Morgunblaðið - 12.01.1955, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.01.1955, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. jan. 1955 F j drhagsdætlun Akureyrarbæj ar Akureyri, 11. jan. FYRSTI fundur ' Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á hverju ný- byrjuðu almanaksári, fjallar venjulega um fjárhagsáætlun bæjarins. Hefur hann um mörg ár verið ófrávíkjanleg venja, ávallt fjölmennur, fróðlegur og skemmtilegur. ráða Færevinsa a SKYRBI FJÁRHAGSÁÆTLUNINA Að þessu sinni var fundurinn haldinn hér að Varðborg í gær- kveldi og hófst kl. 8,30, og stóð fil miðnættis. Jón G. Sólnes hafði framsögu fyrir hönd þeirra bæj- arfulltrúanna og skýrði fjárhags- áætlunina eins og hún liggur nú fyrir til annarar umræðu. Gerði hann samanburð á einstökum liðum nú í ár og fyrra árið. Bar fram ástæður til þeirra breyt- inga, sem orðið höfðu á áætlun- inni, sem einkum felast í hækk- unum á einstökum liðum. ÚTSVÖR HÆKKA Áætluð er hækkun útsvara sem nemur 1,9 millj. kr. Þessi hækkun kemur fyrst fram í fjór- um liðum, sem eru vextir og af- borganir af sjúkrahúslánum, 480 þús. kr. lögboðið framlag til lýð- hjálpar, 170 þús. kr. vegna sam- einingar Glerárþorps við bæinn, 500 þús. kr. sem gert er þó ráð fyrir að þorpsbúar greiði með út- svörum sínum og loks til nýbygg- ingar frystihúss 750 þús. kr. Enn- fremur gat framsögumaður þess, að bærinn hefði misst tekjur sem svara mundu hátt á þriðja hundr- að þús. kr., sem var skattur af sölu áfengis í bænum. ÁFENGISTEKJURNAR Að lokinni ræðu frummælanda tók til máls Bjarni Halldórsson, skrifstofustjóri. Ræddi hann fyrst um áfengissöluna og gróðann af henni. Þá taldi hann að reyna bæri að útvega lán til nokkurra ára til greiðslu á framlagi bæj- arins til hraðfrystihússins, sem síðan yrði smátt og smátt jafnað uiður á bæjarbúa. FRYSTIHÚSFRAMLAGH) Guðmundur Jörundsson. bæj- arfulltrúi, ræddi ýmsa liði á- í ætlúnarinnar og benti á nokkra, er mætti lækka. Hann var á s móti því að bæjarstjórnin og nefndir bæjarins tækju laun fyr- i ir fundarsetu. Hann .taldi að lækka mætti halla á grjótmuln- ingi, framlag til bókasafns og sundstæðis. Hann vildi að reynt væri að útv'ega lán til frystihúss- framlagsins er greitt yrði með niðurjöfnun á þremur árum. — Helgi Pálsson, bæjarfulltrúi, tók í sama streng og G. Jör. hvað snerti frystihúsframlagið og kvaðst mundi bera fram tillögu til breytingar á þessu við aðra umræðu áætlunarinnar. Hann kvað það vera í athugun að fá lán frá Þýzkalandi í þessu skyni. Karl Friðriksson tók einnig í sama streng hvað snerti frysti- húsframlagið. Hann ræddi all- mafga liði til lækkunar gjalda- megin svo sem að bæjarstjórn yrði kauplaus, skrifstofukostnað- ur lækkaður o. m. fl. SJÚKRAHÚSS- OG SKÓLAMÁL Steinn Steinsen svaraði fyrir hörid bæjarstjórnar og sagði ástæðurnar fyrir hvernig stæði á upphæð ýmissa liða, sem spurt hafði verið um. Einar Kristjáns- son talaði um vinnuskólann og tap hans. Ennfremur hin síhækk- andi útsvör. Jónas G. Rafnar, alþingismaður, ræddi um fjórð- upgssjúkrahúsið, skólamál og rtauðsyn byggingar nýs barna- skóia, laun bæjarfulltrúa er hann taldi ekki óeðlilegt að væru ein- hver svo og húsnæði bæjarstjórn- arirmar. í lok ræðu sinnar kvaðst hánn vonast til þess að bæjar- fulltrúar Sjálfstæðismanna sæju svo um að fjárhagsáætluninni yrði stillt svo í hóf, að ekki þyrfti að hækka útsvarsstigann frá því sem nú er. Nokkrir fyrri ræðumanna tóku til máls aftur og stóð þessi