Morgunblaðið - 20.06.1946, Side 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
SÍÐA Sambands ungra Sjálf-
iiliurrefur gerir sig
heimakominn á
Þúfum, 14. júní.
Frá frjettaritara vorum.
VILTUR silfurrefur kom
heim að bænum Kleifakoti í
Mjóafirði, en þar býr einsetu-
kona, Friðgerður Ásgeirsdóttir.
Kom refurinn sjálfur inn í bæj
arganginn sníkjandi eftir mat.
Vissi Friðgerður fyrst varla
að hjer væri refur og hjelt það
vera hund. Fór hann síðan út
úr bænum og fór að leita að
æti í öskuhaug þar skammt frá.
Bar þar að mann frá næsta bæ,
Halldór Ebenesson í Botni.
Hóf hann þegar eltingaleik við
rebba og hugðist geta rotað
hann en tókst ekki. Daginn eft-
ir skaut Hrólfur Valdimarsson,
bóndi í Seli, refinn. Hjelt hann
stg enn heima undir bæ í Kleifa
koti,
Engan skaða gerði refurinn
og eru líkindi tij þess að hann
hafi verið veikur og því dregið
sig nálægt byggðinni. Ekki er
uppvíst, hvaðan hann hefir
sloppið. Hann var algerlega ó-
merktur.
Alþingiskosning-
arnar:
Orðsendng frá Sjálfstæðis-
fiokknum:
@ Reykvíkingar! Farið ekki
úr bænum án þess að kjósa.
Listi ykkar er D-Iistinn.
£ Reykvíkingar! Gerið skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins
aðvart um vini ykkar og
kunningja, sem eru fjar-
staddir, og verða ekki
heima á kjördegi. — Listi
ykkar er D-lisinn.
© Meðlimir Sjálfstæðisfje-
laganna í Reykjavík! —
Sendið skrifstofu flokks-
ins nú þegar eyðublöðin,
sem fulltrúaráðið sendi
ykkur til útfyllingar —
með fylstu upplýsingum,
sem ykkur eru kunnar.
Q Trúnaðarmenn flokksins!
Sendið miðstjórninni eyðu
blöðin, sem þið voruð beðn
ir að útfylla
@ Kosningahandbók Sjálf-
stæðisflokksins fæst hjá
bóksölum og skrifstofu
flokksins.
© Kosningaskrifstofan í Rvík
sem annast fyrirgreiðslu
utan kjörstaðaratkyæða-
greiðslunnar er í Sjálfstæð
ishúsinu, símar 6911 og
6581.
D-LISTINN
SJÁLFSTÆÐISFLOKK-
UKINN.
Byggingasýningin skoðuð
Byggingaráðstefnunni er nú lokið, en byggingasýningin heldur
áfram í Sjómannaskólanum og stendur fram á sunnudag.
í gær skoðaði forseti íslands sýninguna og ennfremur ríkis-
stjórnin og nýbyggingarráð. Myndin hjer að ofan sýnir sýn-
ingargesti í einni stofu sýningarinnar í gær.
Giæsilegur iundur
Sjálfstæðiskvenna
á Akureyri
SJÁLFSTÆÐISKVENNA-
FJELAGIÐ ,.Vörn“ á Akureyri
hjelt fjölmennan fund á Hótel
Norðurland miðvikudaginn 12.
þ. m.
Frúrnar Guðrún Jónasson og
Guðrún Pjetursdóttir mættu á
fundinum. Formaður, frú Jón-
heiður Eggers, setti fundinn og
bauð gesti og fjelagskonur vel-
komnar. Gaf því næst frú Guð-
rúnu Jónasson orðið. Mæltist
henni vel og sköruglega að
vanda. Frúin hvatti konur til
samstarfs við í hönd farandi
Alþingiskosningar.
Þá flutti frú Guðrún Pjeturs-
dóttir ræðu, minntist þeirra
tíma er konur höfðu hvorki
kosningarjett nje aðstöðu til að
hafa áhrif á opinber mál. Nú
væri rjetturinn fenginn og nú
bæri konum að sýna í verkinu
að þær hefðu vit og getu til
að styðja að velferðarmálum
þjóðarinnar.
Margar konur tóku til máls
þar á meðal frú Helga Marteins
dóttir eigandi Hótel Norður-
lands. Brýndi hún fyrir fund-
inum með sínum alþekkta á-
huga hve áríðandi væri að
Sjálfstæðisflokkurinn hjeldi
velli við Alþingiskosningarnar
á Akureyri og skoraði á alla
jafnt unga sem gamla að gera
skyldu sína.
Aðrar ræðukonur voru Ingi-
björg Halldórs, Helga Jónsdótt-
ir, Ingibjörg Jónsdóttir og
Gunnhildur Ryel.
