Morgunblaðið - 09.01.1954, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.01.1954, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 9. janúar 1954 HAFNARFIRÐI — Síðastliðinn þríðjudag hófst firmakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. 64 firmu taka þátt í keppninni. — Eftir fyrstu umferð hefur Dröfn (Hilmar Ágústsson) flest stig, næst er Landleiðir (Hörður Guð- mundsson), þá kemur Kaupfélag Hafnarfjarðar (Reynir Eyjólfs- son), fjórða í röðinni er Bæjar- bíó (Jón Einarsson), og fimmta firmað er Jón og Þorvaldur (Sævar Magnússón). - Tunglið Framh. af bls. 9. uðu hann sem miðunarpunkt. Loks sýnir Schmidt, er var fræg- asti tunglfræðingur sins tíma þennan gig á 6 Uppdráttum á ár- unum 1841—1843. Svo er það 16. okt. 1866 að Schmidt þessi er að athuga Mare Serenitatis Og rekur augun allt í einu í það, að Linné er horf- inn. Þar sem áður var stór djúp- ur gígur, var aðeins lítill ljós- depill. Geta má nærri, að nú varð uppi fótur og fit og stjörnu- kíkar athugenda um víða veröld beindust nú að Linné, og á næstu árum voru gerðir fjöldi upp- drátta af þessu fræga fjalli. Ár- angurinn varð ekki nákvæmlega sá sami hjá öllum, en eitt var víst að Linné var horfinn. Það voru allir sammála um. í stað hans var kominn hvítur blettur, misstór, og í honum var eitthvað sem erfitt var að greina hvað var, stundum lýst sem smágíg, stund- um sem hæð. Athuganir með öflugum stjörnukíki 1953 sýna að þarna er nú hvelfing með smá- gíg en djúpum. En hvað var það sem skeð hafði? Hvað varð þess valdandi að 9,6 km gígur 330 m eða meir á dýpt hverfur af yfirborgi tungls ins á minna en 25 árum. Ýmsar getgátur hafa verið leiddar að ástæðum. Eins og áður getur eru geysimiklar hitabreyt- ingar á tunglinu, en þær valda samdrætti og þenslu á víxl. Gera má því ráð fyrir að grjótið þar smáflísist eins og á jörðinni. Þó dregur það mjög úr, að enginn raki er þarna og ólíklegt að þessi sé orsökin. Stungið hefur verið upp á að loftsteinar hefðu getað valdið. Ekki er það ómögulegt, en þó mjög sérstæð tilviljun að loftsteinn hitti svona í mark, eina gíginn á stóru svæði. Hitt álíta þó margir sennilegast að tungl- skjálfti (sbr. jarðskjálfti) hafi Orðið. Myndi hann þá eiga rót sína að rekja til innri afla, Og hafa verið nægilega öflugur til að valda hruni gígsins. Hver svo sem orsök þessa gíghvarfs er, þá sannar hún að tunglið er ekki alveg eins „dautt“ og haldið var um árabil og að „hlutir“ gerast uppi þar. Ýmsar minni háttar breyting- ar og fyrirbæri hafa menn séð á tunglinu, sem erfitt er að skýra og sennilegt að ekki fáist fullur skilnmgur á þeim, fyrr en menn geta farið til tunglsins og fram- kvæmt rannsókn á staðnum, og óvíst að það verði svo íkja langt þangað til að það geti orðið. — Þorskaflinn í vetur Framh. af bls. 5. liin árlega rýrnun hvorki meira né minna en 59%. Má af því ráffa að fullgildar ástæður voru fyrir því aff reyna aff draga úr þeim ágangi sem stofninn varff fyrir. ÞORSKURINN Á NÆSTU VERTÍÐ TILTÖLULEGA UNGUR En hvað getur þú sagt mér nánar um spá þína fyrir vertíðina í vetur? Veiðin mun aðallega byggjast á níu ára gömlum fiski. Af þeim aldursflokki munu verða um 34% af veiðinni þ.e.a.s. af þorski sem runninn er frá klakinu 1945. 12% af veiðinni mun verða 7 ára þorskur, 10% 8 og 10 ára af hvorum um sig. 67% af þorskin- um verffur á aldrinum 7—10 ára. En ekki nema rúmt 1% verffur eldra en 12 ára. Meffalaldurinn verður um 8XA ár effa rúmlega hálfu öðru ári lægri aldur en meðalaldur þorsks almennt, því elztu aldursflokkarnir verffa aff þessu sinni dottnir alveg úr sög- unni. Frá fiskifræffilegu sjónarmiði er þaff mjög áberandi hve naikiö er af „nýliffum“ þ.e.a.s. af þorski, sem kemur til hrygninga í fyrsta skipti í vetur. Verffa þaff um 64%. En aff meffaltali eru þeir, eða hafa veriff á undanförnum árum, 38% af stofninum. Nú er það staðreynd, segir Jón, að „nýliðarnir" koma seinna á hrygningarstöðvarnar en eldri aldursflokkarnir. Venjulega gera þeir ekki vart við sig að neinu verulegu leyti fyrr en komið er fram í marz. Gæti þetta bent til þess, að seinni hluti