Morgunblaðið - 20.08.1939, Side 7
ðtmnudagur 20. ágúst 1939.
MORGUN BLAÐIÐ
7
Sigurður Sigurðsson
berklayfirlækniríeftir-
iltsferð á Norðurlandi
Sigurður Sigurðsson, berkla-
yfirlæknir, var meðal far-
þega á e.s. Dettifossi norður
og vestur í gær. Ætlar hann í
berklaeftirlitsferð, aðallega í
Eyjafirði, og ef til vill í Keldu-
hverfi í Þingeyjarsýslu.
Berklayfirlæknirinn er nýlega
kominn úr slíkn ferðalagi á
Ströndum. Var hann hálfs mán-
aðar tíma í þeirri ferð off skoð-
aði um 700 sjúklinga.
Fór hann fyrst landveg í bíl
vestur í Dali og skoðaði á fjór-
um stöðum þar. Þaðan fór hann
til Hólmavíkur og síðan með
,,Sæbjörgu“ norður með Strönd-
um.
Lokunartími
sölubúða
V. R fer fram á
breytingu á lok-
unartímanum
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur hefir sent bæjarráði
erindi og farið fram á það, að
enn verði gerð breyting á reglu-
gerð um lokunartíma sölubúða,
þannig að búðum verði lokað jafn
snemma á föstudögum sem aðra
■daga, á tímabilinu 15. sept. til 15.
maí, eða kl. 6. Nú eru búðir opnar
á föstudögum til kl. 8 allan árs-
ins hring.
Morgunblaðið hefir snúið sjer til
manns úr stjórn V. R. og spurt
um hvers vegna þessi málaleitan
eje fram komin. Sagði hann að
reynslan hefði svnt, að það væri
gagnslaust að hafa búðir lengur
opnar á föstudögum heldur en
aðra, daga, þegar ekki væri lokað á
laugardögum fyr en kl. 6, eins og
or á þessu tímabili. Það hefði glögg
lega sýnt sig á veturna að af-
greiðslufólk hefði ekkert að gera í
þúðunum á föstudagskvöldin, eftir
venjulegan lokunartíma. Það hefði
.aðeins hímt þar sjer til leiðinda,
og kaupmenn hefði ekki haft ann-
að upp úr þessu en ljóseyðslu og
hitaeyðslu. Það væri því fyrir ósk
hvorra tveggja, verslunarþjóna og
kaupmanna, að þessi málaleitun
um breytingu á lokunartímanum
væri fram komin.
Aftur á móti væri allir sammála
um að rjett væri að hafa búðir
Opnar venju lengur á föstudögum
um sumartímann. þegar lokað væri
iá hádegi á laugardögum.
«><><><><><><><><><><><><>o<><><><>
Cftrónur
Lækkað verð.
vmn
i
11
1
3*
Y
Laugaveg 1. Sími 3555.
Útbú Fjölnisveg 2. Sími 2555.
ooooooooooooooo<xx
Dagbók
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Þyknar upp með SV-átt. Dálítil
rigning.
Helgidagslæknir er í dag Ilall-
dór Stefánsson, Ránarg. 12, sími
2234, en næturlæknir aðra nótt
Ófeigur Ófeigsson, Skólavörðustíg
21 A, sími 2907.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn
þessa viku. ,
f Þingvallakirkju verður mess-
að í dag kl. 1 e. h., síra Halfdán
Helgaáon.
Dánarfregn. Frú Betzy Guð-
mundsson, kona Þórarins kaup-
.manns Guðmundssonar frá Seyð-
isfirði, andaðist hjer í bænum í
gær.
Áttræð er í dag frú Guðfinna
Steinsdóttir frá Hvítanesi, nú til
heimilis hjá dóttur sinni, Hólm-
fríði Helgadóttur og manni henn-
ar Valdimar Stefánssyni, stýri-
manni, á Holtsgötu 39 hjer í bæ.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af sr. Þorsteini
Briem, Margrjet Jóhannesdóttir,
Björnssonar frá Hofstöðum og
Ólafur Bjarnason stud. med. frá
Akranesi.
