Morgunblaðið - 29.10.1953, Blaðsíða 11
/
Fimmtudagur 29. okt. 1953
MORGUNBLAÐIÐ
11
Frá Thule
Kaiupum rjúpur
■
*
■
Fyrst um sinn kaupa kjötvérzlanir í Reykjavík rjúpur ;
«
á 7 kr. pr. stk. «
»«
FELAG KJOTVERZLANA I REYKJAVIK :
■ ■■•■■■■■•■IBIII|■B■■■■■■■■B■■WQ.
Heygrímur
%rirliggjandi
Verzlunin Áhöld
>•••«>« •■■••■••■••••••••••••■■••■••■■••■••••■
••■•••■■■■^
'%••%■■■%■■•«••■■•■■•■■■■■■•■■■■•■■■■■•■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■•■•■•■••••
■
Thule-flugvöllurinn á Grænlandi. — FlugmaSur i heimskautaklæðnaði horfir yfir hinn nýja álms- •
bæ, sem risið hefur á þessum norðlægu slóðum.
Kjartan Ólafsson brunavörðuir:
Hækkun sóknur-
gjuldu nuuðsynleg
EITT þeirra mála, sem til um-
ræðu kom á hinum almenna
kirkjufundi, se mhaldinn var hér
í Reykjavík dagana 16.—19. okt.
síðastl., en ekki vanst tími til að
samþykkja neina ályktun um, var
nauðsyn á hækkun sóknargjalda,
en þau eru svo lág að tæplega
nokkurt félag er svo aumt eða
fámennt, að það hafi ekki hærri
árstillög en safnaðarmeðlimir
greiða nú til kirkju sinnar, en
safnaðargjald á hvern einstakling
nam siðastliðið ár kr. 24.00. Sjá
allir að þessi skattur hefur eng-
anveginn fylgt hinni gífurlegu
hækkun, sem orðið hefur á öll-
um tilkostnaði síðustu árin, og
það líka í sambandi við kirkju,
og guðsþjónustuhald. Einn merk-
ur og víðförull kennimaður, sem
þarna var á fundinum, og lengi
hafði dvalið meðal íslendinga
vestan hafs, sagði að hann hefði
alltaf reynt að komast hjá því,
að svara þegar hann var spurð-
Ur um það, hve há sóknargjöldin
væru á íslandi, vegna þess að
hann fyrirvarð sig fyrir að segja
frá því hve lág þau væru, og
voru þau þó tiltölulega miklu
hærri þá, eða fyrir stríð, en þá
námu þau að minnsta kosti kr.
7.00 á safnaðarmanp en síðan
hefur flest eða allt tífaldast.
Merkur skólastjóri utan af
landi, sem sat fundinn, og hafði
hug á því að kirkja hans gæti
eignast nokkrar sálmabækur til
að dreifa á meðal kirkjugesta svo
safnaðarsöngur þar gæti orðið al-
mennari, benti á, að nú þyrfti að
safna nær þriggja ára sóknar-
gjaldi eins safnaðarmanns fyrir
einni sálmabók. Hvað sem um
þetta er skrafað og skráð, er sann
leikurinn einfaldlega sá, að þrátt
fyrir allt skattabrjálæði síðustu
ára, sem svo margir tala um, og
það með réttu, hefur þó einn
skattur alveg orðið útundan, en
það eru sóknargjöldin, hvað sem
því nú veldur. Það eru náttúr-
lega til menn með þjóðinni, sem
álíta að þessi gjöld séu alveg
nógu há, og jafnvel að þau þyrftu
alls ekki að vera til, en sem betur
fer eru þeir í miklum minni hluta
og jafnvel fólk, sem sjaldan kem-
ur í kirkju, og leggur sig lítið
fram um félagsstarfsemi innan
safnaðar síns, það vill einganveg-
jnn missa kirkjuna, og myndi alls
ekki telja eftir sér, að greiða til
hennar hærri skatt árlega, en sem
svarar hálfum skósólum.
Ríkið leggur árlega fram stór-
fé til kirkju og kristnihalds í
landinu og viðurkennir á þann
hátt að þessi starfsemi innan
þjóðfélagsins sé nauðsynleg og
megi enganveginn missa sig.
Ríkið launar presta þjóðkirkj-
unnar, byggir hús yfir þá o, fl. og
nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
flutt af Sig. Ól. Ólafssyni öðrum
þingmanni Árnesinga, þar sem
lagt er til, að árlega sé nokkurt
fé lagt fram frá ríkinu til bygg-
ingu nýrra kirkna, og til viðhalds
hinna eldri, og er þetta allt gott
og blessað, og sjálfsagt að gera
kröfur til ríkisins um þetta, ekki
síður en margt annað og má
reyndar segja flest annað nú
orðið. En þetta er ekki einhlítt
eða nóg, það verður að gera kröf-
ur til fólksins líka. Og þó að
mikið sé hægt að heimta af rík-
inu og það verði vel við beiðni
manni í flestum tilfellum, þá er
það nú svo, að ríkið er sjaldnast
svo örlátt með styrki, að ekki sé
þörf fyrir meira fé en það legg-
ur fram, að minnsta kosti er það
svo í málefnum kirkjunnar. Þess
vegna eiga söfnuðir að gera kröfu
til þess, um leið og ríkið er kraf-
ið fjárframlaga til kirkjunnar,
að sóknargjöldin séu hækkuð all
verulega frá því sem nú er.
