Morgunblaðið - 20.08.1939, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.08.1939, Blaðsíða 10
10 MORGUN tíLAÐIÐ Sunnudagur 20. ágúst 1939. Memfis og Sakkara Ferðasaga Magnúsar Jónssonar prófessors Þriðjudaginn, 20. júní. að varð fremur smátt með svefninn í nótt. Dagurinn var fyrirferðamikill í huganum, þó að jeg væri þreyttur orðinn, fyrst eftir viðburðina, og svo eftir að skrifa 22 blaðsíður og reyna að safna saman á papp- írnum sem flestu. Svo var líka talsvert heitt í herberginu, þó að allir gluggar væru opnir á gátt, og venjulega sje fremur svalt hjer á nóttunm. Jeg fekk mjer kalt bað og reyndi að gleyma öllu Loks sofnaði jeg og dreymdi að jeg var að tala við konuna mína í síma. Við spjöll- uðum um hitt og þetta, en alt í. einu mundi jeg að jeg var langt í burtu og að tíminn myndi tak-. markaður. Jeg þóttist vera í Rómaborg. Lengra er jeg ekki kominn í svefninum. En þegar jeg áttaði mig á þessu, og ætlaði að fara að segja frjettirnar var samtalinu slitið. Jeg vaknaði snemma og mókti svo og hafði magnaðan höfuöverk. Sólskinið flæddi yfir húsið á móti. Mjer leið illa og jeg var kvíðinn og sá missmíði á þessu öllu saman. Ekki dugar þetta. Jeg þeyttist fram úr rúminu og fór að klæða mig í ákafa, en höfuðverkurinn helt áfram. Jeg skyldi nú vera búinn að má malaríu eða eitt- hvað af þessum ófögnuði, sem við Norðurlandabúar höldum að alt sje fúlt af hjer syðra. Ein aspiríntafla læknaði þetta á hálftíma, og' vona jeg að svo fari um alla sjúkdóma, sem við fáum hjer. Annars erum við nú byrjaðir á heilbrigðisráðstöfun- um. Við etum kínín og Beyers præparat gegn taugaveiki. Fleiri sjúkdóma höf am við ekki tekið til meðferðar enn. Heima ljetum við bólusetja okkur gegn stórubólu. Hvað sem svo meira verður. — Ugglaust halda Suð- urlandabúar ,að þeir þurfi að gera allskonar svipaðar ráðstaf- anir ef þeir færu til íslands, töflur við skyrbjúg og bólusetn- ingu við kuldabó'.gu o. s. frv. Lífhræðslan lifi! Og samt deyr maður einhverntíma. Það varð úr, að við tækjum þennan dag til þess að rækja aðalerindi okkar, en það er að fara út að pýramídum og öðr- um menjunt hjer í nándinni við Kairó. Dagurinn var kallaður ekki heitur, eitthvað 34 gráður í skugganum, og allar þessar fornmenjar eru úti í eyðimörk- inni, þar sem sólar nýtur best, svo að við afrjeðum, að nota þennan ,,svala“ dag til ferðar- innar. Hótelmaðurinn samdi við bílstjóra fyrir okkur, sem kunni ensku. Við fengum okkur góðan morgunverð, tókum með okkur kíkira, eða á rjettri íslensku kíkja og jeg myndavjel og mál- aradót, og svo var lagt af stað um kl. 11. Bílstjórinn ók greitt vestur úr bænum og benti okkur á ýmsar byggingar og garða, sem jeg gleymdi jafnharðan. Þó man jeg eftir minnismerki Zaglut Pasha, frelsishetjunnar, sem var' Jón Sigurðsson Egipta í sjálf- stjórnarbaráttunni. En það sá jeg, að hjer er glæsilegur og mikill bær, enda eru hjer 1300000 íbúar, svo að hjer er veruleg stórborg. Líkist þessi nýi bær, sem við ókum um, mjög venjulegum stórborgum. En þó bregður fyrir austurlensk- um blæ og stíl, súlum með lotus- höfðum, minarettum og austur- lenskum hvolfþökum. Og allur gróður vitanlega miklu suð- rænni og þandari en jeg hef annars sjeð. Hjer virtust pálm- arnir ekki eins ræfilslegir og norður í Deltuni, heldur áhrifa- miklir og skrautklæddir. Og þá er ekkert tré jafnspariklætt og pálminn. Hann minnir mig altaf á kjólklæddan mann. Þegar hann er innan um önnur tré, geta þau að vísu verið alveg eins skrautleg, en hann einn er í veislufötum. Og nú fekk jeg að vita ,að trén með rauðu blóm- unum eru akasíur. Jeg fekk bílstjórann til þess að slíta dá- litla grein af einni þeirra og hef hana með mjer. En hef trú á henni sem góðum förunaut á vandasömum ferðalögum. Og blómin eru svo falleg. Nú var ekið yfir Níl. Hún er hjer í tveimur kvíslum. Og ekki virðist hún vera sjer- lega vatnsmikil svona