Morgunblaðið - 29.10.1953, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 29. okt. 1953
LJONiÐ OC LRMBID
EFTIR E. PHILLIPS OPPENHEIM
Framhaldssagan 15
Þrátt fyrir það hve maðurinn .
var óaðlaðandi og ruddalegur,'
var eitthvað áhrifamikið við
alvöruha í orðum hans. Jafnvel
David varpaði af sér kæruleys- I
inu.
„Fyrrverandi húsbóndi", sagði:
hann og gekk í átt til dyranna. I
Á þröskuldinum leit hann um!
-ÖxL Enginn þeirra þriggja hafði
hrært sig. Þau horfðu öll á hann,
en enginn sagði orð. Hann gekk
■ut með þeirri kynlegu tilfinn-
ingu að eitthvað skuggalegra
byggi undir þögn þeirra en hót-
X kafli.
Kennslustofnun Abbs fyrir
sport, leikfimi, og líkamsmennt,
biómstraði ágætlga. David, sem
hafði verið á ráðstefnu með
Sarnmy West, leit niður í salinn,
ánægður á svip.
„Fullt hús í kvöld, Sam“, sagði
hann.
„Sammy West, sem bar þess
ótvíræð merki á andlitinu að
hann hafði tekið þátt í harðri
keppni, tók í sama streng.
„Ég ræð varla við þá“, sagði
hann í trúnaði. „Ég hef þó farið (
eftir skipunum yðar — enga .
sunnudagaskóladrengi, engar lið-
leskjur og labbakúta. Þeir koma i
hópum saman og vilja komast að,
og þeir skilja ekki að þeim skuli,
synjað þó þeir komi með pen- j
ingana, en þannig gengur það. ;
Ég segi þeim að þeir komist að .
seinna. Ungir menn með krafta
í köglum, fæddir slagsmála- j
menn, það eru þeir, sem yður
vantarT er ekki svo?“
„Jú, svo sannarlega", sam-
sinnti David.
Sammy West hóstaði.
„Afsakið, herra minn“, hélt
hann áfram eftir stutta þögn, |
„væri það of nærgöngult að
spyrja hver tilgangurinn er með
þessu öllu saman? Ég hef fengið
mínar fyrirskipanir og það er
gott svo langt sem það nær. Mér
er falið að æfa fimrritíu manna
hóp af ungum piltum, sem geta
staðið sig í götuslagsmálum, og
ég kenni þeim fantabrögð East
End bófanna. Þetta gengur eins
og í sögu: Ég gæti strax í dag
boðið út tylft drengja, sem væru
færir um að berja niður hvaða
tólf aðra sem væri, en hver er
tilgangurinn? Þér eyðið ekki öllu
þessu fé út í bláinn. Ætlið þér að
ná yður niðri á þessum bófaflokk,
sem kom yður í bölvun?“ ,
„Þér skuluð fá að vita allt um
þetta innan skamms, Sam“, lof- (
aði húsbóndi hans. „En nú lang-
ar mig til að heyra álit yðar á
skoðun, sem ég hef“.
„Það er velkomið“.
„Skoðun mín er sú“, hélt
David áfram, „að ungur náungi,
sem er snöggur í hreyfingum og
kann eitthvað í jiu-jitsu, einkum
tökin á úlnliðunum, standi í ná-
vígi jafnfætis þessum bófum,
sem bera á sér hnífa og skamm-
byssur“.
Sam West var dálítið alvarleg-
ur.
„Ég er ekki viss um að ég sé
yður sammála um þetta“.
„Jæja, þér verðið að viður-
kenna þetta“, hélt David áfram.
„Það tekur sinn tíma að draga
upp byssu eða bregða hníf. Ef
andstæðingurinn er nógu nálægt
getur hann hindrað hvortveggja.
Hann stendur þá betur á vígi,
því hann hefur hendurnar laus-
ar og er í betri stellingum, en
sá, sem reynt hefur að ná upp
vopnunum. Það, sem hann verð-
ur auðvitað að gæta fyrst og
fremst, er að komast í návígi.
Væri hann nokkra raetra :í>
burtu, gæti hann ekkert aðhafst
gegn manni með skammbyssu“.
