máls-
grein stendur í Tímanum í gær.
Hún er sönn. Endurómar þeir,
sem höf talar um, hafa að vísu
heyrst hjer undanfarin ár. Þeii
hafa heyrst síðan þeir fjelagar
Jónas frá Hriflu og ólafur Frið-
riksson byrjuðu stjórnmálastarf
semi sína hjer. Það syngur við
sama tón í Ólafi enn. En ekki
er laust við, að Jónas telji það
borga sig betur að syngja með
öðru lagi í svipinn, en honum ei
eiginlegast, enda þótt „endur-
ómarnir“, sem Tíminn talar um,
hafi hljómað nokkuð þrálát-
lega í Samvinnuskólanum.
Almennur unpeldismálafund-
ur verður haldinn í dag í Nýja
Bíó kl. 2, að tilhlutun barna-
vinafjel. Sumargjöf. Fundurinn
hefst með einsöng ágætrar söng
konu og trio, undir stjórn Þór-
arins Guðmundssonar. Þá flytur
Steingrímur Arason erindi, og
loks verða almennar umræður
um velferðarmál barna hjer í
borginni. Ókeypis aðgangur á
meðan húsrúm leyfir. Ættu for-
eldrar að sækja fUnd þennan.
Hjálpræðisherinn hefir sett
upp jólatrje með fjársöfnunar-
bauk á Austurvelli.
Seint vaknað. Tíminn segir
sitt af hverju um verkbannið,
sem forkólfar sósíalista hafa
sett á Samband ísl. samvinnu-
fjelaga. Á eimim stað kemst
blaðið þannig að orði: „Atburð-
ir síðustu daga gefa tilefni tii
alvarlegrar íhugunar á afstöðu
samvinnumannanna íslensku til
skipulagsúrlausna þjóðfjelags-
ins og flokkanna, sem að þeim
standa“. — Er vel, ef blað.ð fer
nú að sjá og skilja, hvaða menn
það eru, sem Tímaflokkurinn
er í sambúð við. En nokkúð
vakna þeir seint, Tímapiltarníi’.
Hestar — refir. í útflutnings-
skýrslu nóvembermánaðar síð-
astl. eru taldir meðal útfluttra
afurða 31 hestur, og er verð
þeirra talið 4650 kr. í sömu
skýrslu eru taldir 30 refir, og
er verð þeirra 18000 kr. — Þess
ar tölur eru athvelisverðar fyr-
ir íslenska bændur.
Fiskaflinn á öllu landinu var
talinn 438.467 skpd. hinn 1.
desember, og er það hjer um
bií það sama og 1. des. í fyrra
(þá var aflinn 406.463 skpd.).
Á sama tíma í hittiðfyrra nam
aflinn alls 391 þús. skpd. og 1.
des. 1927 ham hann 305^4 Þús.
skpd. Mikið af töldum afla
þessa árs er fiskur keyptur af
útlendum skipum.
Hjónaband. I gær voru gefin
saman í hjónaband Áslaug
Káradóttir og Sigurbergur Þor-
leifsson, Hofi í Garði. Síra Eir.
Brynjólfsson að Útskálum gaf
þau saman.
Leikhúsið. Gamanleikurinn
„Hrekkir Scapins" verður sýnd-
ur í kveld í Iðnó.
Nemendur Tónlistarskó^an?
eru beðnir að mæta kl. 12% í
dag í Hljómskálanum.
l.esbókin. Yegna þess hvað
blaðið er stórt í dag getur Les-
bók ekki fylgt. Næsta Lesbók
verður Jólalesbókin, afarfjöl-
breytt að efni, með fjölda
mvnda, og mjög vandað til
hennar á allan hátt.
Kappglíma Kjósarsýslu var
háð á laugardaginn að Brúar-
landi í Mosfellssveit. Keppend-
ur voru 5 og bar sigur af hólm'
Sigurður frá Æsustöðum, og
fjekk farandbikarinn, er Þor-
geir Jónsson frá Varmadal gaf
1928.
Lyra fór frá Færeyjum áleið-
is hingað kl. 2 í gær.
Lítið í gluggana!
Þar geta allir sjeð
Jóla-skó
við sitt hæfi.
Lðtið verð og gæði
SANNFJERA
yðar um að bestu kanpin eru 1
Lírus G. Lúðuígsson, skðverlsun.
Þar fæst flest það, sem heimilin þnrfa
við sanngjörnn verði.
Vorurnar eru vandaðar* eins og ætíð áður, en sjerstakt skrum um
þær ekki auglýst, af því að reynslan er, að því má trúa, sem verslunin
segir, og er hennar mark að upplýsa og leiðbeina viðskiftamönnunum um
hvað best sje og hentugast að kaupa.
Hattabúðin
Hattabúðin
Austurstræti 14.
Sími 880.
Frönsk kjóla 4 H a 11 a r nýkomnir Æ Náttfatapokar,
og kápublóm, \ Alpahúfur ^ stólabrúður á ís-
samkvæmistöskur, Sonny boy- f lenskum og erlendum..
hattaöskjur (voxdúks) húfur. f búningi, serviettu-
vasaklútar og nálapúðar haldarar, slæður, hálsbindi
vasaklútamöppur í afar Æ Sjöl í
miklu úrv. heimasloppa og m. fleira.
ALT SNOTRAR OG SKE MTILEGAR JÖLAGJAFIR!
Anna Ásmnndsdóttir.
TRAOl-MAMM
GOLUMBIA PL0TUR BESTAB.
MAGIC NOTES ...
Islenskar og erlendar, endingarbetri, betur uppteknar og meira úrvali en
aðrar tegundir af piötum.
Colnmbia grammófónar viðurkendir þeir bestu er til landsins flytjast.
17 mismunandi tegundir fyrirliggjandi.
Iitið á vörusýnínguna í verslun okkar í dag!
Músík verður spiluð út kl. 2—4 og 5—7 e. h.
'Í V i
Íf
FÁLKINN. Langaveg 24.