Morgunblaðið - 09.01.1954, Side 11
Laugardagur 9. janúar 1954
MORGVTSBLAÐIÐ
11
I hverra þjóiuistu er Skipaútgerðin?
SENNILEGA hefur aldrei nokk-
urt fyrirtæki á fslandi sýnt við-
skipta„vinum“ sínum ófyrirgef-
anlegri ókurteisi og tillitsleysi en
Skipaútgerð ríkisins hefur gerzt
— Bókmennlir
Framh. af bls. 10.
Sókrates. Þess utan er þar ýmis-
legt um gríska siði og menn-
ingu. Frásögnin er frábærlega
lifandí, skemmtileg og fræðandi
og lýsir merkilega næmum
persónulegum skilningi höf. á
efninu.
Síðari bókin „Hellenismen“ er
komin út á þessu ári. Er það
stytt útgáfa af fyrnefndu verki,
n.iklu auðveldara og aðgengi-
legra en hið fyrra. — Þó að við
værum áður látnir hafa í grísku
hvorki meira né mjnna en 5
kennslutíma í viku í 5 ár, þá var
uppskeran fremur léleg. Við lás-
um að vísu nokkur grísk sögu-
rit, skáldrit og leikrit, en feng-
um samt enga góða heildarmynd
af hellenskum hugsunarhætti né
menningu yfirleitt, ekki heldur
neinn réttan samanburð við aðr-
ar menningar. — Miklu frekar
var okkur innrætt að einmitt hér
væri að leita hinnar einu sönnu
menningar — hinnar einu réttu
fyrirmyndar í speki, skáldskap og
list — það sem ekki samrimaðist
hellenísmanum væri villa, afvega
leiðsla og barbarismi eins og
Grikkír orðuðu það sjálfir.
Bækur GrÖnbechs opna lesand-
anum víðari sýn. Þær sýna að
hellenisminn var í rauninni
blönduð menning, sem vegna
glæsileika síns var gædd geysi-
íegum áhrifamætti en var ein og
út af fyrir sig ófullnægjandi og
jafnvel hættuleg — eins og hún
og reyndist Grikkjum sjálfum.
En svo runnu undir hana sterkari
stoðir, hin rómverska raunsæi,
ísraelisminn og kristnin, sem
hafa fleytt henni fram á vora
daga. — Má og segja að þótt
ýmsar stefnur sæki nú fram við
hlið hellenismans, svo sem t. d.
ýmsar austrænar stefnur og
Marxisminn, þá standi hann enn
stöðugur — ef ekki beint sem
sama fyrirmyndin og áður, þá
a. m. k. sem klassiskt siglinga-
merki og við miðum við hlið
vorrar eigin fornnorrænu menn-
ingar. H. J. |
sek um í sambandi við ferðir
til Vestfjarða fyrir og eftir ára-
mót 1954. Þessar ferðir eru mik-
ið notaðar af skólafólki og öðr-
um, sem heimili eiga á Vestfjörð-
um og dvelja vilja þar í jólaleyf-
inu. Skyldi maður því álíta, að
ferðirnar væ'u að einhverju
leyti skipulagðar með tilliti til
aRs þessa fóíks og vel auglýstar.
Seinasta ferð vestur fyrir jól var
auglýst 15. des. með Esju. Þótti
mörgum það rokkuð snemmt, en
fóru samt, meira að segja pláss-
lausir, því að skipið var yfirfullt. |
Nokkrum dögum síðar er Hekla
send til Vestfjarðahafna,- öllum
á óvart, sem notað höfðu ferð
Esju.
Nú mun engum hafa verið Ijós-
ari nauðsvn þ°ss, en forráða-
mönnum Skipaútgerðarinnar, að
fólkið, sem flutt hafði verið út á
land fyrir jól á þeirra vegum,
þurfti að komast til Reykjavíkur
aftu” strax um áramótin. Varla
hafa þeir búizt við að allt þetta
fólk væri að flvtjast búferlum.
Fvrsta ferð að vestan er þannig
skipulögð, að til vinnu sinnar
komast menn ekki fyrr en um
helgina 10. janúar, eða réttri viku
seinna en nauðsynlegt var. Er þá
Skipaútgerðin búin að gefa við-
skipta-„vinum“ til Vestfjarða 26
daga jólafrí.
