Morgunblaðið - 24.12.1931, Síða 13

Morgunblaðið - 24.12.1931, Síða 13
M 0 K G UÍNtí L A u í Ð 13 KUÖLD. Kyljan fadmar kvöldið blíða, kyrrð og fri&ur hawðrið víða, blómin vagga’ í blænum þýða, býr þau skarti döggin tær, þegar sólin sígur skær. Hópar fugla’ um loftið líða, Ijettum vængjum blaka. Ótal raddir upp’ í geimnum kvaka. Þegar heyri’ jeg þessa róma, þráir sál mín helga óma, er með söngvum svifþýtt hljóma, samstiltir við lífsins óð verða bæði lag og Ijóð, eiga sólaryl og Ijóma alt að verma’ og hlýja, — vekja þreyttum von og krafta nýja. Æ, jeg kysi yndi’ dð dreyma, áhyggjum og þreytu’ að gleyma, seiða fram um hugarheima hverja stund, sem mjer var kær. — Sorg á kvöldum summn hlær —. Lífið væri sælt að sveima, sár þótt færði dagur, yrði svona aftanroðinn fagur. Hugur ber mig langar leiðir. Liðnir dagar birtast heiðir. Margt, er friðsælt faðm sinn breiðir falið bak við minnistjald brosir nú með björtum fald’. Minning ylhýr meinum eyðir, megnar hörmum svala, sje jeg ein við sjálfa mig að tala. Lengst þótt svíði lífsins undir, Ijetta söknuð þessar stundir. Daggarperlum glitra grundir, geislaflos við sjónum hlær. — Vin minn finn jeg nú mjer nær. Eru’ ei bráðum endurfundir? Á jeg lengi’ að þreyja? — Jeg á slíku kvöldi kysi’ að deyja. — Alt er vafið yl og rósum, augun bljúg af söng og Ijósum. Jeg vil leggja’ úr lífsins ósum loksins inn í trygga höfn, eftir volk um æfidröfn. Hygg jeg allir helst vjer kjósum heiminn þann veg kveðja. Von um ]>að má grættan huga gleðja. Blærinn andar, áin niðar, mnaðsröddum loftið kliðar. Sál mín nýtur sælu’ og friðar, svífur ofar hugur minn. Guð í hinsta geisla’ jeg finn. Síg þú, blessuð sól, til viðar sveipuð Ijósdýrðinni. Glitskrúð þitt jeg geymi’ í sálu’ minni. HALLA LOFTSDÖTTIR frá Sandlæk. Lögfesta. {Eftir handi’iti Jóns Borgfirð- ings, í safni Ólafs DavíSssonar). H.ier með festi jeg og Oögfesti nndir skrifaður, eiginkonu mína, Hildi Pálsdðttur, og fyrirbýð, í allra kröftugasta máta, eftir laga- leyfi, svo vel prestinum síra Magnúsi Einarssyni á Butru, sem hverjum öðrum, að liýsa hana eða heimila, burttala eða lokka frá mjer, móti guðs og manna lögum og boðorðum. Því lýsi jeg hana mína eign og eiginkonu, ef jeg má óræntur vera, og tilbýð henni samvist og samveru — í öllum kristilegum egtaskapar kærleika — á beggja okkar bólfestu, Snotru í Landeyjum; óska jeg að sveita- menn í Fljótshlíð, flytji hana og færi til mín, hvar sem hitta kynnu, eins og' til var sett, og ráð fyrir gert á seinasta Kirkjubæjar mann- talsþingi. Þessari lögfestu td stað- festu er mitt undirskrifað nafn og hjásett innsigli. SVeinbjörn Þorleifsson. TJpplesin við Breiðabólstaðar-, Eyvindarmúla- og Teigskirkjur á 2. og 3. dag Hvítasunnu 1770. íslenðingar í París- París, 7. desember. Prófessor Jolivet flutti fyrirlest- ' ur um ísland í Sorbonne þ. 28. f. j m Kakti hann í stuttu máli sögu | landsins frá byggingu þess, dvaldi j við helstu viðburði og lýsti eink- | um hinu fábreytta lifi jafnt aiþýðu j