Morgunblaðið - 07.10.1947, Side 1
16 síður
U4. árgangur
227. tbl. — Þriðjudagur 7. október 1347.
Ísíioldarprentsmiðj a h.l.
pmMtt
IMÝ ALÞJÓÐA8AIVIT0K
Hýgift hjén og barns-
hafaitdi korsur (á
aukaáam!
VIÐSKIFTANEFNDIN hefur
ákveðið, að veita nýgiftum hjnn
um, sem eru að stofna heimili,
aukaskamt af veínaðarvöru og
búsáhöldum fyrir samtals 1500
krónur. Nær þetta eingöneu til
stofnunar nýrra heimila en ekki
til stækkana eða breytinga á
eldri heimilum.
Þá hefur viðskiftanefndin á-
kveðið að úthluta aukaskamti af
vefnaðarvöru til barnshaíandi
kvenna fyrir alt að 300 kr., gegn
vottorði læknis, eða ljósmóður.
Úthlutunarstjórar hafa á hendi
úthlutun þessara aukaskamta.
Kairo í gær.
í EGYPSKA utanríkisráðu-
neytinu hefur verið stofnuð ný
deild, sem heitir Súdanmála-
deildin. Egyptar halda fast við
fyrri kröfur sínar um að Súdan
verði gert að verndarríki þeira
og er þessi nýja deild einn lið-
urinn í baráttu þeirra fyrir
þeim málum. — Reuter.
Verður sSéll Rússans auéur!
Þessi Ijósmynd er af fundi á Allshcrjarþingi Sameinuðu þjóðanna
í Ncw York og var tekin eftir að fulltrúi Rússa, Gromyko hafði
gengið af fundi, en stóll Rússans er effir auður. I blöðum víða
um heim er þess nú getið til, að Rússar sjeu að undirbúa sig
undir að hverfa úr fjelagsskap hinna sameinuðu þjóða og hefir
þessi grunur styrkst við stofnun alþjóðabandalags kommúnista,
sem á að hafa aðalaðsetur í Relgrad.
Truman biður landa sína ú
spara öll matvæli
WASHINGTON í 'gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
TRUMAN Bandaríkjaforseti hjelt ræðu í gær, sem var út-
varpað um gjörvöll Bandaríkm. Á ræða þessi að tákna tíma-
móti í Bandaríkjunum, því að frá og með deginum í dag þyrja
Bandaríkjamenn að spara öll matvæli 'til þess að bja,rga
Evrópuþjóðunum frá hungri og niðurfelli. Truman sagði, að
með því að flytja meiri matvæli til Evrópu, væri ekki aðeins
verið að þjarga Norðurálfuþjóðunum heldur einnig allri vest-
rænni menningu. :
«-----------------------
greiSa í dollurum
Kairo í gær.
EGYPSKA stjórnin hefur gef
ið út yfirlýsingu um að Bret-
ar hafi neitað að greiða í doll-
urum þá 2% miljón sterlings-
punda inneign sem Egyptar
eiga í B.retlandi. — Reuter.
Nýjar verfcsmiðjur
nýr iðnaður
London í gær.
EFNAHAGSMÁLARÁÐ-
HERRA Breta, Sir. Stafford
Cripps gaf í dag nokkra upp-
lýsingu um það, hvernig breska
stjórnin hyggðist útrýma at-
vinnuleysi á einstökum stöðum.
Sagði hann m. a., að í Suður-
Wales væri verið að -byggja 12
nýjar verksmiðjur og víða um
England væri verið að byrja á
nýjum iðnaði, sem ekki hefði
þekkst þar áður. En, sagði hann,
til þess að koma í veg fyrir að
vinnuaflsskortur værj á einstök
um stöðum, þá þarf helst að
vei'a sjerstök stjórn, sem sjer
um það, að verkamennirnir
vinni á þeim stöðum sem skort-
ur er mestur á vinnuafli.
* —Reuter.
Spara öll matvœli
Truman bað bandarísku þjóð-
ina um að spara sem mest öll
matvæli til þess, að hægt væri
að senda hinum sveltandi þjóð-
um Evrópu sem mestan mat. —
Bað hann Bandaríkjamenn um
að borða ekkert kjöt á þriðju-
dögum og engin egg eða kjúk-
linga á fimtudögum. Auk þess
að hver maður ætti að spara
eina brauðkneið daglega, svo að
hægt væri að senda meira korn
til Norðurálfunnar.
Hann fór hörðum orðum um
þá, sem væru að hamstra sig
upp af matvælum og ætluðu sjer
með braski að græða á þeim.
Sagði hann, að í framtíðinni
skyldi tekið harðar á slíkum af-
brotum en áður.
