Morgunblaðið - 20.06.1946, Side 1
16 síður
Í3. argangur.
134. tbl. — Fimtudagur 20. júní 1946
ís&SöJlGS.rprentsmiðj a b.i.
Brefar hlynfir
alþjóðaeffirlifi
með alemerkunni
Utanríkisráðherrarnir ósammáia
um skaðabótugreiðslur ítalu
New York í gærkveldi.
NEFND sú, sem að undan-
förnu hefir fjallað um meðferð
atomorkunnar, kom saman til
fundar í deg. Lýsti fulltrúi
Kanada í nefndinni því yfir, að
stjórn hans væri algerlega fvlgj
andi tillögum Bandcf íkjanna
um alþjóðaeftirlit með atom-
orkunni.
Fulltrúi Breta tók og til máls.
Lýsti hann yfir ánægju stjórn-
ar sinnar yfir tilboði Banda-
ríkjamanna.
Rússneski fulltrúinn í nefnd-
inni, sem einnig tók til máls á
fundi hennar í dag, fór fram
á .nokkurn frest, áður en end-
anlega væri gengið frá þessum
málum. Kvað hann stjórn sína
þarfnast meiri tíma til að kynna
sj.er þessi mál.
Slippfjelagið h.f.
byggir 47 smál. bál
NÝLEGA hefir verið hleypt
af stokkunum hjer í Reykja-
vík nýjum mótorbát. Báturinn,
sem er 47 smálestir að stærð,
með 160 hestafla Lister-Diesel
vjel, er smíðaður af Slippfjelag
inu í Reykjavík h f., en Pjetur
Wigelund hefir teiknað hann og
annaðist alla verkstjórn.
„Hagbarður“, en það heitir
báturinn, er mjög vandaður,
smíðaður úr eik og innrjettað-
ur úr mahogoni og birki. Þá
er hann búinn öllum nýjustu
tækjum, svo sem dýptarmæli
og fleiru.
Eigandi bátsins er Húsavík-
urkaupstaður og er í ráði að
gera hann út á síldveiðar í sum
ar. Áætlaður ganghraði „Hag-
barða“ er 9% míla.
Tillögur Indlands
málanefndarinnar
enn til umræðu
New Delhi í gærkveldi.
FLOKKUR Múhamedstrúar-
manna hefir ritað Wavell, vara
konungi Indlands, brjef, þar
sem farið er fram á það, að
frekari upplýsingar verði gefn-
ar í sambandi við nokkur atriði
í tillögum Indlandsmálanefnd-
arinnar. Hinsvegar er þess
vænst, að Þjoðþingsflokkurinn
kunni á morgun að gefa út opin
bera yfirlýsingu um afstöðu
sína til þeirrar tillögu Wavells
og Indlandsmálanefndarinnar,
að komið verði á fót 14 manna
bráðabirgðastjórn fyrir landið.
Fulltrúar þjóðþingsflokksins
komu saman á fjögra stunda
fund í dag og var Gandhi við-
staddur. Fulltrúarnir munu þó
enn ekki hafa lokið viðræðum
sínum. — Reuter.
Forsæfis- og utan-
ríkisráðherra berasf
kveðjur og heilla-
óskir
FORSÆTIS- OG UTAN-
RÍKISRÁÐHERRA Ólafur
Thors og kona hans tóku á
móti gestum í ráðherrabústaðn
um þann 17. júní síðdegis. Kom
þangað fjöldi manns og þeirra
á meðal fulltrúar erlendra
ríkja, sem báru fram kveðjur
og árnaðaróskir í tilefni af
þjóðhátíðardegi íslendinga.
Auk þess bárust utanríkis-
ráðherranum ýmsar hjerlendar
og erlendar kveðjur, þar á
meðal frá Halvard M. Lange,
utanríkisráðherra Norðmanna,
Georges Bidault, utanríkisráð-
herra Frakka og sendiherra
Bandaríkjanna hjer, Louis G.
