Morgunblaðið - 20.08.1939, Page 6
Sölmánuður ð Austfjðrðum
MORGUNBLAfilÐ
Sunnudagur 20. ágúst 19Bt.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐTJ.
Þegar sýslumannsh,jónin fóru
frá Eskifirði, hjeldu Esk-
firðingar þeim veglegt samsæti.
Gekst Sjálfstæðisfjelagið þar fyr-
ir samsætinu, en öllum var frjáls
þátttaka. Fylgdu þeim hinar hlýj-
astii hugsanir og þakkir frá sýslu-
búum, og heillaóskir til hins nýja
Itarfs, sem Magnús Gíslason hefir
nú tekist á hendur, sem skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
j, Sjálfstæðismenn eiga allmiklu
lýlgi að fanga á Eskifirði, þótt
jþeir hafi þar ekki fulltrúa í
hreppsnefnd, .af þeim ástæðum,
sem áður er sagt. Sjálfstæðisfjelag
h’efir starfað þar uín nokkur ár.
Var haldinn fjelagsfuadur, meðan
jeg stóð við. Flutti jeg þar erindi
nm stjórnmálaviðburði síðustu
mánuðina, einkum myndun þjóð-
stjórnarinnar, aðdraganda hennar
og orsakir og skýrði afstöðu Sjálf-
stæðismanna. Ennfremur tóku til
máls Magnús sýslumaður Gíslason,
Árni Helgasop og Eiríkur Bjarna-
son.
Sjálfstæðisfjelagið hefir nú í
hyggju, einkum' fyrir atbeina Da-
víðs Jóhannessonar símstjóra og
samkvæmt hugmynd hans, að ráð-
ast í byggingu sumarskála. Er
hugmyndin sú, að skálinn verði að
sumrinu til bæði sumarskáli fyrir
konur og börn til hressingar, og
svo berjaskáli, en að vetrarlagi
skíðaskáli. Er gert ráð fyrir að
3kálinn kosti 2500—3000 krónur,
og er hugsað að reyna að afla
fjárins með lilutaveltu, leiksýn-
mgum og e. t. v. fleiru.
Er það gleðilegt, hve víða er
▼aknaður áhugi og kjarkur meðal
Sjálfstæðismanna um að koma sjer
npp samkomustöðum undir berum
himni, og skálum úti í hinni
frjálsu náttúru. Verður þetta til
eflingar fyrir flokksstarfsemina,
til hollustu og skemtunar. Er þess
að óska, að skálí Eskfirðing-
anna megi rísa sem fyrst fyrir
framtak þeirra, til gagns og gíe'íí
fyrir íbiia kauptúnsins.
Nokkru fyrir utan Eskifjarðar-
kauptúnið er hin fræga silfur-
bergsnáma í Helgustaðafjalli við
Reyðarfjörð. Er sú náma kunn
meðal jarðfræðinga um allan heim.
Silfurberg er að vísu til víðar en
þar, bæði á Islandi og í öðrum
löndum, en hvergi eru krystallarn-
ir jafnstórir og undurfagrir eins
og þéir, sem fundist hafa í Helgii-
staðanámu. Margir ijtlendingar
hafa komið þar til þeás að skoða
þetta furðuverk. Hefir öðru hvoru
síðan á síðustu öld verið unnið að
vinslu silfurbergs íir námunni. Er
hún nú í eígn ríkissjóðs. í nokkur
ár var unnið þar undir st jórn Helga
Hermanns Eiríkssonar verkfræð-
ings. Síðar lá vinslan niðri, nema í
eitt sumar, er listmálarinn Krist-
ján Magnússon ljet vinna þar.
Mun nú í ráði að hefjast þar
handa að nýju.
Silfurbergið er mjög verðmætt,
einkum ef krystallarnir eru stórir
og tærir. Er það einkum hið ein-
ikennilega og f^gra Ijósbrot ög lif-
skrúð, sem geiur þeim gildi. Eru
þeir mikið notaðir í ýmisleg Ijós-
verkfæri, sjónauka o. fl. En hið
óhreinna silfurherg hefir um nokk-
ur undanfarin ár verið notað til
húðunar á steinsteypuhús, m. a. á
Háskólabygginguna.
Á Reykjarfirði
var einnig haldinn flokksfundur,
á heimili Odds Bjarnasonar
hreppstjóra. Var hann vel sóttur,
eða um tvöfalt mannfleira en á
almennu leiðarþingi, er alþingis-
mennirnir höfðu haldið þar á
staðnum nokkrum dögum áður.