Mikill áhugi ríkti á fundin-
um, voru konur á einu máli um
að styðja og efla málefni Sjálf-
stæðisflokksins.
Kjörorð fundarins var: Sig-
urður Hlíðar skal á þing.
Að lokum var hinum reyk-
vísku konum þakkaðar hinar
ágætu ræður og margskonar
upplýsingar, og hiltar fyrir
hinn mikla áhuga að leggja á
sig ferð norður í land til að
heimsækja sjálfstæðiskonur og
hvetja þær til starfa í kosninga-
baráttunni sem framundan eri
15 Vefslunarskóla
slúdenlar
BRAUTSKRÁNING stúdenta
fór fram í Verslunarskólanum
í gær. Útskrifaðir voru 15 stú-
dentar, 3 stúlkur og 12 piltar.
Fyrstu einkunn hlutu 12 þeirra
og 3 aðra einkunni. Nýju stú-
dentarnir eru þessir:
Árni Jónsson I. 6.39. Guð-
mundur Kristinsson, I. 6,77.
Guðni Hannesson, I. 7.03.
Gunnar Ingvarsson, II. 4,91.
Gunnar Zoega I. 6.88. Hólm-
fríður Lydía Thorarensen, I.
6.55. Jóhanna Tryggvadótttr, I.
6.66. Magnús Á. Guðmundsson,
I. 6.96. Magnús Guðmundsson,
I. 6,61. Ólafur Hannesson, I.
6,09. Páll Jókull Þorstensson,
II. 4.53. Pjetur Sæmundsen, I.
6.47. Rútur Halldórsson, II.
4.98. Sigríður Ásgeirsdóttir, I.
6,83. Tómas Óskarsson, I. 6.56.
Einkunnir eru gefnar eftir
Örsteds-kerfi, hæsta eink. 8.
Guðni Hannesson, Magnús Á.
Guðmundsson, Gunnar Zoega
og Sigríður Ásgeirsdóttir hlutu
verðlaun og einnig umsjónar-
maður VI. bekkjar, Ólafur
Hannesson.
I ræðu sinni við brautskráning
una rakti skólastjórinn, Vilhj.
Þ. Gíslason, störf lærdómsdeild-
arinnar. Kennarar eru hinir
sömu og áður, nema Björn
Bjarnason, cand mag. kendi
stærðfræði og Geir Jónasson
cand. mag. sögu. Prófdómarar
voru hinir sömu og við stúdents
pró Mentaskólans.
Skólastjórinn flutti ræðu um
frelsi og aga og árnaði stúdent-
unum heilla og gengis. Síðan
komu stúdentar og aðrir gestir
saman á heimili skólastjóra og
konu hans, og ýmsan annan
gleðskap höfðu hinir ungu stú-
dentar eins og venja er til og
fór allt vel fram.
SAPA SKOMTUÐ.
LONDON. Nýlega hefir ver-
ið minkaður skamtur manna í
Bretlandseyjum af sápu. Varð
að gera þetta vegna þess hve
mikill skortur er á fituefnum í
landinu.
Kantötukór Akureyrar flytur
„Örlagagatuna' í kvöld
Verkið flult í heilu lagi í fyrsta sinn
KANTÖTUKÓR AKUREYRAR kom hingað til bæjarins s. 1.
þriðjudagskvöld. Hjer mun kórinn flytja ,,Örlagagátuna“, sö:ig-
drápu eftir Björgvin Guðmundsson, en hann er hjálfur stjórn-
andi kórsins. Er þetta í fyrsta sinn, sem þetta verk er flutt í
heilu lagi, en áður hafa verið fluttir kaflar úr því á Akureyri
við mjög góðar undirtektir. Söngtextinn er eftir Stephan G.
Stephansson.
Kórinn heldur fyrstu hljóm-
leika sína hjer í Trípólí-leik-
húsinu í kvöld kl. 8,30. Þá hefir
og verið ákveðið að hann haldi
aðra hljómleika hjer n. k. sunnu
dag. Á föstudaginn syngur hann
í Bæjarbíó í Hafnarfirði og á
laugardagskvöldið á Selfosisi,
en þann dag fer kórinn í skemti
ferð til Gullfoss og Geysis í
boði bæjarstjórnar.
Einsöngvarar kórsins eru
Björg Baldvinsdóttir, Helga
Jónsdóttir, Ingibjörg Ólafsdótt-
ir, Hreinn Pálsson, Hermann
Stefánsson og Ólafur Magnús-
son frá Mosfelli. Við hljóðfær-
ið er frú Lena Otterstedt, en
söngfólkið er alls um 60. Far-
arstjóri er Ármann Dalmanns-
son, en stjórn kórsins skipa:
Frú Helga Jonsdóttir, formað-
ur, Páll Helgason, vara-formað
ur, Jónas Thordarson, ritari,
Edvald Malmquist. fjehirðir og
Hreinn Pálsson, meðstjórnandi.