hvers- dagslega. En sú vinnur nú mik- ið og göfugt starf. Það sjáum við nú bráðlega, því að áður en langt líður förum við að sjá á báða bóga eyðimerkurbrúnina, hvítar sandhæðirnar gnæfa yf- ir Nílarakurinn. Strax þar sem landið hækkar svo, að Nílar- vatnið nær ekki til, er ekkert nema þessi bleiki dauði. Þegar við vorum komnir yf- ir báðar Nílarbrýrnar tók við bærinn Gizeh, og þar ók bílstjór inn okkar að Shell-tank, alveg eins og í Reykjavík og tók sjer bensín til ferðarinnar. Síðan var ekið í sjóðandi fart suður með Nílarskurði einum, áleiðis til Memfis. Það var hálfgaman að aka svona og bera það saman við ferðina á járnbrautarlestinni í gær. Hjer var alveg það sama. Járnbrautin var vestan við skurðinn, og ein lestin þaut þar framhjá okkur, en vegurinn að austan. En nú vorum við á veg- inum og sáum lestina fara fram hjá. Nú mættum við öllum sömu tegundum af fólki, skepnum og farartækjum eins og við sáum þá. Það var nokkurskonar upp- lestur. Þegar við höfðum ekið svona um hríð, sáum við pýramídana við Gizeh bera við loft uppi á eyðimerkurbrúninni. Það var með tignarlegustu sýnum, sem jeg hef sjeð. Næst voru banan- plöntur, þá Nílarskurðurinn, síðan allskonar ekrur og trje, aldingarðurinn í Eden í sýni- legri mynd, en bak við var svo eyðimörkin, eins og löng jökul- brún í sólskini og þessi tignar- legu minnismerki í fjarlægri ró. Pýramídarnir eru altaf tignar- legir, hvort sem þeir eru stór- ir eða smáir, nær eða fjær. Hví- lík dásamleg og einföld list! Við og við vorum við stans- aðir af lögreglumönnum, sem skoðuðu allskonar skýrteini hjá bílstjóranum. Það virðist ekki vera hlaupið að því að strjúka út í eyðimörkina. Og alt það fólk sem þarna var. Sumir sátu eða lágu við veginn. Sumir voru á sundi í skurðinum. En sjer- staklega virtust kýrnar una sjer í vatninii. Þær lágu þar í hópum á sundi með hausinn einan upp úr. Þetta hefir líklega Nílhest- urinn gert þangað til hann vildi hvergi annars staðar vera. Mjer kæmi ekki á óvart þó að komn- ar væru Nílkýr eftir svo sem 10.000 ár. En ekki voru allar kýr á sundi, því að á einum stað fór- um við fram hjá kúa-basar. 1 Reykjavík er basar helst notað- ur fyrir jólavörur og leikföng. En hjer sá jeg, að það er líka hægt að selja kýr á basar! Ann- ars sýnast mjer kýrnar vera heldur tröllauknar og luralegar, eins og hálfgerðir buffaluxar eða vísundar og homin liggja aftur með hausnum á einkenni- lega lúpulegan hátt. Þó er þetta misjafnt. Áfram er þotið. Nú koma fleiri og fleiri pýramídar í ljós, en engir eins stórir og þeir, sem við sáum fyrst. Fólksstraumur- inn er sá sami. Margir veifa til okkar. Á einum stað situr lítill krakki á bakinu á heljarmikilli kú. Menn með fjárhjarðir eru hinum megin við skurðinn, inn- þornaðar mórauðar kindur. Við komum til bæjar, sem heitir Forna Kairó. (Ef til vill hefir bærinn verið hjer til forna. Hjer kemur einhver á móti okkur með pálmagreinar á öxlinni og fj-öldi úlfalda með allskonar byrðar eins og fyrri daginn, að ekki sje talað um allan asna- ganginn. Og svo er eyðimörkin á báða bóga. Nílardalurinn þrengist hjer og verður að mjórri ræmu vestan við Níl. Hún rennur hjer með brún aust-< ur eyðimerkurinnar. Eyði- mörkin á vinstri hönd er nú mjög nærri, há og með ýmis- konar börðum, alt jafn þurt og eyðilegt. Þar eru engin manna- verk svo við sjáum. En á hægri hönd (að vestn) gnæfir nú „stalla“-pýramídinn mikli. Og eftir skamma stund erum við komnir til Memfis. Hjer var um þúsundir ára ein mesta borg hins vold- uga Egiptaríkis. Saga hennar nær til fyrstu tíma Egiptalands- sögunnar. Menes konungur, sem uppi var um 3200 f. Kr. reisti hjer kastala á landamærum Neðra-Egiptalands (Deltunar) og Efra-Egiptalands. Hann var sjálfur frá Efra-Egiptalandi en hafði nú lagt hinn hlutann undir sig. Reisti hann þennan kastala til þess að halda nýunna land- inu í skefjum. Varð þetta stofn- inn að borginni