Morgunblaðið - 08.01.1954, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.01.1954, Blaðsíða 5
f Föstudagur 8. janúar 1954 MORGVNBLAÐIÐ Lýsi og Mjöl, verksmiðjan og nýju vélarnar. Lýsi og Mjöl h.f. gera miklar endurbæturáverksmiðju sinni Nýjar vélar, sem gemýta fisksoð ! . til mjölvinnslu. HAFNARFIRÐI — Verksmiðjan Lýsi og Mjöl h.f. sýntli í gær fréttamönnum og öðrum gestum nýjar vélar, sem fyrirtækið hefir Cekið í notkun. Vélarnar vinna svo kallað heilmjöl úr soði því, Eem til fellur í verksmiðjunni. Áður fór forgörðum, sem svarar S20—25% af lieildarmjölmagni hráefnisins, en með þessum nýju yélum nytist nú hráefnið að fullu. — Með þessari nýju aðferð til Bð vinna mjöl úr fisksoði haldast hráefnin betur í mjölinu og má geta þess, að meira er t. d. af B-fjörvi í mjölinu en ella. — Er fcægt að vinna 10 tonn af mjöli á klst. með hinum nýju vélum. Mjölframleiðsla hérlendis hefur mjög aukizt síðari ár og má því viðvíkjandi geta þess, að árið 1943 var selt mjöl til út- \ flutnings fyrir 420 þús. krónur, en á s. 1. ári nam verðmæti ' útflutts mjöls um 44 millj. kr. (Ljósm. S. Vignir). Góðtemplarareglon ú íslondi 70 ára 10. jan. Minnisf sfmælisins með margvísl. hálíðahöldunt NÆSTKOMANDI sunnudag á Góðtemplarareglan hér á landi 70 ára afmæli. Þann dag 1884 var stúkan ísafold stofnuð á AkureyrL Voru stofnfélagar 12, en aðalhvatamaður að stofnun stúkunnar var norskur maður, Ole Lied. — Þessa afmælis reglunnar verðitr minnzt víða um land, en auk bindindisstarfseminnar hefir reglaiv á þessum árum unnið gott brautryðjendastarf á sviði menningar- og félagsmála. TÖPUÐ VERÐMÆTI Það hefir lengi verið kunnugt, að mikil efnatöp eiga sér stað í afrennslisvatninu eða soðinu frá síldar- og fiskimjölsverksmiðj- nm, er vinna karfa eða síld með 6uðu og pressun. Almennt er tal- ið, að þessi töp nemi 20—25% af heildarmjölmagni hráefnisins. Lýsi og Mjöl h.f. hefir lengi haft hug á að endurbæta verksmiðju sína, svo að hún yrði fær um að endurheimta þau verðmæti, sem töpuðust í soðinu og gjörnýta þannig hráefnið. í þessu skyni yar fenginn nýr gufuketill í verk Smiðjuna árið 1952 og síðan keypt eimingartæki hjá fyrir- tækinu Atlas A/S í Kaupmanna- höfn á s.l. ári. Uppsetningu þess- ara tækja var iokið í byrjun des- embermánaðar s.l. og hafa þau yerið í notkun síðan. HEILMJÖL l Tæki þessi eru af hinni svo- kölluðu þriggja þrepa gerð og eru þau því mjög sparneytin á eldsneyti. Gufunotkun þeirra er 1 tonn fyrir hver 2.4 tonn af yatni, sem þau eima úr soðinu. Mestu afköst eru 10 tonn af soði é klst. Tækin taka við öllu soði, gem til fellur í verksmiðjunni og eima úr því vatn, þar til þurr- efnismagn soðsins, sem í upp- hafi var ca. 6% er komið upp I Ca. 40%. Þegar eimingunni er lokið, er soðið orðið að þykkt- fljótandi mauki eða soðkjarna eins og það er kallað. Soðkjarn- Bnum er síðan blandað saman við pressukökuna á leið hennar í þurrkarann og blandan. síðan þurrkuð og möluð á venjulegan hátt. Mjölið, sem þannig fæst, gengur undir