Morgunblaðið - 09.01.1954, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 9. janúar 1954
SM€E FORSYTRNNM
- RÍKI MAÐURINN -
Eftir John Galsworthy — Magnú's Magnússon íslenzkaði
Framhaldssagan 22
Hún varð enn þungbúnari og
hann varð óstyrkur.
„Jæja, ég veit ekkert, það seg-
ár mér enginn neitt. En Soames
verður að sjá um sig. Geri hann
það ekki, þá gagnar það honum
ekki að koma eftir á til mín.
J>etta er mitt lokaorð".
Hann settist, beit í vísifingur-
inn og horfði hvasst og kuldalega
á tengdadóttur sína.
Hann veitti því eftirtekt, að
augu hennar dökk og djúp störðu
svo fast á hann, að það fór hroll-
ur um hann.
„Jæja, ég verð nú víst að
fara“, sagði hann eftir stutta
þögn og stóð upp með dálitlum
'undrunarsvip, eins og hann hefði
vænzt þess, að vera beðinn að
vera kyrr. Hann rétti Irenu hend
ina og lét þaS eftir sér að lofa
Itenni að fylgja sér til dyra. —
Hann sagðist engan vagn vilja,
«etla að ganga, bað Irenu að skila
kveðju til Soames, og ef hún
vildi létta sér eitthvað upp,
mundi hann aka henni til Rich-
mond einhvern daginn.
Hann gekk heim, rakleiðis upp
Ji loft og vakti Emily, sem var
nýsofnuð eftir að hafa ekki fest
iílund í heilan sólarhring, til
jþess að segja henni, að sér segði
.svo hugur um, að ekki væri allt
Kieð felldu hjá Soames. Um þetta
tæddi hann svo aftur og fram í
Tiálftíma og endaði ræðuna með
þvi að lýsa því yfir að hann
mundi ekki geta látið sér renna
i brjóst drykklanga stund Svo
liallaði hann sér á aðra hliðina
og hraut á sömu stufidu. —
Soames dvaldi um stund hjá
inálverkum sínum. Er hann gekk
fit úr herbergínu nam hann stað-
ar við stigann, þar sem hann sást
■ekki og athugaði Irenu, sem var
að lesa í sundur bréf, sem höfðu
ikornið með síðasta póstinum. —
Hann sá, að hún fór inn í dag-
.stofuna, en kom að vörmu spori
ut aftur og nam staðar, eins og
2iún væri að hlusta. Síðan lædd-
ist hún hægt upp stigann og hélt
á Rettling. Hann sá, að hún laut
aiiður að litlu dýrinu, sem hjúfr-
aði sig að hálsi hennar. Því leit
hún aldrei svona ástúðlega á
liánn?
Allt í einu kom hún auga á
hann og svipurinn á andliti
Iiennar breyttist.
„Eru nokkur bréf til mín?“
spurði hann.
„Þrjú“.
Hann vék til hliðar, þegjandi
gekk hún áfram og inn í svefn-
herbeigið.
SJÖUNDI KAFLI
SMÁSYNDIR JOLYONS
__ GAMLA
Þetta sama kvöld kom Jolyon
gamli út af Lords krikketvellin-
itri og hélt heim á leið, en hann
vkr ekki kominn lengra en að
Hamilton Terrace, þegar honum
ánerist hugur. Hann veifaði á
vagn og gaf ökumanninum upp
liúsnumer í Wistaría Avenue. —
3>etta hafði dottið í hann allt í
einu.
• June hafði verið lítið heima
alla vikuna. Það gat naumast
hcitið, að hann hefði séð hana
lím lengri tíma, eða siðan hún
trúlofaðist Bosinney. Hann bað
liana aldrei að vera hjá sér. Það
var ekki háttur hans að vera að
kvabba á öðrum. Hún var nú
.rneð hugann allan hjá Bosinney,
^ildi hann einan eftir í hinu
sSóra húsi hjá þjónustufólkinu,
og hann gat ekki talað við nokk-
íyai mann frá morgni til kvölds.