Ef þetta nægir ekki til að sýna
fram á fávíslega stjórn Skipaút-
gerðar ríkisins, vil ég benda á
skinaáætlun þeirra fyrir árið
1953. Samkvæmt henni hring-
snúast „kopparnir“, Skjaldbreið
og Herðubreið oftast kringum
landið á sama tíma og stærri
skipin eru á ferðinni.
Það er ósk mín, að þeim mönn-
um, sem vilja afnám Skipaút-
gerðar ríkisins, takist það áður
en árið 1954 er liðið, en ábyrgum
aðilum verði falinn rekstur skip-
anna til hagsbóta fyrir alla ís-
lendinga.
II. S.
Nýr yfirmaSar A-banda-
!arsins í SyBur Evrópu
PARÍS, 8. jan.: — Bandaríski
hershöfðinginn Paul W. Kendall
hefur tekið við yfirstjórn her-
sveita Atlantshafsbandalagsins í
Suð-austur Evrópu. Kemur hann
í stað Wymans hershöfðingja.
— Reuter.
IVIagnús Jónsson
Seyðisfirði
— IVfiraning —
MAGNÚS JÓNSSON var til
moldar borinn 28. nóvember síð-
astliðinn, frá Seyðisfjarðarkirkju.
Magnús v'ar fæddur í Austdal í
Seyðisfirði hinn 6. október árið
1900, sonur Jóns Jónssonar bónda
þar og konu hans Guðrúnar Ein-
arsdóttur. Voru þau 6 systkinin,
2 drengir Magnús og Einar, nú í
Mjóafirði, og systurnar 4 Mar-
grét í Mjóafirði, Sigríður og
Sveinrún í Keflavík og Sveibjörg
í Reykjavík. Allt er þetta táp-
mikið og gott fólk, enda á það
til góðra að telja í báðar ættir.
Barnungur fluttist Magnús með
foreldrum sínum inh í kaupstað
á Seyðisfirði og átti þar heima
æ síðan. 14 ára gamall byrjaði
hann sjómennsku á ýmsum bát-
um og kom fljótt í ljós að hann
var dugandi og glöggur sjómað-
ur. Formennsku tók hann að sér
ungur að aldri og varð aflasæll,
heppinn og ábyggilegur til orðs
og verka. Siglingafræði nam
hann sem veitti honum rétt til
skipstjórnar á minni mótorskip-
um og var hann um margra ára
skeið skipstjóri eða stýrimaður.
í nokkur ár fékkst hann við út-
gerð, en hætti því og seldi bát-
inn, sem þá var of lítill í sam-
keppninni á vetrarvertíðum.
Magnús var dulur á allt sem hann
gerði vel og eru þess mörg dæmi,
en hér skal eitt tilfært sem ég
veit um, enda var ég sjómaður
hans í mörg ár. Eitt sinn er hann
var ungur að aldri var hann á
sjó í vondu veðri og sá þá for-
manni sínum hugfallast, tók
Magnús þá vig stjórn á bátnum
og stýrði honum heilum til hafn-
ar. Þetta eða ánnað þessu líkt
vildi hann aldrei tala um. Eins
og áður segir var ég með Magnúsi
í mörg ár og var með okkur
alltaf hin mesta vinátta og reynd
ist hann mér ávallt sem góður
bróðír, Árið 1947 kom togarinn
ísólfur hingað og varð Magnús
þá bræðslomaður á honum og
leysti haim þann starfa af hendi
með þeirsní trúmennsku og snyrti
mennsku, Ef;m var sérstaklega
einkennsoS fyrir hann. Enda
var harna vmnugefinn og undi
sér aldi-eá fe’sið.dar. Hinn 21. nóv.
barst méx í:ú harmafregn að
Magnús væsrálátinn og var hjarta
bilun dauSaEBSEÍn hans. Hann varð
aðeíns 53 en eftir hann ligg-
ur mikíS va-'i; og óbrotið, nálægt
40 ára sjéwamnska.
