Morgunblaðið - 29.03.1947, Side 16
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói
MEÐ Reykjavík og Kaup-
Austan- og NA-kaldi. — Ljett-
skýjað.
Laugardagur 29. mars 1947
mannahöfn yfir Atlantshaf. —
Grein á bls. 9.
Yfirfærslur vinnu
launa lækka
VIÐSKIPTÁRÁÐ hefur á-
kveðið að lækka stórlega yf-
irfærslu á vinnulaunum er-
lendra manna, er vinnu *hafa
hjer á landi.
Tilkynning þessi var birt í
gærkvöldi og er hún svohljóð-
andi:
Viðskiparáð hefur ákveðið,
að veita framvegis þeim er-
lendum mönnum, sem hjer
dvelja og fengið hafa atvinnu
leyfi hjer á landi, leyfi til yf-
irfærslna á vinnulaunum, sem
samsvarar 15 af hundraði
af sannanlegum tekjum um-
sækjenda, þó aldrei hærri upp
hæð en 300 íslenskar krónur
á mánuði.
Til þessa munu útlendingar
hafa fengið yfirfært í bönk-
um því sem næst, fyrir 800
kr. ísl. á mánuði hverjum.
InnkaupasfofnuR
ríkisins
ST J ÓRN ARFRUM VARP er
fram komið á Alþingi um inn-
kaupastofnun ríkisins.
Skal ríkisstjórnin setja á
stofn innkaupastofnun, sem
hefir það hlutv. að annast inn-
kaup vegna rí kisstofnana og
sjerstakra framkvæmda ríkis-
ins. Ríkisstjórnin ræður för-
stöðumann stofnunarinnar, og
sjer henni fyrir starfsfje.
í 5. gr. segir svo:
,,Skylt er öllum ríkisstofn-
unum, sem reknar eru fyrir
reikning ríkissjóðs, svo og þeim
sem hafa með höndum stjórn
sjerstakra framkvæmda, sem
kostaðar eru af ríkissjóði, að
fela innkaupastofnu'ninni inn-
kaup þeirra nauðsynja, sem
fatla undir starfssvið hennar,
nema ráðherra heimili annað.
Ákvæði þessi taka ekki til
þeirra innkaupa, sem einkasöl-
um ríksins eru falin, sam-
kvæmt lögum þar um“.
80 manns miili Akur-
eyrar og Reykja-
víkur
ALDREI hafa flugvjelar
Fluf/jelags Islands flutt jafn-
marga farþega á einum degi, að
vetrarlagi milli Reykjavíkur og
Akureyrar og í gærdag.
Farþegar voru samtals 83
flugvjelarnar fluttu rúml 1.
ton’n af pósti og annar flutning-
ur var rúmlega 400 kg.
Til fróðleiks má geta þess, að
flesta farþega á einum degi
hafa flugvjelarnar flutt á þess-
ari leið 120 og var það í júlí-
mánuði í fyrra.
Snjór var lítill á flugvellin-
um á Melgerðismelum, vegna
þess að hann hefir skafið af
jafnóðum.
George Brefakonungur hjá negrum
A Afríkuferðalagi sínu heimsóttu bresku konungshjónin negra-
þorp í King Williamstown í Kap-hjeraði. Hjer sjóst George
Brctakonungur að tala við negrastúdent frá Lovedal-háskóla.
„Lífið land, merk
þjéð". Fyrsfa grein
amerísku blaða-
mannanna
HINGAÐ HEFIR borist úr-
klippa af fyrstu greininni, sem
einn af amerísku blaðamönn-
unum skrifaði eftir heimkom-
una. Birtist greinin í ,,The New
York Sun“ s. 1. mánudag og er
eftir Robert Mountsier flug-
málaritstjóra blaðsins.
Mountsier ber landinu og
þjóðinni vel söguna. Hann er
sjálfur mikill ferðalanguf og
var nýkominn úr férð til Vest-
ur-Indía, er hann lagði upp í
Islandsflugið..
Hann bendir á, að ísland sje
þýðingarmikill áfangi á At-
lantshafsleiðum, bæði vegna
flugs á friðar og stríðstímum.
„Þessvegna hafi Rússar fjöl-
menna sendisveit í Reykjavík
og þess vegna leiki lítíll hópur
íslenskra kommúnista það hlut
verk að spilla vináttu Banda-
ríkjamanna og íslendinga með
allskonar apakattalátum“.
