Morgunblaðið - 15.06.1954, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.06.1954, Qupperneq 11
ftnnrnmmnmimimn 7 ▼«>r»mnnítítinrmimT i yinTrrrmTnnmnm• inmnnrmT rr<tíííiiiinn■■■ >>■■ >• ■■■■■■■■■■ ifmnninri r Þriðjudagur 15. júní 1954 MORGVTSBLAÐIÐ 11 p-W •s 1 Pillsbiuý't fiiB I v. XXXX I 1 EKRICKEönj? fe*BREAD**Sr Baksturinn tekst BEZT með Kllsburyl hveiti (eínahætt) Framleitt til alhliða notkunar Ávallt hreint. — Ávallt nýtt — 4vallt sama gæðavaran. Fremsta hveiiitegundin verður haldinn í Mótorvélstjórafélagi íslands laugardaginn 19. júní klukkan 15, í fundarsai S. V. F. í. — Grófin 1. Stjórnin. Skrifstofur vorar lokaðar eftir hádegi í dag, vegna jarðarfarar Landssamband íslenzkra útvegsmanna. Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda. Herpinótabátar með 16 ha. Albin-vélum, ásamt nýuppgerðri herpi- nót, til sölu, með hagkvæmu verði. Uppl. gefur Landssamband íslenzkra útvegsmanna. Stúlka vön afgreiðslu í nýlenduvöruverzlun getur fengið atvinnu nú strax. Tilboð sendist blaðinu, merkt: GOl, fyrir kl.6 í kvöld. lkr»<@§ sigraði Fram Rýmingarsala á öllum vörum álnavörudeildarinnar. Allt á að seljast, því deildin verður lögð niður. GERIÐ GÓÐ KAUP i Klæðaverzlun Andrésar Andrésseínar F u n d u r ANNAR leikur íslandsmótsins fór fram á íþróttavellinum á sunnudagskvöldið og sigruðu Akurnesingar þá Fram með 5 mörkum gegn tveimur, í vel leiknum en óþarflega hörðum leik. — Þennan sama dag og Akurnesingar vinna Fram, töpuðu KR-ingar norður á Akureyri með 3:1 eftir að hafa náð jafntefli við Akureyringa daginn áður 4:4. Enn einu sinni fá því reykvískir knatt- spyrnumenn og forystumenn knattspyrnumála í Reykjavík ótvíræða áminningu um að standa betur á verðinum en gert hefur verið. ÓÞÖRF HARKA Sunnudagsleiksins hér var beð- ið með nokkurri eftirvæntingu. Framliðið hefur í vor sýnt lífleg- an og góðan leik, þó liðið hafi farið nokkuð illa út úr Reykja- víkurmótinu hvað stig snertir. Það hefur góðum og efnilegum mönnum á að skipa, og vörn á liðið góða, þar á meðal menn sem líklegir eru til að skipa lands lið. Við þessa vörn áttu Akur- nesingar að glíma i fyrsta leik sínum hér í Islandsmótinu. Leik- urinn var skemmtilegur og góð- ur, daufur fyrst, en hraðinn jókst er á leið — en því fylgdi aukin harka, sérstaklega hjá Frammönn um — harka sem getur verið ísl. knattspyrnu hættuleg nú 3 vik- um fyrir landsleik. Er því full ástæða til að skora á leikmenn að gæta hófs þegar til návígis kemur. Það á að vera hægt að gæta andstæðingsins án þess að limum hans sé i hættu stefnt. Fram-menn mættu ákveðnir til leiks. Þeir fengu líka fyrsta góða marktækifærið. Það var á 6. mín. eftir upphlaup hægrá megin •— en Óskar skaut rétt utan við stöng. Annars var upphaf leiks- ins rólegt Leikurinn fór fram á vallarmiðiu — þar var gerð til- raun af beggja hálfu til upp- hlaupa en flest voru stöðvuð þeg- arí stað. Leikurinn var því nokk- uð þófkenndur, en bæði liðin gerðu þó fallegar tilraunir, þó góðar staðsetningar beggja kæmu í veg fyrir að nokkuð tækizt. 