Morgunblaðið - 11.12.1947, Qupperneq 1
16 síður
34. árgangur
284. tbl. — Finimtudagur 11. desember 1947
fíafoldarprentsmiðj a h.l
Bretar herða eftirlit
sitt í Palestínu
Aga Klsan segisi ætla aS kaupa fandið!
Jerúsalem í gærkvöldi.
Einkaskeyti tii Morgunblaðsins ffá Reuter.
SIR ALAN CUNNIN.GHAM, landstjóri í Paiestínu, tilkynti í dag,
að Bretar mundu grípa til róttækra ráðstafana, ef núverandi átök
milli Araba og Gyöinga hjeldu áfram. Yfirlýsing landstjórans kom
um líkt leyti og emír Ismail Suleiman, einn af æðstu mönnum
Araba í Sýrlandi, tíikynti sýrlensku stjórninni, að Aga Khan,
sem segja má að sje æðstiprestur allra Múhameðstrúarmanna,
hefði lýst því yfir, að hann mundi geía 30 miljón sterlingspund
í gulli til styrktar Aröbum.
Þjóðverjar framleiddu kaibáta
strax eftir fyrri heimsstyrjöld
Aga Khan
Segist kaupa landið!
Frjéttamaður sá, sem skýrir
frá þessu, hefur það eftir Sulei-
man, að Aga Khan hafi og til-
kynt, að ef Sameinuöu þjóðirnar
hjeldu til streitu skiptingu Pal-
estínu, mundi hann kaupa ait
landið og afhenda það síðan
Aröbum! Frjett þessi er þó ó-
staðfest, sem og frjettin um mil-
jónagjöfina.
15 drepnir
Engin lát voru á átökunum í
Palestínu í dag, og munu að
minsta kosti niu Gyðingar og
sex Arabar hafa látið lífið.
Flýja fangelsi
Þá tókst 18 Aröbum að flýja
úr Aere-fangelsinu í Norður-
Palestínu. Komust þeir undan
með því að saga sundur rimlana
fyrir klefum sínum, binda einn
af vörðunum og renna sjer síð-
an á reipi, sem smyglað hafði
verið inn í fangelsið, út um einn
glugganna.
Verkföi! eru dýr
París í gærkvöidi.
SCHUMAN, forsætisráðherra
Frakklands, skýroi frá því í
útvarpsræðu í kvöld, að síð-
ustu verkfallsmennirnir væru
nú um það bil að taka upp
vinnu á ný.
Schuman minnti áheyrend-
ur sína á það, að verkföll
væru. dýr, og gat þess sem
dæmis, að tvær miljónir tonna
af kolum og yfir 400.000 tonn
af stáli hefðu tapast í veykföll
unum að undanförnu.
i!i a
tekJiiskaHi
K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
HEDTOFTST J ÓRNIN lagði
fram fyrstu efnahagsfrumvörp
sín í danska þinginu í gær. Fer
stjórnin fram á það, að tekju-
skattur verði hækkaður um tíu
prósent, en tuttugu prósent
skattur verði lagður á skinna-
vöru.
Búist er við,> að hinir nýju
skattar muni auka tekjur ríkis-
ins um 94 miljónir króna, en þó
vantar enn 46 miljónir til að
fjárlögin verði hallalaus.
I GÆR var dregið í 12. flokki
Happdrættis Háskólans. Dregn-!
ir voru út 2009 vinningar alls.
Hæsti vinningurinn í þessum
flokki eru 75 þúsund krónur. —
Kom hann upp á % miða, sem
allir voru í umboði St. Pálsson-
ar & Ármann í Varðarhúsinu.
Sarni maðurinn átti alla miðana
fjóra. Næst hæsti vinningurinn
25 þús. krónur komu einnig upp
á J/4 miða nr. 22073 er voru í
umboði Marenar Pjetursdóttur
Laugaveg 66. Þriðji hæsti vinn-
ingurinn kr. 20 þús. kom upp á
heilmiða nr. 5366 er var*seldur
í umboði Elísar Jónssonar
Kirkjuteig 5 og f jórði hæsti kom
einnig upp á heilmiða nr. 20132,
sem seldur var í Siglufjarðar-
umboði.
Morgunblaðið birtir í dag vinn
ingaskrána á 9. síðu, en án á-
byrgðar.
Aðstoðuðu Japani við
kafbátasmíðar
Krupp-mennirnlr fyrir rjeHi
Núrnberg í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
KRUPP-VOPNAVERKSMIÐJURNAR þýsku seldu Japönum upp-
arætti af kafbátum þegar á árinu 1920, eða aðeins tveimur árum
, eftir að heimsstyrjöldinni fyrri lauk. Frá þessu var skýrt hjer í
■ Núrnberg í dag, er rjettarhöld hjeldu áfram í máli 12 fyrverandi
! háttsettra starfsmanna verksmiðjanna. Eru menn þessir meðal
! annars sakaðir um að stuðla að vopnaðri árás á önnur ríki, auk
þess sem þeir eru óbeint bendlaðir við dauða tugþúsunda erlendra
manna, sem nasistar fluttu til Þýskalands til vinnu í Kruppverk-
smiðjunum.
Aga Klian, hinn heimsþekti auð-
kýfingur, er nú nefndur í sam-
bandi við Palestínudeiluna. —
Lausn hans á málinu er ákaflega
einföld: Ilann segist bara kaupa
alt landið!
Baðmuliarframleiðsla U. S. A.
eykst.