nafninu heilmjöl. Það er að sumu leyti verðmæt- Bra sem fóður en venjulegt síld- Br- eða karfamjöl, liggur munur- Inn einkum í því, að heilmjölið Inniheldur mun meira af vita- mínum af B flokki og öðrum nær ingarfræðilega mikilvægum efn- Um. í Noregi hefir heilmjöl til Skamms tíma verið selt á innan- landsmarkað á hærra verði en yenjulegt mjöl, hins vegar mun þessa verðmunar ekki gæta, þeg- Br um útflutning er að ræða. FULLKOMIN VERKSMIÐJA I Síðan eimingartækin voru tek- In í notkun hefir verið unnið í |>eim karfasoð og einnig soð frá þorskfiskbeinum. Hafa tækin reynzt í alla staði vel og vinnslan gengið vandræðalaust. Þess má geta, að soð frá þorskbeinum hef- ir ekki áður, það vitað er, verið eimað i tækjum af þessu tagi. Við vinnslu þorskbeinasoðsins hafa ekki komið fram neinir tæknilegir erfiðleikar umfram þá, sem fylgja eimingu annarra soðtegunda. Forstjóri Lýsis og Mjöls h.f. er Olafur Elíasson og verksmiðju stjóri er Jón Sigurðsson. Hafa þeir ásamt stjórn fyrirtækisins endurbætt verksmiðjuna eins og frekast er kostur, og gert hana með dugnaði sínum, að fullkomn ustu verksmiðju sinnar tegund- ar hérlendis. — G. Athugun fer fram á öruggu lægi fyrir „Hæring“ utan hafuariimar Félik traust PARÍS 7. jan. — Stjórn Laniels hefur fengið traust . franska þingsins. Atkvæðatölurnar voru 319:249. Var þessi atkvæðamunur meiri nú en búizt hafði verið við, og er ástæðan sögð sú, að meiri hluti þingmanna hafi ekki vilj- að taka á sig þá ábyrgð, að verða valdir að stjórnarkreppu fyrir Berlínarfundinn. •—Reuter. í SAMBANDI við umræðurnar á bæjarstjórnarfundi í gær um flutning Hærings úr höfninni, hófu fulltrúar minni hlutaflokk- anna árásir sínar vegna kaupa Hærings. Jóhann Hafstein tók til máls og sagði m. a., að rétt væri að rifja upp nokkur atriði í sam- bandi við kaup Hærings: 1. Þegar hinar miklu síldar- göngur komu í Hvalfjörð og Kollafjörð töldu allir höfuðnauð- syn að koma upp síldarverk- smiðju sem væri tilbúin að ári. 2. Síldarbræðsluskipið Hæring- ur var tilbúinn til vinnslu með þessum stutta fyrirvara. 3. Að kaupum skipsins unnu erlendis þeir Jón Gunnarsson, verksmiðjuverkfræðingur og Ól- afur Sigurðsson, skipaverkfræð- ingur. 4. Skipið er að vísu gamalt, en var endurbyggt af ameríska flot- anum 1944-—45 og notað sem við- gerðarstöð með Kyrrahafsflotan- um. 5. Kaupverðið á þessu 9000 tn. skipi var sama og á miðlungs fiskiskipi hér. Kostaði það heldur minna en endurbyggingin á Sæ- björgu — eða 1.2 milij kr. 6. Skipið endurbyggt og með fullbúinni síldarverksmiðju reiðu búið til vinnslu kostaði 10—11 millj. kr. Svipaðar verksmiðjur höfðu þá nýverið verið byggðar á Siglufirði og Skagaströnd fyrir um 20 millj. króna. 7. Þegar Hæringur kom hingað voru blaðamönnum látnar í té fyllstu upplýsingar um skipið og kosti þess sem verksmiðjuskips. Þá fluttu öll blöðin vinsamleg ummæli um Hæring og byggingu verksmiðju í skipinu. 8. Ásakanir á forráðamenn og skipið hófust fyrst, þegar síldin brást. 