liöfðingja, til þess að sýna fram á þær breytingar, sem orðið hefði lifnaðarháttum þjóðarinnar. — Sneri hann síðan máii sínix að and- legu lífi, bókmentum og listum. Mintist hann á helstu málara og dvaldi einkum við Gunnlaug Blön- dal, sem hann kvað Frakka mundu skilja best, enda væri hann þektur Frakklandi og myndi innan skarnms opna sýningu. Einars Jóns sonar mintist hann og sýndi nokkr- ar myndir af höggnyndum hans. — íslensk list, sagði hann, er að flestu eða ö'llu leyti innblásin af hinni voldugu og hrikalegu nátt- úru landsins. Þegar jeg var á Þing völlum, sá jeg marga málara að vinnu við landslagsmyndir sinar. En það eru ekki eingöngu málarar, sem vinna rír landslaginu. Á mynd- um Einars Jónssonar má glögglega sjá, hve föstum fótum hann stend- ur í íslenskri náttúru. Menn skilji ekki orð mín svo, að engin list sje til á tslandi, nema málaralist, fyrir utan bókmentirn- ar, sem jeg síðar mun víkja að. Jeg hafði tækifæri til að sjá „í- myndunarveikina“ eftir Moliére og var það að öllu leyti boðleg sýning, hvar se:m vera skyldi, en leikur Teikenda framúrskarandi. Þá sneri hann máli sínu að bók- mentunum. Lagði hann til grund- vallar máli sínu orð Sigui’ðar próf. Nordal um samhengið í islenskum bókmentum. Lýsti hann liinu sjer- kennilega andlega lífi meða'l al- þýðunnar og hin miklu skáld, sem risið hefðu upp hver eftir annan gegn um aldirnar og va'rðveitt ís- lenska menningu með skálskap sín um. Vegna hins nauma tíma gat hann ekki dvalið við nema örfáa rithöfunda, en ummæli hans lýstu mikilli þekkingu á bókmentum vor um og glöggum ski'lningi. Fvrirlestri hans var vel tekið og er í ráði, að hann haldi fleiri um íslensk mál við háskólann. GLEÐILEG JÓL! ísafoldarprentsmiðja h.f. Jöiakveðjur sjómanna FB. 22.-24. des. Liggjum á Önundarfirði. GTeði- legra jóla óskum við vinum og 1 ættingjum. Vellíðan. Kærar kveðj- ur. Skipshöfnin á Sindra. Gleðiíeg jól. Góð líðan. Kærar kveðjur. Skipshöfnin á Júpíter. Hjartanlegar jólaóskir til vina og vandamanna. Skipshöfnin á Hannesi ráðherra. Oskum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla. VelMðan allra. Kveðjur. Skipverjar á Baldri. • Óskum öllum vinum og vanda- mönnum gleðilegra jóla. Vellíðan allra. Kveðjur. Skpshöfnin á Gylfa. Oskum vinum og vandamönn- uin gleðilegra jóla. Vellíðan. K\ eð jur. Skipshöfnin á Ver. Gleðileg jól, vinir og vanda- menn! Skipshöfnin á Sviða. Óskiun vinum og vandamönn- um gleðilegra jóla. Skipsliöfnin á Agli Skallagrímssyni. Óskum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla. Vellíðan. Kærar kveðjur. Skipverjar á Otri. Gleðileg jól. Vel'Jíðan. Kærar kveðjur til vina og vandamanna. Skipverjar á Geir. = I | GLEÐILEG JÓL! | Húsgagnaverslun = § Kristjáns Siggeirssonar. 