Morgunblaðið - 20.03.1954, Blaðsíða 1
16 síður
41. árgangur.
66. tbl. — .Laugardagur 20. marz 1954
Prentsmiðja Mergunblaðsin*
Þí«ðverjar staflfesta sátt-
raálaim um Evrópuher
Bonn 19. marz
frá Reuter-NTB
STJÓRNMÁLAFRÉTTARIT-
ARAR í Bonn telja fullvíst,
að einhvern næstu daga muni
forseti landsins, Theodor Heuss,
u.ndirrita sáttmálann um Evrópu-
herinn, svo og sáttmálann mi!li
Þýzkalands og Vesturveldanna.
Staðfesting þessi á sáttmálan-
um siglir f kjölfar þess, að í dag
samþykkti þýzka þingið endan-
lega breytingu þá er gera þurfti
á stjórnarskrá landsins, til þess
að endurnervæðing væri lögleg.
Spurningin um það hvort her-
námsstjórar Vesturveldanna
þurfi að staðfesta samningana áð-
ur en þeir öðlast gildi, er enn
þrætuepli Hernámsstjórarnir
telja að svo verði að vera, en
lögfræðingur þýzku stjórnarinn-
ar segir að svo sé ekki.
Hllsiaei'icss'K eínú sr>eðri
deildar vill ekki björ
haieda íslendiibguxn
Ú’
áfengisSríjm¥arpiS verður ræi! á þriðjydag
TTBÝTT var á þingi í gær nefndaráliti allsherjarnefndar um
áfengislagafrumvarpið. Nefndin leggur til að gerðar verði
mjög veigamiklar breytingar á áfengislagafrumvarpinu eins og
það kom frá Efri deild. Telur nefndin að ýmsar þær breytingar
er Efri deild samþykkti séu ekki til bóta og leggur til að frum-
varpið verði að ýmsu leyti fært í sama horf og það var lagt fyr-
ir Efri deild.
BREYTINGARNAR *■
Breytingartillögur nefndarinn-
ar eru í 9 liðum og eru þessar
helztar.
4 Skýrgreining á því hvaða
■ vökvi skuli áfengur teljast
skuli aftur faerast í 214% af
vínanda að rúmmáli í stað
orðanna 314% af vínanda að
þunga.
2 Heimilt skuli ríkisstjórninni
að leyfa tilbúning öls vegna
varnarliðsins eða til útflutn-
ings.
12. gr. frumvarpsins ■—• um
vínveitingar á veitingahúsum
er orðuð um, en ekki gerðar
miklar breytingar á. Þó sú að
þriggja manna nefnd skuli
dæma um hvaða veitingahús
fullnægi setíum ákvæðum til
að veita vín. Skal áfengisráð
tilnefna einn mann, samband
gisti- og veitingahúseigenda
einn og ráðherra hinn þriðja.
Bannað skal að senda áfengi
gegn pcstkröfu.
Lögreglustjóri má veita fé-
lögum heimild til áfengisveit-
inga í félagsheimilum eða
veitingastöðum sé ákveðnum
skilyrffum fullnægt.
/ Síðan koma ákvæði um
U stofnun áfengisvarnarráðs,
embætti áfengisvarnarráðu-
nauts og nánari ákvæði um
störf áfengisvarnarnefnda.
Eigi skal um breytingar þess-
ar rætt að sinni, en skýrlega
kemur fram, að allsherjarnefnd
neðri deildar vill setja íslendinga
í annan og lægri flokk en til
dæmis varnarliðið er hér dvelur.
Þá vill hún og að lögfest verði
ákvæði um áfengisráð, áfengis-
varnarráðunaut o. fl., en Efri
deild var einhuga um að gera
þau mál mun einfaldari í vöfurn.
Málið verður rætt á þriðju-
daginn.
IVicCarthy viSI verða forseti
— fær daufar undirtektir
Bandarísk aljiýða kveður upp sinn tfént.
ylir honum.