Eftírli&BseSi konu sinni, Vig-
fúsínu E5@Enadóttur, kvæntist
Magnús á-nál 1928 og eignuðust
þau 6 börsu en misstu tvö ung.
Var það jþeim hjónum mikill
harmur. Þrjú barnanna sem eft-
ir lifa eru uppkomin, en það
yngsta er 11 ára, eru þau öll
mannvsenleg og bera vott um
gott heimili.
Mér eru minningarnar um
Magnús allar bjartar og hlýjar
og styrkur að þeim í sorginni og
um leið og ég þakka honum fyrir
allt, bið ég honum guðsfriðar og
blessunar. Ég bið algóðan guð að
blessa og styrkja konu hans og
börn í sorg þeirra,
i H. E,
AlfskóRpriitn og droffningin
Milli 4000—5000 manns voru á íþróttavellinum í fyrrakvöld er efnt
yar þar til brennu og álfadans. Hér að ofan er Álfakóngurinn
(Ólafur Magnússon frá Mosfelli) og Álfadrottningin (frú Unnur
Eyfells), með Álfaprinsessuna á milli sín. Hirðmeyjar standa til
hliðar við hásætin. — Fyrir blysförinni kringum völlinn, sem
rúmlega 100 blys voru borin í, fóru menn á „grímuklæddum"
hestum. (Ljósm. Mbl. G. R. Ó.)
Hæsta og lægsta smásöliiverð ýmissa
vörutegunda
HÆSTA og lægsta smásöluverð ýmissa vörutegunda í nokkrum
smásöluverzlunum í Reykjavík reyndist vera 1. þ. m. sem hér
segir:
Vegið
Lægst Hæst meðalverð
kr. kr. kr.
Rúgmjöl pr. kg. 2,30 3.10 2.65
Hveiti — — 3.15 3.65 3.52
Haframjöl — — 2.95 3.30 3.18
Hrísgrjón — — 4.95 7.00 6.29
Sagógrjón — — 5,25 6.35 5.44
Hrísmjöl — — 4.10 6.70 6.16
Kartöflumjöl — — 4.55 4.75 4.70
Baunir — — 5.00 6.00 5.52
Kaffi, óbrennt — — 26.00 28.10 26.76
Te, Vs lbs. pk 3.10 3.95 3.69
Kakao, % lbs. dós 7.20 8.95 8.37
Molasykur — — 4.20 4.50 4.33
Strásykur — — 3.40 3.50 3.40
Púðursykur — — 3.20 6.00 3.69
Kandis — — 5.75 6.70 5.95
Rúsínur — — 11.00 11.90 11.50
Sveskjur 70/80 — — 16.00 19.00 17.40
Sítrónur — — 9.70 12.25 11.05
Þvottaefni, útlent pr. pk. 4.70 5.00 4.84
Þ\ottaefni, innlent .... — — 2.85 3.30 3.10
Á eftirtöldum vörum er sama verð í öllum verzlunum.
Kaffi brennt og malað..................pr. kg. 40.60
Kaffibætir....................................14.75
Suðusúkkulaði ................................53.00
Mismunur sá er fram kemur á hæsta og lægsta smásöluver'ði.
getur m. a. skapast vegna tegundamismunar og mismunandi inn-
kaupa.
Skrifstofan mun ekki gefa upplýsingar um nöfn einstakra verzl-
ana í sambandi við framangreindar athuganir.
(Frá skrifstofu verðgæzlustjóra).
Hvar er Neskirkja?
FYRIR nokkrum árum gekk sú
skopsaga manna á milli að ein
ákveðin sóknarnefnd hefði verið
svo gersamleg týnd og gleymd
að sóknarprestur hefði séð sig
tilneyddan að lýsa eftir henni við
messugerðir og að vísu haft upp
á henni eftir nokkrar „lýsingar".
Næsta sagan sem maður heyrði
um þessa sóknarnefnd var sú að
hún væri farin að undirbúa bygg-
ingu í einhverjum sandgryfjum
á Grímsstaðaholti og ætlaði að
kalla þá byggingu „Neskirkju".
„Margt er sér til gamans gert“
og oft er erfitt að átta sig á hvað
satt er í slikum sögum. — Eftir
blaðafregnum síðustu daga að
dæma, virðist þó seinni sagan
vera á rökum reist. Þar er sagt
að þessi „Neskirkja“ sé risin af
grunni og orðin fokheld.