ánægjulegi fundur allt til mið- nættis. Árni Jónsson, tilrauna- stjóri, formaður Sjálfstæðisfé- lags Akureyrar, stýrði fundi. — Vignir. PATREKSFIRÐI, 11. janúar. — I dag var byrjað að setja upp trön- urnar fyrir skreiðarframleiðsluna sem hér á að fara að hefja. Kom efnið í trönurnar rétt eftir ára- mótin og í gær kom hingað mað- ur frá Skreiðarframleiðslusam- bandinu, Gunnar Sigurðsson, og mun hann hafa eftirlit með verk- inu. Var byrjað á uppsetningu trananna í dag. — Karl. Patreksfirði, 11. janúar. PATREKSFJARÐARTOGARARNIR Gylfi og Ólafur Jóhannessorx lágu hér inni þar til 5. og 6. janúar að þeir fóru á veiðar. Vafl það aðallega vegna manneklu að togararnir lágu inni, en margitl hafa farið í atvinnuleit héðan til Suðurlands yfir vertíðina. 664 kr. fyrír 10 réffa ÚRSLIT í 1. leikviku getrauna: Arsenal 1 — Cardiff 0 1 Bristol 2 — Portsmouth 1 1 Bury 1 — Stoke 1 x Derby 1 — Manch. City 3 2 Fulham 2 — Preston 3 2 Hull 0 — Birmingham 2 2 Lincoln 1 — Liverpool 1 x Middlesbro 1 — Notts Co 4 2 Rotherham 1 — Leicester 0 1 Sheff. Utd 1 — Nottinham 3 2 Sunderland 1 — Burnley 0 1 West Ham 2 — Port Vale 2 x Bezti árangur reyndist 10 rétt- ar, og varð hæsti vinningurinn 664 kr. fyrir kerfi með 2 röðum með 10 réttum, og 9 réttum í 8 röðum. Næsti vinningur var 424 kr. fyrir 1/10 og 6/9. Vinningar skiptust þannig: 1. vinningur: 148 kr. fyrir 10 rétta (5) 2. vinningur: 46 kr. fyrir 9 rétta (32). Sæmileg aflabrögð Bolungavíkurbála BOLUNGAVÍK, 11. jan. — Hér hefur verið góð tíð að undan- förnu; þó réru bátar héðan ekki í nótt sakir illskuveðurs. Eru gerðir út 4 stórir bátar héðan og 3 smærri. Bátarnir hafa yfirleitt aflað mjög sæmilega. Hér hefur skapazt mikil at- vinna af því að togarar landa ís- fiski á ísafirði og er aflanum ek- ið hingað og hann unninn hér. Einnig er togarafiskinum ekið til Hnífsdals. Hér var haldin áramótaskemmt- un í félagsheimilinu og var þar ýmislegt til skemmtunar. Var leikinn einþáttungur, tvísöngur ungra stúlkna og Baldur Hólm- geirsson kennari las upp og Frið- rik Sigurbjörnsson lögreglustj. flutti áramótahugleiðingu. Var dansað frameftir nóttu og skemmti fólk sér mjög vel. Kven- félagið sá um skemmtunina. Anægjuleg jólafrés- Palreksfirði j E'ainh »f hls 1 um hans skal fyrir lok ársins 1956 stofna sameiginlegt „vopnabúr“ innan bandalagsins og skal því stjórnað af sérstöku ráði á veg- um aðildarrikjanna. j ítalska stjórnin hefur þegar ■ lýst yfir því, að hún muni styðja , í orði kveðnu tillögur franska forsætisráðherrans, en Bretland, Holland, Belgía og Luxemburg hafa tjáð sig þeim lítt fylgjandi. V.-Þýzkaland hefur slegizt í hóp með þeim síðarnefndu, en Men- des-France vonar, að honum tak- ist að telja Adenauer á að styðja t tillögur sínar í viðræðum þeirra I í næstu viku. ' ★ RÁÐSTEFNA STENDUR FYRIR DYRUM Sjö aðildarríki V.-Evrópu , bandalagsins, Bretland, Frakk- j land, V.-Þýzkaland, ítalía, Hol- j land, Belgía og Luxemburg munu jhalda með sér ráðstefnu 17. jan. 'til að ræða tillögur Mendes- France. Þar sem franska ráðuneytið hefur enn ekki löggilt samþykkt- í ir franska þingsins um endurher- jvæðingu V.-Þýzkalands, mun sjöveldaráðstefna þessi geta haft mjög mikla þýðingu fyrir fram- kvæmd áætlananna um endur- hervæðingu V.-Þýzkalands og jafnframt fyrir stjóm Mendes- France í heild. ★ TILLÖGUR MENDES-FRANCE S.l. miðvikudag sendi franska ’ stjórnin öllum aðildarríkjum V.