WASHINGTON, 19. marz frá Reuter-NTB
NÚ DREGUR til úrslita í McCarthy-málinu. Þessi öldungardeild-
arþingmaður, er orðið hefur að athlægi um heim allan, virðist
nú þurfa að láta í minni pokann, því alþýða Bandaríkjanna tek-
ur nú að kveða upp sinn dóm yfir skoðunum hans og brölti til
þess að verða forseti. — Fulltrúi Demokrataflokksins í rannsóknar-
nefndinni er kennd er við McCarthy hefur lofað að birta öll þau
skjöl nefndarinnar er til séu varðandi viðskipti nefndarinnar og
Bandaríkj ahers.
MC CAETHY: — Fær daufar
undirtekíir hjá fólkinu.
Atom-
banki
WASHINGTON, 19. marz. —
Utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og sendiherra Rússa
í Bandaríkjunum hafa skipzt
á tillögum um alþjóðlegan
„atombanka“ á grundvelli
tillagna þeirra er Eisenhower
forseti lagði fyrir þing Sam-
einuðu þjóðanna.
Fréttaritarar segja banda-
rísku tillögurnar miklu yfir-
gripsmeiri en þær er rúss-
neski sendiherrann lagði
fram, og að Bandaríkin hafi
borið málið undir ríkisstjórn-
ir Vesturveldanna áður en
hún gekk frá því endanlega.
NeySarskeyti
ST. JOHNS 19. marz: — Banda-
rísk herflugvél með 7 manna
áhöfn tilkynnti á miðvikudags-
kvöld að hún myndi nauðlenda
á ísbreiðunni norður af Thule.
Síðan hefur ekkert til flugvél-
arinnar heyrzt.
, Engin staðarákvörðun var gef-
in, og leit sem framkvæmd hefur
verið hefur ekki borið árangur.
4
5
Skammbyssur og
KAIRÓ, 19. marz. — Egyptar
vopnaðir skammbyssum og
handsprengjum gerðu þvíveg-
is í dag árás á brezka her-
menn á Súez-svæðinu. Brezk-
ur höfuðsmaður hlaut alvar-
leg sár og lézt litlu síðar. Er
talið að ástandið á þessum
slóðum hafi versnað mjög.
— Reuter.
Konurnar sigrnðu Nagíb
„Dætur Nílar" eru hæitar að svelta.
KAÍRÓ, 19. marz — frá Reuter-NTB
LEIÐTOGI egypzkra kvenna, frú Boria Shafik og konur þær er
með henni neituðu að borða þar til egypzkum konum hefðu
verið veitt stjórnmálaleg réttindi, tóku á ný að nærast í dag, eftir
að þeim hafði verið veitt trygging fyrir því, að Nagíb myndi
greiða úr málum kvenna.
Særðlr fluftlr á brotl
SAIGON, 19. marz. — Sægur
helikoptervéla vann að því í dag
að flytja særða franska hermenn
frá umkringda virkisbænum
Dien Bien Phu. Ennþá bæra upp-
reisnarmenn ekki á sér, en Frakk
ar hafa síðasta sólarhringinn
verið við því búnir að þeir gerðu
lokatilraunina til að taka bæinn.
Á meðan hafa Frakkar ekki
verið aðgerðarlausir. Þeir hafa
haldið uppi látlausum vélbyssu-
og sprengjuárásum á stöðvar
kommúnista og gert mikinn usla
í liði þeirra og truflað undirbún-
ing þeirra að nýrri árás.
♦herinn og mac CARTHY
Einnig hefur verið skorað á
herstjórnina að birta allt það er
varðar mál David Schine, en það
er kunningi MacCarthys, og sagði
herstjórnin að MacCarthy hefði
reynt með hótunum að fá hana
til að sleppa Schine við einhver
ákvæði herskyldunnar.
SKELEGGAR ÁSAKANIR
Demokratar hafa mjög deilt á
starfsaðferðir Mac Carthys og
skoðanir hans og þau áhrif sem
hann hefur haft á stjórnarstefnu
republikana. Hefur . frambjóð-
andi demokrata við forsetakosn-
ingarnar síðast, Adlai Stevenson
verið skelleggastur í þeim ásökun
um.
HÓTUÐU
Frú Shafik, sem er foringi fé-
lagsins „Dætur Nílar“ og stöllur
hennar hafa einungis lifað á sí-
trónusafa undanfarna daga. Þær
tilkynntu í morgun, að þær
myndu herða sultarólina enn —
hætta að drekka sítrónusafa, en
fá sér þess stað aðeins nokkra
vatnsdropa á dag. Til þessara
gagnráðstafana tóku þær, er þær
voru fjarlægðar úr blaðamanna-
klúbbnum, þar sem þær höfðu
legið. Voru þær þaðan fluttar á
sjúkrahús Þar stóð lögergluvörð-
ur yfir þeim og enginn fékk að
tala við þær.
