Morgunblaðið - 27.03.1947, Blaðsíða 7
Fimtudagur 27. mars 1947
MORGUNBLAÐIÐ
„ í
HEILBRIGÐISMÁL hjeraðanna
ÞAÐ er merkilegt tímanna
tákn, að sveitapiltar, sem ganga
menntaveginn og verða læknar
nú á tímum, eru allra manna ó-
fústastir til að vera hjeraðs-
læknar. Um síðustu áramót
voru 7 þjónandi hjeraðslæknar
innan fertugs. Einn þeirra er af
Alftanesi, hinir allir úr kaup-
stað, enginn ofan úr sveit.
Sveitaæska síðustu áratuga hef
ir alist upp við ofsjónir eldri
kynslóðarinnar yfir sælulífi
kaupstaðanna og við beiskju-
blandinn búmannsbarlóm, sem
er að vísu ekki alveg tilefnis-
laus, en óhollur engu að síð-
ur. Þetta sjúka andrúmsloft,
sem aukið er á í pólitísku hagn
aðarskyni, hefur komið ósjálf-
ráðri óbeit á sveitalífi inn í
hugskot unga fólksins.
Það var eitt af fyrstu verk-
um hins endurreista löggjafar-
þings fyrir 70 árum síðan að
reyna að sjá öllum landslýð
fyrir viðunandi læknishjálp.
Sú framvinda tók stærst stökk
um aldamótin með læknaskip-
unarlögunum frá 1899, en nú
virðist heilbrigðisstjórn og al-
þingi hafa gefist upp við mál-
ið. —
Um síoustu áramót var sjö-
unda hvert læknishjerað á
landinu læknislaust. Sú þjóðar
vanvirða er þó ekki fyrst og
fremst gikkshætti ungu lækn-
anna að kenna, heldur á hún
upptök sín í skammsýni og smá
sálarskap stjórnarvaldanna. —
Ríkisstjórn og Alþingi hefur í
heilan mannsaldur reynst hjer
aðslæknum kargur og ósann-
gjarn vinnuveitandi.
★
Fram að fyrri heimsstyrjöld
voru árslaun hjeraðslækna 1500
krónur og þóttu það sæmileg
laun þegar þau voru uppruna-
lega ákveðin, á síðasta árs-
fjórðungi 19. aldar. Tímakaup
lækna á ferðalögum var þá
nokkuð ofan við tímakaup
verkamanna og skv. gjaldskrá
Guðmundar landlæknis frá
1905 fengu þeir fyrir venjulega
læknisskoðun sem svaraði 3—4
földu tímakaupi verkamanna
eða hálfu dagkaupi við vor-
Eftir P. V. G.
Fyrri grein
Kolka
heimtingu á fararskjóta, að
hann hefði á þessum árum
reiknað sjer hestsleigu á göngu
ferðum í viðbót við það 30 au.
tímakaup, sem honum bar sem
lækni. Með því hafði hann
meira upp úr sjer sem reið-
hestur erí sem læknir.
Það varð heilbrigðismálum
hjeraðanna til gæfu 1 öllu þessu
öngþveiti, að læknastjettin átti
þá að forustumanni Guðmund
prófessor Hannesson, mann
hófsaman og .%anngjarnan, en
einbeittan og óhvikulan, þegar
hann vissi sig fara með rjett
mál. Fyrir leiðsögn hans fór
svo, að allir hjeraðslæknar
gáfu stjórn Læknafjelags ís-
lands umboð til að segja em-
bættum sínum lausum. Þá
fyrst, er við lá að hjeraðs-
læknastjettin þurkaðist út í
heilu lagi, ljet Alþingi undan
og veitti læknum sæmileg lífs-
kjör. Öll þesis saga er einn af
smánarblettunum í þingsög-
unni.
Jeg er ekki í vafa um það,
að fólkið í læknislausu hjer-
uðunum geldur nú framterðis
fulltrúa sinna á þessum árum,
þótt síðan sjeu liðin hartnær
30 ár. Um það leyti sem jeg
varð kandidat, en það var
1920, var óhugur í ýmsum okk
ar við að ganga í þjónustu þess
ríkisvalds, sem hafði farist
skammarlega við eldri stjettar
bræður okkar.