Eimskip. Gullfoss fór frá Leith
í gær, áleiðis til Vestmannaeyja.
Goðafoss fór frá Leith í gær, á-
leiðis til Hamborgar. Brúarfoss er
í Reykjavík. Dettifoss fór vestur
og norður í gærkvöldi kl. 8. Lag-
arfoss var á Húsavík í gær. Sel-
foss er á leið til Aberdeen.
Sjómannakveðja. Erum á leið til
Þýskalands. Vellíðan. Kærar
kveðjur. Skipshöfnin á Braga.
Öánægja yfir
fersksíldar-
verðinu
• |
Aðalfundur Síld-
arútvegsnefndar
Aðalfundur Síldarútvegs-
nefndar var haldinn á Siglu-
firði í gær. Á fundinum mættu,
auk nefndarinnar, fulltrúar sjó-
manna, útnefndir af Alþýðusam-
bandinu, og matjessíldarsalt-
endur.
Fyrir fundinn hafði komið
tillaga um að veita útvegsmönn-
un. alment aðgang að fundin-
«m, en nefndin feldi hana.
Umræðurnar snerust aðallega
um það óþolandi ástandi, að
verðið á fersksíldinni skyldi
ekki hækka hlutfallslega við
verðið á saltsíldinni.
Sveinn Benediktsson bar fram
svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn skorar á Síldar-
útvegsnefnd að beita sjer íyrir
því, að tekin verði upp nú þeg-
ar sama söluaðferð á fersksílc
til söltunar hjer á landi og tíðk-
ast í Skotlandi og Hollandi,
þannig, að síldin verði daglega
boðin upp á sjerstökum mark-
aðsstað og seld hæstbjóðanda,
sem uppfyllir þau skilyrði, sem
venjuleg eru á slíkum mörk-
uðum. Lágmarksverð á fersk-
síld verði í gildi eins og áður.
Sala fersksíldarinnar á slík-
um föstum markaðs.stað mun
samkvæmt erlendri reynslu best
færa leiðin, til þess að sjómenn
og útgerðarmenn fái það verð-
magn fyrir fersksíld, sem svar-
ar til markaðsverðs á verkaðri
síld á hverjum tíma, en á því
hefir oft orðið mikill misbrestur,
eins og nú í sumar, þegar fersk-
síldin hefir svo að segja hald-
ist í lágmarksverði, kr. 9,75 pr.
tn., en myndi á slíkum opnum
síldarmarkaði hafa komist upp
í um kr. 20,00 fersksíldartn.,
samkvæmt sölum, sem hafa far-
ið fram á verkaðri síld“.
Tillagan var feld með 17:4
kv. Fjórir greiddu ekki atkv.,
og margir voru fjaryerancb af
þeim, sem atkvæðisrjett höfðu.
Það voru fulltrúar, Alþýðusam-
bandsins og síldarsaltendur, er
feldu tillöguna. Sjómenn hafa
raunverulega engan fulltrúa á
þessum fundi.
Samþykt var tillaga frá Jak-
obi Frímannssyni þess efnis, að
Síldarútvegsnefnd reyndi að ná
samkomulagi við slíldarkaup-
endur um hækkun á síldarverð-
inu.
Þá kom fram: tillaga frá Ósk-
ari Halldórssyni, þess efnis, að
skora á Síldarútvegsnefnd, að
gera ekki fyrirfram samninga
um sölu matjessíldar, nema
fulltrúar sjómanna, kosnir
beint af sjómönnum sjálfum,
samþyktu söluna.
Þegar blaðinu bárust fregnir
af fundinum, stóð hann enn
yfir, og atkvæðagreiðsla hafði
ekki farið fram um tillögu Ósk-
ars.
Reknetaveið-
in að glæðast
eystra
Agætt veiðiveður var í gær, en
sama og engin síld barst til
ríkisverksmiðjanna á Siglufirði,
símar frjettaxitari Morgunblaðsins
á staðnum.
Nokkur skip komu nieð snurpu-
síld til söltunar. Söltun síðasta sól-
arhring nam, 2175 tn., þar af ,512
tn. úr reknetum. Reknetaveiði ,enn
mjög treg, encla ekki gott veiði-
veður.
Djúpavík.
