Morgunblaðið - 20.03.1954, Qupperneq 11
Laugardagur 20. marz 1954
MORGUNBLAÐIÐ
II
ÍÞRÓIT
Knaftspyrnuféiag Reykjavfkur 55 ára
IDAG minnist K.R. 55 ára af-
mælis síns með hófi í Sjálf-
stæðishúsinu.
Félagið er stofnað 1899 af Pétri
A. Jónssyni óperusöngvara og
bróður hans Þorsteini, sem nú er
látinn.
Stofnendur voru mjög ungir
menn, aðallega Menntaskólapilt-
ar, verzlunar- og iðnaðarmenn.
Ferguson, skozkur prentari,
sem kom hingað til lands árið
1895 til að starfa í ísafoldarprent-
smiðju, varð fyrsti maður til þess
að kenna knattspyrnu hérlendis.
Við stofnun félagsins fékk það
nafnið Fótboltafélag Reykjavík-
ur, en því var breytt síðar þegar
nokkrir lærðir ’íslenzkumenn létú
í ljósi það álit sitt að orðið fót-
bolti væri ekki nógu íslenzkt, en
komu í þess stað með orðið knatt
spyrna. — Þorst'einn Jónsson var
íyrsti formaður félagsins.
FYRSTÍ KAPPLEIKURINN
Á ÞJÓBIIÁTÍÐINNI
Fyrsti kappleikur á íslandi var
háður árið 1899 á þjóðhátíðinni.
Pétur og Þorsteinn voru fyrirlið-
ar og sigraði lið Péturs.
Hin fyrstu árin um og eftir
aldamótin var einkum keppt við
sjóliða á erlendum herskipum,
aðallega dönskum.
Um 1909 mun einhver deyfð
hafa verið yfir öllu starfi félags-
áns, því það ár er haldinn vakn-
kemst öll starfsemi þess í fastari
ingarfundur og eftir þarm fund
skorður, um það leyti eru þá líka
ný félög að koma til sögunnar.
Árið 1913 er tekin upp sú
stefna að setja á stofn yngri
deild í félaginu; undirstaða henn-
ar var Fótboltafélag Vesturbæj-
ar, en form. þess félags var Er-
lendur Ó. Pétursson. Einnig voru
mokkur önnur drengjafélög úr
Vesturbænum innlimuð í K.R.,
að sjálfsögðu með þeirra fúsa
vilja.
FYRSTA MEISTARAMÓTIÐ
Árið 1912 er háð fyrsta meist-
aramót íslands í knattspyrnu og
varð K.R. fyrsti ísiandsmeistar-
inn eftir harða viðureign við
Vestmanneyinga og Knattspyrnu
félagið Fram.
Árið 1923 er eitt merkasta árið
í sögu félagsins, það ár er tekin
upp sú stefna, undir forustu og
fyrir hvatningu Kristjáns L.
Gestssonar, að gera félagið að al-
hliða íþróttafélagi (hið stóra
K.R.)
Að vísu höfðu félagsmenn
nokkru fyrr hafið hlaupaæfingar
og tekið þátt í Víðavangshlaupi
Í.R. og Leikmóti íslands nokkru
fyrir 1923, en það ár er tekið
ákveðið á stefnuskrá félagsins:
Frjálsar íþróttir, fimleikar, sund
og glíma, og nokkru síðar: hnefa-
leikar, handknattleikur, skíða-
áþróttir og tennis.
ALIILIÐA ÍÞRÓTTAFÉLAG
Þessar framfarir í K.R. sköp-
uðu mikið og blómlegt íþróttalíf
í félaginu.
Á þessum árum var Kristján
L. Gestsson formaður K.R. Tók
hann þátt í flestum íþróttagrein-
um og var ágætur knattspyrnu-,
frjálsíþrótta- og fimleikamaður.
Guðmundur Ólafsson var þjálf-
ari í knattspyrnu og þjálfaði þá
alla flokka félagsins, en ritari var
Erlendur Ó. Pétursson og skráði
hann allt sem gerðist í K.R. í
vandaðar bækur, og því vita nú
K.R.-ingar svo mikið um sögu
sína.