Árið 1933 var staðfest ný
gjaldskrá fyrir hjeraðslækna
og hafði hún þó gilt í meira
en áratug með þegjándi sam-
þykki allra aðila. Þessi gjald-
skrá var mjög viðunanleg
1933. Þá voru kreppuár, gjald-
getan í sveitum niður við núll-
púnkt og kaupmáttur krón-
unnar mikill. Hjeraðslæknir
fjekk þá fyrir einfalda skoðun
eða tanndrátt sem svaraði 10
sig að skurðlækningum og
höfðu sjúkrahús. Ekki var
hægt að finna öllu öruggara
ráð til að fæla unga menn með
áhuga fyrir skurðlækningum
frá því að leggja fyrir sig em-
bættislæknisstörf í sveitahjer-
uðum.
Með nýju launalögunum var
haldið áfram á sömu braut.
Hjeraðslæknar í fámennustu
hjeruðunum eru settir í miklu
hærri launaflokk en aðrir og
er það að vísu sjálfsagt, því að
þar er oftast um erfið og ó-
girnileg útkjálkahjeruð að
ræða. En gjaldskrá hjeraðs-
lækna er aðeins hækkuð um
100% frá því, sem var fyrir
stríð, þótt alt annað kaupgjald
hafi hækkað um 4—600%. Enn
er okkur skamtaðar 4 krónur
í kaup á ferðalögum fyrstu 6
klukkustundirnar, 2 krónur
næstu 6 og í lengstu og erfið-
ustu vetrarferðunum lækkar
þessi greiðsla niður í 1 krónu
á tímann — segi og skrifa 1
krónu —- ef ferðin varir leng-
ur en 12 klukkustundir. Þetta
er vel að merkja án nokkurrar
verðlagsuppbótar. í nætur-
vinnu er tímakaupið 50%
hærra, en næturvinna er að-
eins reiknuð frá kl. 11 að
kvöldi til kl. 7 að morgni. Lög-
boðinn vinnudagur hjeraðs-
lækna er 16 klukkustundir.
Allt er þetta ótrúlegt, en
satt. Hitt er þó jafnvel enn þá
ótrúlegra, að heilbrigðisstjórn-
in hefur árum saman brotið
landslög á hjeraðslæknum með
því að þrjóskast við að veita
þeim árlegt orlof sjer að kostn
aðarlausu. Þeir munu vera sú
eina stjett meðal allra laun-
þega ríkis, bæja og atvinnufyr-
irtækja, scm ekki hefur fram
að þessu notið orlofshlunn-
inda, og núverandi landlæknir
vinnu í sveit. Þetta var í raun lítrum af nýmjólk eða 800 gr.
og veru hár taxti miðað við
gjaldgetu almennings, en rýrn-
aði þó að gildi jafnt og þjett,
vegna lækkaðs kaupmagns,
fram að heimsstyrjöldinni
fyrri. Með henni hófst mikil
verðbólga og allt kaupgjald
hækkaði stórum. Þá var á Al-
þingi allstór hópur lýðskrum-
ara, sem ól á gamalli öfund í
garð embættismanna. Þessir
menn lögðust móti sanhgjarnri
verðlagsuppbót á laun opin-
berra starfsmanna og stó$u eins
og steinveggur gegn allri hækk
un á taxta hjeraðslækna. Þá
var peningaflóð í sveitum
landsins, ær sexfölduðust að
verði og annar búpeningur
tilsvarandi, sömuleiðis allt
kaupgjald við sveitavinnu.
Hjeraðslæknum var samt ár
eftir ár synjað um alla hækk-
un á taxta sínum og það þótt
föstu árslaunin væru þá ekki
orðin á við vinnumannskaup í
sveit. Það sagði mjer gamall og
samviskusamur hjeraðslæknir,
sem stundum þurfti að fara fót
gangandi yfir fjallveg, en átti
af sinjöri til heimilis síns. Þessi
hlutföll breyttust stórkostlega
þegar ófriðurinn skall á. Heil-
brigðisstjórnin lenti inn á sömu
óheillabrautinni og 25 árum
áður og synjaði hjeraðslæknum
verandi starfsbræðrum hans og
þörfum hjeraða þeirra.
'k
Fáir ungir læknar fara út í
fáment útkjálkahjerað með
þeim ásetningi að dveljast þar
alla æfi, heldur til þess að
standa nær því að fá síðar fjöl-
ment hjerað og betur í sveit
sett. Með núverandi taxta er
mjög dregið úr hvöt þeirra til
að leggja út á slíka embættis-
braut. Læknir í hjeraði með 600
íbúa hefir með núverandi upp-
bót um 32500 krónur í föst árs-
laun.Ef hann flyst þaðan í fjór-
falt fjölmennara hjerað, t. d.
