Morgunblaðið - 06.01.1952, Síða 9

Morgunblaðið - 06.01.1952, Síða 9
Sunnudagur 6. janúar 1952 MO RGVJSBLAÐIÐ 9 REYKJAVÍKURBRJEF 'TS Kcmandi ár ÁRAMÓTIN eru Hðin hjá. ís- lenzka þjóðin hefur skyggnzt í eigin barm og litið yfir árangur starfs síns á liðnu ári. Enda þótt það væri henni að ýmsu leyti ó- hagstætt hefur það þó fÉert henni margvíslegar og merkilegar um- bætur og framfarir. Skipastóll hennar hefur stóraukizt, verð- mæti útflutningsafurða hennar hækkað verulega, verzlun og við- skipti orðið frjálsari, ræktun landsins fleygt fram og ýmsum stórframkvæmdum í þágu at- vinnulífs hennar miðað verulega áfram. Allt þetta hefur skapað lands- mönnum bætta aðstöðu til þess að lifa og starfa. í því og öðrum framförum, sem orðið hafa á undanförnum árum felast fyrir- heit um batnandi hag fólksins, aukið atvinnuöryggi og meiri arð af vinnu þess. Þessi staðreynd, að þróunin hefur haldið áfram í rétta átt, skiptir í raun og veru megin- máli þegar horft er fram á veginn móti nýju ári. Erfið- leikar af völdum harðinda, aflabrests og veðurfars á liðnu ári svipta þjóðina ekki þeim möguleikum, sem góð fram- leiðslutæki skapa lienni til þess að afla verðmæta og treysta hag sinn í framtíðinni. Þau eru, ásamt manndómi fólksins sjálfs, ókomna tím- ans von. Þetta ber fslendingum fyrst og fremst að hafa í huga er þeir beina hugum sínum frá búsorg- um liðins árs til starfsins, sem er framundan. Aðstaða þeirra til þess að bjarga sér er stöðugt að batna. Utanaðkomandi áhrif og skortur á hæfileikum þeirra sjálfra til þess að taka því, sem að höndum ber, geta að vísu torveldað starf þeirra. En það breytir ekki þeirri meginstað- reynd, að þjóðin er að verulegu leyti sinnar eigin gæfu smiður. Þörf aukinnar góð- vildar og sanngimi FORSETI fslands vakti athygli á því í nýársboðskap sínum að þessu sinni að íslenzka þjóðin hefði þörf fyrir að temja sér meiri góðvild, sanngimi og um- burðarlyndi. Hinir hörðu dómar væru hvorki líklegir til vaxandi þroska né farsældar. Þessi ábending þjóðhöfðingja okkar er áreiðanlega ekki ótíma- bær. Meðal okkar tíðkast mjög hin breiðu spjótin. Dómsýki og skortur á sanngirni setur oft ekki aðeins svip sinn á stjórn- málabaráttu þessarar litlu þjóð- ar, heldur einnig á skipti ein- staklinga hennar á ýmsum svið- um. E. t. v. er hægt að finna afsök- un á þessu. Fámennið í landi kunningsskaparins hefur gert okkur nærsýna og dómharða. En með vaxandi menntun og menn- ingu þjóðarinnar víkkar útsýni hennar og möguleikarnir til þess að greina kjarnann frá hisminu aukast. Þá verður það ljósara en áður að meira máli skiptir fyrir einstaklingana að gera kröfur til sjálfra sín en að kveða upp harða dóma um aðra. Vetrarvertíð og bátagjaldeyrir SAMKOMULAG hefur nú tekizt milli ríkisstjórnarinnar og sam- taka vélbátaútvegsins um ráð- stafanir til þess að tryggia rekst- ur þessarar þýðingarmestu grein- ar sjávarútvegsins á komandi vetrarvertíð. Skýrði Ólafur Thors atvinnumálaráðherra frá höfuð- dráttum þess á Alþingi í gær. — Róðrar munu þvi almennt hefj- ast þegar er gæftir leyfa. Aðalatriði þessara ráðstafana eru þau, að hin svonefndu báta- gjaldeyrisákvæði frá s.l. ári skuli gilda áfram í nokkuð breyttu formi. Er hinn skilorðsbundni frí- listi útvegsins víkkaður nokkuð. Af því leiðir hins vegar að út- Frá þingi Sameinuðu þjóðaima. Fulltrúi íslands í ræðustól, vegsmenn og sjómenn fá nokkra hækkun á verði afurða sinna. Þessi leio til stuðnings báta- útvegnum hefur aldrei verið tal- iii neitt kostaúrræði af þeim, sem staðið hafa gagnvart nauðsyn þess að leysa vandræði hans. En hún hefur engu að síður verið óumflýjanleg. Ógerlegt hefði ver- ið að leggja stórfellda nýja skatta á þjóðina til þess að borga upp- bætur úr ríkissjóði á útfluttar sjávarafurðir. Það skeið hafði einnig áður verið runnið til enda. Auk þess hefði sú aðferð orðið þjóðinni stórum þungbærari en sú, sem valin hefur verið. Það er athyglisvert að stjórnarandstæðingar, sem mjög hafa gagnrýnt þennan stuðning við bátaútveginn, hafa ekki