Morgunblaðið - 06.01.1955, Page 11
Fimmtudagur 6. jan. 1955
MORGUNBLA8ÍÐ
n
Hiinning: Tómas Jónsson
frá Sólheimafngu
„FÆKKAR félögum“ varð ein-
um að orði, er hann heyrði lát
Tómasar í Sólheimatungu, eins
og hann var alltaf nefndur; munu
þeir margir, sem minnast með
söknuði þessa bændaskörungs og
ágæta félaga. Þótt aldunnn væri
orðinn nokkuð hár, nær 73 ár,
mátti þó vænta þess að not yrðu
hans góðu starfskrafta enn um
íiokkurt skeið ef heilsan hefði ei
bilað, enda voru sálarkraftar
óbilaðir. ,,En ei má sköpum
renna“, segir einn af okkar gömlu
og góðu málsháttum, og verður
við það að una, þótt undan svíði
Btundum.
Tómas var einn af beztu bænd-
Um þessa héraðs og rak alla tíð
Stórbú á þessari jörð sinni, sem
bæði var ein af stærstu jörðum
hér um slóðir og kostamikil. Bú
sitt rak hann svo vel að naum-
ast var betur á kosið, enda var
efnahagurinn mjög góður alla
hans löngu búskapartíð. Hann
yar fastheldinn við þá búnaðar-
háttu er bann tamdi sér frá
Besku og mátti teljast frekar
íhaldssamur, en fylgdist þó vel
með öllum breyttum háttum tím-
anna og fús á að taka upp allt
er reynslan sýndi að betur mátti
fara. Stjórnsamur var hann með
ágætum og mátti svo heita að
öll störf gengu af sjálfu sér, þegj-
andi og hljóðalaust, og naut ætíð
fyllsta trausts og samúðar þeirra
er á búi hans störfuðu og skap-
aðist þannig friður og eindrægni
yfir heimilislífið. Hann kunni vel
Bð meta gildi vinnunnar, ekki
bara sem nauðsyn til þess að
afla björg í bú, heldur fyrst og
fremst sem gleðigjafa er veitir
birtu og yl yfir lífsbaráttuna og
lífið í heild. Honum féll og aldrei
Verk úr hendi.
Þótt umbætur föður hans á
jörðinni, þegar hann tók við
henni, væru bæði miklar og góð-
ar í húsabctum og túnrækt, jók
hann þær að stórum mun, meðal
annars sléttaði hann næstum allt
þýfið í engjalandi jarðarinnar,
Bem er flæðiengi. Er það ein sú
arðmesta jarðabót, sem um er að
ræða, þar sem svo hagar til, sem
hér á sér stað, eins og augljóst
er. Eikur hún verðgildi jarðanna
betur en nokkur túnrækt, er því
næsta undarlegt að slík jarðabót
Bkuli ekki njóta styrks af al-
mannafé.
En þótt Tómas væri jafn
áhugasamur við búskaparstörfin
og hér er sagt, var síður en svo
að þar væri hann allur. Hann
var sérlega vel greindur, las mik-
ið og fylgdist vel með hverju
máli, en gerði lítið af því að
flíka skoðunum sínum meira en
rétt var og nauðsynlegt, var eng-
inn yfirborðsmaður en raunhæf-
ur í íyllsta máta. Hann var sjálf-
Stæðismaður alla tíð frá því sá
flokkur varð til, voru skoðanir
hans í stjórnmálum vel hugsaðar
og rökstuddar, svo þar varð eng-
in breytingaþörf. Hann var fróð-
ur um margt og hafði ætíð á tak-
teinum sögur og sagnir í samræmi
og til skýringar umtalsefninu,
var því skemmtinn og gaman-
Bamur í samtali, gat verið ræð-
inn þegar svo bar undir og fyndni
átti hann til. Hann var óvenju
bóngóður og hjálpsamur, alltaf
viðbúinn til að rétta hjálparhönd
þegar þess var þörf. Um hann
mátti segja að hann var drengur
góður og vinsæll svo af bar,
jukust vinsældir hans því meir,
sem árin færðust yfir og menn
höfðu nánari kynni af hans góðu
eðliskostum
Tómas var fæddur 2. des 1881
að Ornólfsdal í Þverárhlíð. Var
hann sonur merkisbóndans Jónas-
ar Jónssonar er lengst af bjó í
Sólheimatungu og fyrri konu
hans Guðríðar Tómasdóttur. Var
Jónas sonur Jóns Arnasonar
stúdents að Leirá í Leirársveit
og konu hans Ragnhildar Olafs-
dóttur Þorujarnarsonar frá Lund-
um. En Guðríður móðir Tómasar
var dóttir Tómasar bónda Jóns-
sonar á Skarði í Lundareykjadal,
sem var einn af beztu bændum
þessa héraðs á sinni tíð. Að hon-
um stóðu því merkar og traust-
ar ættir ó báða vegi. Hann var
kvongaður Sigriði Sigurðardótt-
ur frá Stórafjalli í Borgarhrepp,
mestu dugnaðar og mjndarkonu.