- Evrópu bandalagsins orðsendingu er gerði nána grein fyrir tillög-1 um Mendes-France. Forsætisráð- I herrann gerir ráð fyrir fram- kvæmd áætlunarinnar í tveim áföngum: • IBráðabirgða stofnun skal . hafa yfirumsjón með ákvæð- um um vopnabúnað og eftirlit j með öllu varnarfyrirkomuiagi. Starf þessarar stofnunar getur hafizt á vegum tveggja eða þriggja landa — t. d. Frakklanils og Italíu — ef hin bandalagsríkin vilja ekki taka þátt þegar í stað. 2Loks í byrjun ársins 1957 . skal koma á fót hinni eigin- legu eftirlitsstofnun hervæðing- arinnar. Þessi stofnun skal hafa endanlega heimild til að ganga , frá varnaráætlunum einstakra | bandalagsríkja og geta tekið ákvarðanir með tveim þriðju meiri hluta. Tvær néfndir skulu stofnaðar, skipaðar fulltrúum bandalagsríkj anna. Nefnd, er sjái um samræm- ingu hervæðingarinnar og önnur, er hafi eftirlit með vopnafram- leiðslu. FENGNIR FÆREYINGAR Á fimmtudaginn komu hingað 12 Færeyingar sem ráðnir voru á Ólaf Jóhannesson. Komu þeir frá Suðurey í Færeyjum. Komu þeir með báti, sem var á leið frá Gautaborg til Reykjavíkur og ko«j við í Færeyjum. Komu Fær- eyingarnir til Reykjavíkur kl. 9.30 á fimmtudagsmorguninn. 'Til Patreksfjarðar komu þeir með flugvél kl. 1.30 og kl. 2 sama dag lagði togarinn úr höfn með Fær- eyingana, sem allt eru ungir og sjóvanir menn. EINN RÖÐUR Sigurfari, eini báturinn sem I gerður verður hér út á vetrar* vertíð til að byrja með, fór í róð- ur í gær. Var afli heldur tregur, | Var báturinn með tæplega 2 lest-< ir af fiski. SKIPAKOMUR Talsvert hefur verið um skipa^ I komur hingað til Patreksfjarðafl síðan á áramótum. Mörg þýzlí og ensk skip hafa komið, bæðj með veika menn og til þess a3 taka vistir. Einnig hafa erlend skip lestað hér bæði fiskimjöl og frystan fisk til útflutnings. — Karl. Lítið þarf til að koma öllu í bál og bramf í þrælafangabúðum Ráðstjórnarríkjanna Berlín, 11. jan. JOHN. H. NOBLE, annar banda- rísku borgaranna, er látinn var laus á nýársdag eftir nokk- urra ára fangelsisvist í Rússlandi, boðaði blaðamenn á sinn fund í dag í Berlín. Tjáði hann fréttamönnum, að í hinum geysimörgu þrælkunar- fangabúðum og fangelsum Ráð- stjórnarríkjanna, þyrfti oft mjög lítið „tundur“ til að koma af stað uppreisn. Ein slík uppreisn átti sér stað í þrælafangabúðum þeim er hann dvaldist í Síberíu. ★ SKUTU 100 SÆRÐU 500 í júní og júlí árið 1953 gerðu menn í fangabúðunum verkfall. Lögreglumenn skutu niður 100 fanga með köldu blóði og særðu aðra 500. Fimmtíu manns voru síðar teknir af lífi vegna þátt- töku sinnar í verkfallinu. Noble skýrði frá því, að yfir hálf milljón fanga hefði verið haldið í fangabúðum þessum. — Um 95% eru Rússar, hinir eru Þjóðverjar, Pólverjar, Tékkar og ýmsir aðrir. ★ 10 ÁRA FANGELSISVIST Noble kom ásamt stall- bróður sínum William Marchuk, til V.-Berlínar s. 1. laugardag. — Marchuk var handtekinn í Dres- Patreksfirði. — Hin árlega jóla- trésskemmtun fyrir börn, var haldin hér að Skjaldborg síðast- liðinn laugardag. Var margt til skemmtunar og var samkoman fjölmenn. Standa allir kaupstað- arbúar sameiginlega að skemmt- un þessari og undirbúa hana. Var húsið mjög fagurlega skreytt og fór skemmtunin hið bezta fram í hvívetna. Var fyrst jólatré og dansleikur fyrir 2ja—6 ára börn fyrripart kvöldsins og síðan fyrir eldri börn til kl. 11. Þá hófst al- mennur dansleikur er stóð til kl. 4 um nóttina. Eiga þeir sem hönd lögðu að undirbúningi þessarar skemmtunar sérstakar þakkir skilið fyrir óeigingjarnt starf. — Var sérstaklega vel til hátíðar- innar vandað og