K.R.-TRÍÓIN TVÖ
Þessir 3 menn voru oft í þá
daga nefndir K.R.-tríóið, en ann-
ars átti K.R. annað frægt tríó um
sömu mundir, það var kna'tt-
spyrnutríóið, sem í voru Þor-
steinn Einarsson, Hans Kragh og
Gísli Guðmundsson.
Árið 1929 réðist ,K.R. í, fyrir
forgöngu Kristjáns L. Gestsson-
ar, að kaupa samkomuhúsið Báru
búð við Vonarstræti. Var það
síðan íþróttahús K.R.
Mikill fögnuður var meðal
K.R.-inga, er félagið tók við hús-
inu og fyrsta verk þejrra var að
mála.það hátt og lágt. Var það
gert í sjálfboðaliðsvinnu og tók
málunin á þessu stóra húsi að-i
eins einn dag og þar með setti
K.R. nýtt met í málun á húsi. —!
aðstoðar þær þeirra sem ekki
geta starfað algjörlega fjárhags-
lega sjálfstæðar.
Samkvæmt þessu fyrirkomu-
lagi eru nú starfandi í félaginu:
Fimleikadeild, Frj álsíþróttadeild,
Glímudeild, Handknattleiksdeild,
Hnefaleikadeild, Knattspyrnu-
deild, Skíðadeild og Sunddeild.
IIEILLARÍKT SKIPULAG
Með þessu skipulagi nýtast
afmælisháliar K, R.
Forsetahjónin voru meðal gesta við setningu afmælishátíðahalda KR
Sýningarflokkarnir hafa raðað sér upp.
Sjálf málningin var gefin af eldri
félögum í K.R.
íþróttahús K.R. var mikil lyfti-
stöng fyrir félagið. Var.nú öll
íþróttastarfsemin innanhúss á
sama stað og skapaði þetta mik-
inn íþróttaáhuga í félaginu.
I heimsstyrjöldinni var húsið
gert að einni bækistöð Breta og
voru þeir í húsinu til ársins 1944.
Auðvitað greiddu þeir félaginu
leigu fyrir það og síðan skaða-
bætur þegar þeir fóru.
FRAMKVÆMDIR
í KAPLASKJÓLI
Þegar sýnt þótti að húsið yrði
að víkja vegna skipulags í Von-
arstræti þótti ekki rétt að kosta
miklu upp á viðgerðir á því eftir
hernámið og varð að samkomu-
lagi að bærinn keypti lóð og hús,
en sú sala varð fjárhagsleg und-
irstaða fyrir hinum miklu fram-
kvæmdum félagsins í Kapla-
skjóli
SKIPULAGSBREYTING
Árið 1947 er enn stigið merki-
legt spor í sögu félagsins, en þá
er, fyrir forgöngu formanns þess,
Erlends Ó. Péturssonar, gerð sú
breyting á skipulagi K.R., að því
er skipt í deildir, sem hver um
sig hefur sérstaka stjórn með sér-
fjárhag og algert sjálfsforræði í
daglegum rekstri, en aðalstjórn
félagsins kemur fram út á við
fyrir félagsins hönd, og er sá
tengiliður, sem sameinar í eina
heild hinar einstöku deildir, og
starfskraftar félagsins betur en
áður var en með því taka nú þátt
í stjórn K.R. um 60—70 manns.
K.R. var orðið fyrir löngu fjöl-
mennasta íþróttafélag landsins
og var í raun og veru orðið ó-
kleift fyrir eina stjórn að annast
rekstur félagsins svo vel færi.
Skipulag þetta hefur nú staðið
í 6 ár og reynzt mjög heillaríkt.
Það hefur hvatt til dáða marga
fórnfúsa félagsmenn, sem með
því hafa fengið tækifæri til að
njóta sín.
Á þessum árum hefst einnig
nýr og einn merkilegasti þáttur-
inn í sögu félagsins. Undir stjórn
Gísla Halldórssonar arkitekts, er
hafizt handa um að gera gras-
velli og byggja félagsheimili á
lóð félagsins í Kaplaskjóli og síð-
ast en ekki sízt að koma upp
stærsta íþróttaskála landsins.
Árið 1950 eru grasvellirnir
vígðir, 1952 er félagsheimilið vígt
og 1953 er íþróttaskálinn tilbú-
inn.
