Morgunblaðið - 20.06.1946, Qupperneq 12
áu luiiiiiimiiuuii
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 20. júní 1946
Frú Jóhanna
Pálsdóttir
áitræð
ÓÞARFI finnst mjer að fara
mörgum orðum um sómakonuna
frú Jóhönnu Pálsdóttur, prests-
ekkju frá Bíldudal, sem kemur
öllum, sem kynnst hafa þeim
heiðurshjónum á löngum starfs
ferli þeirra til að Ijúka upp ein-
um munni um sjerstakan dugn-
að og atorku í starfi. Ekki síst
hefir það mætt á húsíreyjunni
að annast erfið heimilisstörf
jafnframt því að koma börn-
um sínum til ágætrar mennt-
unar af litlum efnum. Við erum
mörg, sem hugsum til hennar
frú Jóhönnu 1 dag á áttræðis
afmælisdegi hennar og við
þökkum henni fyrir allt, sem
hún hefir gert og óskum henni
alls góðs í framtíðinni.
í dag dvelur hún á heimili
Sigríðar dóttur sinnar á Lauga-
veg 82. G. P.
- Síða 5. U. S.
Framh. af bls. 5.
Elliðaey og Árni Helgason
skemtu með kveðskap og gam-
anvísnasöng. En síðar um kvöld
ið flutti þingmaður kjördæmis-
ins, Gunnar Thoroddsen, ræðu,
en hann hafði fyrr um daginn
verið á framboðsfundi vegna
kosninganna. Að lokum var
dansað fram eftir nóttu.
Mikill og vaxandi áhugi rík-
ir meðal ungra Sjálfstæðis-
manna í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu, sem skipar
sjer mjög eindregið um fram-
bjóðanda Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu, Gunnar Thorodd-
sen.
Um kvöldið gengu alla á ann
að hundrað meðlimir, ungar
konur og karlar í fjelagssam-
tökin. * *
Vlinningarorð um síra Hólmgrím Jósepsson
A þriðjudag fór fram í Dóm-
kirkju Reykjavíkur kveðjuat-
höfn við kistu sjera Hólmgríms
Jósepssonar prests að Raufar-
höfn. Að þeirri athöfn lokinni
var lík hans borið á skipsfjöl
til þess að flytjast í mold átt-
haganna, en á þeim stöðvum
þjónaði hann einnig eftir að
hann tók embætti innan kirkj-
unnar. Það var með öðrum
hætti en ætlað var, að sjera
Hólmgrímur kom til Reykja-
víkur að þessu sinni. Hann var
15 ára stúdent í vor og hafði
10 ára prestsþjónustu að baki.
Hugði hann gott til þess að
koma suður í vor til þess að
taka þátt í hátíðahöldunum
hinn 16. júní á aldarafmæli
mentaskólans. En síðari hluta
vetrar tók hann að kenna þeirr
ar veiki, er lagði hann í rúmið
á annan páskadag í vor. Þá
voru síðustu fótmál hans hjer
talin. Hann var í maílok flutt-
ur helsjúkur til sjúkrahúsvist-
ar í Reykjavík og ljest í Lands-
spítalanum á annan hvíta-
sunnudag eftir harða baráttu
milli lífs og hels. í þessari bar-
áttu mun enginn hafa sjeð
honum að miklu bregða. Þeir,
sem næstir honum voru, undr-
uðust skapgerð hans, þá er
flestir töldu dauðann við sjúkra
beðinn, og sjálfur þá ekki síst
fundið og skynjað að örlaga-
stundin nálgaðist. Sýndi hann
þá stillingu, er þrekmenni lýs-
ir. Var þó óvenjusárt að kveðja
þessa jarðvist svo sviplega.
