Morgunblaðið - 06.04.1952, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.04.1952, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 6. apríl 1952 Framhaldssagan 51 aði fyrir kveðjuna, en pening- ana vildi hún ekki sjá“. „Ágætt“, sagði Mark. „Ágætt?" endurtók Violet. „Ef ég hefði mátt....“ Hann ýtti aðvarandi við henni og leit upp tröppurnar. Morey kom niður ásamt Beulah og Bessy. Umbúðirnar um höfuð Bessy voru á skakk og að því komnar að detta af öðrum megin og við það varð útlit hennar ekki beinlínis virðulegt. ,,Portvín“, sagði Beulah til skýringar við Mark. „Ég var að missa alla stjórn á henni og lofaði henni að drekka eins og hún vildi. Nú get ég ekki komið henni möglunarlaust í rúmið“. Violet kom inn með matinn. „Ég veit ekki hvort þetta er borð andi“, sagði hún. „Niðursoðnar baunir og eitthvað annað. Ég fann það lengst uppi í hillu, og ég skildi ekki hvað stóð utan á dósinni. Og ofan á allt annað, sem skeð hefur, hafa einhverjir leitarmannanna læðst inní eld- húsið á meðan ég var í burtu og stolið því, sem eftir var af hér- unum. Og ég, sem ætlaði að nöta það í hádegismatinn á morgun“. „Það gerir ekkert, Violet", sagði Moery. „Hvað fékk frú Morey og litlu stúlkurnar?" „Mjóik og egg og nú hef ég ekki fleiri egg. Eg bað ykkur um að kaupa egg í dag, en þið gleymduð því víst“. „Ég skal útvega þér egg“, sagði Mark. „Ég þarf að hitta Amos og ég veit að hann hjálpar okkur um nokkur egg“. „Ég fer og sæki brauðbúðing- inn“, sagði Violet. „Það eru eng- ar rúsínur í honum og engin saft út á til að deyfa bragðið, en ég gerði mitt bezta“. Hún hvarf niður í eldhúsið. „Hvers vegna kom ekki Wil- cox með þér?“ spurði Beulah. „Ók hann þér ekki heim?“ „Hann ók mér að járnbrautar- stöðinni. Hann þurfti að tala við Amos“. „Hvernig gengur þeim leitin?“ spurði Morey. „Ég held að þeir ætli að hætta henni“, sagði Mark varlega. „Hann talaði ekkert um það, en mér fannst það á honum. — Ég sagði honum frá áliti yðar“. „Og hann hefur auðvitað ekki trúað því. Ég mundi heldur ekki gera það í hans stöðu .... Ekki vænti ég að ég gæti fengið yður til að hjálpa mér og Perrin í kvöld? Eða eruð þér ennþá ráð- inn hjá Joe gamla?“ „Já. Hann borgaði mér hálfs mánaðar laun. Auk þess þarf ég að hitta Wileox og Amos. Þeir ætla að ganga frá skýrslu .... auðvitaö bara formsatriði. Þair báðu mig að aðstoða þá við orða- lagið. Ég get kannske hjálpað ykkur á morgun". „Já. Ef allt gengur vel, ættum við að geta lokið þessu af seinni partinn á morgun. Mig langar til að koma konunni minni og börn- unum með lestinni, sem fer frá Bear River klukkan átta um kvöldið. Bezt væri auðvitað að ég kæmist með henni líka. Ung- frú Pond, vitið þér um nokkra flutningabíla hérna?“ „Já“, sagði Beulah. „Bittner hefur bíla. Hann ók farangrinum ýðar hingað upp eftir, eins og þér rnunið ef til vil]“. ;i „East, viljið þér koma við hjá Bittner og biðja hann að senda Jtlutningabíl hingað upp cítir um að Bessy og Beulah. „Getið þið verið tilbúnar að fara á morg- un?“ „Já, vissulega", sagði Beulah. „Með ánægju“, sagði Bessy drafandi tungu. Beulah hristi hana á fætur og dró hana á eftir sér út úr borðstofunni. „Ég tryði ekki þessu, ef óg hefði ekki séð það með eigin augum“, sagði Violet, sem var komin upp aftur. „Það er gott að ég er ekki gefin fyrir að segja kjaftasögur. Þér þurfið ekki að hafa áhyggjur af mér, herra Mor- ey. Ég get verið hérna þangað til allir eru farnir og læst húsinu“. „Ég skal vera hér eftir með Violet og ganga frá vatnsleiðsl- unum og gasinu", sagði Mark. „Svo er ég að hugsa um að dvelj- ast nokkra daga hjá ungfrú Fönd". Hann leit á úrið. „Ég'verð að. flýía mér“. Hann var kominn út áður en nokkrum vannst íími til að kaila hann inn aftur. Kvöldlestin var komin og far- in. Það logaði á Ijóskerinu fyrir utan járnbrautarstöðina. Wilcox opnaði fyrir honum. „Það er gott að þé_r eruð kom- inn“, sagði hann. „Ég er búinn að segja Amos undan og ofan af þessu, sem þér sögðuð mér. Hann vill helzt að við snúum okkur strax til lögreglunnar í New York“. Amos hafði staðið á bak við ofninn, en kom nú fram. Hann var fölur í framan. „Mér líkar þetta ekki. Þetta er blátt áfram morð'1. „Þetta er þriðja morðið, Amos. En hafðu engar áhyggjur. Við skulum sjá um þetta sjálfir". „Hvers vegr.a takið þið ekki líkið af gamla manninum og ger- ið yfirvöldunum aðvart?