Morgunblaðið - 05.06.1953, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 5. júní 1053
,, 156. tlagur ársins.
! Annar fardagur.
. ÁrdegisflæíSi kl. 01.03.
, Síðdegisflæði kl. 12.20.
\ Næturlæknir er í læknavarðstof-
«uítmi, sími 5030.
Næturvörður er í Illgólfs Apó-
AÆki, simi 1330.
Mafmagnsskömmtunin: I
I dag er skömmtun í 2. hverfi
■£rá kl. 10.45 til 12.30 og á morg-1
\£n, laugardag, er skömmtun í 3.
twerfi frá kl. 10.45 til 12.30.
□-
-□
. Veðrið .
I gær var sunnan og suðvest-
ítn átt um land allt, skýjað og
sums staðar lítilsháttar súld
eða rigning vestanlands, en
hjartviðri austanlands. — 1
Reykjavík var hitinn 12.2 stig
kl. 15.00, 12.2 stig á Akur-
eyri, 12.2 stig í Bolungarvík,
og 7.8 stig á Dalatanga. —
mestur hiti hér á landi í gær
kl. 15,00, mældist í Möðrudal
18 stig, en minnstur hiti 7.8
stig á Dalatanga og í Gríms-
ey. — í London var hitinn 12
stig, 15 stig í Höfn og um 15
stig í París.
□--------------------□
. Brúðkaup .
I dag verða gefin saman í hjóna
!*and af séra Sigurjóni Þ. Áma-
wyni ungfrú Ingibjörg Jónsdóttir
(Loftssonar forstj.), Hávallag.
43, og Arni Björnsson, cand. jur.
(Árnasonar endursk.), Tjarnar-
pötu 46. —
: 1 dag verða gefin saman í hjóna
f>and af séra Sveini Vikingi, ung-
frú Ásta Björnsdóttir og Harald-
\tr Guðjónsson, stud. med. Heim-
4li brúðhjónanna verður í Tjarn-
%rgötu 10C.
; Hinn 30. maí s.l. voru gefin sam
-m í hjónaband af prófastinum á
íiauðárkróki, Alda Vilhjálmsdótt-
*r frá Hvalnesi og Egill Bjarna-
fíon, búnaðarráðunautur, Uppsöl-
om, Blönduhlíð.
; Nýlega voru gefiri saman í
Irjónaband af séra Árélíusi Níels
syni, Guðrún Jóhanna Guðmanns
•dóttir og Jón Á. Þorsteinsson,
Mánagötu 22. — Kristín Friðrika
Karlsdóttir og Egill Hjörvar, vél-
.stjóri, Langholtsvegi 141. —
fíagna Guðný Skeggjadóttir og
"Guðmundur Kristinn Ingimarsson,
vélsmiður. —
. Hjónaefni •
Nýlega hafa opinberað trúlofun
.-;Ina ungfrú Jakobína Kristjáns-
dóttir, Kamp Knox H-8 og Gunnar
Gskarsson, bifreiðarstjóri frá
llúðardal.
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
íofun sína ungfrú Kristin Rósin-
Karsdóttir og Aðaibjörn Jónsson.
S.l. þriðjudag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Erla Diirr, Víði
ynel 55 og Guðjón Magnússon, raf
Ivirki, Langholtsveg 71.
AtnesingafélagiÖ
j fer í skógræktarferð að Áshild-
jarmýri á morgun kl. 2. — Farið
Verður frá Búnaðarfélagshúsinu.
Dagbók
Gæðingar á kappreiðum Fáks
Blossi, rauður, níu vetra, 55 tommur, fæddur á Hellnatúni í Rang-
árvallasýslu. Eigandi Guðmundur Sveinbjörnsson klæðskcri í Rvík.
Blossi er alliliða gæðingur með ölluin gangi, en ekki fullkom-
lega tilriðinn ennþá, sem fýrsta flokks gæðingur. Hann er með
fínlegt en skarpt höfuð, fallég vel borin eýru, reistan og langan
háls, skáselta bóga og háan herðakamb. Hryggurinn sterkur og
heldur í stífara lagi. Lend löng og breið aftúr, vel vöðvafyllt,
fætur frakar grannir en réttir.
Blossi vann 1. verðlaun í góðhestakeppni á kappreiðunnm núna.
AUGLYSING/VR
sém birtast eiga í
Sunnudagsblaðimi
þurfa að hafa borízt
fyrir kl. S
á fösludtðg
. Afmæli .
Páll Oddgeirsson, fyrrum kaup
maður í Vestmannaeyjum, er 65
ára í dag. — Undanfarið hefur
hann dvalizt hér í bænum við
ýmiss konar kaupsýslustörf, en
rekur nú verzlun á Keflavikur-
flugvelli.