WASHINGTON: — Landbýnað-
arráðuneyti Bandaríkjanna gerir
ráð fyrir að baðmullarframleiðsla
landsins muni aukast allmikið.
Er það bygt á því að bæði í Texas
og Californíu eru betri skilyrði
en áður til þess að rækta baðm-
ull. Búist er við að framleiðslan
verði 11,694,000 ballar í desem-
ber.
111 voru drepnir
London : gærkvöldi.
SKÝRT var frá því 1 breska
þinginu í dag, að 111 manns
hafi látið lífið í ýjeirðum þeim,
sem urðu í Aden í Suður-
Arabíu í síðastliðinni viku.
Óeirðirnar urðu í sambandi
við ákvörðunina um Palestínu,
en í þeim ljetu lífið 75 Gyð-
ingar, 34 Arabar og tveir Ind-
verjar.
Landsstjórinn i Aden til-
kynti í dag, að alt væri nú með
kyrrum kjörum i borginni og
umhverfi hennar, — Reuter.
^Höfðu eftirlit með smíðinni
Verkfræðingar frá Germaníu
og Vulkan skipasmíðastöðvun-
um voru meðal þeirra, sem eftir-
lit höfðu með byggingu jap-
anskra kafbáta, en báðar þessar
skipasmíðastöðvar voru í eigu
Krupps.
Rafknviin tundurskeyti
Þá var og skýrt frá því í dag,
að í árslok 1923 hafi þýski flot-
inn haft samvinnu við nokkrar
erlendar þjóðir, í sambandi við
tilraunir, sem gerðar voru með
rafknúin tundurskeyti. Höfðu
Þjóðverjar orðið að hætta þess-
um tilraunum í lok fyrri heims-
styrjalda'rinnar.
únisfum
Washington í gærkvöldi.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja
þings samþykti í kvöld með 78
atkvæðum gegn 37, að stöðva
alla bráðabirgðahjálp til handa
þeim löndum, sem verða kunna
áhrifasvæði Rússa eða kommún-
ista. Þá var og samþykt með 109
atkvæðum gegn 57, að krefjast
þess, að einstaklingar, sem hafa
með höndum dreifingu banda-
rískra aðstoðarbirgða í hinum
ýmsu löndum, gefi um það yfir-
lýsingu, að þeir sjeu ekki komm
únistar.
Forseti fulltrúadeildarinnar
tilkynti í lok þingfundar í dag,
að enn ætti eftir að ræða 13
breytingatillögur í sambandi við
hina fyrirhuguðu bráðabirgða-
aðstoð til handa Frakklandi,
Austurríki og ítalíu. — Reuter.
Ný rjettarhöld
WASHINGTON: — Yfirrjettur
Bandaríkjanna hefur skipað ný
rjettarhöld í máli negra nokkurs,
sem ásakaður er um að hafa drep
ið hvítan mann.
Flýfa þarf endurreisn
Evrópu
vomr sinar a
og glundroða
Washington.
GEORGE MCGHEE, áhrifamikill starfsmaður hjá bandaríska
utanríkisráðuneytinu, ságði í ræðu í gær, að læra mætti það af
Grikklandsmálunum að tíminn væri naumur í endurreisnarstörf-
um Evrópu. Hann minnti einnig á að heimsveldastyrjaldir væru
ekki lengur unnar með herjum, eins og sjá mætti í Ungverja-
landi, Búlgaríu, Júgóslavíu og Albaníu. í Ungverjalandi er komm-
únistasigurinn rjett að segja unninn, því að þangað fluttu sovjet-
herirnir með sjer ungverska kommúnista, sem æfðir hafa verið í
Moskva í skemmdarverkum og uppreisnartækni.
Kommúnistar tapa
kosningum '
Þegar svo kommúnistar hjeldu
að kommúnistaflokkurinn væri
orðinn nógu sterkur í Ungverja-
landi þá leyfðu þeir frjálsar
kosningar eins og um var samið
að Jalta, en er það kom upp úr
kafinu að kommúnistar hríðtöp-
uðu, þá gripu þeir til sinna ráða
og ógnarstjórn tók við völdum,
sem ýmist drap eða gerði land-
flótta alla, sem gegn kommún-
istum stóðu. Ungverjaland var
með öðrum orðum gert að „lög-
regluríki“.
Frh. á bls. 12.
Sænski flotinn
Samkvæmt sönnunargögnum,
sem lögð hafa verið fram í Núrn
bergrjettinum, tókst þýskum
fyrirtækjum árið 1927 að ná
samkomulagi við sænska flot-
ann um tilraunir með rafknúnu
tundurskeytin. Voru tilraunir
þessar, sem og tilraunir með ým
iskonar önnur vopn, svo árang-
ursríkar, að Þjóðverjar áttu 12
fullvopnaða kafbáta aðeins
þremur og hálfum mánuði eftir
að Hitler 1935 lýsti því yfir, að
hann mundi hafa að engu á-
kvæði Versaillessáttmálans um
vopnabúnað Þýskalands.
Skymaslervjel
hrapar
Massachussetts í gærkv.
BANDARÍSK skymasterflug
vjel, sem í eru 29 menn, hrap
aði til jarðar í Labrador um
miðnætti í gær. Tókst leitar-
flugvjel að koma auga á flak
vjelarinnar í dag, en við það
mátti sjá einn mann á ferli.
Björgunarleiðangrar eru nú
á leiðinni til flugvjelarinnar, en
ekki er vitað, hversu margir
manna þeirra, sem í henni voru
og allir eru í Bandaríkjaher,
eru ennþá á lífi.
— Reuter.