Morgunblaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIB Föstudagur 24. des. 1943. 99 Jólaleikritið: VOPN GUÐANNA EFTIR DA VÍÐ STEFÁNSSON Stutt samtaí við höfundinn ÞESSA DAGA verður mönn- um tíðrætt um hið nýja leik- rit Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, sem Leikfjelagið ætlar að sýna 2. jóladag. Og þó vita menn harla lítið um leikritið, því enn hefir það ekki verið prentað. En nýtt leikrit eftir Davíð er viðburð- ur í höfuðstaðnum, ekki síst eftir að Gullna hliðið kom hjer á svið. Frjettst hefir að leikrit þetta sje allmjög frábrugðið því, sem menn eiga að venj- ast. T. d. að því leyti, að þar sjest ekki, að heita má, nein kvenpersóna. Og að það fjalli um stjórnmál. Og að það gerist jafnvel suður í Miklagarði, fyrir mörgum öldum. Þetta, eða eitthvað því líkt hafði jeg heyrt, er jeg hitti Davíð á dögunum, og fór að krvfja hann til frásagna um þetta leikrit hans. Hann taldi öll tormerki á því, að segja efni leikritisins í stuttu máli, svo að fengist skýr hugmynd um efni þess. En þó komst hann að orði á þessa leið: — Leikritið, „Vopn guðanna“ fjallar um viðureign konungs við þjóð sína. Efnið er bæði gamalt og nýtt, og leikritið því ótímabundið. Konungurinn er harðstjóri, leikritið er táknrænt, og getur eins fjallað um lifandi harð- stjóra, eins og dauðann. Þar er lýst baráttu, sem í raun og veru hófst með fyrsta valdhafa jarðar, en sú barátta hefir þó aldrei verið magnaðri en ein- mitt nú. Konungurinn í leikritinu hef ir lagt undir sig margar þjóðir. Hersveitir hans hafa kúgað þessar þjóðir, en heimaþjóðin er hart leikin af ógnum styrj- alda og hungurs. Þá hefst þáttur hinna trú- uðu, frjálslyndu manna, sem konungurinn hefir dæmt til dauða. Þeir fara huldu höfði um löndin og prjedika rjett- vísi og frið. Þeir breyta hugar- fari lýðsins, svo fólkið, sem áð- ur var neytt til að berjast með sverðum, beitir nú, ásamt út- lögunum, hinum andlegu vopn um mannkyninu til bjargar. Á þann hátt hafa útlagarnir á- hrif á hersveitir konungs, svo þær neita að berjast. Þjóðir, sem áður áttu í bar- áttu, finna nú skyldleikann sín á milli og vináttu. Sigur, unn- inn með morðvopnum er eng- inn sigur. Styrjöld, sem fær þau endalok, vekur aðeins nýjan hefndarhug, nýtt stríð. Vopn guðanna er rjettvísi, trú, sannleikur. Sigur þeirra vopna er nýtt og fegurra líf. Þetta er í aðalatriðum efni leiksins. — Er engin sannsöguleg uppistaða í leiknum, hvorki úr nútíð eða fortíð? — Jeg get naumast talið það, en eins og jeg sagði áðan, er hjer átt við baráttu allra alda fram á þenna dag. Móðurdst Davíð Stefánsson. En frumdrög leiksins er að finna í gamalli guðfræðilegri sögu, er fyrst var skráð á grísku á 8. öld, síðar á latínu. En á norrænu var hún býdd um 1200. Gerði það Há- kon Sverrisson Noregskon- ungur, eða klerkar hans. Var saga þessi prentuð eða þýðing hennar á 19. öld. Jeg hefi lítil- lega stuðst við þessa sögu, þó atburðunum sje breytt, þráð- urinn rofinn, en mannaöfnum er haldið að mestu óbreyttum. — Hvað heitir saga sú? — Barlaams saga ok Josa- phats. — Hvað getur þú sagt mjer meira um leikritið? — Ekkert meira í þetta sinn. Jeg ætla leikhúsgestum og gagnrýnendum það, sem meira verður sagt. — Jeg er þakk- látur leikstjóra og leik- stjórn fyrir það, hve mikið erf- iði og fyrirhöfn þeir hafa á Sig lagt, að koma leikriti þessu á framfæri, i hinu þrönga og ófullnægjandi húsna'ði. Viðtal viS leikstjórann. Lárus Pálsson mun verða leikstjóri, en æfingar hafa verið að undanförnu og ríkir mikill áhugi leikara fyrir leiknuni. Um leikendatölu segir Lár- us Pálsson, að þeir muni vera um 30, en ’alt að 40—50 manns koma fram á leiksviðið. Jón Aðils leikur aðalhlutverkið, konunginn og er það stærsta, hlutverk, sem -Tón hefir enn, verið lagt * á herðar Þá leika í hinum stærri* hlutverkum, Þorsteinn O. Stephensen, það er orðið nokkuð langt síðan Þörsteinn hefir látið sjá sig á leiksviði, Jlaraldur Björnsson, Indriði Wáage, Ævar Ivvaran, Vakli- mar llelgason, Brynjólfur Jó- hannesson og Lárus Pálsson. En í hinum srnærri hlutverk- um, Lárus Ingólfsson, Hauk- ur Óskarsson, sem er í fyrstai sinni :á leiksviðiinu, en hann liefir stúndað nám á leikskóla. Lárusar Pálssonar, Wilhelm NorðfjtVð, Ragnar Ásgeirsson, Kleriiens Jónsson, Stefán Har- aldsson og Sveinn Stefánsson. 