„Það þarf töluvert áræði til að
fást óvopnaður við suma af þess-
um bófum, eins og þér vitið“,
sagði Sam West.
„Ég kæri mig ekkert um pilta,
sem ekki hafa töluvert áræði“,
var hið stuttaralega svar. „Yður
skortir það ekki, Sam, það veit
ég. Aðalatriðið er, að ég vil að
þeir séu þjálfaðir í þessu skyni
— að þeir sláist í návígi. Takið
eftir, Sam“, hélt hann áfram.
„Standið þarna svo sem hálfan
annan metra frá mér. Svona, já.
Jæia, þér hafið hníf í vasanum —
auðvitað sérstökum vasa, rétt
neðanvið vestið — og þér hafið
byssu í mjaðmarvasanum. Ég tel
upp í þrjá, og sjáið hvað ég get.
Segið mér ekki hvort vopnið þér
ætlið að nöta“.
Þeir stóðu andspænis hvor öðr-
um, Sam West var eilítið hærri
en húsbóndi hans, hendur hans
titruðu og hann var vel á verði
gegn fyrstu hreyfingum andstæð
ingsins. David stóð #ins og
klettur, augun stálhörð. Hann
taldi: einn — tveir — þrír. Unga
vélritunarstúlkan í næstu stofu
hrökk við er hún heyrði Sammy
West reka um sársaukaóp. Hægri
hönd hans var gripin þegar hún
átti eftir nokkra þumlunga að
mjaðmarvasanum, og snúið upp
á hana með járngreip. — Með
hægri hendi hefði David verið
í lófa lagið að slá hann í rot.
Hann steig aftur á bak brosandi.
„Þér sjáið hvað ég á við, Sam“,
sagði hann. „Með þessari fjar-
lægð hefðuð þér ekki getað náð
til hnífs eða byssu. Þér völduð
það auðveldara, en mér tókst að
hindra yður. Áður en þér gátuð
revnt að losa úlnliðinn, hefði ég
getað barið yður í rot“.
„Þér áttuð allskostar við mig“,
viðurkenndi hinn. „En það
myndi taka mig alllangan tfma
að æfa piltana mína svo, að þeir
yrðu svona snarir. Ég veit ekki
hvar þér hafið lært þetta, en ég
byði ekki mikið í þann bófa, sem
hætti sér í hendurnar á yður“.
„Ég lærði þetta á flakki mínu
í Ástralíu“, sagði David bros-
andi. „Ég fékkst við allskonar
störf þar, meðal annars í svona
skóla".
Sammy West neri ulnliðinrt
lítið eitt. Allt í einu hætti hann
og stóð grafkyr. Hann virtist
hlusta.
„Hvað er að?“ spurði David.
Sam færði sig til dyranna.
„Mér fannst ég heyra undar-
legt hljóð, samskonar og ég
heyrði utan úr portinu í nótt
sem leið“, sagði hann. „Að heyra
eins og þar væru þrír, fjórir
menn á gúmmísólum. Ég var að
tala við nokkra af piltunum, og
við gerðum töluverðan hávaða,
en þega rvið litum út, var engan
að sjá. Við skulum fara hljóð-
lega“.
Þeir læddust á tánum til dyr-
anna. Aftur stanzaði Sam West
til að hlusta. Fyrir utan heyrð-
ust hvíslandi raddir.
„Einhverjir, sem ekki hafa
neitt gott í huga“, hvíslaði
David. „Opnið hljóðlega, Sam
.... Það var rétt! Áfram nú!“
Þéir gengu hratt út í portið.
Það var dimmt af nóttu, og ofur-
lítil rigning, en þó gátu þeir hæg-
lega greint nokkra skugga á
hreyfingu.
,,Hæ! Hvað eruð þið að
snuðra?“ kallaði Sam.
Tveir reyndu að læðast burt,
en Sam flýtti sér fram fyrir þá.
„Hvern fjandann kemur ykk-
ur það við?“ hreytti annar þeirra
úr sér. „Þetta port er ekki einka-
eign“.
„Það liggur einungis inn í
geymsluhús mitt. Komdu svo að
maður geti séð framan í þig“.
SKUGGIIMIM
Danskt ævintýri
12.
