Morgunblaðið - 20.06.1946, Side 5
Fimtudagur 20. júní 1946
MORGUNBLAÐIÐ
5
„SJALFSTÆÐISFLOKKIJRIIMN ER STERK-
ASTA SAMEIIMIIMGARAFL ÞJÓÐARIIMIMARM
JEG hygg, að hin unga kyn-
slóð á íslandi gangi til kom-
andi kosninga, ef til vill nú
fremur en nokkru sinni áður,
með hugann við stóru málin og
framtíðina fyrir stafni.
Kosningarnar, sem nú eru
framundan, eru fyrstu alþing-
iskosningar hins íslenska lýð-
veldis.
Lýðveldisstofnunin á íslandi
17. júní 1944, er stærsta mál
síðasta kjörtímabil um leið og
það er eitt stærsta mál þjóð-
arinnar um aldur og æfi.
Sjálfstæðisflokkurinn fór
einn með stjórn landsins, þeg-
ar síðustu alþingiskosningarnar
fóru fram á árinu 1942. Ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokksins
beitti sjer fyrir því, að binda
endi á skilnaðarmálið og end-
urreisa lýðveldið í landinu.
Fyrir tilmæl Bandaríkjanna
var endanlegr afgreðslu máls-
ns frestað svo sem kunnugt er,
þar til eftir árslok 1943, en Sjálf
stæðisflokkurinn hafði forustu
um stjórnlagabreytingu á árinu
1942, sem mælti fyrir um, með
hverju móti lýðveldisstofnunin
yrði löglega framkvæmd, enda
tókst ríkisstjórninni þá að fá
fyrirfram viðurkenningu
Bandaríkjanna á stofnun lýð-
veldisins. Verður aldrei ofmet-
ið gildi þessarar yfirlýsingar.
Fylgdu aðrar þjóðir, sem hjer
áttu sendiherra eða sendifull-
trúa, nema Ráðstjórnarríkin,
fordæmi Bandaríkjanna um við
urkenningar og heillaóskir lýð-
veldinu til handa strax við
stofnun þess á Lögbergi 17. júní
1944 — og víðsvegar utan úr
heimi bárust lýðveldinu heilla-
óskir.
Lýðveldisstofnunin er merki-
legur þáttur í sögu hins litla,
íslenska eyríkis. Hún er skær
vonarneisti smáríkisins á öld
ófriðarins um friðelskandi fram
tíð, — um leið og í henni ræt-
ast draumsýnir þjóðarinnar um
aldir.
Einstöku menn fengu andleg
glý í augun, þegar ekki þótti
lengur ástæða til að danska kó-
rónan væri ríkistákn íslend-
inga, en þjóðareignin í lýðveld-
iskosningunum skrifaði syndir
þeirra í sandinn. Síðan hefir
undanhaldið gleymst, en eftir
stendur ávöxturinn af djarf-
huga, framsækinni stefnu, sem
sumir kölluðu „hraðskilnað“,
•— en það er sjálft lýðveldið,
sem enginn góður íslendingur
muni nú vilja eiga óstofnsett.
Eftir lýðveldisstofnunina 17.
júní 1944 bar einn þungan
skugga á stjórnmálalífið í land-
inu. Þjóðin hafði þurft í hart-
nær tvö ár að una við utan-
þingsstjórn, sem frá öndverð.u
naut einskis stuðnings alþing-
Kafli úr útvarpsræðu
Jóhanns Hafsteins
13. júní s.l.
is og hafði ekki hirt um eða
lánast að afla sjer trausts þings
ins.
Skal ekki hirt um hjer að
rekja ógiftusamlegan stjórnar-
feril hennar, en á þá staðrevnd
mint, að þegar hjer var komið,
á haustmánuðum 1944, var
þessi stjórn gersamlega í þrot
komin og til vandræða horfði
um úrlausn veigamestu lands-
mála.
Vinnufriður í þjóðfjelaginu
var þrotinn, en yfir stóðu lang
varandi vinnudeilur og verk-
föll og vaxanddi vandræði fram
undan.
Afgreiðsla fjárlaga var orð-
in stjórninni um megn.