Söngdrápan. sem kórinn flyt-
ur, er í tveim þáttum. Efnið
er sótt í þátt Þiðranda og Þór-
halls, sem er einn af hinum 40
Islendingaþáttum, og ,,er víg
Þiðranda Síðu-Hallssonar að
sjálfsögðu hin dramatíska
þungamiðja verksins", eins og
tónskáldið kemst að orði í söng-
skránni, sem prentuð hefir ver-
ið í tilefni þessarar söngfarar.
Ef tími vinnst til mun kór-
inn e. t. v. syngja oftar hjer í
Reykjavík en getið er um hjer
að ofan.
Kveðjur frá Garðari
Gíslasyni slór-
kaupmanni
FRÁ Garðari Gíslasyni stór-
kaupmanni í New York barst
Morgunblaðinu eftirfarandi
skeyti í gær:
„Góðfúslega flytjið innilegar
þakkir og kveðjur öllum þeim,
sem sendu mjer heillaóskir og
hugsuðu hlýtt til mín á afmælis
degi mínum.
Og þar sem þjóðin stendur á
vegamótum leyfi jeg mjer jafn-
framt að óska þess að hún meti
ætíð og örfi framtak og sjálf-
stæðisviðleitni einstaklinganna.
Garðar Gíslason.“
IIELGOLAND EYÐILAGT.
LONDON. Eitt bresku blað-
anna segir í gær, að Bretar
muni hafa í hyggju að láta
sprengja í loft upp þýsku
klettaeyna Helgoland á Norð-
ursjó. Segir blaðið að eyjan
sje stórhættuleg öryggi Eng-
lands.
Mðnntaskólanum á
Akureyri slitið
50 stúdentar
útskrifaðir.
Frá frjettairata vorum
á Akureyri.
MENTASKÓLANUM á Ak-
ureyri var slitið 16. þ. m. kl.
1.30 í hátíðasal skólans að við-
stöddu fjölmenni. Skólinn var
fjölsóttur, nemendatala yfir 300
en miklu fleiri, sem gengu
undir próf.
Undir gagnfræðapróf gongu
91 nemandi, 69 innanskóla og
22 utan skóla. Frá prófi gengu
tveir utanskólanemendur. Próf
inu luku því 89 nemendur.
Af innanskólamönnum hlutu
38 fyrstu einkunn og 31 aðra
einkunn. Af utanskólafólki
hlutu 7 fyrstu einkunn, 11 iðra
einkunn og tveir þriðju eink-
unn. Hæstu einkunnir J lutu
Steingrímur Arason (S-ÞJng.),
7,29 og Baldur Ingimarsson
(Akrueyri), 7,22.
Við skólaslitin hjelt skóla-
meistari Sigurður Guðmunds-
son ræðu um áhrif auðsins á
vaxandi lausung og glæpi : neð-
al æskunnar. Óskaði hann lem
endum sínum þess, að þeir yrðu
vandaðir menn, sem gengju ó-
klofnir að skyldustörfum sín-
um. Ennfremur mintist skóla-
meistari 100 ára áfmælis Menta
skólans í Reykjavík og las upp
skeyti, er M. A. sendi í tilefni
þessa atburðar.
Við skólaslitin voru staddir
10 ára stúdentar frá Mcnta-
skólanum á Akureyri. — Sinn
þeirra bekkjanauta kvaddi
sjer hljóðs og las upp skjal þess
efnis, að 10 ára stúdentar yæfu
skólanum brjóstlíkan af Sigurði
skólameistara. Brjóstlíkar.ið er
ekki fullgert enn, en því er ætl-
aður staður í hátíðasal skólans.
Brautskárðir voru að bcssu
sinni 50 stúdentar, 34 úr nála-
deild, tveir þeirra utanskóla,
og 16 úr stærðfræðideild. ! inn
nemandi í máladeild, Ili’einn
Benediktsson frá Eskifirði,
hlaut ágætiseinkunn, 7.58. Er
það hæsta einkunn, sem nokk-
ur máladeildarstúdent frá skól-
anum hefir hlotið.
Tuttugu og níu málaúeildar-
nemendur hlutu fyrstu eink. og
fimm aðra. í stærðfræoideild
hlutu 11 fyrstu einkunn og 5
aðra.
Stúdentarnir sátu eftir sköla
slit boð skólameistarahjónanna
að hótel KEA.