Hann var aðeins fertugur að
aldri, átti 5 börn á bljúgasta
bernskuskeiði, hin elstu 10 ára
tvíburar, og framundan var
þjónustan fyrst og fremst við
þessa litlu einstaklinga, sem
hann var borinn til að gefa
þessari þjóð. Og kona hans sat
við rekkju hans og vakti yfir
hverjum vonarneista. — Þessi
skapgerð Hólmgeirs hafði
gleggst komið áður í ljós, þegar
mikið reyndi á. Enn er í fersku
minni sá atburður er hann
viltist á fjallvegi í norðlenskri
stórhríð og frosthörku og lá í
fönn í 16 klukkustundir til
þess að halda lífi. Það var í
janúarmánuði 1944, að hann
fór frá Raufarhöfn til Þórs-
hafnar, til þess að þjóna í for-
föllum sóknarprests. Dvaldi
hann þar um hálfan mánuð við
ýmis prestsverk. Heimleiðis
lagði hann um miðjan dag frá
Sjávarlandi í Kollavík yfir
hálsinn, er liggur þar milli
bygða, og ætlaði út að Orma-
lóni. Veður var sæmilegt. Uppi
á hálsinum var botnlaus ófærð,
og er þangað var komið skall
á blindhríð. Reyndi presturinn
að teyma hest sinn í ófærðinni
og brjótast áfram, en innan
skamms gafst hesturinn upp og
varð eigi þokað. Gróf Hólm-
grímur sig þá í fönnina og Ijet
skefla yfir sig. Lá hann þannig
um nóttina og hjelt sjer vak-
andi. Upp úr miðnætti rofaði
í lofti. Reif hann sig þá úr
fönninni og gekk um hríð, en
fann brátt, að hann fór villur
vegar og tók aftur hinn fyrri
kost að láta fyrirberast í fönn-
inni. Fór svo fram til klukkan
10 næsta morgun, birti þá enn
í lofti, svo-að hann gat greint
til fjalla og tekið rjetta afstöðu.
Skall litlu síðar á iðurlaus hrið.
Hólmgrímur náði þó til bæjar
um hádegisbilið, kalinn á fót-
um og höndum og illa haldinn.
Hafði hann þá verið 22 stund-
ir það sem að sumri var tveggja
tíma ferð, og nú þurfti hann
að standa 12 klukkustundir í
vatni til þess að þíða kalið. Við
þessu snerist hann æðrulaus,
svo sem smávikum lífsins.
Hólmgrímur Jósefsson var
fæddur 12. apríl 1906 á Orm-
arslóni í Þistilfirði, sonur Hall-
dóru Þorgrímsdóttur og Jóseps
bónda Kristjánssonar, er allan
búskap sinn hafa háð að Orm-
arslóni. Var hann elstur fjög-
urra barna þeirra. Hólmgrím-
ur tók gagnfræðapróf frá Ak-
ureyrarskóla, en stúdentspróf
frá Mentaskólanum í Reykja-
vík árið 1931. Guðfræðipróf tók
hann 1936 og vígðist þá í ágúst
að Skeggjastöðum í Norður-
Múlasýslu. Árið 1942 fjekk
hann Svalbarðsprestakall og
settist að á Raufarhöfn. Vorið
1935 kvæntist hann Svanhvíti
Pjetursdóttur frá Reyðarfirði,
dóttur Sigurbjargar Erlends-
dóttur frá Skálum á Berufjarð-
arströnd og Pjeturs Magnús-
j Hiussdregiar (einlitir)
verða teknar upp í dag.
//
Geysir“ H.f.
sonar frá Hrolllaugsstöðum í
Hjaltastaðaþinghá. Varð þeim
5 barna auðið, svo sem fyrr
greinir. Sjera Hólmgrímur tók
ýmis störf utan embættis síns,
endurskoðun við Kaupfjelag
Þórshafnar, hreppsnefndarstörf
og unglingakenslu. Á Skeggja-
stöðum tók hann nemendur á
hverjum vetri óg á Raufarhöfn
var hann skólastjóri unglinga-
skólans tvo síðustu vetur.