BÆNASKRÁIN
Frú Shafik hafði áður sent
Nagíb bænaskrá. Henni svar-
aði forsetinn með því að biðja
konurnar að hætta að svelta
sig, en fylgja kröfum sínum
fram á „vingjarnlegri" hátt.
Segist hann hafa sent bæna-
skrána til nefndar þeirrar, er
undirbúi lög um skipulags-
breytingu þingsins. „Ég full-
vissa ykkur um“, sagði forset-
inn „að málið er í höndum
beztu manna“.
Konurnar ákváðu að hætta
að svelta og gráar og guggnar
voru þær fluttar í annað
sjúkrahús til hressingar.
MELBOURNE — Elísabetu Eng-
landsdrottningu og manni henn-
ar var fagnað mjög er þau komu
til Nýju Suður Wales í dag. 400
þús. manna höfðu safnazt sam-
an til að hylla þau hjónin.
Fáfimi fölur og
28 kg létlari
en
RÓMABORG 19. marz: — Píus
páfi 12. kom nú í dag í fyrsta
sinn um tveggja mánaða skeið
opinberlega fram. — Um 200 þús.
manns hafði safnazt saman á
Vatikantorginu þegar hinn 78
ára gamli kirkjuhöfðingi sýndi
ásjónu sína í glugga vinnuher-
bergis síns. Hann var fölur á að
sjá og sagt er að hann hafi lézt
um 20 kg í veikindunum.
Gullmarfeaðurinn
opnaður affur
LUNDÚNUM 19. marz: — Brezka
fjármálaráðuneytið tilkynnti í
kvöld að Gullmarkaðurinn í
Lundúnum, sem lokað var er
styrjöldin braust út 1939, yrði
opnaður á ný á mánudag. Sam-
tímis mun mjög rýmkað um sölu
sterlingspundsins utan sterlings-
svæði’sins
Gullmarkaðurinn brezki var
fyrir styrjöldina síðustu stærsti
og hæst metni gullmarkaður
heims. — Reuter.
OSIGUR MAC CARTIIYS
Og nú er svo komið að jafn-
vel innan republikanaflokks-
ins magnast óánægjan með
Mac Carthy. Margir forystu-
menn repubiikana hafa viljað
sýna Mac Carthy með próf-
kosningum hve lítið fylgi
hann á. Aðrir vilja ekki slíkar
innbyrðisskoðanakannanir.
Samt fóru þær fram í 6
minni borgum og beið Mac
Carthy herfilegan ósigur í
þeim öllum. I borginni Avon,
sem var fyrst með prófkosn-
inguna, hlaut Eisenhower 350
atkvæði en Mac Carthy 1. —
Mac Carthy*liggur nú veikur.
Á FYRIRLESTRAFERÐ
Hann hefur verið á fyrirlestra
ferð um Mið’-Vesturríkin. í
þessum fyrirlestrum hefur
hann flutt áróður fyrir því að
hann yrði valinn sem fram-
bjóðandaefni republikana við
næstu forsetakosningar.
„Lagfæringar"
í Péllandi!!
LUNDÚNUM 19. marz: — Bowe-
slaw Beirut lét í dag af embætti
forsætisráðherra Póllands en tók
við stöðu aðalritara miðstjórnar
kommúnistaflokksins. Samtímis
komst varaforsætisráðherrann
Josef Cyrankewicz aftur í em-
bætti forsætisráðherra, sem hann
gengdi frá 1947—1952.
Éftir þessa breytingu er lokið
við að steypa kommúnistaflokk
Póllands í sama mót og komm-
únistaflokk Rússlands. — Reuter.
RÓM — Mestur hluti þrýstilofts-
hreyflanna í brezku Comet-vél-
inni er fórst við Elbu fyrir nokkr
um vikum hefur nú fundizt. Hlut
irnir eru komnir til Lundúna þar
sem þeir verða gaumgæfilega at-
hugaðir.