Morgunblaðið - 20.05.1944, Síða 1
„Hjer hefir steinninn mannamál og moldin sál“. .
D. St.
Reykvíkingar!
AtkvæðagreiðJan um skilnaðarmálið og stofnun
lýðveldisins hefst kl. 10 árd -í dag í Miðbæjarbarna-
skólanum-
Það er áríðandi, að kjósendur dragi ekki að greiða
atkvæði. Er það því mjög alvarlega brýnt fyrir
mönnum, að mæta á kjörstað strax í dag og greiða
atkvæði.
Ótrúlegt er, að Reykvíkingar verði eftirbátar
annara landsmanna í þessari örlagaríku atkvæða-
greiðslu. Vitað er um mörg hjeruð, sem hafa sett
sjer það markmið, að ná hverjum einasta kjósanda
á kjörstað- Hver verður metnaður Reykvíkinga í
þessari samkeppni ?
Það er tvent, sem menn verða að muna í sambandi
við atkvæðagreiðsluna.
1, Að mæta snemma á kjörstað og greiða atkvæði
2. Að setja kross framan við „já“-in á báðum kjör-
seðlunum, sem eru á einu og sama blaðinu-
Reykvíkingar! Sýnum í dag, að við fögnum frels-
inu. Sýnum það í verki með þyí að fjölmenna á
kjörstað.
Á bls. 5 og 7 eru prentaðar, leiðbeiningar fyrir kj ðsendur.
Fánann
að hún !
í DAG gengur íslenska þjóð-
in að kjörborðinu til þess að
endurheimta lýðveldi sitt. Þetta
er mikill hátíðisdagur.
Sýnum þetta í verki, Reyk-
víkingar, með því að draga
fána að hún.
Islenska fánann að hún á
hverri einustu stöng í dag!
• ' 11
131
ÞÆR ERU tvær spurning-
arnar, sem lagðar eru fyrir
kjósendur í dag.
Onnur er um skilnaðinn við
Dani. Það er efri kjörseðillinn.
Hin spurningin er um stofn-
un lýðveldis á Islandi (neðri
kjcrseðillinn).
Allir Islendingar þrá lýð-
veldið.
Þessvegna krossa þeir fram-
an við ,,já“ á báðum seðlunum.
„Þitt stríð er orðið langt og þungt, vort land!
Nú loks á móðir kost að reisa bú
með sonastyrk. Hvað gerir því þá grand?
Hví grípa þeir ei tækifærið nú?“
Hannes Hafstein.
„Þú fólk með eymd í arf!
Snautt og þyrst við gnóttir lífsins linda,
lítil þjóð, sem geldur stórra synda,
reistu í verki
viljans merki —
vilji er allt, sem þarf“.------Einar Benediktsson.
„Við börn þín, ísland blessum þig í dag.
Með bæn og söngvum hjörtun eiða vinna“.
Davíð Stefánsson.
„En allra mest ríður á, að allir beir geðkostir, sem
eru einkennilegir þrekfullri og vel mentaðri þjóð, dafni
í landinu: föðurlandsást og ósjerplægni og mannlund, at-
orka og dugnaður til andlegra og líkamlégra fram-
kvæmda. þolgæði og stöðuglyndi að framfylgja því, sem
rjett er og þjóðinni gagnlegt, og sönn dyggð og trúrækni
yfir höfuð að tala, — því það er ekki rjett skilin trúrækni
og dyggð, sem ekki lýsir sjer eins í athöfnum til þarfa
fósturjarðar og samlanda eins og í lííerni hvers eins sjer
í lagi“. Jón Sigurðssou.
31. árgangur.
110. tbl. — Laugardagur 20. maí 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
jT
A þessum stað verður lýðveldið endurreist