Morgunblaðið - 14.07.1953, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.1953, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 14. júlí 1953 Minnsta, en jafnframt elzta ' kirkja landsins vígð Var heimiiiskirkja ekkju Gísla hiskups Þorlákssonar i/i HOFSÓSI, 13. júlí: — Kirkjan á Gröf á Höfðaströnd var vígð í gær. Hún er talin elzta kirkja landsins, byggð á dögum Gísia biskups Þorlákssonar seint á 17. öld. Hún mun vera minnsta kirkja á landinu, rúmar um 20 manns. FYRST BÆNAHÚS Ijjjphaflega var þetta bænahús á fjöf, en síðan heimihskirkja Kagnheiðar ekkju Gísla biskups. Á altarinu er útskurður mikill og eins á vindskeiðum á kirkjunni. Er þetta eftir Guðmund Guðmunds son frá Bjarnastaðanesi, en hann smxðaði Skálholtskirkju og skírn a.rfoptinn fræga á Hólum. — Eru rþargir gripir eftir hann í Þjóð- ifiinjasafninu. Grafarkirkja verður í framtíð ipuLí umsjá þjóðminjavarðar og þar verður einnig messað einstaka ílJÍOi. .SjmnLim. ■í>í* YIGSLAN NÚ I Biskup íslands, sem ver ð hefir á Vftltasiuferð um Norðurland að xfndanförnu, framkvæmdi vígsl- una, en viðstaddir voru fjórir prestar og prófastur sýslunnar. — Bkjkjpinn þjónaði fyrir altari, en seja, Ragnar Fjalar á Hofsósi fjútti prédikun. Um 200 manns Vpru ' viðstaddir. Urðu flcstir að sjtanda úti, þar á meðal söngflokk prinn. I Fænahúsið á Gröf hefir aldrei fáilið, og hefir nú verið endurreist sfflveg eins og það var áður. Þjóð-( mjög mikilvægt, að hægt skuli að minjavörður telur merkilegt og koma kirkjunni upp eins og hún var. — B. Chrisfie verður hengdur LUNDÚNUM, 13. júlí — Sir David Maxwell Fyfe, innanríkis- ráðherra Breta, skýrði frá því í dag, að brezka stjórnin hefði neit að að náða John Reginald Christie, morðingjann frá Nott- ing Hill, sem myrti sjö konur. — Christie verður hengdur í Pont- onville-fangelsinu á miðvikudag. Bann við fiuiningi hernaðamauðsynja WASHINGTON, 13. júlí — Á utanríkisráðherrafundi þríveld- anna náðist í dag samkomulag um það að banna enn sem fyr flutninga til Kína á hernaðar- nauðsynjum, þótt vopnahlé næð- ist í Kóreu. ■ ___ . i! íim Blaðamennirnir annála mjög 1 ~ móllökur Norðlendinga Iðaðamennirnir voru í Borgarfirði í gærkv. NORRÆNU blaðamennirnir, sem hcr hafa dvalizt undanfarið, koifili í gærkvöldi til Bifrastar í iBorgarfirði, eftir mjög ánægju- lega för um Norðurland. Annála þeir mjög allar móttökur Norð- Xendxnga, sagði Árni Óla, rit- stjóri, er Mbl. átti símtal við hann í gærkvöldi, en þá var hóp- Ui inn nýkominn til Bifrastar. Norðurlandsförin hófst á laug- urdaginn, er hinir norrænu blaðamenn fóru héðan með flug- Vél til Akureyrar. Með blaða- xnönnunum eru nokkrir hérlend- ir samstarfsmenn. Á AKUREYRI EB flogið var yfir hálendið, var Jioka yfir öllu og útsýni því ekk- éi t. — Er hópurinn hafði verið fltrthir frá Melgerðismelum til bæj'Srins, tóku Akureyrarblaða- ménn á fóti gestunum opnum örmum í flugstöðinni á Akureyri. Þar var hið bezta veður. Eftir að hafa' borðað, var ekið um bæinn ojý var þá m. a. skoðuð Rækt- uifáhstöðin, skrúðgarðurinn og faíáð í heimsókn í Menntaskól- ann og tók Þórarinn, skólameist- arf"á móti gestunum og sýndi skólann og heimavistina. — Um kvöldið hafði bæjarstjórnin boð inni fyrir blaðamennina. Stein- dóú Steindórsson, varaforseti bætjarstjórnar Akureyrar, stjórn- aðnhófinu. Var þar glatt á hjalla og margar ræður fluttar. í 64ÝVATNSSVEIT Á sunnudagsmorgun var lagt af stað um kl. 9 í ferð að Mý- vatni. Á leiðinni var höfð við- dvÖXd við Goðafoss. — í Reykja- hiíð-, voru blaðamennirnir