,,ísland er skemtilegt • lítið
land fyrir ferðamenn, sem vilja
kynnast einhverju nýju og ís-
lenska þjóðin er merk þjóð —
að kommúnistunum undan-
skildum“, segir Mountsier.
• Yfirleitt er greinin mjög vin-
gjarnleg og virðist höfundur-
inn hafa gert sjer far um að
kynnast því, sem hann skrifar
um.
Búnaðarþlngi sllfið
BÚNAÐARÞINGI var slitið
síðdegis í gær. Hafði það hald-
ið 35Vundi og fengið 75 mál til
meðferðar. Af þeim fengu 68
fullnaðarafgreiðslu, 6 voru óaf-
greidd þegar þingið hætti störf
um, en 1 var vísað frá, þar sem
of langt var liðið á þingið, þeg-
ar það kom fram. »
Forseti Bjarni Ásgeirsson
land'oúnaðarráðherra þakkaði
fulltrúum ög starfsmönnum
búnaðarþingsins góða sam-
vinnu og óskaði þeim góðrar
heimkomu.
Breyting í vændum
á sljcrn flugmálanna
FRAM er komið á Alþingi
stjórnarfrumvarp, þar sem lagt
et til að önnur skipan verði á
yfirstjórn flugmálanna hjá okk
ur. —
Samkvæmt þessu frumvarpi
er lagt til, að yfirstjórn flug-
málanna verði á höndum 5
manna flugráðs, sem ráðherra
skipar til fjögurra ára í senn.
Ráðherra skipar flugmála-
stjóra og flugvallastjóra að
fengnum tillögum flugráðs.
Flugmálastjóri annast þessi
störf: Nýbyggingu flugvalla,
loftferðaeftirlit, öryggisþjón-
ustu og önnur störf, er flugið
varða og ekki snertir rekstur
flugvalla.
Flugvallastjóri annast rekst-
ur og viðhald flugvalla ríkis-
ins.
Báðir þessir aðalstarfsmerin
flugmálanna eru undir yfir-
stjórn flugráðs og ráðherra.
Segir í greinargerð, að si;'órn
flugmála-nna og rekstur flug-
vallanna sje orðið svo umfangs
mikið og kostnaðarsamt, að
nauðsynlegt sje að koma fast-
ari skipan á þessi mál.
Þorvaldur Skúlason
opnar málverfca-
sýningu í dag
ÞORVALDUR Skúlason,
listmálari, opnar í dag kl. 2
í Listamannaskálanum, mál-
verkasýningu. Þorvaldur hef-
ur ekki haldið sýningu hjer í
borginni síðan haustið 1946.
Á sýningunni verða því sem
næst 50 vatnslita- og pastel-
myndir, sem hann hefur gert
síðustu 12 árin. Ekkert af
þessum myndum liafa áður
verið á sýningum hans. Þá
verða þar nærri 30 olíumál-
verk. Elsta þeirra er frá
1935, nokkur eru frá 1939, en
flest hefur Þorvaldur gert á
árunum 1944 til 1947.
Sýningin verður opin þar
til að kvöldi 8. apríl og verð-
ur lnin opin daglega frá kl.
10 árd. til kl. 10 síðd.
Lnndsflokkaglíman
i gærkvöldi
LANDSFLOKKAGLÍMAN fór fram í gærkveldi í íþrótta-
húsinu við Hálogaland. Þátttakendur voru 18, en keppt var í
þrem þyngdarflokkum. Mikill fjöldi áhorfenda var og fór glím-
an vel og drengilega fram.
Ný ákvæði um
afurðasölumál
landbúnaðarins
FRAM er komið á Alþingi
stjórnarfrumvarp ,,um fram-
leiðsluráð landbúnaðarins, verð
skráningu, verðmiðlun og sölu
á Iándbúnaðarvörum o. fl.“
Samkvæmt þessu frumvarpi
tekur nú 9 manna framleiðslu-
ráð við yfirstjórn framleiðslu-
mála landbúnaðarins. Fram-
leisluráð skal þannig skipað: 5
menn kjörnir á aðalfundi Stjett
arsambands bænda, og 4 skip-
aðir samkvæmt tilnefningu eft-
irgreindra aðila, einn frá hverj
um: Samb. ísl. samvinnufje-
laga, Mjólkursamsölunni í
Reykjavík, Sláturfjel. Suður-
lands og mjólkurbúnunum ut-
an sölusvæðis Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar.
I 2. kafla frv. eru ákvæði um
verðskráningu landbúnaðar-
vara á innlendum markaði.