Ný sönglög. Friðrik Bjarnason
og Einar Markan hafa þessa dag-
ana sent frá sjer sitt heftið hvor
af nýjum sönglögum. Friðrik
Bjarnason hefir samið 24 lög við
kvæði eftir ýmsa höfunda, en
Einar Markan fjögur lög við
kvæði eftir Hannes Hafstein. —
Friðrik Bjarnason er löngu lands-
kunnur fyrir sönglög sín og þau
hara notið mikilla vinsælda, en
Einar Markan er kunnur söngv-
ari, og hefir nú að síðustu feng-
ist allmikið við tónsmíðar.
Farþegar með Dettifossi í gær:
Sig. Sigurðsson berklayfirlæknir.
Sæm. Þórðarson. Jón Auðunn Jóns
son. Þorvaldur Árnason. Oddgeir
Jóhannsson. Hanna Lárusdóttir.
Elín Jóhannesdóttir. Guðrún
Tliorlacius. Jóhann Pjetursson og
frú. Jón Ólafsson. Guðrún Víg-
lundardóttir. Inga Thoroddsen.
Sigríður Benediktsdóttir. Sólveig
Snæbjörnsdóttir. Guðm. Jóhann-
esson. Gunnlaugur Pálsson. Guð-
brandur Skúlason. Benedikt Krist-
jánssou. Jón Finnsson. Kristín
Stefánsdóttir. Jóhanna Davíðs-
dóttir.
Lunds akademiska golfklub í
Lundi í Svíþjóð gengst fyrir fjöl-
breyttri golfkepni í lok þessa mán-
aðar fyrir alla stúdenta og há-
skólagengna menn á Norðurlönd-
um. Ein aðalkepnin fer fram milli
háskólastúdenta og háskólakenn-
ara. Golfkhibb fslands hefir ver-
ið boðin þátttaka.
Golfklúbbur íslands. Meistara-
kepni klúbbsins hefst í dag kl. 10
f. h. 24 keppa, þar af sex konur.
Meistari er nú Helgi Hermann
Eiríksson skólastjóri, og í ltvenna-
flokki frú Herdís Guðmundsdótt-
ir.
Drotningin var á Siglufirði í
gærkvöldi. Kemur hingað í kvöld
og fer hjeðan annað kvöld út með
margt farþega, m. a. K. R.-ingana
14 úr 2. fl. til Thorshavn, sem
boðnir eru þangað af íþróttaráði
Færeyja.
íkviknun. í gær var slökkvilið-
ið kvatt upp á Grettisgötu 13.
Hafði kviknað þar í spónum og
tróði á húsgagnabólstrunarvinnu-
stofu Þorsteins Sigurðssonar. Þeg
ar slökkviliðið kom á vettvang
hafðj eldurinn yerið kæfður, og
mun ekki hafa valdið tjóni.
Útvarpið í dag:
10.00 Messa í dómkirkjunni (prje-
dikun: Sigurbjörn Á. Gíslason
eand. theol. — Fyrir altari síra
Bjarni Jónsson.)
11.50 Hádegisútvarp.
20.20 Hljómplötui’; Lög úr „Pjetri
Qaut“, eftir Grieg.
20.35 Gamanþáttúr; Gamall sálu-
sorgari. Jóns úr Koi imi kemur í
heimsókn.
21.00 Útvarpshljómsveitin leikur
(Einsöngur: Hermann Guð-
mundsson).
21.35 Kvæði kvöldsins.
... N ^ 1^1 ^ .- "
Fiárdráp hundanna
i Geldinganesi
Hinlr fcimnin hund-
ar eru enn á lífi
Eins og skýrt hefir verið frá
hjer í blaðinu áður drápu
húildar 7 kindur í Geldinganesi
fyrir skömmu, ýmist með því að
rífa þær á hol, eða elta þær frain
af sjávarhömrum
Það hefir nú vitnast, að hund-
arnir voru 4 eða 5, einn frá Úlf-
arsá, annar frá Korpúlfsstöðum,
þriðji frá Fellsmúla og fjórði lík-
lega frá Engihlíð. Fimta var tík
úr Gufunesi, sem hundar þessir
voru að heimsækja.