Memfis. Hún var síðan um langt skeið höfuð- borg rikisins, og stórborg eftir að konungarnir fluttust lengra lengra suður eftir landinu. Þús- undir ára var hún í blóma. Jeg ætla mjer ekki að rekja hjer sögu þessarar borgar. Hana má lesa í lexikonum ef menn vilja. En jeg get þessa að- eins til þess að bera saman við leifarnar. Nú myndi enginn sjá, að hjer hefði neitt gerst. Hjer er smáþorp, ógnarlega vesald- arlegt og óskáldlegt. Og hjer eru pálmar og annað fallegt. Hjer sáum við mann draga vatn upp úr brunni með þeim hætti, sem gert hefir verið á þessum slóðum frá ómunatíð. En af stórborginni Memfis, lífi hennar og krafti í meira en 3000 ár, sjest ekkert. Sumt er sokkið. Annað orðið að sandi, því að hjer bygðu menn tals- vert úr brendum steini, sem stóðst ekki tímans tönn. En alt nýtilegt byggingarefni var tekið og notað í húsin í Kairó. Það eru örlög margra bæja og bygg- inga, sem eru gengnar úr móð. Þær eru jetnar upp. Rómaborg- arbúar voru t. d. á góðri leið að jeta Kolosseum upp, þegar það skemdarverk var stöðvað. Mem- fis er alveg uppjetin, af tímans og manna tönnum. Og nú fjellum við í hendur fylgdarmanns. Hann kom upp úr eyðimörkinni, gráleitur Arabi, skemtilegur á svipinn, hýr og magur. Hann hafði úlf- grátt yfirvararskegg og var í gráum kufli með gráköflótta flík yfir öxlina, úr úlfaldahári, mjög mjúka. Hann sló upp á 50 piöstrum fyrir að sýna okkur Memfis og Sakkara, en við tók- um því fjarri, og svo var farið af stað. Eitt af því fyrsta, sem við sá- um var náttúrlega voðastór mynd af Ram,ses II. Jeg hef aldrei enn komið neinstaðar þar sem egipskir munir eru, svo að þar komi ekki fyrst Ramses II. Sá hefir nokkrum sinnum látið mynda sig. Þetta er mjög gervileg mynd. Hans hátign liggur þarna endi- langur upp í loft og eru 8 metr- ar eftir af honum. Auk þess liggur 2 metra löng kóróna rjett fyrir ofan höfuðið á honum og vantar á fæturna. Hann er höggvinn út úr einum granít- steini frá Assúan og er meist- aralega gerður. Áletranir eru á myndinni og myndir grafnar inn í hana, að mig minnir af drotningu hans og syni. Alt er þetta með þeirri snild gert, að aldrei hefir verið lengra komist. Skamt þar frá er önnur mynd af Ramses II. Hún er svipuð hinni en ennþá stærri og gerð úr ljósum sandsteini eða kalk- steini. Sú mynd hefir verið 13 metra há. Skýli hefir verið reist utan um hana vegna þess að kalksteinninn þolir ekki úti- veruna eins vel og forngrýtið. Hjer eru svipaðar áletranir og myndir, og er alt þetta ærið stórfenglegt. Ramses II. ríkti um langa hríð, á 13. öld f. Kr., og mun hann hafa verið sá, sem ísraelsmenn flýðu frá, er Móses fór með þá út af Gósen. Hann var mikill herkonungur. En and litsfall hans er fíngert og þó tignarlegt. Hann hefir hökutopp mikinn bundinn á sig. Alabastur Sfinx. Þá er hjer ofurfalleg Sfinx, úr alabastri. Hún er um 8 metr- ar að lengd, og mjer kæmi ekki á óvart þó að það væri höfuðið á Ramses öðrum, sem á henni er. Ef það er ekki, þá er það höfuð af einhverjum af ættinni. En skrokkurinn er ljón, sem liggur fram á lappir sjer. Þann- ig er sfinxinn æfinlega. Hefir þetta ef til vill átt að tákna skyldleik konungsins og kon- ungstign hans, eins og ljónsins í dýraríkinu. En sfinxinn er oft talinn tákna hina miklu ráð- gátu. Jeg get ekki sjeð að hún sje neitt meiri ráðgáta en hvað annað. Það er venjulegt manns- höfuð á venjulegum ljónskrokk. Nú tíðkast það meira að setja ýmiskonar dýrahausa á manns- líkami, til þess að sýna hvernig listamanninum líst á þann, sem hann er að draga upp. Svo er eiginlega ekki meira eftir af Memfisar mörg þúsund ára dýrð. Sic transit gloria mundi. I jV/f emfis stóð á sjálfu láglend- inu, en þar fyrir ofan* í eyðimerkurbrúninni er Sakk- ara (er það ekki Sahara?),, greftrunarstaður Memfisbúa í þessi mörg þörg þúsund ár, sem hún stóð. Miljónirnar af gröf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.