9. Það er ástæða til að vera mjög þakklátur þeim Jóni Gunn- arssyni og Ólafi Sigurðssyni fyrir þau ágætu störf, haldgóðu þekk- Sérstök afmælisnefnd hefir annazt skipulagningu hátíða- haldanna hér í Reykjayík, og ræddi hún við blaðamenn í gær. Formaður nefndarinnar er Sverr- ir Jónsson, stórkanzlari, en aðr- ir í henni eru: Guðmundur G. Hagalín, Páll Jónsson, Lára Guð- mundsdóttir og Ólafur Hjartar. GUÐSÞJÓNUSTA OG HÁTÍÐARFUNDUR Sunnudaginn 10. janúar kl. 2 verður hátíðarguðsþjónusta i Dómkirkjunni. Séra Kristimv Stefánsson, fyrrverandi stór- templar, prédikar og séra Óskar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, þjónar fyrir altari. Guðsþjón- ustunni verður útvarpað. Kl. 4 e. h. hefst hátíðarfundur í Stórstúku íslands í Góðtempl- arahúsinu, en þar verður flutt sérstök hátíðardagskrá og er öll- um Góðtemplurum heimill að- gangur að þeim fundi. HÁTÍÐARFUNDUR ÞINGSTÚKUNNAR Miðvikudaginn 13. janúar verð ur hátíðarfundur í Þingstúku Reykjavíkur í Góðtemplarahús- ir.u. Verður þar flutt dagskrá, sem er sérstaklega helguð starfl Góðtemplarareglunnar hér i Reykjavík. Er ráðgert, að sá fundur verði opinn fyrir alla, bæði reglufélaga og aðra, sem ingu og dugnað, sem þeir sýndu við kaup Hærings og byggingu síldarverksmiðju í skipinu. Aðr- ir þeir, sem unnu að þessu máli, lögðu sig allir fram af einlægni Og samvizkusemi. 10. Ef nokkur síldveiði hefði orðið, þegar Hæringur var til- búinn til vinnzlu, þá hefði þessi framkvæmd margborgað sig á 2 —3 vikum með því verðlargi, sem þá var á sildarafurðum. Mikil atvinna og arðvænleg hefði skap- azt fyrir almenning. Jóhann Hafstein rakti þannig ýms meginatriði í sambandi við kaup „Hærings", en allt það mál hefur á síðustu tímum verið. hul- ið í þoku áróðurs þeirra, sem fylgdu því fast að skipið yrði keypt, eftir að síldarvonirnar brugðust og er sá ef'árleikur rauðu flokkanna jafn illa til fundinn og hann er rætinn. Borgarstjóri átaldi harðlega hinar ómaklegu árásir kommún- ista og Þórðar Björnssonar á Jó-|t>anáað vilja koma. Að öðru leyti hann Hafstein. Allir bæjarfull-í™1111 dagskrá fundarins auglýst trúar og þorri bæjarbúa hefði.Slðar- verið á einu máli um það 1948, SAMSÆTI 17. JANÚAR að nýja síldarverksmiðju þyrfti. Sunnudaginn 17. janúar verð- að fá sem skjótast, vegna Hval-'ur svo samsæti í Sjálfstæðishús- fj arðarsíldarinnar og að nærtæk- inu. í samsætinu ast og hentugast yrði að fá fljót- sérstök verður afmælisdagskrá, flutt sem Frsmboðslisti Sjálfstæðismanna í Kópavogshreppi lagður fram FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogshreppi samþykkti í fyrrakvöld á fundi sínum framboðslista Sjálfstæðismanna við hreppsnefndarkosningarnar, sem fram eiga að fara 31. jan. n. k. Áður hafði fram farið prófkosning um val manna á listann. Var hún lögð til grundvallar við röðun hans. 1. Jósafat Líndal skrifstofustjóri. 2. Arnljótur Guðmundsson lögfræðingur. 3. Jón Sumarliðason bifreiðaeftirlitsmaður. 4. Gestur Gunnlaugsson bóndi. 5. Sveinn S. Einarsson verkfræðingur. 