Morgunblaðið - 20.06.1946, Page 9
Fimtudagur 20. júní 1946
MORGUNBLAÐIÐ
9
Brjefaskifti um
stjórnarsamstarfið
SÓSÍALISTAFLOKKURINN
skrifaði Sjálfstæðisfl. og Al-
þýðufl., með brjefi dags. 11.
þ. m. þar sem þess er óskað, að
teknir sjeu upp samningar milli
fulltrúa flokkanna um fram-
hald stjórnarstarfsins.
Telur flokkurinn í þessu
brjefi „með öllu óverjandi að
ganga til kosninga“ án þess að
þjóðin fái að vita um afstöðu
flokkanna til áframhaldandi
samstarfs.
Þessu brjefi Sósíalistaflokks-
ins hefir af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins verið svarað með eft-
irfarandi brjefi:
15. júní, 1946.
Út af heiðruðu brjefi yðar,
'dagsettu 11. þ. m. skal þetta
tekið fram:
Þegar samið var um myndun
núverandi ríkisstjórnar, var
samstarfið ekki bundið við
tíma, heldur við framkvæmd
ákveðinna þjóðþrifamála og þá
fyrst og fremst nýsköpunar-
innar. Hefir að sönnu miðað vel
áleiðis í þeim efnum, en fer þó
fjarri, að verkefnum sje lokið.
Jeg hefði því talið sjálfsagt,
að samstarfið hjeldi áfram,
meðan verið er að framkvæma
nýsköpunina. Hefi jeg gert ráð
fyrir, að það mætti verða án
nýrra heildarsamninga milli
flokkanna og talið, að auðið
yrði að leysa vanda iíðandi
stu.ndar sem og að hrinda í
framkvæmd þeim áhugamálum
er einn eða fleiri stjórnmála-
flokkanna sjerstaklega kynnu
að bera fyrir brjósti með sjer-
stökum samningum, svo sem
verið hefir fram að þessu.
Heiðrað brjef yðar ber með
sjer, að þjer teljið nauðsynlegt,
að hafnar verði samningaum-
leitanir um nýja heildarsamn-
inga og skal jeg fúslega verða
við þeirri ósk.
Fyrir kosningar getur þetta
þó eígi orðið, jafn seint og ósk
yðar er fram borin, því að eins
og yður er kunnugt er það
flokksráð Sjálfstæðisflokksins,
sem um slík mál fjallar af
flokksins hálfu, en flokksráðs-
menn eru nú flestir hjer og þar
úti á landi sem virkir þátttak-
endur í kosningabaráttunni.
Virðingarfyllst,
Ólafur Thors.
Til
Sameiningarflokks alþýðu,
i Sósíalistaflokksins.
Prestastefnan hefsl
á morgun
HIN árlega prestastefna ís-
land (Synodus) verður háð
hjer í Reykjavík dagana 20.—
22. júní n. k. og hefst með guðs
þjónustu í dómkirkjunni í dag,
fimtudaginn 20. júní kl. 1 Vi e.
h. Sjera Guðmundur Sveinsson
prestur að Hvanneyri prjedikar
og sjera Jón Thorarensen þjón-
ar fyrir altari.
Síðar um daginn mun bisk-
up setja prestastefnuna í Há-
skólanum og flytja skýrslu um
störf og hag kirkjunnar á liðnu
synodusári.
Af málum þeim, er rædd
verða á prestastefnunni, má
einkum nefna:
1. Starf kirkjunnar fyrir
æskulýðinn.
2. Kirkjan og áfengismálin.
3. Söngskóli þjóðarinnar.
4. Barnaheimili.
5. Frumvörp um þau kirkju-
mál, er lágu fyrir síðasta Al-
þingi.
6. Kirkjuhúsið í Reykjavík.
í sambandi við prestastefn-
una mun sjera Friðrik Rafnar
vígslubiskup á Akureyri flytja
fyrir almenning erindi um Dr.
M. Luther í tilefni af 400 ára
dánarafmæli hans. Erindið
verður flutt í dómkirkjunni
þann 20. júní kl. 8% e. h.