Dýrtíðarmálin algerlega
óleyst.
Vegur og virðing alþingis að
sama skapi þverrandi sem leng
ur dróst að skapa hæfa stjórn-
arforustu á þingræðisgrund-
velli.
Upp úr þessum jarðvegi lán-
aðist Sjálfstæðisflokknum að
hafa forustuna um að koma á
laggirnar stjórnársamstarfi því,
sem hófst með myndun núver-
andi ríkissttjórnar 21. október
1944.
Stjórnarsamstarfinu þarf ekki
að lýsa hjer, en jeg vil gera
nokkra grein fyrir afstöðu
ungra Sjálfstæðismanna til þess
og stefnu stjórnarinnar.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa
af einhuga fylgjt flokksforust-
unni í stjórnarsamstairfinu.
Þeim er ljós hætta sú, sem út
af fyrir sig er fólgin í samstarfi
við óþjóðholl öfl kommúnism-
ans. En á það ber fyrst og
fremst að líta, á hvaða grund-
velli stjórnarsamstarfið- hvíldi
og að úrlansn hvaða mála það
stefndi.
Forsætisráðherra lýsti stjórn-
arsamstarfinu með þessum orð-
um við myndun stjórnarinnar á
alþingi:
,,Að þessari stjórn standa
menn, sem hafa í grundvallar-
atriðum sundurleitar skoðanir
á, hvaða þjóðskipulag henti ís-
lendingum best. Þeir hafa nú
komið sjer saman um að láta
ekki þann ágreining aftra sjer
frá að taka höndum saman um
þá nýsköpun atvinnulífs þjóð-
arinnar, sem jeg hefi lýst, og
sem er kjarni málefnasamn-
ingsins, og bygð cr á því þjóð-
Jóhann Hafstein,
formaðurS.U.S.
skipulagi, sem íslendingar nú
búa við“.
Málgagn Sósíalistaflokksins,
Þjóðviljinn, sagði í forustugrein
4. nóvember 1944:
„Sósíalistaflokknum er ljóst
og vill, að alþýðu manna sje
ljóst, að stefnuskár þessarar
stjórnar er ekki sósíalismi, ekki
sú stefna, sem Sósíalistaflokk-
urinn fyrst og fremst berst
fyrir“.
Málgagn Alþýðuflokksins,
Alþýðublaðið, sagði 1 forustu-
grein 4. nóvember 1944:
„í stefnuyfirlýsingu hinnar
nýju stjórnar er ekki gert ráð
fyrir neinum þeim skipulags-
breytingum, sem þjóðnýting
eða sósíalismi gæti kallast“.
Það liggur þannig fyrir, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
gengið til samstarfs við tvo só-
síalistiska flokka — ekki til
þess með þeim að framkvæma
sósíalisma — heldur til þess
á grundvelli ríkjandi þjóðskipu
lags að fá þá til að framkvæma
stórbrotna framfarastefnu í
landsmálum, sem „ekki er só-
síalismi“ og „ekki gerir ráð
fyrir neinum skipulagsbreyt-
ingum, sem þjóðnýting eða só-
síalismi gætu kallast“.
Á fulltrúaráðsfundi Sam-
bands ungra Sjálfstæðismanna,
sem haldinn var hjer í Reykja-
vík í síðastliðnum mánuði, var
lýst ánægju ungra Sjálfstæðis-
manna yfir því, hversu fram-
kvæmd stjórnarstefnurmar væri
vel á veg komin.
Greinargerð í þeim efnum
tæki of langan tíma en nokkur
upptalning markar sporin.
Með hinum stórfeldu togara-
kaupm þrefaldast togaraiflot-
inn. Bátaflotinn er að aukast
um 40%. Allur fiskifloti lands-
manna tvöfaldast
Siglingaflotinn er að fjór-
faldast.
Tugum miljóna er varið til
allskonar vjelakaupa til nýsköp
unar á sviði landbúnaðarins. —
Sett eru lög um landnám, ný-
bygðir og endurbyggingar í
sveitunum, er gera ráð fyrir, að
á næstu 10 árum verði varið
60—70 milj. kr. til að rækta og
byggja sveitirnar. Sett lög um
jarðræktar og húsagerðarsam-
þyktir, sem heimila miljóna
framlög úr ríkissjóð til vjela-
og verkfærakaupa.