Dreyfus, sem nú er staddur í
Ameríku.
Utanríkisráðherrann hefir
þakkað kveðjurnar
A að dæma
landsleikinn
Danmðrk—ísland
Th. Kristiansen knattspyrnu-
dómari frá „Gjöa“ í Oslo, sem
dæmir landsleik í knattspyrnu !
milli Dana og íslendinga, sem!
fram fer hjer í Reykjavík í
næsta mánuði.
Ágætir dómar Osló-
blaðanna um K.R.-
flokkinn
EINS OG ÁÐUR hefir verið getið í Morgunblaðinu sýndi fim-
leikaflokkur KR í Turnhallen í Osló 17. júní fyrir troðfullu
húsi og við mikla hrifningu áhorfenda. Fara blöðin í Osló mjög
lofsamlegum orðum um flokkinn og stjórnanda hans, Vigni
Andrjesson.
„Verdens Gang“ segir m. a.:
„Fimleikasýning íslenska flokks
ins var mjög áhrifamikil. Nokkr
ar af dýnuæfingunum gerðu á-
horfendur alveg agndofa. Helj-
arstökkin og flik-flak voru
tekin með svo mikilli nákvæmni
og öryggi, að það mun vera
með því besta af því tagi, sem
sjest hefir í Noregi“.
„Morgenposten“ segir: „Hin
velhepnaða fimleikasýning ís-
lendinganna vakti mikinn fögn
uð áhorfenda og flokkurinn var
hjartanlega hylltur.“
„ Aftenposten“: „Fimleika-
flokkur íslendinganna vakti
mikla aðdáun með dýnuæfing-
unum, sem voru útfærðar með
glæsibrag og an dauðra punkta.
Á þessu sviði standa þeir vissu-
lega talsvert framar norskum
fimleikamönnum“.
„Arbejderbladet": „Staðæf-
ingarnar voru útfærðar með
mikilli nákvæmni en íslending
arnir geymdu það besta þangað
til síðast, dýnuæfingarnar.
Fyrst voru samsetningar af
smástökkum og síðar Araba-
stökk afturábak og loks helj-
arstökk, hátt og fallegt, með
beinum líkama.
Flokkurinn er nú kominn til
Stokkhólms og sýndi þar í gær-
kveldi.
Um utanför KR-flokksins
barst blaðinu eftirfarandi
frjettatilkynning frá ríkisstjórn
inni í gær:
Ríkisstjórninni hefir borist
simskeyti frá fararstjóra KR-
flokksins, Bjarna Guðmunds-
syni blaðafulltrúa. Flokkurinn
hefir sýnt í Osló við góðan orð-
stír. Blöðunum Verdensgang,
Morgenposten, Aftenposten og
Arbejderbladet ber saman um,
að sýningin hafi tekist mjög
vel, einkum þó dýnuæfingarn-
ar. Nákvæmni flokksins og ör-
yggi sje á borð við það besta,
sem þekkist í Noregi, enda hafi
áhorfendur tekið flokknum
með miklum fögnuði.
Hússar vilja
yreiðslu í
iðnaðarvörum
París í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
UTANRlKISRÁÐHERRAR
fjórveldanna komu saman á
tveggja klukkustunda fund í
dag og hjeldu umræður áfram
um væntanlega friðarsamninga
við ítali. Ekkert samkomulag
hefir þó enn orðið með ráðherr-
unum, en aðal ágreiningsefnið
til þessa hefir verið með hverju
móti ítalir skuli greiða stríðs-
skaðabætur sínar.
Molotov, utanríkisráðherra
Rússa, vill að ítalir greiði Ráð-
stjórnarríkjunum skaðabæturn-
ar með iðnaðarvörum á sex ár-
um. Kvað hann meginkostinn
á þessu vera þann, að ítölskum
framleiðendum yrði með þessu
móti hægt um vik að losna við
framleiðsluvöru sína.