1 kvennhlutverkunum í leikn um, sem eru mjög fá leika frú Alda Möllér, mun írúin hafa á hendi stæðsta hlutverk þeirra, frú Þóra Borg Einars- son, og ungfrú Gunnþórun. Halldórsdóttir. Auk þess eru í leiknum úti- lagai*, hermenn og þjónar. Mönnum er þegar kunnugt um leikrit Davíðs Stefáns- sonar, en í hittiðfyrra varjóla, leigrit Leikfjelagsins, Gullna- hliðið og er öllum minnistætt, sem það sáu, og mún vera ó- hætt að fullyrða að Vopn Guðana vekur ekki minna at- hygli. Greer Garson í hlutverki Ednu Gladney Glaumbær TJARNARBlÓ sýnir söngva og gamanmynd á jóluniim er hlotið hefir nafnið „Glaum- bær“. Leira þeir Bing Crosby söngvari og Fred Astaire að- alhlutverkin, en ljóðin og lögin í myndinni eru eftir Irving Berlin, danslaga höf- undinn fræga. Það er óþarfi að skýra frá því, að þeir Bing og Fred leika listir sínar af mikilli snild, hvor á sínu sviði. Bing syngur einn 13 söngva og erú þar á meðal margir, sem þeg- ar eru orðnir frægir um all- an heim eins og t. d. „White Christmas“, „Be careful, It‘s íny heart“. Fred dansar 6 nýja dansa og er liðugur eins og vant er.. Efni myndarinnar snýst aðallega um þremenninganai Jim Hardy (Crosby) Ted Hannover (Fred) og Lilu Dixon (Virginia Dale). Þau syngja og dansa á næturklúbb í Ne\v York. Jim langar til að fara að búa uppi í sveit. Hann fær sjer sveitabæ, en. leiðist sveitalífið þegar til lengdar lætur og setur upp skemtistaðinn ’ „Glaumbæ", sem er aðeins ópinn á frídög- um, eða 15 daga á ári. Hina 350 daga ársins getur Jim hvílt sig og haft það gott. Inn í söguþráðinn er fljett- að ástaræfintýrum. Þetta er ljett mynd, en verð; ur ábyggilega vinsæl fyrir söngvana og dansana sem í henni eru. JÓLAKYIKMYNDIN 1 GAMLA BÍÓ mun af mörg- um verða talin ein af betri kvikmyndum, sem hjer hafa verið sýndar á þessu ári. Ilefir .mynd þessi flesta kosti góðrar kvikjiiyndar, en fáa! galla. Efni myndarinnar er j áhrifamikið, hún ei* vel leik- in og skemtilegá tekin í eðli- legum Iitum. Myndin segir æfisögu merki legi'ar konu, Ednu Gladney, i sem enn mun vei-a á lífi í Ameríku. Hún helgaði líf sitt munaðarlausum börinun og hefir .gert óendanlega mikið: fyrir munaðarlaus börn. ITún rekur barnaheimili, tekur börnin ung og kemur þeim fyrir til fósturs hjá góðu fólki. I Edna Gladney var af auð- ugum foreldrum. Hún giftist efnilegum manni. Þau eign- uðust einn dreng, en hann dó í umferðaslysi á jólunura er hann var 4 ára. Edna Gladn- ey gat ekki átt annað barn og' olli það henrii mikilrar sorgar. Þau hjónin tóku sjer fyrir hendur að reka barna- heimili. Maðurinn misti heils- Una og dó og voru þau þá orðin fátæk. En Edna misti ekki kjarkinn heldur barðist áfram fjn-ir hugsjón sirini í gegnum ótrúlega mikla erf- iðleika. Eitt af því, sem hún barð- ’ist fyrir var, að koma í veg fyrir, að óskilgetin börn væru látin gjalda fyrir syndir for- eldra sinria og tókst henni eft- ir harða baráttu að fá sam- þykt mannúðlegri lög, en áð- ur giltu í þeim efnum. Aðalhlut.verkið í þessari á- gætu kvikmynd leikur Greer Garson (Ednu Gladneyj Walt er Pidgeon, leikur mann henn ar, en Felix Bressaijt leikui heimilislækni og viri þéirra' hjóna. Tónsnillingurinn JÓLAMYND NÝJA BÍÓ heitir „Torisriillingurinn“ og leika þau Rita Ilayworth og Yictor Mature aðalhlutverkin. Er þetta söngvamynd tekin í eðlilegum litum og hin skraut legasta. Efni myndarinnar er um ungt tónskáld, Pgul Dressei* sem leggur af stað út í heim-. inn til að vinna sjer frægö og fr ama. Hann lendii' í. slæinum fjelagsskap og á erf- itt uppdráttar í fyrstu, en verður síðar frægur maður að nokkru leyti fyrir aðstoð Sa.lly Eliót, sem er fræg listá kona. En samkomulagið hjá heim er ekki ætíð upp á hið. besta og endar með því, er. Paul kemst í kynni við greifa frú eina, að Sally yfirgefur hann með öllu. Fer nú á ný að versna hagur Pauls, en alt fer vel á endanum, eins o.g vera ber í góðri kvikmynd. Lögin í myndinni eru í rauu og veru eftir Paul Dresser, en það er æfisaga tónskálds- ins, sem myndin er um. Þétta mun Vérða vinsæl mynd, því það er reynsla fyr- ir því, að skemtilegar söngva- myndir eru lang best sóttar hjer í bæ. Öllum hinum mörgu unnendum og gefendum Kálfatjarnarkirkju er mintust hennar á fimtíu ^ ára afmæli hennar, færum við innilegar þakkir og hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt kom- andi ár. F. h. safnaðar Kálfatjarnarsóknar. SÓKNARNEFNDIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.