Morgunblaðið - 27.03.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.03.1947, Blaðsíða 1
16 síður <» IW i 1 wrj 34. árgangur 72. tbl. — Fimtudagur 27. mars 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f. MARTIN BORMANN ER A LÍFI A SPÁNI -<•> Norsk viðskipia- nefnd komin fil landsins HINGAÐ er komin sendi- nefnd frá Noregi til að ræða! við íslensku ríkisstjórnina um viðskipti milli íslands og Noregs. f nefndinni eru: G. Ver-,! mundsson, sem er tæknilegur ráðunautur nefndarinnar, Klaus Sunnanaa, formaður, Kr. Bartland, K. Vartdal, K. Myre, G. Poulsen og Sverre Vagen, ritari nefndarinnar. í dag hafa þessir menn ver ið skipaðir í nefnd til að ræða við norsku sendinefnd- ina: Finnur Jónsson, alþm., og er hann formaður, Eggert Kristjánsson, stórkaupmaður, Einar Sigurðsson, forstjóri, Jón Árnason, bankastjóri, Kjartan Thors, framkvæmda stjóri. Ráðunautar nefndarinnar eru þessir: Ásgeir Sigurðss., skipstjóri, Davíð ólafsson, fiskimálastjóri, Hans G. And ersen, þjóðarjettarfræðingur. Ritarj nefndarinnar er Þó- hallur Ásgeirsson, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu. (Frjettatilkynning frá ríkisstjórninni). Er enn á lífi ræðismennimir fara í kvöfd THOR THORS sendiherra og frú hans, ásamt ræðismönnum íslands, þeim dr. Helga P. Briem í New York og Gretti L. Jóhannssyni í Winnipeg fara heimleiðis í kvöld aftur með flugvjel AOA, en þau voru hjer gestir flugfjelagsins eins og kunnugt er í vígsluferð „Flag- ship Reykjavík“. Ennfremur fer í kvöld Mr. Hugh Cumming, yfirmaður Norður-Evrópudeildar utan- ríkisráðuneytisins í Washing- ton. Árni Helgason ræðismaður fór vestur um haf í fyrrinótt. Sá síOasti áeyr. BERLÍN: — Síðasti fíllinn í dýragarðinum hjer í Berlín dó fyrir skömmu síðan. Fílarnir í garðinum vóru upphaflega niu, en átta höfðu drepíst í einni af loftárásum banda- manna 1943. Martin Bormann, (í hvítu fötunum) staðgengill Hiílers, sem íalinn var dauður, en er enn á lífi og býr á Spáni. — Myndin var tekin á velmegunardögum Bormanns í Þýskalandi. Lengsti fundur utanríkisráð- lierranna — og árangurminnsti MOSKVA í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR fjórveldanna voru á fundi saman í fjórar klukkustundir og 45 mínútur í dag og er þetta léngsti fundur þeirra til þessa. Ekki var hann þó að sama ,skapi vel heppnaður, því lítill sem enginn árangur varð af fundinum, nema hvað nokkrum málum var vísað á ný til fulltrúa utanríkisráðherranna til frekari at- hugunar og samþykkt var að leyfa Júgóslavíu að koma á framfæri við fundinn skoðun sinni á væntanlegum frið- arsámningum við Austurríki. Ekkert samkomulag. Þá var til umræðu þátttaka Kína í friðarsamningunum. Ekk ert samkomulag varð um það mál. Það þriðja, sem tekið var fyr- ir á fundinum í dag, var skýrsla fulltrúa ráðherranna um þing- sköp hinns fyrirhugaða friðar- fundar. Skýrslunni var vísað aftur til fulltrúanna. Rætt um hvað ræða skuli. Fundinum lauk með því nær klukkustúndar umræðum um, j hvaða mál skyldu tekin fyrir á morgun (fimmtudag). Var eft ir langt þóf meðal annars að samkomulagi að ræða um eignir Þjóðverja í Austurríki. iegir Bevin af sjer i 4 r embæltinu! Moska í gærkvöldi. HJER í Moskva segja