Morgunblaðið - 29.10.1953, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.10.1953, Blaðsíða 16
Stórframkvæmdir fvrir- *) hugaðar við höfnina Stjómmálaskóli Sjálf- stæðisflokksins verður settur á sutnnudag STJÓRNMÁLASKÓLI Sjálfstæðisflokksins verður settur I Sjálf- stæðishúsinu sunnudaginn 1. nóv. kl. 2 e. h. Skólinn verður haldinn í Sjáifstæðishúsinu og mun standa yfir í rúman hálfan mánuð. t skólanum verður fluttur fyrirlcstur um ýmis efni stjórnmála- legs eðlis og auk þess verða mælskuæfingar. Þeir Reykvíkingar, sem ætla að taka þátt í skólanum eru beðn- ir um að láta skrá sig í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á morgun. Ný fogarabryggja við Grandagarð. Á FUNDI hafnarstjórnar s. 1. þriðjudag skýrði hafnarstjóri frá tyrirætlunum um togarabryggju við Grandagarð. Ákveðið var að hefja undirbúning nú þegar, og var hafnarstjóra falið að útvega fjárfestingarleyfi og gera ráðstafanir til innkaupa á efni. BÆTIR AÐSTÖÐU TOGARANNA AÐ MUN Áætlanir hafa verið gerðar um að byggja stóra bryggju innan á Grandagarð stutt frá Faxa- verksmiðjunni, sem notuð yrði í sambandi við togaraútgerðina hér í bænum. Myndi sú bryggja bæta mjög aðstöðu togaranna hér í bænum. Bryggja þessi yrði tnikið mannvirki, sem mun kosta margar milljónir króna. Gert er ráð fyrir að bryggjan verði 60 m. á breidd og 110—115 m á lengd, svo að þrír stórir togarar eiga að geta. legið við liana í einu. Þá er fyrirhugað að á bryggjunni verði reist hús •eftir henni endilangri um 30 m á breidd, og yrði það aðallega notað í sambandi við togaraút- gerðina. Bryggjusmíðinni verður þann- ig hagað, • að rammað verður niður stálþili utan um grjót- kjarna, sem nú þegar er búið að gera. Vinna við mannvirki þetta mun hefjast innan skamms. Tungufoss afhentur í dag í DAG mun Eimskipafélagi ís- | lands bætast nýtt skip í flota I sinn. Er það farmskipið Tungu- foss, sem fara mun í reynsluför sína í dag, en að þeirri siglingu lokinni mun Eimskipafélagið veita skipinu móttöku. Tungufoss er 1700 rúmlesta . skip, 240 feta langt. Er Tungu- foss með sama lagi og Tröllafoss j að yfirbygging skipsins er aftast á því. Skipið ristir fullhlaðið 15 | fet og á því að geta farið inn á ' flestar hafnir landsins fullhlaðið. ’ Skipstjóri á Tungufossi verður I Eyjólfur Þorvaldsson. r Ingvar Jónasson og Jón Nordal. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Athyglisverðir hljómleikar á veg- um Tónlistarfélagsins í næstu viku Fyrstu sjálfstæðu hljómleikar Ingvars Jónssonar fiðluleikara. N.K. MÁNUDAG og þriðjudag heldur Ingvar Jónasson fiðluleikari sina fyrstu sjálfstæðu hljómleika. Verða hljómleikarnir haldnir á vegum Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói og einungis fyrir styrktarfélaga þess. — Undirleik annast Jón Nordal tónskáld. — Efnisskráin á þessum fyrstu tónleikum Ingvars er á þessa leið: Viðbótarlán til aðstoðar smáíbúðaeigendum fengið 428 smáíbúðaeigemlur hafa þegar fengið lán. LÁNADEILD smáíbúða lauk í s. 1. mánuði við úthlutun 10 miHj. Itróna' láns, sem ríkisstjórnin tók hjá Landsbanka íslands til að siðstoða efnalitla við smáíbúðabyggingar. Alls var þessum 10 milljónum króna úthlutað til 428 smáíbúðaeigenda, sem búsettir eru víðsvegar um land. i Sónata í D-dúr eftir franska *- tónskáldið Leclair Þá verða tveir einleikskaflar úr sónötu fyrir einleiksfiðlu, eftir Bach, Polonaise brillante eftir Wieniawsky, sónatina eftir Sibelíus, tvö lög eftir Prokoieff og tvö lög eftir William Walton. HEFIR GETI© SÉR GOTT ORÐ Ingvar Jónasson fiðluleikari lauk prófi frá Tónlistarskólanum fyrir þremur árum, hélt síðan til Englands til frekara náms og hefur verið í Royal College í Lundúnum síðan. Má geta þess, að þar gat hann sér svo gott orð, að hann var fenginn til að vera konsertmeistari í hljómsveit, er starfaði við skólann. — Ingvar kom heim í ágúst s.l. og er nú fastur starfsmaðu’’ í Sinfóníu- hljómsveitinni. Skot springur í hendi dreiiírs Konungi batnar. NEPAL — Tribhubana