Sett hafa verið almenn raf-
orkulög, sem stefna að allsherj-
ar hagnýtingu raforku til al-
menningsnota í landinu.
Lög um almannatryggingar
voru afgreidd á síðasta þingi.
Víðtæk fræðslulöggjöf var af
greidd á síðasta þingi, með
setningu laga um skólakerfi og
fræðsluskyldu, laga um fræðslu
barna, um gagnfræðanám, um
mentaskóla og um húsmæðra-
fræðslu.
Samþykt víðtæk löggjöf um
aðstoð þess opinbera í húsnaeð-
ismálunum.
Fulltrúar flokkanna bæði nú
í kvöld og í fyrri umræðum
hafa metist um þessi mál, sem
jeg hefi nú nefnt og aðrar fram
kvæmdir.
Jeg ætla að lofa hverjum sem
vill óátalið að togast á um það
hvað sje hverjum einum að
þakka í framkvæmd einstakra
framfaramála undir forustu nú-
verandi ríkisstjórnar.
Aðalatriðið er, frá sjónarmiði
okkar ungra Sjálfstæðismanna
að ekkert hinna nefndu stór-
mála gat náð fram að ganga
nema með víðtæku samstarfi,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði
forustu um að skapa.
í öðru lagi:Stjórnarsamstarf,
sem byggir á samvinnu allra
stjetta þjóðfjelagsins, gat ekki
og getur ekki orðið til eða haild-
ið áfram í þessu þjóðfjelagi án
forustu þess flokks, sem einn er
bygður upp af öllum stjettmn
landsins og er í eðli sínu sam-
kvæmt sterkasta sameiningar-
afli þjóðarinnar.
Stofnað samband ungra Sjálf-
stæðismanna í Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu
Á annað hundrað ganga í sambandið
LAUGARDAGINN 15. þ. m.
var haldinn stbfnfundur sam-
bands ungra Sjálfstæðismanna
í Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu í Stykkishólmi.
Á stofnfundinum mættu um
40 fulltrúar ungra Sjálfstæðis-
manna úr flestum hreppum
sýslunnar, en Páll Daníelsson
og Már Jóhannsson mættu fyr-
ir hönd stjórnar sambands
ungra Sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Árni Helgason í
Stykkishólmi setti fundinn og
kvaddi til fundarstjóra Svein-
björn Benediktsson, Sandi, og
fundarritara Zakarías Hjartar-
son, Stykkishólmi Þá flutti Páll
Daníelsson ræðu og gerði grein
fyrir starfsemi og skipulagi
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna og lagði fram frumvarp
að lögum fyrir sambandsstofn-
un í sýslunni. Að lokinni ræðu
Páls var frumvarp að lögum
fjelagssamtakanna rætt og síð-
an gengið endanlega' frá stofn-
un sambandsins.
Þessu næst fór fram kosning
í stjórn sambandsins og hlutu
þessir kosningu:
Þráinn Bjarnason, Böðvars-
holti, Staðarsveit, formaðup, —•
og meðstjórnendur Árni Helga-
son, Stykkishólmi, Stefán Ás-
grímsson, Borg, Miklaholts-
hreppi, Kristján Gunnarsson,
Sandi og Inga Kr. Bjartmars,
Stykkishólmi. I varastjórn voru
kosin Guðmundur Runólfsson,
Grundarfirði, Björg Ólafsdóttir,
Brimisvöllum, Sveinbjörn Bene
diktsson, Sandi, Sigurður Þor-
steinsson, Kóngsbakka, Helga-
fellssveit, og Kristinn Kristjáns
son, Bárðarbúð, Breiðuvík.
Um kvöldið efndi „Skjöld-
ur“, fjelag Sjálfstæðismanna í
Stykkishólmi til skemtisam-
komu. Á þessari skemtun íluttu
þeir ræður fulltrúar Sambands
stjórnarinnar Páll Daníelsson
og Már Jóhannssom Ólafur frá
Framh. á 12. síðu.