enn géstir Akureyrarblaðamanna, sein daginn áður, og í Reykja- hlíð var snæddur miðdegisverður i boði blaðamannanna. Eftir há- degið var farið upp í Námaskarð. Þar þótti hópnum stórkostlegt yfir að líta. Veður var þar hið fegursta, en fimm gosholur voru þar á næstu grösum, sem sífellt gusu og sumar þeirra með feikna krafti. LAXÁRVIRKJUN OG VAÐJLAHEIÐI Er haldið var úr þesasri fögru sveit var ekið að Laxárvirkjun, én virkjunárstjórnin bauð blaða- mönnunum til snæðings, í mötu- neyti verkamanna, eftir að Páll Sigurðssn, verkfræðingur, hafði útskýrt mannvirkið og vélar þess. Þarna var veitt af frábærri rausn, sem og annars staðar þar nyrðra. — Til Akureyrar var ek- ið um hina nýju brú á Skjálf- anda. — Er komið var á hábrún Vaðlaheiðar, höfðu þar fyrirsát fyrir hópnum Steindór Steindórs son og Ottested, rafveitustjóri, sem fæðu ferðafólkinu góðgjörð- ir. Var þarna nokkur viðdvöl og komið aftur til Akureyrar eftir ánægjulega för, um miðnættið. í gærmorgun lagði hópurinn af stað til Reykjavíkur með bíl. — Bezta ferðaveður var, þurrt í byggð en á Holtavörðuheiði var rigning. Að sjálfsögðu var komið við í Víðimýrarkirkju og eins var höfð viðdvöl á Blönduósi. Sam- band islenzkra samvinnufélaga bauð blaðamönnunum til kvöld- verðar í Bifröst, en þangað kom hópurinn kl. að ganga átta í gær- kvöldi. Tóku þar á móti þeim Benedikt Gröndal, ritstjóri og Daníel Ágústínusson. Að lokum sagði Árni Óla, Mbl., að allir hafi blaðamennirnir ver- ið sammála um að annála mót- tökur Norðlendinga, rausnar- skap þeirra og fyrirhyggju í hví- vetna um ferðalagið. f gærdag hófst hér í Reykjavík fundur fulltrúa vinnuveitendasambanda Norðurlanda. Til fundar- ins, sem fram fer í húsnæði Verzlunarráðs íslands, eru mættir 4 fulltrúar frá Danmörku, 4 frá Svíþjóð, 4 frá Finnlandi, 4 frá Noregi og 10 íslenzkir fulltrúar. Myndin hér að ofan var tekin af hinum norrænu gestum í gærdag og þeir eru í fremri röð frá vinstri: B. Kugelberg, Svíþjóð, A. Enström, Svíþjóð, Hans Larsen, Darmörku, C. Erlendsen, Noregi, A. Solin, Finnlandi. í aftari röð frá vinstri: M. Olsen, Noregi, Bergenström, Svíþjóð, W. Sjöberg, Finnlandi, Karikoski, Finnlandi, H. Tuxen, Danmörku, C. Plum, Danmörku, A. P. Östberg, Noregi. — Fundur fulltrúanna stendur yfir til 17. júlí, en í dag fara fulltrúarnir í boði bæjarstjórnar Reykjavíkur til Þingvalla. Allmikil síld barst til Siglufjarðar yiirhelgina SIGLUFIRÐI, 13. júlí — Allmikil síld hefur borizt hingað yfir helgina til söltunar, en hér var saltað á öllum söltunarstöðvum. Á sunnudaginn munu flest skip- in í flotanum hafa fengið meiri og minni veiði. Aflahæstu skipin á sunnudag- inn, sem lönduðu hér voru: Jör- undur með 4—500 tn., Edda 600, Helga 350, Fiskaklettur, Dux og Jón Finnsson voru með 300 tn. hvert skip. í dag hafa færri skip komið hingað, en sum þó með góðan afla. Hér hafa svo landað í dag Vörð ur 400 tn., Björn Jónsson 250, Stígandi 300, Illugi 350. Runólf- ur 300, Helgi Helgason og Ægir 250 tn. Mér er kunnugt um, að meðal skipa þeirra sem landað hafa á Raufarhöfn eru Helga með 700 tn., Smári 600, og Snæfugl frá Vopnafirði 300 tn. í fólkseklunni sem verið hefur hér við söltunina, hefur auk hins venjulega starfsfólks á söltunar- stöðvunum, sem margt hefur unn ið nótt með degi, unnið að söltun skrif stofufólk og verzlunarmenn, sem farið hafa að afloknu dagsverki, svo og mikill fjöldi barna er vann við síldarsöltunina, en við allri hjálp hve smá sem hún var, tóku verk- stjórarnir þakksamlega. STARFSMENN Alþjóðalögregl- unnar