meðlimir bresku sendinefnd- arinnar á fundi utanríkisráð- herranna ekkert vita um flugufregnir þær, sem nú ganga í London, um að Bevin muni leggja niður utanríkis- ráðherrastarf sitt að Moskva fundinum loknum, en taka í staðinn að sjer forystuna um skipulagningu efnahagsmála Breta. IMýr leynifjelagsskapur nazista á ameríska svæðinu FRANKFURT í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. MARTIN BORMANN, staðgengill Hitlers, sem talið var að hefði látið lífið í Berlín með Hitler í aprílmánuði 1945, er Rússar hertóku borgina, hefir sjest á Spáni, eftir því, sem segir í frjett, sem borist hefir til aðalstöðva Banda- rikjamanna hjer í borginni, en það er „Dana“, þýska írjettastofan, sem birt hefir fregnina og ber fyrir henni stjórnmáladeild Bandaríkjahersins í Þýskalaq,di. Hefir jafnan verið talað mikið um að Bormann væri á lífi, en aldrei fengist staðfesting á því fyr en nú. Nýr nasista- fjelagsskapur •- • ----'W- ------ Um leið og frjettin, að Mart- in Bormann sje á lífi birtist er opinberlega skýrt frá leyni- fjelagsskap nasista á hernáms- svæði Bandaríkjamanna. Fyrir þessum fjelagsskap stóðu fjórir háttsettir nasistaforingjar, sem Bandaríkjamenn handtóku fyr- ir nokkru, en ekki hefir fyr en nú verið skýrt frá handtöku þeirra. Fjelagsskapur þessi hafði á stefnuskrá sinni, að koma nas- istaforingjum undan wg nefndi sig „Hinn þýska fjelagsskap fyr ir frelsi og friði“. • Bandaríkjamenn segjast nú hafa komist fyrir rætur þessa fjelagsskapar og upprætt hann með öllu. Verkföll í Þýsltalandi. Loks berast í dag frjettir um verkföll þýskra verkamanna, sem hafa lagt niður vinnu og neitað að hverfa til hennar aft- ur nema að matvælaskamtur þeirra verði aukinn. í Bielfeld lögðu 7000 verka- menn niður vinnu í dag vegna þess, að matvælaskamturinn var lækkaður úr 1500 eining- um í 1000. Verkföll þessi breið- ast út í Ruhr-hjeraði og bæði í Duseldorf og Köln hafa verka menn farið 1 kröfugöngur í sam bandi við mótmæli vegna lækk unar matvælaskamtsins. Cðgnrýnir aðgerðir hernáms- veldanna í efnahagsmálum Þýskalands LONDON í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. í RÆÐU, sem Snoy barón, aðalritari belgiska fjármála- ráðuneytisins flutti í London í dag, gagnrýndi hann að- gerðir hernámsveldanna í efnahags og framleiðslumálum Þýskalands. Sagði hann meðal annars, að litlar líkur væru fyrir því, að takast mundi að endurreisa efnahag Þýska- lands, á meðan hernámsvöldin fjögur hefðu ein með það að gera. Þýðingarmikið atriði. Eftir að hafa bent á, hversu I þýðingarmikið það væri fyýr Belgíu, Holland og Luxemburg, 1 að efnahagur Þýskalands yrði endurreistur, sagði Snoy, að öll | um mætti vera ljóst, hversu ó- mögulegt væri að koma á jafn- , vægi í landinu á ný, meðan ýms ar hömlur væru á flutningi varnings milli hinna fjögurra I hernámssvæða. Vilja fá að fara til Þýskalands. Snoy sagði og, að belgiskir og hollenskir kaupsýslumenn væru þess fullvissir, að það mundi flýta endurreisn þýska efnahagsins, ef þeir fengju hindrunarlaust að ferðast til Þýskalands og koma á verslun- arsamböndum við þýska versl- unarmenn eftir venjulegum leið um. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.