Skal Hagstofa íslands árlega
afla undirstöðugagna og á
grundvelli þeirra gagna skal
reikna út verðlagsvísitölu land
búnaðarvara.
I fyrsta sinn skal verðlags-
vísitalan ákveðin af 6 manna
nefnd, þrem kjörnum af Stjett-
arfjelagi bænda, og þrem af
eftirtöldum aðilum, einum írá
hverjum: Alþýðusambandi ís-
lands, Landssambandi iðnaðar-
manna og Sjómannafjelagi
Reykjavíkur.
Nefndinni fil aðstoðar eru
hagstofustjóri og formaður
búreikningastofu landbúnaðar-
ins.
Ef nefndin verður sammál,
er það bindandi.
Ef hinsvegar verður ágrein-
ingum um einstök aðriði, skal
þeim vísað til sjerstakrar yfir-
nefndar, sem skipuð er þrem
mönnum: Einum tilnefndum af
fulltrúum Stjettarsambands
bænda, öðrum af fulltrúum
neytenda og hagstofustjóra sem
oddamanni.
I frv. þessu eru færð saman
í einn lagabálk ákvæði í gild-
andi lögum um afurðasöluna.
Forseti slaðfeslir lör
Á RÍKISRÁÐSFUNDI í gær
staðfesti forseti íslands 3 eftir-
talin lög:
Lög um breytingu á lögum
nr. 115 19. nóvember 1936 um
þingsköp Alþingis.
Lög um breytingu á lögum
nr. 21 1. febrúar 1936 um Há-
skóla íslands.
Lög um breytingu á ljós-
mæðralögunum nr. 17 19. júní
1933.
Úrslit í hverjum einstökum
þyngdarflokki urðu sem hjer
segir: í fyrsta þyngdarflokki
sigraði Guðmundur Ágústsson
úr Ármann. Hann hlaut fjóra
vinninga. Að auki fegurðar-
glímuverðlaun fyrir þenna
flokk. Annar varð Friðrik Guð
mundsson úr K.R., með þrjá
vinninga og 3. varð Guðmund-
ur Guðmundsson, Á., með. 2
vinninga. — í þessum flokki
voru keppendur 5.
í öðrum þyngdarflokki var
sigurvegari Rögnvaldur Gunn
laugsson, K.R., með 3 vinn-
inga. Hann hlaut og fegurðar-
glímuverðlaunin. 2. varð Ág-
úst Steindórsson úr K.R., með
2 vinninga og 3. varð Kristján
Sigurðsson, Á., með 2 vinn-
inga. í þessum flokki glímdu
sex.
í þriðja þyngdarflokki urðu
úrslitin þau að Sigurður Hall-
björnsson, Á., fór með sigur
af hólmi, og hann hlaut einnig
fegurðarverðlaun þessa þyngd
arflokks. Hann hlaut 5 vinn-
inga. Annar varð Ólafur Jóns
son, K.K., með 4 vinninga og
3. varð Ingólfur Guðnason, Á,
með þrjá vinninga.
í þessum flokki voru kepp-
endur flestir^ eða 7.
Að glímunni lokinni þakk-
aði forseti Í.S.Í., Benedikt G.
Waage glímumönnum drengi-
legan leik og afhenti þeim verð
launin.
íogarakaup
Slykkishólms
í GÆR var fundur í sam-
einuðu þingi, og voru nokkr-
ar þingsályktunartillögur ái
dagskrá.
}
Togarakaup til Stykkishólmg;
Samþykt var þáltill. Gunn-
ars Thoroddsens um ríkisá-
byrgð ve^na togarakaupa
fyrir Stykkishólm með breyt-
ingu frá fjárveitinganefnd,
svohljóðandi: „Alþingi álykti
ar að heimila ríkisstjórninni
að ábyrgjast fyrir hönd ríkis
sjóðs lán, alt að 850 þús. kr.,
sem tekið verði af Stykkis-
hólmshreppi vegna togara-
kaupa, gegn tryggingu er ríK
isstjórnin telur gilda, enda
verði lánið greitt með jöfn-
um afborgunum á næstu 5
árum og ársvextir eigi yfir,
2,5 af hundraði.
Innflutningur heimilisvjela
Ennfremur var samþykt
einróma tillagan um innflutu
ing heimilisvjela. Alsherjar-
nefnd hafði haft hana til at-
hugunar og lagði til að húnl
yrði samþykt. ^
/