Fræðslukvikmynd
Krabbameinsfélaganna
F’ræðslukvikmynd verðu'r sýnd
á vegum Krabbameinsfélaganna
í Tjarnarbíói næstkomandi laug-
ardag kl. 3,30 síðdegis.
Myndin er ætluð konum og
fjíllar um það hvernig þær geti
sjálfar athugað brjóst sín með
tilliti til æxlisvaxtar. Læknir'
mun skýra myndina.
Allar konur velkomnar.
I
orcjanblaói
. Skipafréttir .
Eimskipafélag Islands h.f.:
Brúarfoss fór frá Reykjavík í
gærmorgun til Akraness. Dettifoss
fór frá Akureyri í gærkveldi til
Siglufjarðar, Skagastrandar,
Hólmavíkur, ísafjarðar, Þingeyr
ar, Bildudals og Vestmannaeyja.
Goðafoss fór frá Reykjavík 3. þ.
m. til Antwerpen, Hamborgar og
Hull. Gullfoss kom til Reykjavík-
ur í gærmorgun frá Kaupmanna
höfn og Leith. Lagarfoss kom til
Reykjavíkur 3. þ.m. frá Rotter-
dam. Beykjafos? fér frá Akra-
nesi í g-ærkv.íi.’i j ’t t’narfjarð-
ar og Reykia •■• . ' S3 fór
frá Malmö 3. ■ ; hus, —
Gautaborgar • . Ttölla-
foss fór frá Ne ■n tii
Reykjavik 30. £.; iajids
ins. Vatnajökuli f.m. til Reykjav . íli 31.
Kíki^.sk ip:
Hekla er í Rey ■g fer
þaðan á morö'u.n ti landa.
Esja fer frá Réýii/. ’ g vest
ur uirtl; bitid í Jfrh ■ t: 'e rð u -
breið er-.á Austfjc • ð. Skjald-
breið verður vænta ■ ega á Akm -
eyri • i ú&g. Þyriil ■„ i’ ■ iðanlahds,.
Skaftfellingur fer frá Reykjavík
í kvöld til Vestmannaéyja.
Skipadeiid SÍS:
Hvassafell lestar timbur í Ham
ina. Arnarfeli fór frá Dalvík í
morgun til Siglufjarðar. Jökulfeil
lestar fisk í Keflavik.
Eimskipafél. Rvíkur h.f.:
M.s. Katla fór 2. þ.m. frá Vest
mannaeyjum áleiðis til Finnlands.
• Flugferðir .
Flugfélag Islands h.f.:
Innanlandsflug: — í dag eru
ráðgerðar flugferðir til Akureyr-
ar, Vestmannaeyja, Fagurhólsmýr
ar, Hornafjarðar, Isafjarðar, —
Kirkjubæjarklausturs og Patreks-
fjarðar. —- Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Vest-
mannaeyja, Blönduóss, Egilsstaða
ísafjarðar og Sauðárkróks. —
Miliilandaflug: — Gullfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur frá
Kaupmannahöfn kl. 15.45 í dag.
Flugvélin fer til Osló og Kaup-
mannahafnar kl. 8.30 í fyrra-
málið. —
Hið íslenzka
náttúrufræðifélag
minnir meðlimi sína á, að farið
verður til trjáplöntunar í Heið-
mörk á morgun, laugardag kl.
14.00. Mætið við Bifreiðastöð
Reykjavíkur.
f happdrætti
S jálf s tæðisf lokksins
eru 50 vinningar, áamtala afl
apphæS 130 þús. krónur. —
Gjafir til
Laugarneskirkju
Frá Svövu kr. 500,00. Frá Sig-
urbjörgu kr. 100,00. Frá S. J. kr.
100,00. — Með kæru þakklæti. —
Séra Árelíus Níelsson. l
Orðsending til Óðinsfélaga j
Vinsamlegast gerið skil í happ-
'írættinu sem allra fyrst.
Breiðfirðingafélagið
t fer gróðursetningarför í Heið-
mörk á morgun kl. 15,00. Safnast
verður saman við Breiðfirðingabúð
Þeir félagsmenn, sem hafa ráð á
bílum, eru vinsamlega beðnir að
láta í té aðstoð sína við fei’ðirnar.
Hnífsdalssöfnunin
Hnífsdalssöfríunarnefndinni hafa
borizt eftirfarandi gjafir: —Mar-
grét Hjaltadóttir kr. 30,00. Ing-
riði Jónsson 100,00. Arnór Val-
geirsson 100,00. G. G. 50,00. Frá
12 ára bekkjum í Melaskóla, safn
að af Tryggva Tryggvasyni
382,00. Einar Ingi Sigurðsson
50,00. Torfi Ingólfsson 100,00.
Sigurgeir Kristjánsson 50,00. Þ.
H. 50,00. S. H. 100,00. Guðmund-
ur Jónasson 100,00.
Sjálfstæðisfólk
Athugið hvort þið eruð á kjör-
skrá áður en kærufréstur er út-
runninn, 6. júní n.k.