vertíðarinn- ar yrði mun betri eða aflasælli en byrjunin. Þetta er þó annars lausleg tilgáta mín. En eldri fisk- urinn er venjulega miklu meira áberandi í byrjun vertíðar, en af honum er nú mjög lítils að vænta. Árgangurinn frá 1942, sem bar uppi veiðina 1950—52, er nú úr sögunni að heita má. En af hon- um er aðeins að vænta 6% af aflanum. Árgangurinn frá 1945 er veiðin mun aðallega byggjast á, er ekki mjög sterkur. Hann er hér aðeins áberandi vegna þess, hve stofninn sem heild er rýr. Viff getum því búist viff að afl- inn í róðri verði mun meiri en í fyrra, ef gæftaleysi hindrar ekki veiðina á þeim tíma, þegar mest- ur þorskur er í sjónum. Venjulega er gott samræmi milli þess afla sem á land berst og þess fiskimagns sem er í sjón- um, en þó getur þjóðfélagsieg og veðurfarsleg vandamál stundum gert strik í reikninginn, en að sjálfsögðu getum við fiskifræð- ingarnir ekkert sagt um þá hluti. V. St. - Æskulýðssíða Framh. af bls. 7. S.I. haust var uppskera þeirra bræffra tæpar 100 þús. tunnur, — effa um helmingur allrar kartöfluuppskeru hér á landi á árinu sem leiff. Allt er gert til þess að kartöfl- urnar líti sem bezt út — verði góð söluvara — og í því skyni eru þær m.a. vaxbornar. Þá eru vélar mjög notaðar við uppsker- una, kartöflurnar eru fluttar á færiböndum upp á bílana og síð- an eru þær settar í rennur, sem bæði þvo þær og flokka. Ekki þarf að þurrka þær sérstaklega, því að loft er látið leika um þær, á meðan þær eru á færiböndun- um. — Á vorin eru kartöflurnar skornar í sundur og á útsæðis- kartöflunum eru aldrei fleiri en tvö augu. Með því móti er unnt aff koma í veg fyrir of mikiff af smælki. m ÞAR ER GOTT AÐ VERA I Islendingabyggðunum vestan hafs er gott að vera. Hvergi höf- um við orðið varir við meiri hlýju og gestrisni, enda hafa ís- lendingarnir fýrir vestan mikinn áhuga á „gamla landinu" og öllu sem íslenzkt er. Og ótrúlegt er, hvað íslenzkan helzt enn í fs- lendingabyggðum N.-Dakota. X— □— X Að lokum langar okkur til að segja þetta: — Við erum þakk- látir fyrir að hafa fengið tæki- færi til að komast út fyrir land- steinana og kynnast landbúnaði í Bandaríkjunum. Slíkar kynnis- ferðir eru til mikils gagns, því að vitaskuld getum við íslendingar mikið lært af öðrum þjóðum í landbúnaðarmálum. — Nánari kynni af landbúnaði annarra þjóða eru ekki hvað sízt nauð- synleg vegna þess að þau sýna okkur, að hér er enn margt ó- gert á sviði landbúnaðar, — mikil verkefni biða þeirra æskumanna, sem brjóta vilja íslenzkt land til aukinnar ræktunar þjóðinni til blessunar og heilla um alla fram- tíð. M® MRflllM í kvöld klukkan 9. DANSLEIKUB Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar. Aðgöngumiðasala frá kl. 7. — Ekki tekið frá í síma. Gömlu dansarnir í G. T.-húsinu í kvöld kl. 9. Sigurður Ólafsson syngur. Hljómsveit Carls Billich leikur. Sigurður Eyþórsson stjórnar dansinum. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6,30. Sími 3355. í Almennur dansleikur ■ ■ ■ í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9. ■ ■ ■ ; Hljómsveit Aage Lorange. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—6. Sjálfstæðishúsið. } ■’ ................*..............■■■■■■■■■■■■■■■■■■* Gömlu dusnrair að Þórscafé í kvöld kl. 9. Hljómsveit Jónatans Ólafssonar. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7. TJARNARCAFE 2) unó íeih u r í Tjarnarcafé í kvöld klukkan 9. Hljómsveit Joseps Felzmanns. Söngvari: Ragnar Bjarnason. Aðgöngumiðar seldir kl. 5—7. ■J ■4] -'D MARKtJS Eftir Ed Dodd --- Fallegar hendur geo illir haft. þón unnin séu daglcg hússtörl og þvottat Haidið höndunum bvtt- / 1) Ég veit það Gyða mín, að það verður ekkert skemmtilegt fyrir þig að hafa svona sveita- strák alltaf í kringum. þig. 2) — En pabbi þinn er forseti í klúbbnum, sem stendur fyrir samkomunni .... 3) .... svo að við verðum að taka á móti honum. 4) — En mamma, þetta er alveg hræðilegt. Að verða að sitja heila viku þolinmóð og hlusta á ein- hvern vitleysing rausa um fugla og fiðrildi. — Ég get aldrei hald- ið það út. ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.