Klúbburinn hans var lokaður
vegna hreingerningar og starfs-
félagar hans í ýmsum nefndum
voru í sumarleyfum. Hann hafði
því ekkert viðbundið í City. —
June hafði stungið upp á því, að
hann færi eitthvað, en sjálf gat
hún ekki farið með honum, því
að Bosinney var í London,
En hvert átti hann að fara?
Einn gat hann ekki farið til meg-
inlandsins — sjóferð þoldi hann
ekki vegna lifrarinnar og hann
hafði viðbjóð á hótelum. Roger
ætlaði að vera sér til heilsubótar
í vatnslækningastofnun, en á
slíku ætlaði hann ekki að fara að
byrja á gamals aldri. Þessar ný-
tísku stofnanir voru hégóminn
einber.
Hrukkurnar í andliti hans
dýpkuðu og með hverjum deg-
inum sem leið varð augnaráðið
þunglyndislegra og stakk svo í
stúf við hið einbeitilega og höfð-
inglega yfirbragð hans.
Þetta kvöld ók hann um St.
John Wood. Sólin hellti geislum
sínum á litlu garðana og klipptu
akasíurnar fyrir framan húsin.
Hann gaf öllu í kringum sig glögg
ar gætur, því að þetta var sá
hluti Lundúna, sem enginn For-
syte fór svo um, að hann léti ekki
vanþóknun sína í ljós, sem var
þó forvitni blandin.
Vagninn nam staðar fyrir
framan lítið hús. Hinn sérkenni-
legi gulbrúni litur á því bar þess
merki, að langt var frá, að það
hefði verið málað.
Hann steig út úr vagninum
festulegur og tiginmannlegur,
höfuðið mikið, yfirskeggið sítt og
hvítur hárkragi undir óvenjulega
háum pípuhatti, augnaráðið var
fast og dálítið þykkjulegt. Hann
hafði blátt áfram verið rekinn
út í þetta.
„Er frú Forsyte heima?“
„Já, hún er það, hvern á ég að
kynna?“
Jolyon gamli gat ekki varist
því að brosa góðlátlega til litlu
þernunnar þegar hann sagði
nafn sitt. Honum fannst litla
skinnið vera svo. skrýtin.
Hann gekk á eftir henni inn
dimman gang inn í litla dagstofu,
með legubekk og stólum, fóðruð-
um • með lérefti. Litla stúlkan
bauð honum sæti.
Jolyon gamli settist í einn lér-
eftsfóðraða stólinn og litaðist
um. Allt var furðulega fátæklegt,
enginn húsmunur, að því er hon-
um virtist, fimm punda virði. Á
veggjunum, sem engin málning
hafði komið á árum saman,
hengu vatnslitamyndir. Stór rifa
var þvert yfir loftið.
Öll þessi litlu hús voru gömul
og illa byggð. Hann gat ekki
hugsað sér, að leigjan færi fram
úr hundrað pundum á ári. Það
kvaldi hann meira, en hann hefði
getað orðum að komið, að einn
af Forsytunum — sonur hans —
skyldi búa í þessu hverfi.
Litla þernan kom að vörmu
spori og spurði hvort herrann
vildi vera svo góður að ganga út
í garðinn.
Jolyon gamli gekk út um gler-
dyrnar. Þegar hann steig niður
þrepin í veröndinni, sá hann að
þau höfðu líka þörf fyrir máln-
ingu.
Jolyon yngri, kona hans, tvö
börn og hundurinn Balthazar,
voru öll hjá perutrénu.
Þessi ganga til þeirra var
mesta þrekvirkið, sem Jolyon
gamli hafði unnið um ævina, en
án þess að nokkur svipbrigði sæ-
ust á andliti hans gekk hann ró-
legur og einbeittur til þeirra.
Augun, sem lágu innarlega, viku
aldrei af óvininum.