Sá háttur hefur verið hafður á
kirkjumálum í Reykjavík og ná-
grenni nú undanfarið, að sóknir
hafa verið stofnaðar og prestur
skipaður. án þess að til væri
prestsetur eða kirkja. Minnir
slíkt háttalag helzt á að verið sé
að ráðstafa umferðasala með
torgsölu. Kirkjubygging þessi á
eðlilega að bæta úr brýnni þörf
safnaðar, sem er kirkjulaus og
er því í alla staði sjálfsögð og
nauðsynleg. En að kalla hana
„Neskirkju" er í fyllsta máta
rangt, bæði vegna sinnar stað-
setningar og frá sögulegu sjónar-
miði séð.
Neskirkja var til og er alkunn
af sögum og sögnum. Hún var
alla tíð að Nesi við Seltjörn og
stóð þar í fimm aldir, eða nálægt
því. Hún var sóknarkirkja Sel-
tirninga, auðug að löndum og
lausum aurum og um einn tíma
var hún eini viti sjómanna við
Faxaflóa. Hún stóð á háum og
fögrum stað þar sem útsýni var
mikið hátt til lofts og vítt til
veggja. Um aðra Neskirkju er
ekki að ræða hér um slóðir og
kirkjubygging sú sem nú er upp
risin getur ekki heitið því nafni.
Réttast væri að kenna hana við
melana og kalla hana Melakirkju,
sbr. Melaskóla, sem er rétt hjá
henni.
Um staðsetningu kirkjunnar að
öðru leyti mætti að vísu margt
segja, því staðurinn er að flestu
leyti illa valinn fyrir kirkju. Það
verður þó ekki gjört hér, en á
það má þó benda að í næsta ná-
grenni hennar er kirkja (kapella
Háskólans) og hinn myndarlegi
1 Melaskóli, þar sem guðsþjónust-
, ur geta farið fram í báðum stöð-
' um. — Kirkjan stendur lágt og
i verður eins og smákófi innan um
þær stórbyggingar, sem eru og
. verða reistar allt í kringum hana.
Seltirningar hafa verið kirkju-
lausir í hálfa aðra öld, eða síðan.
Neskirkja var lögð í eyði. Þeir
| hafa allan þann tíma oroið að
sækja kirkju til Reykjavíkur. —
Þessi nýja kirkja getur aldrei
orðið þeim Neskirkja, því auk:
þess sem þeir geta ekki viður-
kennt nafn hennar, er þeim
miklu erfiðara að sækja hana en
aðrar kirkju bæjarins. Hún er
nefnilega það merkilega illa stað-
sett fyrir sóknarfólk hinnar
gömlu Neskirkju að engar áætl-
unarferðir milli Seltjarnarness
og Reykjavíkur liggja nálægt
henni.
Guðm. Illugason.
HJÁLPARBEIÐNI 1
HÉR í bæ eru hjón, sem undan-
farna máriuði hafa átt við mjög
erfiðar ástæður að búa.
Heimilisfaðirinn varð að hætta.
vinnu og ganga undir uppskurð
í júnímánuði. Átti þetta ekki að
taka langan tíma, en svo fór, að
skurðurinn hafðist illa við og
þótt sjúklingurinn sé nú á fótum
er skurðurinn ekki gróinn og þvi
ekki um að ræða að hann megi
ganga til vinnu.
Börnin eru sex, það elzta lft
ára og það yngsta 1 og Vi árs og
hefir það verið mjög veikt nú.
um skeið. Fjölskyldan hefir feng-
ið úr tryggingum en fram að
þessu ekki leitað annarar hjálpar.
Ástæðurnar eru nú mjög bág-
ar, en ef vel yrði tekið í þessa
hjálparbeiðni, gæti það e. t. v.
fleytt fjölskyldunni, þar til heim-
ilisfaðirinn gæti aftur farið að
vinna, sem vonir standa til.
Morgunblaðið hefir góðfús-
lega lofað að veita viðtöku þeirri
hjálp, er kynni að berast.
Garðar Svavarsson. j