Morgunblaðið - 06.01.1955, Side 11

Morgunblaðið - 06.01.1955, Side 11
Fimmtudagur 6. jan. 1955 MORGUNBLA8ÍÐ n Hiinning: Tómas Jónsson frá Sólheimafngu „FÆKKAR félögum“ varð ein- um að orði, er hann heyrði lát Tómasar í Sólheimatungu, eins og hann var alltaf nefndur; munu þeir margir, sem minnast með söknuði þessa bændaskörungs og ágæta félaga. Þótt aldunnn væri orðinn nokkuð hár, nær 73 ár, mátti þó vænta þess að not yrðu hans góðu starfskrafta enn um íiokkurt skeið ef heilsan hefði ei bilað, enda voru sálarkraftar óbilaðir. ,,En ei má sköpum renna“, segir einn af okkar gömlu og góðu málsháttum, og verður við það að una, þótt undan svíði Btundum. Tómas var einn af beztu bænd- Um þessa héraðs og rak alla tíð Stórbú á þessari jörð sinni, sem bæði var ein af stærstu jörðum hér um slóðir og kostamikil. Bú sitt rak hann svo vel að naum- ast var betur á kosið, enda var efnahagurinn mjög góður alla hans löngu búskapartíð. Hann yar fastheldinn við þá búnaðar- háttu er bann tamdi sér frá Besku og mátti teljast frekar íhaldssamur, en fylgdist þó vel með öllum breyttum háttum tím- anna og fús á að taka upp allt er reynslan sýndi að betur mátti fara. Stjórnsamur var hann með ágætum og mátti svo heita að öll störf gengu af sjálfu sér, þegj- andi og hljóðalaust, og naut ætíð fyllsta trausts og samúðar þeirra er á búi hans störfuðu og skap- aðist þannig friður og eindrægni yfir heimilislífið. Hann kunni vel Bð meta gildi vinnunnar, ekki bara sem nauðsyn til þess að afla björg í bú, heldur fyrst og fremst sem gleðigjafa er veitir birtu og yl yfir lífsbaráttuna og lífið í heild. Honum féll og aldrei Verk úr hendi. Þótt umbætur föður hans á jörðinni, þegar hann tók við henni, væru bæði miklar og góð- ar í húsabctum og túnrækt, jók hann þær að stórum mun, meðal annars sléttaði hann næstum allt þýfið í engjalandi jarðarinnar, Bem er flæðiengi. Er það ein sú arðmesta jarðabót, sem um er að ræða, þar sem svo hagar til, sem hér á sér stað, eins og augljóst er. Eikur hún verðgildi jarðanna betur en nokkur túnrækt, er því næsta undarlegt að slík jarðabót Bkuli ekki njóta styrks af al- mannafé. En þótt Tómas væri jafn áhugasamur við búskaparstörfin og hér er sagt, var síður en svo að þar væri hann allur. Hann var sérlega vel greindur, las mik- ið og fylgdist vel með hverju máli, en gerði lítið af því að flíka skoðunum sínum meira en rétt var og nauðsynlegt, var eng- inn yfirborðsmaður en raunhæf- ur í íyllsta máta. Hann var sjálf- Stæðismaður alla tíð frá því sá flokkur varð til, voru skoðanir hans í stjórnmálum vel hugsaðar og rökstuddar, svo þar varð eng- in breytingaþörf. Hann var fróð- ur um margt og hafði ætíð á tak- teinum sögur og sagnir í samræmi og til skýringar umtalsefninu, var því skemmtinn og gaman- Bamur í samtali, gat verið ræð- inn þegar svo bar undir og fyndni átti hann til. Hann var óvenju bóngóður og hjálpsamur, alltaf viðbúinn til að rétta hjálparhönd þegar þess var þörf. Um hann mátti segja að hann var drengur góður og vinsæll svo af bar, jukust vinsældir hans því meir, sem árin færðust yfir og menn höfðu nánari kynni af hans góðu eðliskostum Tómas var fæddur 2. des 1881 að Ornólfsdal í Þverárhlíð. Var hann sonur merkisbóndans Jónas- ar Jónssonar er lengst af bjó í Sólheimatungu og fyrri konu hans Guðríðar Tómasdóttur. Var Jónas sonur Jóns Arnasonar stúdents að Leirá í Leirársveit og konu hans Ragnhildar Olafs- dóttur Þorujarnarsonar frá Lund- um. En Guðríður móðir Tómasar var dóttir Tómasar bónda Jóns- sonar á Skarði í Lundareykjadal, sem var einn af beztu bændum þessa héraðs á sinni tíð. Að hon- um stóðu því merkar og traust- ar ættir ó báða vegi. Hann var kvongaður Sigriði Sigurðardótt- ur frá Stórafjalli í Borgarhrepp, mestu dugnaðar og