Gert er ráð fyrir að presta-
stefnan muni verða slitið um
kl. 11 fá h., laugardaginn 22.
júní og fari þá prestarnir ásamt
biskupi til Þingvalla og dvelj-
ist þar um daginn.
Um kvöldið verða prestarnir
í boði á heimili biskupshjóp-
anna.
Allmargir prestar utan af
landi eru þegar komnir til bæj-
arins og má gera ráð fyrir, að
prestastefnan verði fjölsótt að
venju.
Fjölbreytt hátíðahöld
í Hafnarftrði
17. júní
BÆJARSTJÓRNIN í Hafnar-
firði gekkst fyrir fjölbreyttum
hátíðahöldum þar 17. júní. Skip
aði hún fimm manna nefnd til
þess að undirbúa og annast há-
tíðina. I nefndinni áttu sæti
þessir menn:Eyjólfur Kristjáns
son, sparisjóðsgjaldkeri, Guðm.
Arnason, bæjargjaldkeri, Hall-
steinn Hinriksson, fimleika-
kennari, Ólafur Jónsson, verka
maður og Stefán Júlíusson, yf-
irkennari, er var formaður
nefndarinnar.
Hátíðahöldin fóru að mestu
fram á Sýslumannstúninu, og
hófust þau kl. 2 með því að
skátar og íþróttafólk gengu í
skrúðgöngu eftir Strandgötu og
inn á skemtisvæðið. Heilsuðu
þeir mannfjöldanum með fána-
kveðju. Lúðrasveitin Svanur,
undir stjórn Karls Ó. Runólfs-
sonar, ljek öðru hverju meðan
á útisamkomunni stóð.
Hátíðin var sett af formanni
undirbúningsnefndar, Stefáni
Júlíussyni. Þá flutti bæjarstjór-
inn, Eirikur Pálsson, ávarp og
minntíst sjálfstæðisins. Björn
Magnússon dósent flutti snjalla
hugvekju um sjálfstæði þjóðar-
ipnar í framtíðinni. Karlakór-
inn Þrestir, undir stjórn Jóns
ísleifssonar, söng ættjarðarlög.
Þá var keppni í handknattleik
milli Hauka og FH og kepptu
bæði pilta og stúlknaflokkar.
Haukar unnu báða leikina.
Reipdráttur fór fram milli sjó-.
mánna og láiidmanna, ög sigr-
uðu sjómenn. Að lokum var
dans stiginn á StrandgÖtunni,
Hófst hann kl. 10 um kvöldið.
og var dansað af miklu fjöri
til kl. 1.
Sænsku tistiðnaðar-
sýningunni lýkur
í dag
SÆNSKU LISTIÐNAÐAR-
SÝNINGUNNI í Listamanna-
skálanum líkur i dag. í gær
höfðu alls 4.400 manns sótt
sýninguna og er það mjög góð
aðsókn, enda er margt skemti-
legt að sjá á þessari sýningu.
Hún verður opin til klukkan
11 í kvöld.
Þessi sýnnig á listiðnaði, eins
og fleiri sýningar Heimilisiðn-
aðarjelagsins sænska, á að sýna
hvað hægt er að gera smekk-
lega og eigulega hluti, þegar
handverksmaðurinn og lista-
maðurinn leggja saman krafta
sína og ennfremur er henni
ætlað að sýna hvernig ungt
fólk, sem hefir takmörkuð pen-
ingaráð getur komið sjer upp
fallegu heimili. Þetta hefir
tekist.
Flestir munirnir á sýning-
unni hafa verið til sölu. Eru
þeir flestir seldir nema dýr-
ustu Orrefoss-krystalvasarnir
og teppin.
Kveðja frá krónprins
Svía.
Daginn, sem sænska listiðn-
aðarsýningin var opnuð, sendi
sýningarnefndin sænska krón-
prinsinum skeyti og tjáði hon-
um að sýningin hefði verið opn
uð þann dag, en krónprinsinn
er heiðursformaður í Svenska
slöjdföreningen, er stendur fyr-
ir sýningunni. í dag barst
Chargé d’ Affaires Svía, Otto
Johansson eftirfarandi svar-
skey ti:
„Sendi mínar innilegustu
þakkir fyrir kveðjuna og vil
láta í ljós ánægju mína yfir
því, að sænsk listiðnaðarsýn-
ing hefir nú verið opnuð á ís-
landi, en þaðan hefi jeg svo
margar góðar endurminningar
frá heimsókn minni fyrir 16
árum. Gustaf Adolf.“
Farfuglar efna til
fjölda sumarferða
FARFUGLADEILD Reykja-
víkur efnir til fjölda ferða úr
bænum í sumar eins og undan-
farin ár, og hefir deildin gefið
út sjerstaka ferðaáætlun.