Við erum að hef ja nýja orustu
sagði Truman. Það er orustan
við hungrið. Evrópuþjóðirnar
standa þegar fyrir hungurvof-
unni og ef þær falla í þeirri or-
ustu táknar það, að við höfum
mist friðinn.
Þeir Marshall utanríkisráð-
herra, Anderson og Harriman
hafa lýst því yfir, að þeir styðji
forsetann í þessari viðleitni
I hans.
KOMMIÍNISTA
UppSausn Komintern
var blekking — Ógnun
við samtök S.Þ.
PARÍS í gæikveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
UM SÍÐASTLIÐNA helgi kom það í ljós að stofnuð
hafa verið ný alþjóðasamtök kommúnista. Var stofnun
þessi ákveðin á fundi, sem kommúnistar frá níu löndum
Evrópu, Rússlandi öllum smáríkjum Austur-Evrópu og
Frakklandi, sátu í Varsjá í Póllandi. Með stofnun þessarra
samtaka er gert ráð fyrir náinni samvinnu kommúnista-
flokka um allan heim. Miðstöð þeirra verður í Belgrad í
Júgóslavíu.
Það er almennt álitið, að þetta eigi aö vera gagn-
sókn Rússa móti Marshall áætluninni og jafnvel
óttast sumir, að þetta muni vera frumdrög að því,
að Rússland og Austur-Evrópa segi sig úr banda-
lagi Sameinuðu þjóðanna.
Ufanríklsráðherra-
(uRdurlnn hefsl
5.. nóvesnber
London í gær.
NÚ hefur verið' ákveðið, að
fundur utanríkisráðherranna
skuli hefjast 5. nóvember n. k.
Bretland, Frakkland og Banda-
ríkin höfðu ákveðið, þessa dag-
setningu, en Rússar skáru sig
út úr og vildu að hann hæfist
6. nóvember. Nú hafa þeir samt
fallist á hitt. — Reuter.
Frakkavlnir í Saar fá
hreinan meirihluia
Saarbrucken í gær.
KOSNINGAR fóru fram í
Saar hjeraði í gær og eru úr-
slitatölur nú komnar. Þingsæti
eru 50 og af þeim hlaut kaþólski
flokkurinn hreinan meirihluta
eða 28 þingsæti. Sósíaldemo-
krata/lokkurinn fjekk 17 þing-
sæti, demókrataflokkurinn 3 og
kommúnistar 2.
Aðalmálið, sem barist var um
í kosningunum var hvort sam-
eina skyldi Saar efnabagslega
við Frakkland. Var Kaþólski
flokkurinn því fylgjandi og eru
því miklar líkur tii, að nú verði
það gert. — Reuter.
Vill meiri trúræfcni
London í gær.
f RÆÐU, sem Sir Stafford
Cripps hjelt í dag, ljet hann svo
ummælt, að ein besta trygging
fyrir því að friður hjeldist í
heiminum, væri sú, að menn
hlýddu meira á guðfræði en
gert hefur verið til þessa.
Kommintern endurreist.
Þessi viðburður hefur vakið
mikla furðu og að sumu leyti
gremju um allan hmn vestræna
heim, því að hinn fyrri alþjóða
fjelagsskapur kommúnista
Kommintern, sem var fjelags-
skapur allra þeirra kommún-
ista, sem mátu meira fyrirskip-
anir frá Rússlandi en börf síns
eigm föðurlands, var opinber-
lega leystur upp 1941 með lof-
orði Rússa um að stofna ekki
framar til slíkrar fimmtu her-
deildar starfsemi í öðrum lönd-
um.
Fylgja kommúnistar fleiri
landa með? « »
Kommúnistaflokkur Frakk-
lands er yfirlýstur meðlimur í
þessum nýju samtökum, en um
alla Vestur-Evrópu hafa menn
verið að velta því fyrir sjer,
hvort fleiri kommúnistasellur
fylgi ekki síðar með. Enn er
ekki vitað um afstöðu breska
kommúnistaflokksins nje komm
únistaflokkanna á Norðurlönd-
um til þessara austrænu sam-
taka.
Sósíalistar í Frakklandi
fordæma samtökin
í Frakklandi gaf franski sós-
íalistaflokkurinn út yfirlýsingu
varðandi þátttöku franska
kommúnistaflokksins í þessum
nýju samtökum. Er þátttaka
kommúnistanna fordæmd og því
lýst yfir, að þátttaka í slíkum
samtökum jafnist á við landráð.
Klofnun heimsins
Frönsk blöð skrifa mikið um
atburð þennan og telja hann al-
varlegan. Eru þau flest á einu
máli um, að það sýni ljóslega,
að Rússar vilji ekkert gera til
að halda þjóðum alheims sam-
einuðum. Þessi nýju samtök
geta ekki orðið til annars en að
(Framhald á bls. 12)