skemmtu allir sér hið bezta. — Karl. ★ SAMEIGINLEGT VARNAR- MÁLARÁÐUNEYTI Næsta skref yrði að stofna nokkurs konar sameiginlegt varn j armálaráðuneyti, er samræma skal starf þessara tveggja nefnda, hafa eftirlit með hernaðarlegri ' aðstoð frá Bandaríkjunum og öðrum löndum utan bandalagsins og hafa stöðugar gætur á her- væðingu bandalagsríkjanna. Stofnun þessi á að hafa nána samvinnu við NATO, einkum um j samræmingu varna hinna ýmsu ! ríkja. Vopnaframleiðslunefndin á j að deila framleiðslunni á sam- ræmdum vopnum með aðildar- ríkjunum og reyna að koma á fót fjöldaframleiðslu vopna á sameiginlegum grundvelli, er tímar líða fram. Brandf einréma kjör- inn forsefi bæjar- stjémar V.-Berlín ^ BERLÍN, 11. jan. — Jafnaðar- maðurinn Willy Brandt var í dag kosinn einróma forseti hinnar nýju borgarstjórnar í V.-Berlín, og um leið var flokksbróðir hans, Otto Suhr, prófessor, kjörinn borgarstjóri. Borgarstjórnin kom nú saman í fyrsta skipti eftir kosningarnar í desember, þegar jafnaðarmenn fengu eins fulltrúa meirihluta í borgarstjórninni. — Fulltrúarnir eru alls 127. + Jafnaðarmenn tilkynntu fyrir skömmu síðan, að Willy Brandt yrði frambjóðandi þeirra til þessa embættis, og stjórnarand- staðan, kristilegir demókratar og frjálslyndir demókratar, lýstu sig fúsa til að styðja Brandt. ^ Brandt mun eiga sæti á sam- bandsþinginu í Bonn fyrir hönd V.-Berlínar og mun hann vera einn yngsti þingmaður V.-Þýzka- lands. Hann er einnig varafor- maður jafnaðarmannaflokksins í V.-Berlín. — Reuter-NTB den árið 1949, en Noble hefur ver ið í fangelsi síðan 1945. Noblð dvaldist ásamt fjölskyldu sinni I Þýzkalandi, er síðasta heimsstyrjj öld braust út og komst ekki af landi burt. Faðir hans var einn- ig handtekinn árið 1945, en móðir hans og bróöir fengu leyfi til að fara heim til Bandaríkjanna. Annar Bandaríkjamaður, Willi- am A. Verdine, 26 ára að aldri, var handtekinn um leið og þeir Marchuk og Noble, en Rússar kveðast ekkert vita, hvað hafi orðið af honum. Námskeið í verk- NÁMSKEIÐ í verktækni verður haldið á vegum norrænna starfs- íþróttafélaga 14,—26. febr. n. k., í Unnestads lantnannaskole, Skáni í Svíþjóð. Vel verður til nám- skeiðsins vandað, en þátttaka tak- mörkuð við sex frá hverju landi. Aðalkennari verður norskur lækn- ir, Birger Tvedt, frá Ortopedisk Institutt í Osló. Með námskeiði þessu er eink- um stefnt að því að finna og æfa beztu aðferðir við að kenn.-i hag- kvæmustu vinnubrögð í ýmsum greinum starfsíþrótta, en ] ær ná orðið yfir mörg svið atvir.nulífs- ins á Norðurlöndum, t. d. kvikfjár- rækt, garðrækt, skógrækt, notkun ýmiss konar véla o. s. frv. Kennd verður verkstjórn og skipulagn- ing móta, fyrirlestrar vexða umi líffærafræði, lífeðlisfræði, réttar hreyfingar og stellingar við vinnu, og verklegar fingar verða hálfan námstímann. Kostn-i aður er áætlaður sænskar krón-i ur 235,00. — Þeir, sem kynnu að hafa hug á að sækja þetta námskeið, ættui sem fyrst að hafa samband við skrifstofu Ungmennafélags Ísj lands, Lindargötu 9A. (Sími 6043 og 3976), því að þátttöku ber að tilkynna fyrir 20. janúar. (Frá U.M.F.I.), Hambro sjötugnr NEW YORK, 5. jan.: — C. J. Hambro, hinn kunni Stórbings- forseti átti 70 ára afmæli í dag. Hann dvelst nú í Ameríku eftir uppskurð á Mayo-sjúkrahúsinu. Fékk hann í dag heilan helling af heillaóskaskeytum og blómum. M.a. fékk hann skeyti frá Hákoni Noregskonungi, sem óskar hon-< um góðs bata. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.