Farfuglar hafa þegar farið í
10 styttri ferðalög um helgar
og aðra frídaga, en í sumar er
áætlað, að þeir fari alls í 23
slíkar ferðir. Auk föstu ferð-
anna er svo um flestar helgar
farið í ,,hreiður“ fjelagsins,
Heiðaból og Valaból.
Þá hefir Farfugladeildin á-
kveðið að fara í 5 sumarleyfis-
ferðir. Verður sú fyrsta göngu-
ferð um Snæfellsnes. Hefst sú
ferð 29. júní og er henni lokið
14. júlí. Þá verður hjólferð um
Vesturland 6.—21. júlí. viku-
dvöl í Kerlingafjöllum 14.—
21. júlí. Vikudvöl í Þórsmörk
20.—28. júlí og vikudvöl í
Landmannaafrjett 27. júlí til
5. ágúst.
Skrifstofa Farfugladeildar
Reykjavíkur verður í Iðnskól-
anum í sumar. S*r hún opin á
miðvikudags- og föstudags-
kvöldum kl. 8—10 e. h. Eru
þar veittar allar upplýsingar
um ferðirnar.
Þjóðhátíðin
Mikil þátttaka í
hálíðahöldunum á
Akureyri
Akureyri, þirðjudag.
Frá frjettaritara vorum.
MIKIL þátttaka var í þjóð-
hátíðarhöldunum á Akureyri.
Snemma um morguninn blöktu
fánar við hún alls staðar um
bæinn og á skipum á höfninni.
Kl. 1 e. h. ljek Lúðrasveit Ak-
ureyrar á Ráðhústorgi og hófst
svo þaðan skrúðganga upp að
hátíðarsvæðinu, er var á tún-
inu sunnan við sundlaugina. —
Var skrúðgangan óvenju fjöl-
menn og skipuleg.
Kl. 2 var hátíðin sett af for-
manni forstöðunefndarinnar,
Armanni Dalmannssyni, með
ræðu. Þá fór fram fánahylling
og að því loknu guðsþjónusta.
Sr Friðrik Rafnar, vígslubisk-
up, flutti prjedikun og kirkju-
kórinn söng undir stjórn Bjög-
vins Guðmundssonar, tón-
skálds. Sigurður Guðmundsson,
skólameistari flutti lýðveldis-
ræðu og Olafur Halldórsson,
stúdent, minni Jóns Sigurðs-
sonar. Söng milli ræðanna ann
aðist Kantötukór Akureyrar og
karlakórar bæjarins.
Nokkru síðar fóru fram í-
þróttasýningar kvenna og karla
úr íþróttafjelaginu Þór. Átta
skátadrengr sýndu glímu og að
lokum voru sýndir þjóðdansar.
— Lúðrasveitin ljek ýmiss lög
af og til um daginn undir stjórn
Axels Jónssonar. Síðar um
kvöldið hófst svo dans á palli
hátíðasvæðisins og ennfremur
að Hótel Norðurland og í sam-
komuhúsi bæjarins. Aðgangur
var ókeypis að öllum skemmti-
atriðunum. Veður var ágætt, og
fór hátíðin hið besta fram.
Þjóðhátíðarfagnaður
í Húsavfk
íþrótafjelagið Völsungur sá
um þjóðhátíðarhöldin í Húsa-
vík í gær að tilhlutan hrepps-
nefndar Húsavíkurhrepps.
Hátíðahöld hófust kl. 13
með skrúðgöngu æskumanna og
kvenna og var fyrst gengið að
prestsetrinu, en í gær átti Frið-
-rik A. Friðriksson prófastur,
fimtugsafmæli. Flutti formað-
ur Völsunga ávarp til prófasts
og fjölskyldu hans, sem mikinn
skilning og styrk hefir lagt fje-
lagsmálum æskunnar í Húsa-
vík.