mjndarkonu. Var hjónaband þeirra farsælt mjög og sambúðin með ágætum, var hún honum hinn trausti og samhenti förunautur, svo naum- ast varð betur á kosið. Hann var langa tíð í hreppsnefnd og kom þar alla tíð fram með samninga- lipurð og gætni. Hann gengdi og fleiri trúnaðarstörfum. Hann andaðist 5. nóvember s. 1., fór jarðarförin fram þann 13. s. m. að viðstöddu óvenjumiklu fjölmenni, eftir því sem gerist hér í byggð. Þannig var Tómas 1 Sólheima- tungu hinn trausti og öruggi bú- höldur og félagi, sem skilar sam- ferðamönnunum eftir sólbjarta minningu um góðan dreng og heilsteyptan, sem ætíð stóð þar sem betur mátti. Þótt þessi fáu minningarorð komi seinna en til var ætlast, má þó segja þar um, að aldrei sé góðs manns of seint getið. Blessuð sé hans minning. A Þorláksmessu 1954. Jósef Björnsson. — S.Þ. ara landheigi Framh. af OJs. 7 þetta atriði eins og önnur verður ekki tekin fyrr en á AlLherjar- þinginu 1956, þegar heildar- skýrsla þjóðréttarnefndarinnar liggur fyrir. Tillagan um fisk- veiðiráðstefnuna var samþykkt með 41 atkvæði gegn 5, en 5 sátu hjá. Voru það 5 Arabaríki sem hjá sátu, en á móti greiddu at- kvæði Sovét-Rússland, Hvíta- Rússland, Ukraína, Pólland og Tékkóslóvakía. STEFNA ÍSLENZKU RÍKIS- STJÓRNARINNAR GP.UND- VÖLLUR FYRIR MÁLS- MEÐFERÐ Með ályktunum þeim s~m Alls- herjarþingið hefur nú afgreitt með yfirgnæfandi meirihluta, er ljóst, að stefna íslenzku ríkis- stjórnarinnar, sem haldið var fram á Allsherjarþingunum 1949, 1953 og á þingi því, er nú situr, sé nú orðinn traustur grundvöll- ur fyrir, að heildartillögur um yfirráðarétt ríkja yfir hafinu muni liggja fyrir innan tveggja ára. Verður ekkert um það full- yrt á þessu stigi, hvernig þær tillögur verða og verður að sjálf- sögðu að taka afstöðu til þeirra, þegar þær liggja fyrir. Á Að lokum vil ég segja það, að mjög greinilega hefir komið í ljós í viðræðum við fjölmarga fulltrúa hér, að þeir bera mjög hlýjan hug til íslands og var auð- heyrt, að formaður íslenzku sendinefndarinnar, Thor Thors sendiherra, hefur átt ríkan þátt í að skapa þann hlýhug með starfi sínu hér undanfarin ár. í Happdrætti Háskóla Islands SaSa i I. ilokki er Siaíin Umboðsmenn í Reykjavíkr Arndís Þorvaldsdóttir, kaupkona, Vesturg. 10, sími 82030. Elís Jónsson kaupm , Kirkjuteigi 5, sími 4970. Guðlaugur & Einar G. Einarssynir lögfr., Aðalstr. 18, sími 82740. Guðrún Ólafsdóttir, frú, Þingholtsstræti 1, sími 2230. Helgi Sivertsen umboðsm. Austurstr. 12, sími 3582. Pálína Ármann, frú, Varðarhúsinu, sími 3244. RagnhildurHelgadóttir frú, (Verzl Happó), Laugav. 66, sími 4010. Þórey Bjarnadóttir, frú, Bankastr 8, sími 3048. Umboðsmenn í Hafnarfirði: Valdimar Long, kaunm. Strandg. 39, sími 9288. Verzlun Þorvalds Biarnasonar, Strandg. 41, sími 9310. 35000 númer — 11333 vinningar Vinningar Samtals kr. 5 880 000,00 A thu gið : Viðskiptamenn hafa forgangsrétt að fyrri númerum sínum til 10. jan. gegn framvísun 12. flokks miðanna. Eftir þann dag er umboðsmönn- um frjálst að selja öll númer. Þar sem happdrættið var nálega uppselt síðastliðið ár, hafa umboðs- menn mjög fáa miða handa nýjum viðskiptamönnum. Þeir munu því neyðast til að selja þá miða. sem ekki verða teknir í síðasta lagi 10 janúar,. strax á eftir Vitjið miða yðar í tæka tíð. — Látið ekki happ úr hendi sleppa. HESSIAN - MJðLPOKAR Við höfum tekið að okkur einkaumboð á íslandi fyrir Exportstelle der Deutchen Ju te-industrie9 Hamburg, sem annast útflutning flest allra verksmiðja í Þýzkalandi er fram- leiða hessian, mjölpoka og aðrar skyldar vörur. Við getum því tryggt kaupendum lægsta verð á hverjum tíma. Leitið upplýsinga á skrifstofu okkar. ÓLflFUR GÍSLASON & CO. H.F. Hafnarstræti 10-12 — Sími 81370 (á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.