Tvo síðustu sólarhringana hafa
komið nokkur skip með slatta til
Djúpuvíkur, og fór síldin til sölt-
unar. Voru saltaðar þar þessa
claga um 1200 tn. ' i
Alls er búið að salta í Djúpu-
vík um 7000 tn.
Skagaströnd.
Þar voru saltaðar um 1700 tn.
síðasta sólarhring. Komu mörg
skip til Skagastrandar í gær og
var búist við, að tunnulaust yrði
þar í gærkvölcli.
Raufarhöfn.
Á Raufarhöfn voru í fyrradag
saltaðar 130 tn. af reknetasíld.
Bátar, sem þangað komu, höfðu
góðan afla, eða alt að 5 tunnur í
net. Tjaldur frá Vestmannaeyjum
fekk 150 tunnur 1 28 net og Fálk-
inn frá Raufarhöfn 40 tunnur í
14 net. Veiðiveður var slæmt í
fyrrinótt, stormur útifyrir og vont
í sjó. Frjest hafði um, báta, eink-
um norska, sem ekki höfðu getað
dregið netin vegna þess hve mik-
il veiði hefir verið í þeim.
EOLASALAN S.«.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Símar 4514 og 1845.
E.8. Nova
fer hjeðan væntanlega á
mánudagskvöld vestur og
norður um land til Noregs.
P, Smifh & €o.
Besta mynd
Katherine Hepburn
C rjálslynd æska“ og Kay Hep-
19 buni! Meiri meðmæla þarf eigin
lega. ekki með myndinni, sem sýnd er
í Nýja Bíó næstu kvöld.
Ýmislegt er þó hægt að segja um K.
Hepburn. Það er fullyrt, að þetta sj©
besta hlutverk hennar til þessa. Húm
hefir óskað þess í mörg ár, að £á a®
leika það. En nú fyrst fengið þá ósk'
uppfylta.
Amiað er það, að hún leikur nú á
móti Cary Grant. Hann er talinn best-
ur allra meðleikenda hennar. Enda sá
eini, sem hefir leikið oftar en ein«
sinni á móti henni — nú í þriðja sinn.
Þau eiga ágætlega saman.
Um myndina sjálfa er það að segja^
aS þó efnið sje allalvarlegt, þá er það>
alls ekki sorglegt. Það er meira að
segja skemtilegur gamanleikur ineS
köflum. T. d. þegar Cary Grant kemur
ti’ Setan-hallarinnar! Hvemig han»
liagar sjer í þeim salarkynnum!
i Af öðrum leikumm, sem gera sitt til
þess að gera myndina góða mynd, og
hressandi er E. E. Horton. Hann eir
hlægilegur. Þegar hann sá sig í fyrsta
sinn í kvikmynd, varð hann fyrir svo
miklum vonbrigðum aS hann hjet því
að leika aldrei aftnr., Síðan hefir hana
leikið í aðeins 76 myndum.
„Frjálslynd æska“ skal ekki rædd
hjer frekar. Aðeins aS lokum nokkur
orð um Caiy Grant—. Johnny Case,sem
verður ástfanginn, en neitar aS láta
tcngdapabba skipuleggia líf sitt. Han«
er í raun og veru dökkhærður, með
brún augu. Neytir hvorki víns nje tó-
baks og er „sólbrendasti“ maður í Holly
vood. Iíann leikur prýðilega á slag-
hörpu, vill helst ekki ganga meS flibba
og hefir aldrei fengið hatt, sem hann
er ánægðnr með.
Nova var væntanleg til Reykja-
víkur aÖ vestan og norðan í nótt.
: KOPIERING .
STÆKKANIR •
: í
• Fljótt og vel af hendi leyit. ®
: i
: F. A. THIELE I
: Austurstræti 20. «
allan daginn i dag.
Steindór.
Dansleikur I HveragerOi
KVENFJELAGIÐ BERGÞÓRA
heldur dansleik í Hveragerði í kvöld kl. 8.
GÓÐ MÚSIK.
STJÓRNIN.
Skemtisamkoma
að Eiði
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík
efnir til skemtisamkomu að Eiði í dag.
Benedikt Sveinsson bókavörður og Árni Jónsson
alþingismaður flytja ræður.
Lúðrasveitin Svanur leikur ýmis lög undír stjórn
Karls Runólfssonar tónskálds.
Dans verður um kvöldið.
Hljómsveit Bernburgs spilar.
NEFNDIN.