Var hjónaband þeirra farsælt
mjög og sambúðin með ágætum,
var hún honum hinn trausti og
samhenti förunautur, svo naum-
ast varð betur á kosið. Hann var
langa tíð í hreppsnefnd og kom
þar alla tíð fram með samninga-
lipurð og gætni. Hann gengdi og
fleiri trúnaðarstörfum.
Hann andaðist 5. nóvember s. 1.,
fór jarðarförin fram þann 13.
s. m. að viðstöddu óvenjumiklu
fjölmenni, eftir því sem gerist
hér í byggð.
Þannig var Tómas 1 Sólheima-
tungu hinn trausti og öruggi bú-
höldur og félagi, sem skilar sam-
ferðamönnunum eftir sólbjarta
minningu um góðan dreng og
heilsteyptan, sem ætíð stóð þar
sem betur mátti. Þótt þessi fáu
minningarorð komi seinna en til
var ætlast, má þó segja þar um,
að aldrei sé góðs manns of seint
getið.
Blessuð sé hans minning.
A Þorláksmessu 1954.
Jósef Björnsson.
— S.Þ. ara landheigi
Framh. af OJs. 7
þetta atriði eins og önnur verður
ekki tekin fyrr en á AlLherjar-
þinginu 1956, þegar heildar-
skýrsla þjóðréttarnefndarinnar
liggur fyrir. Tillagan um fisk-
veiðiráðstefnuna var samþykkt
með 41 atkvæði gegn 5, en 5 sátu
hjá. Voru það 5 Arabaríki sem
hjá sátu, en á móti greiddu at-
kvæði Sovét-Rússland, Hvíta-
Rússland, Ukraína, Pólland og
Tékkóslóvakía.
STEFNA ÍSLENZKU RÍKIS-
STJÓRNARINNAR GP.UND-
VÖLLUR FYRIR MÁLS-
MEÐFERÐ
Með ályktunum þeim s~m Alls-
herjarþingið hefur nú afgreitt
með yfirgnæfandi meirihluta, er
ljóst, að stefna íslenzku ríkis-
stjórnarinnar, sem haldið var
fram á Allsherjarþingunum 1949,
1953 og á þingi því, er nú situr,
sé nú orðinn traustur grundvöll-
ur fyrir, að heildartillögur um
yfirráðarétt ríkja yfir hafinu
muni liggja fyrir innan tveggja
ára. Verður ekkert um það full-
yrt á þessu stigi, hvernig þær
tillögur verða og verður að sjálf-
sögðu að taka afstöðu til þeirra,
þegar þær liggja fyrir.
Á
Að lokum vil ég segja það, að
mjög greinilega hefir komið í
ljós í viðræðum við fjölmarga
fulltrúa hér, að þeir bera mjög
hlýjan hug til íslands og var auð-
heyrt, að formaður íslenzku
sendinefndarinnar, Thor Thors
sendiherra, hefur átt ríkan þátt
í að skapa þann hlýhug með
starfi sínu hér undanfarin ár.
í
Happdrætti
Háskóla Islands
SaSa i I. ilokki er Siaíin
Umboðsmenn í Reykjavíkr
Arndís Þorvaldsdóttir, kaupkona, Vesturg. 10, sími 82030.
Elís Jónsson kaupm , Kirkjuteigi 5, sími 4970.
Guðlaugur & Einar G. Einarssynir lögfr., Aðalstr. 18, sími 82740.
Guðrún Ólafsdóttir, frú, Þingholtsstræti 1, sími 2230.
Helgi Sivertsen umboðsm. Austurstr. 12, sími 3582.
Pálína Ármann, frú, Varðarhúsinu, sími 3244.
RagnhildurHelgadóttir frú, (Verzl Happó), Laugav. 66, sími 4010.
Þórey Bjarnadóttir, frú, Bankastr 8, sími 3048.
Umboðsmenn í Hafnarfirði:
Valdimar Long, kaunm. Strandg. 39, sími 9288.
Verzlun Þorvalds Biarnasonar, Strandg. 41, sími 9310.
35000 númer — 11333 vinningar
Vinningar Samtals kr. 5 880 000,00
A thu gið :
Viðskiptamenn hafa forgangsrétt að fyrri númerum sínum til 10. jan.
gegn framvísun 12. flokks miðanna. Eftir þann dag er umboðsmönn-
um frjálst að selja öll númer.
Þar sem happdrættið var nálega uppselt síðastliðið ár, hafa umboðs-
menn mjög fáa miða handa nýjum viðskiptamönnum. Þeir munu því
neyðast til að selja þá miða. sem ekki verða teknir í síðasta lagi 10
janúar,. strax á eftir
Vitjið miða yðar í tæka tíð. — Látið ekki happ úr hendi sleppa.
HESSIAN - MJðLPOKAR
Við höfum tekið að okkur einkaumboð á íslandi fyrir
Exportstelle der Deutchen Ju te-industrie9
Hamburg,
sem annast útflutning flest allra verksmiðja í Þýzkalandi er fram-
leiða hessian, mjölpoka og aðrar skyldar vörur. Við getum því tryggt
kaupendum lægsta verð á hverjum tíma.
Leitið upplýsinga á skrifstofu okkar.
ÓLflFUR GÍSLASON & CO. H.F.
Hafnarstræti 10-12 — Sími 81370
(á