getað bent á neir.a aðra leið. Þeir hafa látið við það sitja að hamast gegn hin- um skilorðsbundna frílista út- vegsins. Ilefur það atferli í raun og veru þýtt kröfu um stöðvun alls vélbátaflota lands manna og þar með reksturs flestra hraðfrystihúsa í land- inu. Afleiðing þess hlyti hins vegar að verða gífurlegt at- vinnuleysi og algert hallæri í flestum kaupstöðum og sjáv- arþorpum. Stjórnarandstaðan hefur því gerzt ber að fáheyrðu ábyrgð- arleysi gagnvart sjómönnum og útvegsmönnum og raunar þjóðinni í heild, sem á ríkra hagsmuna að gæta í reksíri vélbátaílotans. Störf Sameinuðu þjóðanna EITT af síðustu verkum alls- herjarþings Sameinuðu þjóðanna í París, áður en jólaleyfi þess hófst, var að kjósa fulltrúa Grikk lands í Öryggisráðið. í loka- atkvæðagreiðslu hlaut Grikkland 39 atkvæði en Hvíta Rússland 17. En áður hafði kosningin til þess- arar trúnaðarstöðu verið endur- tekin hvorki meira né minna en 18 sinnum. Athyglisvert er að fulltrúar Rússa á allsherjarþinginu hafa deiit harðlega á ýmsar lýðræðis- þjóðir fyrir að hafa gert ráð- staðanir til þess heima fyrir að verja sig gegn skemmdarverk- um fimmtuherdeilda kommún- ista í löndum sínum. Þetta hafa kommúnistar kallað „árásaraðgerðir“!!! Að áíiti kommúnista er það með öðrum orðum „árás“ á Rússa þegar frjálsar þjóðir reyna að vérjast moldvörpustarfi fimmtu- herdeilda þeirra. Hver einasti vitiborinn maður veit, að hlut- verk kommúnistaflokka allra landa er fyrst og fremst að vinna skemmdarverk innan þess þjóð- félags, sem þeir starfa í, í þágu Rússa. Auðvitað vill sovétstjórn- in því, að þeir hafi sem bezt næði til þess að vinna þetta verk. Þess vegna er Vishinsky fokreið- ur yfir því á fundum allsherjar- þingsins að nokkur þjóð skuli voga sér að hafa augun hjá sér og hindra það að fimmtuher- deildirnar komi ár sinni fyrir Sveinn Björnsson, forseíi. borð. Það er s’’o sem ekki að spyrja að réttlætistilfinningu hinna austrænu „friðarvina“. Litlar horíur á afvopmm ANNARS hefur lítill árangur enn sem komið er orðið af störfum þessa bings Sameinuðu þjóð- anna. Afvopnunarmálin hafa ver- ið eitt helzta viðfangsefni þess. Um þau hafa bæði fulltrúar hinna vestrænu lýðræðisþjóða og Rússa lagt fram tillögur. Miða tillögur hinna fyrrnefndu að því að komið verði á fót stofnun, sem hafi raunhæfa möguleika til b<^s að fylgjast með vígbúnaði þjóð- anna og að dregið verði úr víg- búnaði og vopnaframleiðslu. Rússar hafa hins vegar enn se»u fyrr lagt höfuð áherzlu á að banna framleiðslu kjarnorku- vopna. Þeir taka ekki í mál að leyfa alþjóðlegri stofnun eftirlit með sínum eigin vígbúnaði. Enn- fremur kreíjast þeir þess að með- limum Sameinuðu þjóðanna verði bönnuð þáttaka í Atlantshaís- bandalaginu. Horfur á samkomulagi um þessi mál eru því engan veg- inn góðar. Hinn 19. desember s.l. voru afvopnunartillögur lýðræðisríkjanna þó samþykkt ar í stjórnmálanefnd allsherj- arþingsins. En sjálft þingið þarf einnig að samþykkja þær. Virðist það ennþá eiga Iangt í land. Ekkert samkomulag hef- ur heldur náðst um frjálsar kosningar í öllu Þýzkalandi. Rússar hafa algerlega hafnað þeirri tillögu Vresturveldanna að hlutlausri nefnd verði falið að hafa eftirlit með slíkum kosningum. Slíka afskiptasemi kveðast þeir ekki þola, telja hana að öllum líkindum ó- heppilega fyrir hið „austræna lýðræði“. Tíð slys á togurunum HIN tíðu slys á íslenzkum tog- urum hafa vakið ugg og óhugnan meðal þjóðarinnar. Hraustir og vanir sjómenn hafa ýmist slasazt eða skolazt fyrir borð og týnt lífinu. Sorg og söknuður hefur síðan gist heimili þeirra. Um orsakir þessara slysa skal ekki fullyrt neitt hér. Þær eru sjálfsagt fleiri en ein og stund- um sker alger og óviðráðanleg tilviljun úr milli lífs og dauða. En það er ekki of djúpt tekið árinni þó að líklegt sé talið, að oft sé það skortur á aðgæzlu, skipstjórnanda eða sjómanna sjálfra, of rík hneigð til þess að halda áfram veiðum eða vinnu ofan þilja í vitlausu veðri og stundum jafnvel skortur á nauð- synlegum slysavörnum um borð í skipunum, sem