Morgunblaðið - 11.12.1947, Síða 16
VEÐURÍITLITIÐ: — Faxaflói;
ALLHVASS austan. — Rign-
ing. —
Gistihúsbygging
í Seykjavík
í GÆR var lögfi fram á Al-
þingi svohljóðandl fyrirspurn
til samgöngumálaráðherra frá
Sigurði Bjarnasyui:
Hversu langt er komið und-
irbúningi að byggingu gistihúss
þess, sem ríkisstjórninni var
með 1. nr. 36 frá 1948 heimilað
að láta reísa í Revkjavík í sam-
vinnu við bæjarsijórn Reykja-
víkur, fjelög og einstaklinga?
Hversu miklu fie hefur verið
varið úr ríkissjóði til þess að
láta gera teikningar erlendis
að slíkri byggingu, og er þeim
teikningum fulllokið?
fknðmenn greiSa
rúmar 24 krénur
fyrir síldarmáiið
SÍLDARVERÐIÐ í Noregi var
ákveðið í gær. Var það ákveðið
kr. 16,25 á hektolíter fyrir stór-
síld og 13,25 norskar kr. fyr-
ir vorsíld, en vorsíldveiðin hefst
um áramótin í Noregi.
Þetta verð svarar til þess að
norskir sjómenn fá um það bil 24
norskar krónur fyrir síldarmál-
ið af stórsíld og tæplega norskar
20 krónur fyrir málið af vorsíld-
inni.
HAROLD WILSON, breski
verelunarmálaráðherrann, er
kominn aftur til London frá
Moskva, en þar tók hann þátt
í verslunarviðræðum Breta og
Rússa.
Wilson tjáði frjettamönnum,
sem^ræddu við hann á flug-
vellinum í Southamton, að við-
ræður sínar og Rússa hefðu ver
ið hinar gagnlegustu, enda
mundi samningaumleitunum
verða haldið áfram.
I fjarveru Wilsons er sendi-
herra Breta í Moskva fyrir
bresku samningancfndinni.
—Reuter.
SKRÁ yfir happdrættisvinn
inga er á bls. 9.
Veður hefir hamlaf
velðum sílasfa
sólarhríng
ROKIÐ, sem gerði í fyrrakvöld
og hjelst fram eftir degi í gær,
varð þess valdandi, að síldveiði-
flotinh I Hvalíirði gat ekkert að-
hafst. Síðastliðinn sólarhring
komu aðeins þrjú skip með um
1750 mál síldar alls.
Þótt komið væri besta veður
í gærkvöldi munu íá eða engin
skip hafa kastað, því enn var
talsverð kvika. Skip þar höfðu
orðið vör við talsverða síld. í
gær munu hafa verið þar milli
20 og 30 skip.
Reykjavík
Hjer í Reykjavík voru í gær-
kvöldi um 30 skip er biðu lönd-
unar en verið var að afferma ein
10. Síldin úr þessum skipum fór
ýmist í Fjailfoss eða Hrimfaxa
eða að henni _yar ekið til
geymslu í grjótnámi bæjarins.
Þar er nú komin eitthvað nær
30 þúsund mál.
Þegar ofviðrið skall á í fyrri-
nótt voru nokkur síldv'eiðiskip á
leið til Siglufjarðar meö eigin
afla. Munu þau yíirleitt hafa leit
að í var, eða breytt áætlun sinni
og farið með síldina til Patreks-
fjarðar.
Hreinsa þarf Hvalfjörff.
Um 20 skip voru á Ilvalfirði
og hafa engar frjettir borist um
að skemdir hafa orðið á þeim
eða þau orðið fyrir öðru tjóni.
Sjómenn hafa beðið Morgun-
blaðið að koma þeim tilmælum
sínum til rjettra aðila, að nauð-
synlegt sje að hreinsa botninn í
Hvalf. er færi gefst. Skip hafa
orðið fyrir skemdum á legufær-
um vegna víra og þessháttar
drasli, sem liggur á botninum.
Gengur ör! á Kasiðds
lán Breia
London í gærkveldi.
London í gærkveldi.
BRETAR hafa nú. eytt þrem-
ur fjórðu hlutum af lóni því,
sem þeir fengu í Kanada í
fyrra. Var frá þessu skýrt hjer
í London í dag, en af láninu
eru nú um 80 miljón pund eftir.