Sóiheimadrengurinn
Afh. Mbl.: — G. G. kr. 150,00.
Veika telpan
Afh. Mbl.: — Gamalt áheit kr.
100,00. J. B. G. 150,00.
Gömlu hjónin
’ Afh. Mbl.: — J. B. G. kr. 50,00
N. N. 7,00. —
i
Vegna myndastyttu
Séra Friðriks Friðrikssonar
Afh. Mbl.: — Jón Bergsson,
krónur 100,00. —
I Sjálfstæðisfólk utan af landi
| sem statt verður í bænum fram
yfir kosningar, hafið samband við
! skrifstofu fiokksins í Vonarstræti
4. Símar 7100 og 2938.
. IJtvarp •
Föstmlagvir, 5. júní:
8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádeg
isútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir'. — 19.25 Veð-
urfregnir. 19.30 Tónleikar: Har-
monikulög (plötur). 19.45 Auglýs
ingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarps
sagan: „Sturla í Vogum“ eftir
Guðmund G. Hagalín; XXI. —
(Andrés Björnsson). 21.00 Tón-
leikar (plötur): Píanósónata í f-
moll eftir Howard Ferguson
(Myra Hess leikur). 21.20 Erindi:
Lýðháskólinn í Askov (Sigurður
Guðjónsson kennari). 21.45 Tón-
leikar (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Heima og
heiman. 22.20 Dans- og dægurlög
(plötur). 23.00 Dagskrárlok.
Erlendar útvarpsstöðvar:
Noregur: Stavanger 228 m. 1318
kc. Vigra (Alesund) 477 m. 629 kc.
19 m., 25 m., 31 m., 41 m. og 48 m.
Fréttir kl. 6 — 11 — 17 — 20. —
Fréttir til útlanda kl. 18.00, 22,00
og 24.00. Bylgjulengdir: 25 m., 31
m. og kl. 22.00 og 24.00, 25 m., 81
m. og 190 m. —
Danmörk: — Bylgjulengdij
1224 m„ 283, 41.32, 31.51.
Svíþjóð: — Bylgjulengdir: 25.41
m., 27.83 m. —
England: —- Fréttir kl. 01.00 —
03.00 — 05.00 — 06.00 — 10.00 —
12.00 — 15.00 — 17.00 — 19.00 —
22.00. —
Ttfbzð rncn^iuiÁaffinuj
Sambýlishúsin.
★
Ung stúlka í sleðaferð (er að
leita fyrir sér) : — Ó, enginn
elskar mig, og — mér er kalt á
höndunum!
Ungur maður: — Blessuð góða,
mamma þín elskar þig og Guð
elskar þig, og þú getur setið á
höndum þínum sjálf!
★
iHún (hvíslandi): — Ó, ástin
mín, ætlarðu að elska mig eins
mikið í desember eins og þú elsk-
ar mig í febrúar?
Hann: — Meira, hjartað mitt,
því það eru fleiri dagai’ í desem-
ber en í febrúar.
★
Frú Nýgift: — Það er ekkert
sem er nokkurs virði í þessum'
heimi nema ástin, — er það, hjart
að mitt?
Hr. Nýgiftur: — Nei, ekkert,
elskan. — Fer maturinn ekki að
verða til bráðum? i
'Ung borgarstúlka fór í sumar-
leyfi sínu út i sveit og átti þar
vingott við feiminn sveitapilt. —
Kvöld eitt er þau voru á kvöld-
göngu, sáu þau hvar kálfur, og
kú voru að sleikja hvort annað í
framan og sveitapilturinn sagði
feimnislega.
— Þegar ég sé þetta finnst mér
að ég verði að gera það sama.
— Láttu mig ekki stoppa þig,
góði minn, sagði borgarstúlkan,
— þetta eru jú þínir eigin naut-
gripir!
Laxveiðimaður var að segja
kunningja frá fyrirhugaðri veiði-
ferð og kunninginn spurði:
— Er nokkuð af laxi þarna?
— Já, blesaður vertu, alveg
fullt.
— Býtur hann á?
— Hann er svo gráðugur, að
maður verður blátt áfram að fela
sig á bak við tré á meðan maður
er að beita!
Þrír Skotar voru við guðsþjón-
ustu, og í ræðulokin minnti prest-
urinn söfnuðinn á að gefa nú vel
til nýrrar fyrirhugaðrar kirkju-
byggingar, og gefa a. m. k. eitt
pund eða meir á söfnunárdiskinn,
þegar hann yrði borinn um í lok
guðsþjónustunnaí-.
Skotarnir þrír urðu taugaó-
styrkir með hverju augnablikinu
Sem leið og þegar söfnunardiskur-
inn var kominn ískyggilega nærri
þeim, lét einn líða yfir sig, og hin-
ir tveir báru hann út!