Sauðárkrókshjerað, lækka föstu
launin ofan í rúmar 24000 krón
ur eða um 25%. Til þess að
vinna upp þenna launamismun,
þarf hann að leggja á sig marg
falt meiri vinnu en áður, án
þess að verða nokkuru bættari
fjárhagslega. Þessi launamis-
munur samsvarar sem sje
greiðslu fyrir skoðun á 2000
sjúklii^um eða 50 holskurði,
miðað við verkataxta hjeraðs-
lækna, en ef miðað er við hinn
heimskulega ferðataxta, þarf
hann að vera í læknisferðum 6
—8 klukkustundir hvern ein-
asta virkan dag allt árið, til
þess að ná sömu tekjum og
meðan hann var í fámenna hjer
aðinu. Hjer er þó ekki tekið til-
liti til þess, að læknir eyðir
meiru í risnu og útsvör á Sauð-
árkróki en í Trjekyllisvik.
Með hinum lága taxta er
dregið úr hvöt ungra manna til
að' fórna nokkurum árum á út-
kjálka í von um fjölment hjer-
að síðar meir. Þessi skammsýna
launastefna bitnar því fyrst og
fremst á afskekktu hjeruðunum
enda eru nú 9 þeirra auglýsf
laus. Það er að vísu þægt að
hækka föstu launin í útkjálka-
hjeruðunum enn meir og
kaupa með því efnalitla menn
til að vera þar um tíma, meðan
þeir eru að safna farareyri til
framhaldsnáms og undirbún-
ings undir sjerfræðinám, enda
mun vera sá eini opinberi ráðs- 1 hafa ýmsir kaupstaðarlæknar
maður, sem hefur blátt áfram farið þá leið. En þá eru þeir tap
ekki viljað viourkenna þenna aðir sem hjeraðslæknar og fjöl-
rjett starfsmanna sinna. Það er mennari hjeruðin verða smám-
að vísu í allgóðu samræmi við saman með því móti ruslakista
aðra afstöðu hans til launa- og þrautalending fyrir þá skip-
kjara heilbrigðisstarfsmanna. brotsmenn, sem ekki hafa verið
um alla hækkun á taxta, þrátt Mjer hefir verið sagt, að hann færir um að standast samkeppni
fyrir ferfalda hækkun á kaupi hafi jafnvel talið eftir mat í höfuðstaðunum. Hjeraðslækn-
flestra annara launbega. í stað handa þéim læknastúdentum, arnir verða þá, er tímar líða,
þess var okkur seint og síðar sem stunda skylduvinnu á rík- úrhrakið innan læknastjettar-
meir öllum veitt jöfn verð- isspítölunum, og gæti þó slíkur ^ innar.
lagsuppbót, sem mun hafa ver- greiði varla munað stofnun Ur^dirbuningsferill læknaefna
ið miðuð við 650 króna grunn- cins og' Landsspítalann miklu, er nú einhver erfiðasta og dýr-
tekjur á mánuði, án tillits til en fátæka námsmenn talsverðu. asta námsbrautin, sem hægt ér
þess, hvort tekjurnar höfðu Ekki mun slík smámunasemi að leggja út á, enda heltast ár-
verið það miklar eða helmingi ] gcra honum hægara fyrir með lega margir úr lestinni. Það er
hærri. Hjeraðslæknar í fá- að fá þessa sömu menn til að ekki nema fyrir harðduglegan
mennum hjeruðum, sem voru fara út í læknislaus hjeruð. * j hæfileikamann að feta þa braut
í hæsta launaflokki og höfðu j Vilmundur Jónsson gegni áð- til enda, eins og læknanámi nú
um eða fyrir innan 3000 krón-jnr stóru læknishjeraði af mik- er háttað. Læknaviðkoman fer
ur í aukatekjur á ári, urðu með illi prýði og röggsemi og kom nú minkandi hin síðari ár. Síð-
þessu skaðlausir, en í fjölmenn upp á ísafirði stærsta sjúkra- asta áratuginn hafa ekki út-
ustu hjeruðunum, sem eru húsinu utan Reykjavíkur. Það skrifast árlega nema um 1
lægst launuð af því að lækn- er skaði, að svo mikilhæfur og læknir á hver 25000 landsmenn,
um þar er ætlað að lifa að all- gáfaður maður skyldi límast en næsta áratug á undan um 1
miklu leyti af praxis, var lækn fastur í skrifborðsstól í turn- á hver 15000. Með sama áfram-
irinn sviptur allri hækkun á ; herbergi Arnarhváls, stara það- ] haldi verður innan skamms
þeirri vinnu, sem fór fram úr j an öðru auganu heilskyggnu á læknaskortur í landinu og auð-
4000 krónur á ár. Kom þetta rílusfjehirsluna, en fá vagl á i vitað bitnar hann fyrst og
einkum niður á þeim, sem gáfu það augað, sem horfir að fyr- fremst á hjeruðunum. Það er
því lífsnauðsyn í þess beinustu
og bókstaflegústu merkingu að
búa svo að læknum, að nægi-
lega margir dugnaðar- og hæfi-
leikamenn fáist til að velja
læknisstarfið að lífsstarfi. Það
sama gildir um aðra heilbrigð-
isstarfsmenn, eins og hjúkrun-
arkonur og ljósmaeður. Sjúkra-
hús landsins verða að vera sam
keppnishæfar við ölknæpur,
hárgreiðslustofur og jafnvel
skrifstofur, þessa paradís mör-
landans á 20. öld.