Litlar líkur eru til þess taldar,
að þeir, sem urðu fyrir fjársköð-
um, fái tjón sitt bætt, því að engir
vottar eru að því, að hundarnir
drápu kindurnar, þótt vitanlegt sje
að svo var, því að það sást til
peirra, þar sem þeir voru að elta
fjeð. Heldur mun og slælega hafa
verið gengið fram í rannsókn
málsins. Yar hreppsijóra falin
rannsókn og mun hann hafa gert
boð heim á bæina um að hund-
arnir skyldi drepnir, svo að þeir
gerði ekki meírá tj.ón, eú þar við
látið sitja. Er ekki annað kunnugt
en að hundariiir sje 'énn allir á
lífi nema tíkin. Hún var drepin,
og' eftir það hurfa hundarnir hver
heim til sín.
Formaður Dýraverndunarfjelags
ins hefir nii snúið sjer til sýslu-
mannsins í Gullbringusýslu ^ með
tilmæli um það, að hann skerist í
málið, og sjái svo um, að hund-
arnir verði dfepnir.
Fjeð átti ekki að
vera í nesinu.
Um þetta leyti árs átti engin
sauðkind að vera í Geldinganesi,
og var fjeð þar því í heimildar-
leysi. En eigendur munu ekki hafa
vitað um að það var komið þang-
að. Hefir það runnið ofan úr heiði
og komist fram hjá girðingum við
sjóinn. Meðal annars voru þar
30—-40 kindur úr Yiðéy, sem hafa
ætlað að reyna að komast þangað.
Þegar eftir að vart var við
f járdráþið, Ijet lögreglan í Reykja-
vík smala nesið og reka sumt fjeð
upp í heiði, en Viðeyjarkindurnar
vorn fluttar þángað út,- Nú miin
aftúr vera komið fjé í nesið.
MARSVÍNIN.
FRAMH AF ÞRIÐJD 8ÍÐU.
sinn tögari í að reká innj en það
fóf á sama veg; marsvínin sluppu.
Ttl. 12 í gærlívöldi stóð barátt-
án éim og voru menn farnir að
þreytast. Voru cá. l50 ttiarsvin í
torfunni. ’
Tveir bátar 'gátu á dögunum
rekið 200 maráVín á land í Alpar-
vík á Strönduin.
Tækifærisgjafir
Keramik og Kristall.
Skínandi úrval.
NINON_________________________
IBlússur og pils, margir litir og gerðir. Peysur, hvít- B
ar og mislitar, ísaumaðar. - Alt nýupptekið!
Bttllka S t K* 11 7
HVÖT
Sjálfstæðiskvennafjelagið, fer skemtiför til Þingvalla 22.
ágúst (næstkomandi þriðjudag). Konur taki með sjer
gesti og nesti. — Lagt verður af stað frá Bifreiðastöð
Steindórs kl. l(ú/í> f. h., en farmiðar seldir frá klukkan 9
sama dag.
Nánari upplýsingar í síma 4015, 4242, 2844 og 2021.
Ferðanefndin.
Að gefnu tilefni
tilkynnist hjer með, að öllum óviðkomandi er stranglega
bönnuð berjatínsla og óþarfa umferð um lönd Litlu og
Stóru Drageyrar í Skorradal, nema að fengnu leyfi.
Haraldur Á. Sigurðsson. Guðmundur Guðbrandsson.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI — — ÞÁ HVER?
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir
Frú BETZY GUÐMUNDSSON,
Sólvallagötu 27, andaðist aðfaranótt 19. þ. m. á Landakots-
spítala.
Þórarinn B. Guðmundsson, börn og tengdabörn.
Maðurinn minn og faðir
ÞORLEIFUR ÞORLEIFSSON fiskimatsmaður
andaðist 19. þ. m. að heimili sínu, Bræðraborgarstíg 32 A.
Seirlína Þorgeirsdóttir. Pálína Þorleifsdóttir.
Jarðarför móður okkar og tengdamóður
SIGRÍÐAR METÚSALEMSDÓTTUR,
sem andaðist 15. þ. m., fer fram þriðjud. 22. þ. m. og hefst
með húskveðju frá heimili hennar, ■ Bergstaðastræti 76, kl.
1.30 e. h.
Þórhildur og Theodór B. Líndal.
Innilegasta þakklæti okkar fyrir vinsemd og samúð við
andlát og jarðarför
SOFFÍU SKÚLADÓTTÚR.
Móðir og bræður.