konungur Nepal-ríkis í Himalaya-fjöllum fékk nýlega hjartaslag, en hann er nú að ná sér. Hann er 47 ára. ' HÚSAVÍK, 28. okt.: Fjórtán ára drengur, Hinrik Þórarinsson, til heimilis að Jörfa hér í Húsavík, skaddaðist mikið á hendi, er skot sprakk í hendi hans í gærdag. Drengurinn hafði náð í full- hlaðið haglaskot. Hann var bú- inn að ná höglunum úr því, en ekki púðrinu sjálfu. Síðan ætl- aði hann að bora gegnum hvell- hettuna, en við það varð spreng- ingin. Hinrik hélt á skotinu í vinstri hendi og v'ið sprenging- una skaddaðist hún mjög. Eink- um eru það litli fmgur og baug- fingur hans sem urðu verst úti. Þá mun hann hafa marist á hægri hendi, en að öðru leyti sakaði hann ekki. Líðan Hinriks er sæmileg eftir atvikum. Upplýsingar þessar gaf félags- málaráðherra sem svar við fyr- •t'sp'Urn' til ríkisstjórnarinnar um jþað hvað liði öflun lánsfjár til smáíbúðabygginga. VIÐBÖTARLÁN Ráðherrann upplýsti einnig að ríkisstjórnin stæði nú í samningum um 6 milljón kr. viðbótarlán í þessu skyni, en lögum samkvæmt var ríkis- stjórninni heimilað að taka 16 millj. kr. lán í ofangreindu skyni. Ráðherrann kvað öruggt, að þetta viðbótarlán fengist nú, og værí undlrbúningur að úthlutun þess að hefjast, þó ekkert yrði tilkynnt opinber- lega um það, fyrr en úthlut- un getur hafizt.___ Vilja leiia samkomulags ALMENNUR launþegafundur í Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur samþykkti í gær að fela samninganefnd félagsins að leita samkomulags við atvinnurekend- ur um lagfæringu *á einstökum atriðum samninganna, án þess þó að þeim væri sagt upp. Vetrarstarfsemi Heimdallar hafin FUS Heimdallur hefir nú hafið vetrarstarfsemi sína af fullum ferafti. Hefir hann fengið til afnota nýtt og betra húsnæði fyrir starfsemi sína, sem er í V.R. Mörg og áríðandi verkefni liggja fyrir, og eru félagsmenn ein- dregið hvattir til að starfa. í kvöld kl. 814 verður haldinn félags- fundur í V.R. Þar mun Gunnar Thoroddsen borgarstjóri mæta og ræða bæjarmál og væntanlegar bæjarstjórnarkosningar — Ennfremur verða félags- og skipulagsmál félaga ungra Sjálfstæð- ismanna rædd. Eru það eindregin tilmæli félagsstjórnar, að sem flestir mæti. ; Metsala • í Þfzkalandi i gær í ÞEGAR togarinn Jón forseti seldl i Bremerhaven í gærmorgun, var fisknxarkaðurinn fisklaus aS kalla má. Togarinn var með 231 tonn af fiski og seldi aflann fyrip 145 þús. mörk, en það er hæsta aflasala erlendis á þessu ári. Jafngildir hún rúmlega 12.300 sterlingspunda sölu, eða fyrir 561 þiís. krómir. i Um % hlutar aflans var karfi. Sem stendur eru mjög fáir þýzk- ir togarar á karfaveiðum og þvl er markaðurinn þar hagstæður suma daga. Innan skamms munu þýzkir togarar hefja almennt karfaveið'ar og aðrar úthafsveið- ar hér við' land og mun þá þýzki markaðurinn fyllast svo að Þjóð verjarnir sclja fiskinn í Bret- landi. j Báiar keyptir fil Vestmannaeyja VESTMANNAEYJUM, 28. okt.: — Sem kunnugt er hefir leyfi fengizt fyrir innflutningi á níu vélbátum hingað til Eyja frá Dan mörku, og er fyrsti báturinn vænt anlegur í næstu viku. Þrátt fyrir þetta verður eitt- hvað keypt hingað af bátum hér innanlands. Til dæmis kom vélbáturinn Skíði frá Reykja vík hingað í dag, en Guðjón Scheving, málaramestari og Aðal steinn Gunnlaugsson, skipstjóri, hafá fest kaup á honum. — Bj. Guðm. Sjómenn í Eyjum - segja upp samningum VESTMANNAEYJUM, 28 okt.: — Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið Verðandi, Sjómannafélagið Jötunn og Vélstjórafélag Vest- mannaeyja hafa sagt upp samn- ingum við atvinnurekendur frá næstu áramótum að telja. Hafa því öll félög sjómanna hér samn- inga lausa um áramótin. — Bj. Guðm. Skrýtið bann ■STJÓRNIN í Bermúda hefur bannað BOAC-flugfélaginu að koma með farþega til landsins beint frá Bretlandi. — Er þetta gert til að neyða félagið til að láta flugvélar sínar koma við í New York. Skdkeinvígi Mbl.: Akranes-Keflavík Akranes: 4. leikur l Rgl —f3 j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.