“ „Langar þig ekki til þess að sjá mynd af sjálfum þér í blöð- ’ unum? Auk þess hef ég ekki nóg- ar sannanir til .að fara til yfir- valdanna. Ekki ennþá, að minnsta kosti“. | „Sannanir!“ hrópaði Amos með vandlætingu. „Þrjú lík. Er það ekki nóg“. I „Við höfum ekkert vitni, Ég get ekki sannað að frú Lacey var myx’t. Ég get ekki sannað að Florrie var myrt, og ég get ekk- ert sannað hvað snertir Stone- man. Við vit.um ekki einu sinni hver ástæðan getur verið eða hvað liggur á bak við“. „Það er alveg rétt“, sagði Wil- cox. „Góður lögfræðingur mundi geta kollvarpað öllum kenning- um okkar“. „Einmitt. Við höíum ckkert vitni að því hvernig Stoneman var myrtur. Hann var ekki skot- inn til bana, svo við höfum enga kúlu til að styðjast við. En samt er Stoneman trompið, sem við 1 höfum á hendinni. Enginn veit að hverju við höfum komizt, svo við , notum hann .... Stoneman, íil að fá fram játninguna“. „Játninguna?" „Já, og við höfum nóg af vitn- um að henni. Það verður séð fyrir öllu .... vona ég“. Hann leit á Wilcox, sem sat teinréttur í stóln- um. Wilcox kinkaði kolli. „Eg ætla að biðja ykkur 'að minna mig á að tala við Bittncr um bílinn. Morey vill fá hann á morgun". „Hvenær ætla þau að fara? Með hvaða lest?“ „Annað kvöld .... frá Bear Riv^r .... við förum öll þá“. „I sitt hvora áttina þó“, sagði Amos. „Mig langar ekkert til að standa augliti til auglits aftur við....“ Síminn hringdi. „Þetta ætti að vera annar hvor“, sagði Mark. AR.NALESBQK 1 jLlorgœiblaðsitts *• e ■ m Poplin r - , .. . (í ; regnkápur o. ’.fl.) og sf rigaef ni í KJÓLA, — margir fallegir litir. Fyrir pdskana Mancliettskyrtur hvítar og mislitar Hálsbindi Hattar Nærföt Sokkar Rykfrakkar Náttföt Leðurbelti Skinnhanzkar Fallegl og vandað úrval Geysir hf FATADEILD. ’ ÆVINTÝRI MIKKA V. Brotfnumda prinsessan Eftir Andrew Gladwyn 17. Prinsessan sté út í bátinn án þess að segja eitt einasta orð, og settist á eina þóftuna. Mikki tók nú til að róa, og 1 innan skamms voru þau komin út á miðja ána og bar óðfluga upp eftir henni. Það var farið að líða á daginn, og sólin var farin að setjast. Mikki var orðinn þreyttur og svangur — hann var jafnvel búinn að gleyma því hvenær hann hefði síðast borðað. Allt í einu sagði prinsessan, sem var í fallegum gulum kjól: „Lofaðu mér að róa — þú ert orðinn svo þreyttur-“ Mikki varð mjög hissa, að hún skyldi vilja róa. Sagði hann, að það kæmi ekki til greina, að hún fengi það — hann væri ekkert þreyttur. — Mikki sá þó fljótlega eftir því að hafa talað svo höstuglega til hennar, og sagði henni þess vegna, að hann þakkaði henni fyrir það, að hún skyldi bjóðast til að róa — og bætti því við, að nú ætlaði hann að taka árarnar inn fyrir borðstokkinn og láta bátinn reka — láta strauminn og vindinn fleyta honum áfram. Nú gat Mikki hvílt sig, því að báturinn barst nú með straumnum. ,,Húrra“ kallaði prinsessan allt í einu. „Sjáðu, þarna kemur stór bátur í áttina til okkar.“ Mikki sneri sér nú við og sá, að stór bátur með hvítan stromp sigldi í áttina til þeirra. „Þetta hlýtur að vera. .. .,“ sagði prinsessan og stóð upp, og veiíaði nú eins og hún frekast gat. „Geturðu ekki íarið varléga?“ hrópaði Mikl?:i af fullum ?i. þar eð báturinn tók ^nú að velta ískyggilega mijcið- ItUUaiiUUHöttttonum hvolítb ., „. , vörur eru aftur komnar í verzlanir. Heildsölubirgðir: Friðrik Bertelsen & Co. hi Hafnarhvoli. Sími 6620. Húsmæður Hafið þér athugað, að kex frá okkur er meira en helmingi ódýrara, en samskonar erlent kex, sem nú er á boðstólum. Sparið peninga og biðjið um kex frá okkur. Bezt ,að auglysŒ ,í ,■ M9TguhbIaöi.nii —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.