6. Baldur Jónsson framkvæmdarstjóri. 7. Guðmundur Egilsson loftskeytamaður. 8. Gunnar Steingrímsson verkstjóri. 9. Vilberg Helgason vélsmíðameistari. 10. Jóhann Schröder garðyrkjumaður. Mikill áhugi ríkti á fundinum fyrir að vinna ötullega að sigri listans. andi verksmiðju. Nefnd frá ýms-| verður í aðalatriðum sem hér um aðiljum, undir ötulli for- segir: mennsku Jóhanns Hafstein hefði | Hátíðin sett af formanni af- komið á fót þessari fljótandi síld- mælisnefndar, Sverri Jónssyni, arverksmiðju á ótrúlega stuttum stórkanzlara, sem jafnframt mun tíma. Ef síldin hefði haldið áfram að koma í Hvalfjörð hefði Hær- ingur borgað stofnkostnað sinn á stuttum tíma, og orðið mikil búbót fyrir bæinn og þjóðina alla, þá hefði sérhver sanngjarn mað- ur hlotið að þakka Jóhanni fcr- göngu hans og dugnað. En fyrst síldin brást og Hæringur fékk ekki verkefni fremur en aðrar síldaverksmiðjur víðsvegar um land, þætti þessum bæjarfulltrú um og málgögnum þeirra sér sæma að hrakyrða Jóhaim fyrir atorku hans við öflun þessarar verksmiðju. Slíkar ádeilur væru ómaklegar og lítilmannlegar. Pétur Sigurðsson bæjarfulltrúi skýrði frá, að stjórn Hærings, hafnarstjóri Og vátryggjendur Hærings hefðu átt ítarlegar við- ræður að undanförnu um það, hvernig Hæring yrði komið í ör- uggt lægi utan hafnarinnar, og mundu þessi mál vafalaust koma til kasta hafnarstjórnar næstu daga. Með tilvísun til þess var sýn- ingartillögu frá kommúnistum um athugun á lægi Hærings vís- að til hafnarstjórnar. Ræða fyrirkomulag BERLÍN 7. jan. — Hernáms- stjórnir Bandaríkjanna, Breta, Frakka og Rússa í Bc"1'' komið saman til funda: til þess að ræða fyrirs. Berlínarráðstefnunnar, þi utanríkisráðherrar fjórveldanna mæta til fundar 25. jan. n. k. stjórna samsætinu. Stórtemplar, séra Björn Magnússon prófessor, flytur ræðu um störf og stefnu Góðtemplarareglunnar. -Samieik- ur á fiðlU og píanó, Ingvar Jón- asson og Fritz Weisshappel leika. Indriði Indriðason rithöfundur flytjur erindi. Mun erindi hana fjalla um ýmis atriði úr sjötítt ára starfssögu Góðtemplararegl- unnar hér á landi. Söngfélag I. O. G. T. mun syngja undir stjórn Ottós Guðjónssonar. Maríus Ólafsson skáld, mun lesa afmælisljóð, sem hann hefur orkt. Guðmundur G. Hagalín, rit- höfundur, les nýsamda smásögu. Nokkrir gestir flytja stutt ávörp, og að lokum verður dansað tií kl. 2 eftir miðnætti.__ Listi Sjálfsiæðis- ! manna í Nes- kaupstað * 1 2 3 4 5 6 7 8 9 NESKAUPSTAÐ, 7. jan. — Fram boðslisti Sjálfstæðismanna hér hefir verið birtur- og eru efstu. menn hans þessir: 1. Jóhann P. Guðmundsson, húsgagnameistari, 2. Reynir Zoega, vélsmíðameistari, 3. Her- bert Þórðarson, skipstjóri, 4. Björn Björnsson, framkv.stj., 5. Gunnar Guðmundsson, málra- ste/pu eistari, 6. Karl Karlsson, "'ík ->p; >aður, 7. Kristín Magnús- '• iíir. hjúkrunarkona, 8. Þórar- | ínn Guðmundsson, vésmíðameist- era ari 9. Tómas Zoega, sparisjóðs- forstjóri og 10. Jón Sigfússon, skattstjóri. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.