Að fráfalli manns er sjón-
arsviptir og miklu meira. Það
er jafnan blóðtaka fyrir þjóð-
ina, og okkar litla þjóð má
síst við því, að missa menn á
manndómsskeiði, þótt sú verði
oft raunin. En þeirra er saknað
af fjölmörgum utan nánustu
ættmenna og venslafólks. —
Hólmgrímur er einn þeirra.
G. M. M.
Byggingafjelag
Keflavík byggir 12
Dönsk húsgögn
Nokkrir bókaskápar, úr eik, mjög smekk-
legir, fyrirliggjandi.
Ölvir h.f.
Grettisgötu 3. — Símar 5774 og 6444.
Frá frjettaritara vor-
um í Keflavík.
í síðustu viku var flutt í
fyrstu tvær íbúðirnar í húsum
þeim, sem Byggingafjelag
verkamanna í Keflavík hefur
látið reisa. íbúðirnar eru þrj.ú
herbergi og eldhús, 8x9,5 m.
að ummáli. í kjallara eru tvö
stór herbergi, auk þvottahúss,
geymslu og hitunarherbergis.
Húsin eru mjög vönduð og
skemtileg og eru tvær íbúðir
í hverju húsi. Kostnaðarverð
var áætlað 85 þúsund krónur
hver íbúð.
Yfirsmiður var Þórarinn Ól-
afsson og múrari Ingvi Lofts-
son. Raflögn annaðist Eyjólf-
ur Þórarinsson og málningu
þeir Jón Páll og Guðni Magn-
ússon. Vatns- og hitalagnir
annaðist Sighvatur Einarsson
og Co., en verkstjóri var Stein-
dór Pjetursson.
Byggingafjelag verkamanna
var stofnað 1942 með 26 fjelög-
um og nú eru fjelagarnir orðnir
áttatíu. Formaður fjelagsins er
Valtýr Guðjónsson forstjóri. —
Alls er fjelagið búið að byggja
12 íbúðir, en áformað er að
byggja á næstunni 20 til 30
íbúðir í viðbót, því húsnæðis-
þörf er mjög mikil í Keflavík.
■IIIIMIIIIMIMIIIIIIMIIMIIIIIMMIIMIMMIIMIIIIIIIIIMMIMI'IMMIIIMIIIIIIIIIIMIIIIMIMIIIMIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIMMIIIIIIIIMMMIIIMMIIIIIIIMIIMIIMIMIIMIIIIIIMIIIIIIItllllVIIIIIIIIIIIIIIIMMIMIIIIIIMIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIII
X-9
Effir Robert Storm
iMimmmmmmmmMmMiimimm
iMMMMmmmmmmmmimmmi
immmMmMMMMMMMMMMMMMMMMmMMMMMtmMMmMMMMMMMMMMimmMMMMMMMMmiA
WIUPA, VWIÍ.S VOLI RU5TLE
GRUBjÍAi £ClNö TO LOOK.
AR0UND...AWYB5 MlöH TIDE
WíLL FLOAT U6 OUT OF
n here!
WfM
HOPE SO•
I'M 3E6INNIN6
TO feel like
ROBINEON
6RUE60/HE
Wilda. — Mjer líður svo illa vegna veslings frú
Krudd. Það var hræðilegt. — X-9: Það var ekki
þín sök, Wilda. Þessi bylgja hefði vel getað skolað
þjer fyrir borð líka. — Krudd, mjer þykir þetta sem
gerst hefir, ákaflega leitt. En við verðum allir að
horfast í augu við slíkt einhvern tíma. — Náskegg-
ur: Já, jeg býst við því, jeg þakka þjer kærlega
fyrir samúðina, hr. Coggigan. ■— Náskeggur (við
sjálfan sig) Gott hjá mjer. Jeg gat meira að segja
látið nokkur tár renna.