★
Sumum húsbændum verður
alltaf vel til hjúa. Hjá öðrum
tolla engin hjú árinu lengur í
vist. Venjulegast er þetta hús-
bændunum sjálfum að kenna.
Við enga opinbera starfrækslu
er jafnmikill skortur vinnuafls
nje starfsmenn jafn óstöðugir í
vistinni eins og í heilbrigðis-
málastarfinu. Þetta er eðlilegt.
Heilbrigðisstjórnin er ljeleg-
asti og smásálarlegasti húsbónd
inn. Hún var eitt sinn að því
komin að flæma alla hjeraðs-
lækna úr vistinni. Læknislaus
hjeruð, Ijósmæðralausar sveit-
ir, sjúkrahús, sem verða að
neita að taka á móti sjúkling-
um í auð rúm, er nú sjáanlegur
árangur af aðbúnaði hennar
gagnvart starfsliði sínu. -
Tvisvar á einum mannsaldri
hafa hjeraðslæknar verið beitt-
ir freklegri ósanngirni, að því
er aukatekjur snertir. Nú stend
ur fyrir dyrum endurskoðun
gjaldskrár þeirra í sambandi við
trvggingarlöggjöfina nýju. Það
þótti ógæfumerki að vega
þrisvar í sama knjerunn. Jeg
vil minna heilbrigðisstjórnina á
þá gömlu lífsspeki. Við ætlumst
til þess, að hætt sje að demba
á okkur taxta án þess að leita
samkomulags við okkur áður.
Við heimtum fastan og fullgild-
an samningsrjett um okkar eig-
in vinnu.
I næstu grein mun jeg sýna
fram á, hvernig nauðsynlegar
framkvæmdir í heilbrigðismál-
um hafa setið .á haka fyrir öðr-
um menningarmálum að und-
anförnu, svo að í óvænt efni er
komið. Jeg mun þá benda á
ýmsar leiðir til umbóta, út frá-
viðhorfum, sem skapast hafa á
síðustu árum.
P. V. G. IColka.
nnKXMaMiDiiM.aiuiiiiHiiMniniiiinfiiu
Verslunarpláss
til sölu eða leigu.
Búðarplássið á húsinu-
Sörlaskjól 42, sem er al-
veg tilbúið til notkunar
er til sölu eða leigu. —
Umsækjendur sendi leigu- |
eða kaup-tilboð til lög- |
fræðings Þormóðs Ög- i
mundssonar, Bjarnarstíg 4 |
fyrir 1. apríl. — Húsnæð- |
ið er til sýnis daglega frá I
kl. 10—12 og 4—7 síðd. og |
nauðsynlegar upplýsingar I
veittar þar.
i Brjefaskriftir & Bókhald. |
[ Garðastræti 2. Sími 7411. f
i Bókhald, fjölritun, vjel- |
ritun og þýðingar. I
• UIIIIIIIIIIIIII.MMIHlllMMtllMMMMMIO.aMIIIIIIIIIIMUIMI
UNG DÖNSK STÚLKA
óskar eftir atvinnu í Reykjavík
við ljett hússtörf og að líta eftir
börnum. Tilboð merkt: „4507“
sendist afgr. Mbl