Síðan var gengið í bæinn og
svo í kirkju og flutti þar odd-
vitinn, Karl Kristjánsson ávarp,
en síðan var samfeld dagskrá,
upplestur og söngur, sem karla
kórinn Þrymur annaðst. Loks
var ávarp, er Axel Benedikts-
són, skólastjóri, flutti. Að end-
ingu sungu allir viðstaddir þjóð
sönginn.
Kl. 16 hófust svo hátíðahöld
úti í Höfðanum og fóru þar
frárri ýnis skemtiatriði, svö seni
hándknattleikur kvenná, knatt-
spyrna, bændakefli, þriþraút Ög
ýms skemtiatriði. Um kvöldið
var svo stiginn dans í samkomu
húsinu. Veður var hið besta.
úti á landi
Hálíðahöld í
Stykkishóbni
17. júní
Frá frjettaritara vorum
17. júní hátíðahöldin fóru
þannig fram í Stykkishólmi, að
fánar voru dregnir að hún um
allan bæinn um morguninn. •—•
Kl. 1 var hlýtt á messu í Stykk-
ishólmskixkju og messaði þar
sjera Þorgrímur Sigurðsson,
sóknarprestur á Staðastað. Frá
Kirkjunni var gengið í skrúð-
göngu inn á iþróttavöll og
gengu skátar í fararbroddi með
fána.
Lúðrasveit Stj'kkishólms ljek
á íþróttavellinum, en Bjarni
Andrjesson kennari, sett sam-
komuna með ræðu. Þá fór fram
keppni í handknattleik milli
skáta og ungmennafjelaga og
varð jafntefli. í knattspyrnu
milli skáta og ungmennafjelaga
sigruðu ungmennafjelagar með
einu móti núll;
Eftir að boðhlaup hafði farið
fram var gengið að barnaskól-
anum og keyptu menn sjer þar
veitingar, er kvennfjelagið bar
fram af hinni mestu rausn.
Klukkkan hálf sjö hófst
skemtun við skólahúsið, lúðra-
sveitin ljek, Ólafur Jóhannes-
son lögfræðingur, hjelt ræðu og
karlakór Stykkishólms söng
nokkur lög. Inga Þorvaldsdótt-
ir las upp úr Alþingishátíðar-
ljóðum Ðavíðs Stefánssonar og
mannfjöldinn söng því næst
undir leik lúðrasveitarinnar.
Nefnd frá öllum fjelögum í
Stykkishólmi gekst fyrir há-
tíðahöldunum, sem fóru í alla
staði prýðilega fram. Veður var
gott, sólskin framan af og milt.
Um kvöldið var dansað úti á
palli, sem til þess hafði verið
reistur utan við skólahúsið.
Fjölþætt hátíðahöld
á Patreksfirði
17. júní
Patreksfirði, miðvikud.
Frá frjettaritara vorum.
HREPPSNEFND Patreks-
hrepps stóð fyrir hátíðarhöld-
um hjer 17. júní og hófust þau
með messu um morguninn í
Eyrarkirkju. Sóknarpresturinn
sjera Einar Sturlaugsson,
predikaði.
Eftir hádegi var gengið í
skrúðgöngu um bæinn og nið-
ur að hátíðarsvæði dagsins og
var þátttaka mjög almenn í
göngunni. Á hátíðarsvæðinu
hófst samfeld dagskrá, ræðu-
höld, söngur. boðhlaup, hand-
bolti stxilkna og boðsund
stúlkna og pilta. Var keppt um
silfurbikar milli eyranna Geirs
eyri og Vatneyri og vann Vatn
eyri.
Um kvöldð var dansleikur í
samkomuhúsinu og var bar
mikill fagnaður og dansað eftir
hljómsveit Sóleyjargötunnar.
Seinni hluta dagsins voru veit-
ingai; fram bornar í samkomu-
húsinu, smurt breið, öl og gos-
drykkir. Var þar öllum veitt,
er vildu, af mikilli rausn og án
endurgjalds og komu þangað
650 manns.