Byrnes, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Bevin, breski
utanríkisráðherrann, voru hins
vegar andvigir þessu. Töldu
þeir að greiðsla í iðnaðarvörum
til Rússa mundi tefja mjög fyr-
ir allri viðreisn atvinnuveg-
anna í Italíu.
Þá urðu einnig nokkrar deil-
ur milli Molotovs annars vegar
og Bevins hins vegar um skaða-
bótagreiðslur til einstaklinga,
sem orðið hefðu fyrir meiðsl-
um af völdum ítala. Vildi
Molotov láta greiða öllum þeim
skaðabætur, sem særst hefðu á
þeim svæðum, sem ítalir her-
tóku, en Bevin sagðist ekki geta
fallist á þessa tillögu rússneska
utanríkisráðherrans.
Þess er vænst að aðalumræðu
efni utanríkisráðherranna á
morgun verði landamæri Ítalíu
og Frakklands.
Hrifning á söng-
skemtun Elsu Brems
og Steiáns Islandi
ELSA BREMS og Stefán ís-
landi hjeldu söngskemtun sína
í gærkveldi í Gamli Bíó við
mikla hrifningu áheyrenda.
Húsið var þjettskipað áheyrend
um, sem hyltu ákaft óperu-
söngvarana. Bárust þeim báð-
um blómvendir eftir hvert lag
og urðu þau hvort fyrir sig að
syngja aukalög og endurtaka
sum lögin.
Gyðingar ræna enn
einum breskum
liðsforingja
Jerúsalem í gærkvöldi.
MENN óttasc nú mjög að
Gyðingum hafi tekist að ræna
enn einum af herforingjum
Breta í Palestínu og eru þeir
þá orðnir sex talsins, sem þeir
hafa numið á brott. Herforingi
sá, sem nú er saknað, er einn
af meðlimum breska herfor-
ingjaráðsins í landinu.
Breskir loftfluttir hermenn
leita nú herforingjanna í
Telaviv og víðar. Hefir verið
komið upp umferðahömlum við
enda allra helstu strætanna í
Telaviv og gætur eru hafðar
á vegum þeim, sem liggja til
borgarinnar. Þá hefir borgar-
búum verið bannað að vera á
ferli á kvöldin og heryfirvöld-
in bresku í landinu hafa til-
kynnt, að engum breskum her-
mönnum verði leyft að fara
um hverfi Gyðinga, nema þeir
sjeu að gegna herstörfum. með-
an núverandi ástand stendur.
Bretar vilja klófesta
Múftann
London í gærkveldi.
NOKKRAR umræður urðu í
dag í neðri málstofu breska
þingsins um flótta Múftans af
Jerúsalem frá Frakklandi. í
sambandi við umræður þessar,
var því lýst yfir opinberlega af
hálfu stjórnarmnar, að Múftan
um mundi ekki leyft að snúa
aftur til Palestínu, og að stjórn
in mundi því fegnust, ef tæk-
ist að klófesta hann á ný. Hins
vegar kom það fram, að ekkert
er enn vitað með vissu um
dvalarstað Múftans.
Verkfall loftskeyfa-
manna í Egypta-
Cairo í gærkveldi.
MÖRG hundruð loftskeyta-
menn í Egyptalandi hófu verk-
fall í dag'. Verkfallsmenn hafa
ekki yfirgefið vinnustöðvar sín-
ar, en neita að sinna störfum
sínum. Loftskeytakerfi lands-
ins er nú að mestu lamað og
óttast menn að verkfallið kunni
að breiðast til símaþjóna.
—Reuter.
NEGRAR FLUTTIR BURT?
LONDON. Líklegt er talið að
Bandaríkjamenn muni bráð-
lega flytja á brott úr Þýska-
landi alla þá negra, sem eru
þar í hernámsliðinu. Fyrst og
fremst er samkomulag slæmt
milli þeirra og hvítra hermanna
og svo hefir einnig komið í ljós,
að Þjóðverjum er illa við svert-
ingjana.