2 MÖRK Á MÍNÚTU Á 18. mín. gefur Ríkharður góða sendingu til Halldórs (Donna) á kantinum. Hann leik- ur inn á miðjuna utan vítateigs og skorar þaðan með fremur lausu skoti sem markmaður hefði átt að ráða við þó út við stöng væri. Varla hafði leikur hafizt á ný er knötturinn hafnaði aftur í neti Fram. Ríkharður brauzt í gegn, gaf til Donna, markvörðurinn hljóp á móti honum, en Donni sendi lausan knött í tómt markið. Þarna var um að ræða einstakan klaufaskap Fram-varnarinnar. Að minnsta kosti var h. bakvörð- ur ekki á sínum stað er Donni skaut. 11. mín. síðar voru Framarar í sókn. Dagbjartur Hannesson fær knöttinn og gefur til mark- varðar. Dagbjartur miðframherji Fram gerir harða atlögu að Magnúsi í markinu. Magnús miss- ir knöttinn í því „ati“ og Dag- bjarti tókst að skora. — Þó Dag- bjartur hafi verið nokkuð nær- göngull við Magnús, er þetta þó áminning til allra markvarða um að losa sig sem fyrst við knött- inn. Hins vegar er atlaga að mark manni aldrei fallegur leikur, þó löglegur sé. Og Dagbjartur sýndi síðar í leiknum að hann gengur allt of langt í því að „ráðast" á markverði — því þá tók hann bæði að nota hendur og fætur! Mínútu fyrir hálfleik komst Ríkharður enn í gegn, sendir til Donna, er gefur vel fyrir. Þvaga myndast við Frammarkið, Rík- harður fær knöttinn aftur og skorar •— 3:1. ÚTHIjAUP MAGNÚSAR í síðari hálfleik óx hraðinn og tækifærin urðu fleiri — einkum er Akurnesingar áttu. Upphlaup- in mörg voru bráðfalleg og Fram- vörnirí átti í stríðu. Þar gætti taugaóstyrks — hörku var beitt og tilgangurinn oft aðeins sá, að eyðileggja upphlaup andstæðings ins með því að „pota“ einhvern veginn í knöttinn. Það tókst þar til á 31. mín. að Þórður kemst inn fyrir — dregur til sín vörn- ina og gefur til Ríkharðs. Hann leikur á 3 varnarleikmenn og skorar óverjandi. Mínútu síðar er enn sótt fast að marki Fram. Magnús ver með snilldarlegu og óhikandi úthlaupi, sem fáir markmenn hér búa yfir aðrir en hann. Þar vann hann sigur yfir taugaóstyrkleikanum sem yfir honum hafði verið allan leikinn og stóð sig vel það sem eftir var, varði m. a. fast skot frá Ríkharði sem kominn var inn fyrir. ENN TVÖ MÖRK Á 37. min. eiga Fram-menn árangursríkt upphlaup. Dagbjart- ur leikur upp, gefur í tíma til v. úth. sem fékk sendan góðan ská- knött í netið. Mínútu síðar átti Ríkharður frábært „gegnumbrot“. Hann lék sjálfur með knöttinn 25—30 m — í gegnum alla Framvörnina 5 menn, þar p.f þrjá í einu og skor- ar óverjandi. Ekki er oVögum sagt að þetta sé eitthvert glæsi- legasti sólóleikur er hér hefur sézt. , LIÐIN Framliðið sýndi góðan leik og má mikils af því vænta. Magnús j í rrrarkinu er okkar hezti mark- 1 vörður í dag og úthlaupin hans sterka hlið. En hann skortir hins 1 vegar snerpu milli stanganna. Haukur Bjarnason -er máttar- j stólpi varnarinnar, en kýs ekki að hyggja upp samleik. Hann og j Guðmundur, sem er í röð okkar beztu bakvarða beittu þó hörleu j um of