hafa ákveðið að halda fund í Luxembourg, þar sem aðalleera verður fiallað um störf lögregl- unnar frá þjóðfélagslegu sjónar- miði. Þeir hafa lokið rannsóknum sínum á orsökum glæpa, sem Al- þjóða-Sakfræðingafélagið stóð fyr ir. — Ákveðið hefur verið, að efna til skipta á lögregluforingjum milli ýmissa landa. Barizi í Xóreu SEOUL, 13. júlí — í morgun gerðu tvö herfylki kínverskra kommúnista árás á miðvígstöðv- unum í Kóreu. Sóttu þeir fram á 25 km svæði milli Kumhwa og Pukhan-fljóts. Voru þar einvörð- ungu Suður-Kóreumenn til varn ar. Þeir tóku hraustlega á móti og stóðu þarna yfir gengdarlaus- ir návígisbardagar, síðast þegar til fréttist. Landið er ekki hentr Ugt til að beita skriðdrekum Enn eru innan við 100 skip í ílotaiuim í GÆRKVÖLDI birti Fiskifélag íslands fyrstu skýrslu sína á ný- byrjaðri síldarverðtíð, um gang hennar. — Samkvæmt henni var á laugardagskvöldið búið að salta í rúmlega 20.000 tunnur, en bræðslu síldaraflinn er mjög lítill. — í skýrslunni segir: Síðastliðinn laugardag 11. júlí kl. 12 á miðnætti hafði síldveiði- flotinn fyrir Norðurlandi lagt á land afla sem hér segir: (í svigum er getið aflans á sama tíma í fyrra) í bræðslu 1766 mál (17874) í salt 20163 tn. (0) í frystingu 2432 tn. (4391) VITAÐ UM 71 SKIP Ekki er enn vitað með vissu hversu mörg skip hafa farið til síldveiða, en þau hafa verið að fara undanfarna daga og enn munu allmörg skip vera ófarin. Á þeim tima, sem skýrsla þessi miðast við var vitað um 71 skip, áem fengið höfðu afla, en af þeim höfðu aðeins 13 aflað meir en 500 mál og tunnur samanlagt. Á sama tíma í fyrra höfðu 11 skip náð þeim afla. Þau 13 skip, sem nú hafa aflað 500 mál og tunnur og þar yfir, eru þessi: BOTNVÖRPUSKIP Jörundur, Akureyri 905 MÓTORSKIP Akraborg, Akureyri 1029 Bjarmi, Dalvík 815 Böðvar, Akranesi 684 Garðar, Rauðuvík 597 Helga, Reykjavík 666 Pétur Jónsson, Húsavík 651 Snæfell, Akureyri 917 Stíðandi, Ólafsfirði 626 Súlan, Akureyri 765 Særún, Siglufirði 885 Von, Grenivík 661 Vörður, Grenivík 556 Geta má þess að samkvæmt fregnum sem Mbl. bárust í gær- kvöldi, þá munu aflahæstu skip- iní í flotanum vera togarinn Jör- undur og vélskipið Helga RE. sem hvort er með um 2000 tunn- ur síldar. Forseti Estlands r r r J* i onao STOKKHÓLMUR, 13. júlí — Baltneskir flóttamenn, sem hér dveljast hafa komizt á snoðir um að forseti æðstaráðs Sovét-Eist- lands, August Jakobson, hafi fallið í ónáð. í útvarpi frá próf- hátíð estneskra skólabarna, hélt forsetinn enga ræðu að þessu sinni, en það hefur hann jafnan gert síðan hann varð forseti í lok stríðsins. Engra forfalla var getið. —NTB. Beimdallnr elnir til Akureyrarierðar Lagf verður af sfað NÆSTKOMANDI föstudags- kvöld fara ungir Sjálfstæðis- menn af stað til Akureyrar. — Verður lagt af stað kl. 7,30 um kvöldið og gist einhvers staðar á leiðinni norður. Verður komið til Akureyrar fyrri hluta laugar- dags og dvalið þar. Á sunnudag- inn verður svo haldið áleiðis til Reykjavíkur og verður komið til bæjarins um miðnætti. Þátttakendur verða að hafa með sér svefnpoka eða yærðar- n.k. fösfudagskvöld voð. Fargjaldi verður stillt í hóf svo sem unnt er, en ekki er enn fyllilega ákveðið, hvað mikið það verður. Þeir, sem hafa hug á að fara, eru áminntir um að tilkynna þátttöku sína til skrifstofu Heim- dallar, sími 7100, sem allra fyrst Farseðlar verða afhentir þar á miðvikudaginn milli kl. 5 og 7. Allar nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu Heimdallar,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.