| Þó kirkjur séu byggðar með
mikilli aðstoð þess opinbera,
þurfa söfnuðir alltaf mikið að
leggja fram ^íka, og eins þarf
| stórfé til viðhalds kirknanna og
til að fegra þær og prýða. Það
| eru félög áhugamanna innan
safnaðanna, og ekki sízt kven-
félögin, sem leyst hafa þennan
vanda, með miklum fjárframlög-
um, og fórnfúsu starfi. En þó
vantar víða á, að þessi vandi sé
á þennan hátt leystur að fullu,
því þarna er tiltölulega oft litil
hluti safnaðarfólks að verki, en
fjöldinn allur sleppur að heita
má, við það að leggja nokkuð að
ráðl fram til kirkju sinnar vegna
hinna alltof lágu sóknargjalda.
I Það er því miður vitað, og er
ekki vansalaust, að kirkjur hinna
ýmsu safnaða hér á landi, hafa
verið og eru enn í hinni megn-
ustu vanhirðu og meðal annars
vegna vöntunar á fé til að fegra
þær og prýða.
Til allrar starfsemi, og þá líka
kirkjulegrar, þarf peninga, og
það mikla peninga, því öll þjón-
usta, sem í té er látin heimtar sitt,
og hefur hækkað margfaldlega
síðustu árin. Til dæmis er nú
organleikur og söngur, sem ekki
er hægt án að vera, enda mikið
lagt upp úr við hverja guðsþjón-
ustu, orðinn stór útgjaldaliður
hjá söfnuðum al’s staðar á land-
inu. Þannig mætti lengi halda
áfram og benda á kostnaðarliði,
í starfsemi safnaða yfirleitt,
kostnaðarliði, sem fljótir eru að
taka til sín hin lágu sóknargjöld.
Er því kominn tími til að þessi
mál séu rædd opinberlega, og er
vonandi að heiðrað Kirkjuráð
láti þau sig varða, og komi á fram
færi við hið háa Alþingi, sem nú
situ, rækilegri greinargerð um
þessi mál, með tilmælum um
breytta löggjöf, sem leyfir al-
menna hækkun sóknargjalda.
Kjartan Ólafsson.
Skríistofumaðnr
getur fengið atvinnu nú þegar, hjá opinberri stofn-
un. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf,
sendist afgr. Morgbl. fyrir 5. nóvember næstkom-
andi merkt: ,,Framtíðarstaða“ —816.
a
m
tf
— Minning
Framh. af bls. 10.
kerling hafa verið búin að ná á
honum nú hin siðustu ár, enda
var hann kominn á 76. aldursár,
er hann lézt hinn 16. þ. m.
Jón heitinn Jóhannesson var
áhugasamur um stjórnmál og var
hann allt frá stofnun Sjálfstæðis-
flokksins ósveigjanlegur og bar-
áttufús fylgismaður hans. Lét
hann hvergi hlut sinn í umræð-
um um stjórnmál og var hinn
skeleggasti baráttumaður hvort
sem var í ræðu eða riti.
Nú, er ég kveð þennan ágæta
vin minn liðinn, sem ég geymi
margar góðar minningar um,
votta ég ástvinum hans og að-
standendum öllum innilega sam-
úð, vegna fráfalls hans.
Það er vissa mín, góði vinur,
að nú að loknum löngum og far-
sælum starfsdegi hafi þér opnazt
annar og bjartari heimur, þar
sem þér hafi verið búin vist
handan móðunnar miklu.
Einar Ingimurtdarson.
Auglýsendur
i
Þvotlakörfur
i ^
í i
70 cm kr. 70,00 ■
75 cm kr. 90,00 \
80 cm kr. 103,00 \
! I
• Æ' m
JLi v p r p a n £4
„0LIVETTI“
ritvélar
Nýja gerðin komin
aftur.
Pantanir óskast sóttar
. ' sem fyrst.
G. HELGASON & MELSTED h 1
■toií
Chrysler 1946
keyrður 62 þusund km og í ágætu lagi, til sölu. :
■
Hefur alltaf verið í einkaeign. I
«
\ ‘"*r
Uppl. í smjörlíkisgerðinni Ljómi h.f., Þverholti 21....Í
Isafold og Vörður er
vinsælasta og f jölbreytt-
asta blaðið í sveitum
landsins.
Kemur út einu sinni til tvisvar
í viku — 16 síður.
Morgunblaðið
er helmingi útbreiddara en
nokkurt annað íslenrkt blað.
Stór húseign óskast
Félagssamtök í Reykjavík óska eftir að kaupa hús
eign á hitaveitusvæðinu, sem næst Miðbænum.
í húsinu þurfa að vera minnst 20 herbergi og að
staða til að breyta hluta þess í góð salarkynni.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 1. nóv., merkt:
,,Stórhýsi“ —813.
1
-»
.1
i