og voru taugaóstyi kir er á reyndi. Framverðirnir Guð- mundur og Hilmar voru dug- miklir — einkum í vörn, harðir í horn að taka en náðu ekki sér- ; stökum tökum á leiknum á miðj- unni. Framlínan er lífleg, býr yfir miklum hraða, en á enga ^ menn eins og Ríkharð, Þórð og i Donna. Og furðulegt er oft að sjá hve allir framherjarnir 5 hóp- ast inn á miðju, er að marki and- stæðinganna kemur, í stcð þcss að dreifa leiknum og opna. Það er orðið erfitt að gera upp á milli margra manna í Akranes- liðinu, sem teljast mega í sér- flokki ísl. knattspyrnumanna. Það er Dagbjartur í vörninni, scm aldrei bregst en sýnir þá kosti er bezt prýða miðframvörð •— öryggi, góðar staðsetningar og hæfileika til að byggja upp. Þá er Guðjón framvörður, sm mi eins og oft áður náði einræðis- valdi yfir sínum vallarhluta, miðjutríóið, Pétur, Þórður og Ríkharður, sem vart hefur í snn- an tíma verið betri en nú og er þá langt til jafnað og Halldór (Donni) útherji, sem er sívax- andi og einhver öruggasti skot- maður Akranesliðsins. Bakverð- irnir Ólafur og Sveinn ,(sem nú lék sinn fyrsta leik á sumrinu) áttu góðan leik, sérstaklega ÓJaf- ur, en Sveinn sótti um of fram á tíma — og upp úr einu sliku framhlaupi hans kom síðara mark Fram. Nýliði skipaði stöðu Sveins Teitssonar Það var Kristinn er leikið hefur bakvörð í sumar. Og þó hann ekki fýllti stöðuna eins og Sveinn, átti hann prýðilegan leik. Þar er á ferðinni mikið efni. —A. St. Keppt verður um bikar er forsetinn hefur gefið Stórglæsilegt frjálsíþróttðsnct hefst í WM ANNAÐ stórmót njálsíþróttamanna á þessu sumri, 17. júní-mctíð, hefst í kvöld á íþróttavellinum og lýkur þar 17. júní TneS úrslitakeppni í 100 m hlaupi, 400 m hlaupi, stangarstökki og kúlu- varpi. Ennfremur verður þá keppt í 1500 m hlaupi og 1000 m boðhlaupi. ÞÁTTTAKENDUR OG KEPPNISGREINAR Mótið í kvöld verður eitthvert glæsilegasta mót er hér hefur verið stofnað til. Keppt verður í 14 greinum og þátttakendur eru fleiri en nokkru sinni áður. 19 keppendur eru í 100 m hlaupi, 9 í 200 m., 8 í 400 m hlaupi, 4 í 300 m hlaupi, 5 í 5 km hlaupi, 7 í hástökki, 8 í kúluvarpi, 11 i kringlukasti, 4 í sleggjukasti og 4 í spjótkasti. TVÍSÝN KEPPNI í kvöld fara fram undan- rásir og úrslit í 200 metra hlaupi. Spretthlauparar reyna þar með sér og meðal þeirra fjöldi bráðefnilegra nýliða. Búast má við að höfuðátökin standi milli Harðar og Hilmars Á, Ás- mundar Bjarnasonar KR og Guð- mundar Vilhjálmssonar IR. Allir beztu íþróttamenn lands- ins eru skráðir til keppni. Þag or næg trygging fyrir góðri og skemmtilegri keppni. LÁGMARKSAFREK í þeim greinum er keppt verð- ur til úrslita 17. júní hafa verið sett lágmarksafrek í undankeppn inni. FORSETARIKARINN Æðstu verðlaun þessa frjáls íþróttamóts, sem öll félögin í Reykjavík standa að, er »ýr bikar, er forseti íslands hefur gefið. Mun forsetinn afhenda bikarinn þeim íþróttamaiani er mest afrek vinnur sam- kvæmt nýju stigatöflunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.