Til þgssa hafa Bretar eytt
10—12 miljón sterlingspundum
af lánsfjenu á mánuði hverj-
um. —■ Reuter.
Breska frímerkjaútgáfan
London i gærkvöldi.
TILKYNNT var hjer í Lond
on í kvöld, að þriár nýjar frí-
merkja tegundir munchr verða
gefnar út í Bretlandi á næsta
ári. Frímerki þessi eru gefin
út 1) til að minnast silfurbrúð
kaups bresku konungshjón-
anna, en það er næsta vor; 2)
til að minnast endurheimtu
Ermarsundseyjanna, sem Þjóð
verjar hersátu á stríðsárun-
um; og 3) í tilefni af olymp-
isku leikjunum. — Reuter.
Samkeppni um
kvikmyndadreifingu
BERLÍN: — Kvikmyndadreifing
á Bandaríkjasvæðinu í Þýska-
landi hefur nú verið sett á sam-
keppnisgrundvöll. Hefur einu
bandarísku, einu ensku og átta
þýskum fjelögum verið veitt leyfi
til kvikmyndadreifingar.
Fonnaður gjaídsyris-
nsfndar
CAMILLE GIJTT heiíir formað-
ur alþjáða gjaideyrisnefndarinn-
ar. Hefur hann nýiega skýrt frá
liví, að nefndin hafi vc'ít ýrr.sum
löndum lán að upp'.iæj 180,5
miljónir dollara.
,.SÖLVI“, skáldsaga eftir sr.
Friðrik Friðrikssön er komin
bókaverslanir, en útgefandi er
bókagerðin Lilja. Er þetta fyrra
bindi af skáldsögenni, en ætl-
unin mun að gefa út síðara
bindið á áttræðisafmælí sjera
Friðriks næsta vor.
Sjera Friðrik samdi söguna
um Sölva upphaflega einungis
til unplestrar á fundum í
KFUM, fyrir rúrolega 20 árum
og mun aldrei hafa Ⱦtlast til
að hú.n yrði birt. Enda segir
hann svo í formála. fyrir bók-
inni, að hann hafi látið tilleið-
ast „þvernauðugur“ að senda
Sölva út í heiminn til ókunn-
ugra.
Hinsvegar hafa hundruð
ungra manna á þessuro árum
hlustað á söguna af Sölva og
hrifist af henni og það mun
vera fyrir áeggjan aðdáenda
Sölva, að hann er nú kominn á
prent.
Það mun gleðja ótal marga
að fá tækifæri til að endurnýja
kvnni sín af Sölva sjera Frið-
riks.
I
H hala beðiS V.H.
irn aÖs!o§
FYRIR tveim dögum síðan tók
Vetrarhjálpin til staría hjer í
bænum. I gærkvöidi höfðu 76
manns sótt um aðstoð hennar,
sagði Stefán A. Páisson forsíj.
Enn sern ko*mið er hefur Vetrar-
hjálpinni borist lítið fje, um
1600 krónur. Þar af gaf Veiða-
færaverslunin Geysir í gær 500
kr. Söínunarlistar hafa verið
sendir til fyrirtækja og stofn-
ana hjer í bænum og er þess
vænst að þeim verði gerð góð
skil sem allra fyrst, því óðum
nálgast jólin.
Næstkomandi þriðjudag munu
skátarnir safna fje fyrir Vetrar-
hjálpina í Austurbænum og á
miðvikudag í Vesturbænum.
Nú hefur Vetrarhjálpin feng-
ið síma í skrifstofu sína Banka-
stræti 7 og er hann 2488.
Verkfall járniðnaðar-
manna kostaði þá og
verkamenn smiðjanna
tvær miljónir króna
Samningar lókust í gærkvöldi
VERKFALLI járnsmiða, sem staðið hefur yfir í tæpa tvo mán-
uði lauk í gærkvöldi, er samningar tókust milli meistara og fje-
iags járniðnaðarmanna fyrir meðalgöngu sáttasemjara ríkisins,
— Ilefur verkfallið kostað hvern einstakan járniðnaðarmann um
8 þúsund krónur, en samtals hefur tjón 150 járnsmiða, sem þátt
toku í vinnuslöðvuninni, orðið 1,2 milj. kr.