slysunum valda. Hinir nýju og fulkomnu togar- ar okkar eru góð og traust skip. En út á miðum eða í siglingum landa á milli í misjöfnum veðr- um, stormum og stórhríðum, bíða þeirra manna samt margar hætt- ur, sem á þeim vinna. Þess vegna verður aldrei of mikil varúð höfðu þar um hönd, aldrei of víðtækar ráð- stafanir gerðar til þess að koma í veg fyrir slys og þá cgæfu, sem af þeim leiðir. Þetta þekkja siómennirnir bezt sjálfir. Þær tillögur, sem frá þeim koma um aukið ör- yggi, betri úíbúnað og hættu- minni vinnubrögð, verður þess vegna að taka til tafarlausrar mcðferðar og framkvæmdar. Mannslífln eru verðmætasta eign þjóðarinnar. Er þetía allt „í?iaid“? ANSTÆÐINGAR núverandi rík- isstjórnar halda því mjög fram --------------------------—----- að hún sé „íhaldsstjórn“. Af því tilefni er ástæða til þess; að rifja X stórum dráttum upp stefnu og sfaif þessarar stjórnar o% láta sjálíar staðreyndirnar tala um eðli hennar og starfsaðferðir. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar var að í'á lögíestar þær tillögur í efnahagsmálum þjóðarinnar, sem minnihlutastjórn Sjálfstæðis flokksins hafði undirbúið og lagt fyrir Alþingi. Með framkvæmd þessara ráðstafana hefur tekizt að aulta fiamleiðsluna, skapa auknar gjaldeyristekjur, tryggja greiðsluhallalausan ríkisbúskap og nálgast jafnvægi í efnahags- málum þjóðarinnar. Er þetta „íhald“? Er það fjand- skapur við allan almenning í landinu að stuðla að rekstri at- vinnutækja hans? í áframhaldi af gengisbreyting- unni gerði ríkisstjórnin svo víð- tækar ráðstafanir til þess að leysa verzlun og viðskipti úr áratuga haftaskipulagi. Með þeim var innflutningur nauðsynjavara til landsins stóraukinn og þar með útrýmt svörtum markaði og marg háttuðu braski og spillingu, sem mótað hafði svip viðskiptalífsins undanfarin ár. Allar verzlanir kaupmanna og kaupfélaga hafa nú safnað verulegum birgðum og almenningur á þess nú nokkurn kost að ráða því, hvert hann beinir viðskiptum sínum. Fólkið getur keypt svo að segja hverja þá nauðsynjavöru til fæðis og klæðis, sem það þarfnast. Verzl- unin hefur færzt verulega í átt- ina til frjálsrar samkeppni um viðskipti fólksins. Er aukið frelsi „afturliald“? Er þetta e. t. v. ein sönnun þess að „íhaldsstjórn“ sitji að völdum í Iandinu? Er þaff íhald að almenningur fær möguleika á að velja og hafna milli verzlana og vöruteg- unda? Er það „íhald“ að fólk á nú kost á að fá ávexti, bús- áhöld, klæðnaff og fjölmargar nauðsynjar, sem það áður vantaði? Þá mætti spyrja að þei, hvort aukið frelsi til þess að byggja yfir sig íbúðir af hóf- legri stærð, sé „íhald“ cða fjandskapur við fólkið? En eins og kunnugt er hefur nú- verandi ríkisstjórn rýmkað verulega á fjárfestingarhöml- um þeini, sem legið hafa eins og mara á þjóðinni undanfarin ár. Getur verið að það sé þeim þúsundum íslendinga, sem búa við húsnæðisleysi eða heilsuspillandi liúsnæði á móti skapi, að mega nú byggja smáíbúðir, sem henta þeim sæmilega og bæta úr brýnni þörf þeirra? Fremur er það ótrúlegt. Ekki er heldur óeðlilegt að spyrja, hvort það beri vott þjóð- hættulegu afturhaldi, að núver- andi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir framkvæmd stærstu mann- virkja, sem ráðizt hefur verið í hér á landi, stórvirkjunum við Sog og Laxá ásamt byggingu á- burðarverksmiðju. Við þetta má svo bæta því að almennum og víðtækum verkleg- um framkvæmdum hefur verið haldið uppi í landinu undir for- ystu þessarar ríkisstjórnar, hald- ið í horfinu um félagslegar að- gerðir, reynt að hlaupa undir bagga með þeim byggðai'lögum, sem misæri til lands og sjávar hefur bitnað harðast á og fylgt utanríkisstefnu, sem fært hefur þjóðinni aukna vernd fyrir sjálf- stæði hennar og öryggi. Innantóm fáryrði HÉR hefur aðeins verið stiklað á fáum meginatriðum í starfi og stefnu núverandi ríkisstjórnar. Hún er að sjálfsögðu ekki alvitur fremur en aðrar ríkisstjórnir. En engum, sem metur störf hennar af sanngirni, getur dulizt að því Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.