1 Í I iiiiiiiiiimiiiiiiimimiiiiiiiiiimmuimmimmiiimiiiiimifi;= GLEÐILEG JÓL ! Versl. Manchester. I GLEÐILEG JÓL! Húsgagnaverslun Reykjavíkur. □□□ooaaaaoaa aaaaaaaaaaaaaaooaaaaaaaao 0<X>0<><><><> GLEÐILEG Fyrsta desember hjeldu íslend- ingar hjer í París hátíðlegan með því að heimsækja þjóðskáldið Ein- ar Benediktsson, sem nú býr hjer í París. Meðal annara gesta voni þar Gunnlaugur Blöndal listmálari, frú lians og Kristján Albertson rit- höfundur. Einar mælti fyrir minni Islands, en Kristján Albertsson mælti fyrir minni skáldsins, sem fegurst, dýpst og snjallast hefði kveðið á íslensku máli. Dagbók. %oooooo H Ij óðfærav erslun Helga HaUgrímssonar. ooooooooooo Gunnl. BlöndaT opnaði málverka sýningu hjer þ. 4. þ. m. Verður luin opin til 17. des, Þegar sýn- ingin var opnuð voru viðstaddir sendiherra Dana hjer, Kammer- herra Bernhöft, Einar Benedikts- son, Simon. fyrv. sendiherra Frakka í Keykjavík, flestir ís- lcndingar hjer í borg og allmargt annara gesta. Er sýningin óefað hin besta, er Blöndal hefir haldið, enda aðsókn góð og hafa nokkur málverk selst, þótt lítið sje keypt af listaverkum um þessar mundir. Blaðadómar hafa enn ekki birtst. B. G. Jarðabætur í ár. Verið er að gera skýrslurnar um jarðabætur þær, sem mældar hafa verið í sumar. Eru þær svo langt komnar, að sjeð verður, af því sem komið er, að jarðabætur hafa orðið meiri í ár en í fyrra. í sumum sýslum, svo sem Skagafjarðarsýslu, hefir verið unnið miklum mun meira en í fyrra. Og svo er víðar. Aukin vjelavinna er það, sem mest fleyg- ir jarðabótunum fram. Strætisvagnarnir fara síðast. frá Lækjartorgí í kvöld kl. 7, og byrja aftur á Jóladag kl. 1 síðd. og halda svo áfram á venjulegum tíma. Sjerfræðigrein lækna. — Stjórn Læknafjelags Islands hefir viður- kent Valtý Albertsson og Bjöm Gunnlaugsson, báðir hjer i Reykja vík, sjerfræðinga í lyflæknisfræði. Togararnir. Belgaum koni frá Englandi í gærmorgun og fór á veiðar. — Gyllir og Ver komu af veiðum og fóru til Englands; Snorri goði fór á veiðar í gær. Tveir enskir togarar ltomu hing- að í gær með veika menn. Einnig kom enskur togari, bilaður. Skipafrjettir: Gullfoss fer frá Reykjavík 26. þ. m. til Leith og Kaupmannahafnar. — Goðafoss fór frá Hul l í fyrradag. — Brúar- foss kom til Noregs 21. þ. m. — GLEÐILEG JÓL ! Landstja man. Dettifoss fer frá Reykjavík ann- að kvöld, vestur og norður. — Lagarfoss kom til Kaupmanna- hafnar í fjTradag. — Selfoss kom tii Reykjavíkur í gær . Leikhúsið. Á annan dag jóla verða tvær leiksýningar, kl. 3y2 barnaleiksýningin „Litli KTáus og Stóri Kláus“ og um kvöldið kl. 8 frumsýning á óperettunni „Lag- leg stúlka gefins“. Um Blönduóshjerað hafa sótt þessir læknar; Bragi Ólafsson, Eiríkur Björnsson, Jónas Sveins- son, Lúðvik Norðdal, Magnús Ágústsson, Ólafur Einarsson, Ste- fán Guðnason, Torfi Bjarnason, og Haraldur Jónsson. Hjeraðið veitist frá 1. janúar. Utanfararstyrkir lækna. Auglýst hefir verið, að umsóknir um utan- fararstyrk til hjeraðslækna skuli senda landlækni. Læknablaðið skýrir frá því, að ekki sje kunn- ugt, að nokkur utanfararstyrkur hafi verið veittur hjeraðslæknum undanfarin ár, og telur það fram- för, ef riú á að fara að veita þessa styrki aftur. Framhald á 15. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.