„Fyrst við nú erum orðnir lagsbræður á þessu ferðalagi
og höfum vaxið upp saman frá blautu barnsbeini, væri þá
ekki réttast að við drykkjum dús, það er eitthvað meiri vin-
áttubragur á því?“
Látið yður nú segjast og þiggið boðið, við ferðumst svo
sem aðrir lagsbræður."
Og nú varð það úr, að þeir ferðuðust. Var þá skugginn
herra og herrann skuggi. Þeir óku, riðu og gengu saman,
hvor við annars hlið — og fór það eftir því, sem sól var á
lofti, hvor á undan var eða eftir.
Skugginn var ætíð viss með að vera þar, sem herrann
byrjaði að vera, en ekki var lærði maðurinn neitt að fást um
það. Hann var hjartabezti maður og ljúfmennskan sjálf.
Og því var það, að hann einhvern dag sagði við skuggann:
Skeggið vill ekki vaxa á mér almennilega, það er líka
siúkdómur fyrir sig og skegg verður maður þó að hafa.
„Segið þér nokkuð?“ mælti skugginn, sem nú var í raun
réttri orðinn herra hins.
„Það er sérlega hispurslaust og góðgjarnlega talað af yð-
ur, og ég ætla þá aftur á móti að vera eins góðgjarn og hisp-
urslaus í svörum. Þér eruð svo lærður maður, að þér vitið
víst, hvað náttúran er stundum undarleg.
Sumar manneskjur þola ekki að snerta á grápappír, þeim
verður óglatt af því. Sumum ýskrar gegnum alla limi, ef
nagla er núið við glerrúðu. Eitthvað líka tilfinning hef ég,
þegar ég heyri yður þúa mig, mér finnst eins og mér sé
þrýst niður í fyrri stöðu mína, þegar ég var hjá yður.
Þér sjáið sjálfur, að þetta er eðlileg tilfinning mín, en
alls ekki drembilæti. Ég get ekki lofað yður að þúa mig,
en það er velkomið að ég þúi yður, og er þá beiðnin veitt að
hálfu leyti.“
Þeir félagar komu svo á baðstað, þar sem fjöldi fólks
.Vjaf, fynr — þar áo rpeðal kóngsdóttur ein yndisfögur, sem
I DAG:
Ný sending
Amerískir kfólar
Amerískar nælonblússur
G6J LLFOSS
GuSMoss tryggir gæðin
GIJLLFOSS
Aðalstræti.
ír — Handföng
Nýkomið:
WILK A—inniskrár
WILKA—smekklásskrár
WILKA—smekklásar
WILKA—skothurðaskrár
Hurðarhandföng
Skothurðajárn
Sænskar Gluggakrækjur
Sænskar Hurðaskrár
STANLEY—lamir
LIJDVIG STORR & CO.
Hefi kau.pan.da
að húsi með tveimur íbúðum, einni 4ra—5 herb.
og einni 3ja herbergja.
Ennfremur 5—6 herbergja hæð og 3ja—4ra her-
bergja íbúð í risi eða kjallara.
ÓLAFUR BJÖRNSSON,
málaflutningsskrifstofa og fasteignasala.
Uppsölum, Aðalstræti 18.
TILKYINIIMIIMG
frá Húsmæðraskóla Akureyrar.
Húsmæðraskólinn tekur til starfa um áramót og starf-
ar í 5 mánuði. — Kenndar verða allar námsgreinar, nema
vefnaður. — Heimavist er í skólanum. — Umsóknir send-
ist til forstöðukonunnar, sem gefur allar nánari upplýs-
ingar. — Til jóla starfar skólinn í námskeiðum.
FORSTÖÐUKONAN
UTBOÐ
B
• Tilboð óskast í að leggja
geislahitunarkerfi
■
X í Utvegsbanka Islands h.f., Vestmannseyjum. Upp-
m
Z drátta og lýsingar má vitja í teiknLtofu Sigurðar
*>
Guðmundssonar og Eiríks Einarssonar, Lækjartorgi
• 1 í dag og á morgun kl. 4—6. Skiiatrygging 100 kr.
■
■ C)
m
— Morgunblaðið með morgunkaffinu —