Á liðnum árum hefur K.R.
unnið marga sigra á íþróttavett-
vanginum; þannig hefur það orð-
ið íslandsmeistarar í knattspyrnu
14 sinnum og 15 ár í röð bar það
titilinn „bezta íþróttafélag lands-
ins“ á meðan um þann titil var
keppt á Allsherjarmótum Í.S.Í.
í öllum iþróttagreinum hefur
K.R. ávallt staðið framarlega, er
nú t. d. álitið að félagið eigi bezta
fimleikaflokk landsins. Á erlend-
um vettvangi hefur félagið háð
marga keppni og haldið marg-
ar sýningar. K.R. er eina félagið
hér á landi, sem eignazt hefur
Evrópumeistara í frjálsum íþrótt-
um og það meira að segja þrisvar
sinnum.
ÞEIR, SEM HLOTIÐ HAFA
K.R.-STJÖRNUNA
Æðsta heiðursmerki félagsins,
þ. e. a. s. K.R.-stjörnuna, hafa
þessir menn hlotið fyrir frábært
starf í þágu þess: Erlendur Ó.
Pétursson, sem verið hefur í
stjórn K.R. frá 1915 og þar af
formaður í 20 ár; Guðmundur
Ólafsson, sem var knattspyrnu-
þjálfari félagsins um meira en
20 ára skeið og einnig formaður
þess í 2 ár og í stjórninni um
nokkurra ára skeið; Kristján L.
Gestsson, sem var í stjórn félags-
ins í 14 ár, þar af formaður í 9
ár og formaður íþróttahúsnefnd-
ar K.R. í 15 ár og er nú í stjórn
íþróttaheimilisins í Kaplaskjóli;
Sigurður Halldórsson, sem um 30
ára skeið hefur tekið þátt í ýms-
um störfum fyrir félagið, þar á
meðal verið í stjórn þess og stjórn
íþróttahússíns, ennfremur hefur
hann unnið mikið og vinnur enir
að þjálfun knattspyrnumanna;
Sigurjón Pétursson, sem nú cr
látinn. Hann vann i 30 ár mörgf
og mikil störf fyrir félagið, bæði
í stjórn þess og í íþróttahúss-
nefndinni.
NUVERANDI stjorn k.r
Stjórn félagsins skipa nú: Er-
lendur Ó. Pétursson, formaðui;
meðstjórnendur: Ari Gíslasor,
Einar Sæmundsson, Haraldu:'
Björnsson, Gunnar Sigurðsscn og
Ragnar Ingólfsson.
í stjórn íþróttaheimilis K.R.
eru: Gísli Halldórsson formaður,
og meðstjórnendur: Haraldur
Ágústsson, Haraldur Gíslason,
Haraldur Guðmundsson, Kristján
L. Gestsson, Sigurður Halldórs-
son, Sveinbjörn Árnason og
Sveinn Björnsson.
í tilefni afmælisins kemur
K.R.-blaðið út núna um helgina.
I ritnefnd þess eru: Hai;a3dur
Gíslason, ábyrgðarmaður, Hörð-
ur Óskarsson og Sigurgeir Guð-
mannsson.
Ií|ötbú5 sináíbúðanna
Búðagerði
■•■■■■■■■■■■■■■■■■
€róðrarstöðin
er til sol-u «§ laus til ábúðar nú í vor. — Þeir, sem áhuga
hafa, geta skoðað í dag og næstu daga.
■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■
3—4ra herbergja íbúð
óskast til leigu eigi síðar en 14. mai n.*k.
Odödar Olafóóon. Ldl.
fóóon
Laugaveg 10 — Sími 80332
TiLKYNINIING
til íbúa í Bústaðar- og Smáíbúðahúsahverfi.
Knattspyrnufélagið Víkingur heldur fund í félagsbeim-
ili V. R., Vonarstræti 4, kl. 2 á morgun (sunnudag), fyrir
alla þá pilta á aldrinum 15—20 ára, sem gerast vilja með-
limir í félaginu.
Til umræðu verður sumarstarfsemin, byggingaimálin
og fleira. Stjórnin.
Frá Finnlandi:
ÞÆKPAPPS ÞAKPAPPl
Getum útvegað ágætan þakpappa frá Finnlandi
Stuttur afgreiðslufrestur.
Eiríkur Leifsson
Kristján Karlsson
Ingólfsstræti 21 C.
Símar 2505 og 2114.