Á þessum tveim mínútum birt-
ist hjá honum allt sem í honum
bjó af hinni algerlega ósjálfráðu
stillingu, jafnaðargeði og ein-
beitni, sem gerði hann og svo
marga aðra í stétt hans að kjarna
þjóðarinnar. Með því að greiða
úr málum sínum hógværlega og
látlaust og án þess að láta sig
nokkru skipta álit og hugsanir
annara, var hann tákn og ein-
kenni þess sérstaka persónuleika,
sem Englendingum er í brjóst
borin, og er hin eðlilega og óhjá-
kvæmilega afleiðing af hinni ein-
angruðu legu landsins.
Hundurinn Balthazar þefaði
BLÖM AÁST
3
Þessi kvenvera var töfrandi fögur, og ástúð og sakleysi
lýstu sér í svip hennar. Augun voru djúp og blá og endur-
spegluðu alla blómadýrð aldingarðsins.
„Eg er blómgyðjan. Nafn mitt er Flóra. Ég þekki líf og
eðli blómanna út í yztu æsar. Ekkert í heimi er mér kærara
en blómin. Eitt einasta smáblóm er dýrmætara í mínum
augum en öll auðæfi heimsins, því að líf þess bendir mér
á þau háleitu sannindi, að allt líf sé líf guðs.
Ég elska þá, sem elska blómin. Og því dýpri og hreinni
sem ást þeirra er, því meira legg ég mig í líma um að leið-
beina þeim og fá þá til að skynja og skilja huliðsmál blóm-
anna.
Vina mín. Ég elska þig innilega, af því að ást þín til
blómanna er svo heit og fölskvalaus, að ég hefi varla fundið
dæmi til annars eins. Margir elska blómin sökum fegurðar-
innar einnar eða ilmsins, en í því er ekki fólgin hin sanna
blómaást. Þú ert enn barn, og fegurðin heillar þig því mest.
En líf þitt er svo samgróið lífi jurtanna — samband þitt
við þær svo náið — að ekki getur hjá því farið, að sú stund
muni upp renna á æskuárum þínum, að þú elskir eitt grænt
smáblað jafnt og rósirnar rauðu. Það gera hinir sönnu vinir
mínir.
Sá, sem er svo innilega hrifinn af blómunum, að hann
skoðar þau sem beztu vini sína. er áreiðanlega gæfumaður,
og ekki einungis gæfumaður, heldur og góður maður. Er
það ekki líka takrnarkið, sem við eigum öll að keppa að?
¥öruhsippdrælti
§. í. i. S.
Umboð happdrættisins í Reykjavík og
nágrenni eru á eftirtöldum stöðum:
Austurstræti 9, sími 6004—6450.
Grettisgala 26, sími 3665.
Verzl. Roði, Laugaveg 74, sími 81808.
Bókaverzl. Sigv. Þorsteinssonar, Langholtsveg 74.
Bókabúðin Laugarnes, sími 7038.
Carl Hemming Sveins, Nesveg 51, sími 4973.
Vikar Davíðsson, Sjóvátryggingarfélag íslands.
Kópavogsbúðin, Borgarholtsbraut, sími 7006.
Bókabúð Böðvars Sigurðssonar, Hafnarfirði, sími 9515.
Næst síðasti söludagur í 1. flokki.
Ódýrt happdrætti.
Háir skattfrjálsir vinningar.
Ef þér viljið fá
Fegurri og
mýkri húð
þá notið
Savon
de Paris
Handsápu.
I
Ný íslénzk plata:
Ingibjörg
Þorbergs
syngur
BANGSIMON LÖG
LITLI VIN
Plata, sem öll börn d
9
hafa gaman af að eiga. 3
HIS MASTERS VOICE
Fálkinn
(hljómplötudeildin)
Gólfteppi
Fengum nokkur stykki af hinum þekktu :
. m
indversku teppum.
■ 5
■ ■
j fj^löítclal % j
BsaaavB.Ba.Ba..B..aaaBaaaaa4
— Morgunblaðið með morgunkaffinu —