Tjón* verkamanna
Við þessa upphæð þætist svo
tjón 150 verkamanna og gerfi-
smiða, sem þált tóku í verkfall-
inu, vegna samúðarverkfalls
Dagsbrúnar við járnsmiðina
gagnvart smiðjunum, sem er um
6 þús. kr. á mann eða samtals
um 900 þús. krónur. Samtals hef
ur verkfallið þannig kostað
verkamennina og iðnaðarmenn-
ina, sem þátt tóku í því, rúmar
tvær miljónir króna.
Við þctta tjón bætist svo hið
beina og óbeina tjón vjelsmiðj-
anna og atvinnuveganna.
T. d. varð einn togari að bíða
allan tímann eftir nauðsynlegri
viðgerð.
Samkomulagið
Samningar tókust á þeim
grundvelli að kaupgjald járn-
smiðja var ákveðið 170 krónur
á viku í grunnlaun.
Á móti þeirri breytingu var
svo samið uro ýms atriði, sem
smiðjurnar telja sjer hagkvæm-
ari en áður og munu vega upp
á móti þeirri grunnkaupshækk-
un, sem samið var um að því er
Sveinn Guðmundsson framkv,-
stjóri tjáði blaðinu í gærkvöldi.
Eru það þessi atriði :
1. Tekin var upp í samning-
inn heimild til ákvæðis-
vinnu.
2. Heimilað er að vanræktar
vinnustundir að morgni
dragist frá kaupi með 50%
álagi.
3. 1. desember falli niður
sem frídagur.
4. Heimilað að breyta mat-
artíma þannig að kaffi-
tímar falli niður.
5. Kaupsámningur járn-
smiðanema falli niður,
þ. e. fjelag járniðnaðar-
manna semur ekki fyrir
hönd nemenda.
Gildir til 15. apríl 1949.
Samningur sá, sem gerður
var gildir til 15. apríl 1949 og
er uppsegjanlegur méð tveggja
mánaða fyrirvara.
Samningar stóðu samfleytt
frá kl. 8V2 á þriðjudagskvöld
til kl. 4% í gærmorgun. í gær
voru svo fundir í fjelögum
iárn'smiðameistara og járniðn-
aðarmanna og var samkomulag-
ið samþykkt þar.
Varaforseti rekinn
BUKAREST: — M. George Tat-
arescu, fyrverandi varaforseti
Rúmeníu, hefur verið vikið frá
störfum sem formaður frjáls-
iynda flokksins þar.
Kft sigraði Armsnn
SUNDKNATTLEIKSMÖT
Reykjavíkur hófst í gærkvöldi,
í því taka þátt Ármann, KR og
Ægir.
í gærkvöldi fór fram fyrsti
leikur mótsins. Þar mættust lið
KR-inga og Ármenninga. Var
leikur þessi mjög spennandi og
þótti tvísýnn til hins síðasta. —•
Leikar fóru svo, að KR-ingar
sigruðu nieð 5 gegn 4. Fyrri hálf
leik lauk með sigri Ármenninga
2:1.
Valur keppir við
Akurnesinga
HANDKNATTLEIKS meistara-
flokkur Vals fór S.I. sunnudag til
Akraness og keppti við K. A. í
hinu nýja íþróttahúsi Akurnes-
inga. Þessum leik lauk með sigri
Vals, 39 gegn 20, fyrri hálfleik-
ur 17 gegn 10. Var keppnin
mjög hörð og leikurinn spenn-
andi.
Rasmussen svarar
aðdróHunum
Kristensens
K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
GUSTAV RASMUSSEN ut-
anríkisráðherra, svaraði í gær
hinum heiftúðlegu ásökunum,
sem fram komu í ræðu beirri,
sem Knud Kristensen, fyrver-
andi utanríkisráðherra, flutti í
s. 1. viku i danska þinginu. Sak-
aði Kristensen utanríkisráð-
herrann um tvöfeldni, þar sem
hann hefði reynst fáanlegur til
ao taka sæti í stjórn Hedtofts.
í ræðu sinni I gær f sagðl
Rasmussen meðal annars, að
hann hefði aldrei, hvorki í Dan-
mörku nje annarsstaðar, hitt
stj órnmálaleiðtoga, sem haft
hefði eins takmarkaðan skiln-
ing á utanríkismálum og Krist-
ensen.
dagar
ti!
jóla