Morgunblaðið - 06.02.1955, Blaðsíða 1
Lesbók
42. árgangur
30. tbl. — Sunnudagur 6. febrúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Belð ósigur... og þó
Oft hefur Mendes-France verið úrvinda af þreytu eftir störf sín
i þágu Frakklands, sem mótast hafa af víðsýni og stórhug. Nú er
talið að það hafi frekar verið af persónulegri óvild sumra með-
þingmanna hans að hann var felldur 'en ekki vegna málefnanna!!
— Myndin er tekin af honum er hann er á leið af Genfarráðstefn-
unni á s. 1. vori og sofnaði hann þá í lestarklefanum.
Var fall Mendes Franee
fall Parísarsamninganna ?
Búist við skammri stjórnarkreppu
* gekk á fund Rene Coty Frakklandsforseta, og afhenti honum
lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt. Skömmu áður hafði í
franska þinginu verið fellt með 319 atkvæðum gegn 273 (rúml.
20 sátu hjá) stjórnartillaga en atkvæðagreiðsluna um hana hafði
Mendes France lýst yfir að yrði skoðuð sem traustsyfirlýsing.
Að atkvæðagreiðslunni lokinni kom til nokkurra ærsla í þing-
deildinni. Mendes-France hélt stuttan fund með ráðherrum sínum
en ók síðan til forsetahallarinnar.
7. flotinn flytur herlið og
borgara frá Tacheneyjum
Flotinn fœr fyrirskipun frá Vlfashington
Bandaríkjastjórn hefur fyrirskipað 7. flota sínum og öðrum herafla, að að-
stoða við brottflutning herliðs þjóðernissinna á Tacheneyjum, sem eru um
300 km norður af Formósu. A Bandaríski flotinn einnig að aðstoða við
flutning borgara af eyjunum.
ÚTFÖR HEÐTOFTS
í DAG
KAUPMANNAHÖFN, 5. febr.
ÚTFÖR Hans Hedtofts, forsæt-
isráðherra, fer fram frá Ráðhús
salnum á morgun ( sunnudag).
Aðalræðu við útförina flytur H.
C. Ilansen forsætisráðherra. —
All-margir fulltrúar erlendra
rikja munu flytja samúðar-
kveðjur. Sigurður Bjarnason
alþingismaður, flytur samúðar
kveðjur frá íslandi og forsætis-
ráðherrar hinna Norðurland-
anna þriggja.
— Páll Jónsson.
^ Tilkynning um þetta var gefin út í Bandaríkjunum í dag.
Segir í tilkynningunni að þjóðernissinnastjórnin hafi sýnt Banda-
ríkjastjórn fram á að þeir þyrftu að flytja herafla sinn á Tachen-
eyjum til annarra staða og þeir hefðu beðið um aðstoð og vernd
við þá flutninga.
Bandaríkin verjo ýmsar eyjar
VIORÆÐUR UM
EFTIRMANN
Coty Frakklandsforseti hefur
þegar hafið viðræður við stjórn-
málaleiðtoga og er rætt um vænt-
anlegan eftirmann Mendes-
France í forsætisráðherraembætt
inu eftir fall hans við traustsyfir
lýsinguna i samabndi við Norður
-Afríkumálin í gær. Er búist við
að styttri tíma muni taka að
mynda stjórn en við fyrri stjórn-
arkreppur, þar sem gerð hefur
/verið sú breyting á stjórnar-
skránni að aðeins þarf einfaldan
meirihluta viðstaddra þingmanna
til að samþykkja nýja stjórn í
stað helmings atkvæða áður.
Fulltrúar sósíalista, kommún-
ista, MPR flokksins, kristilegra
demokrata, fyrrum Gaullista og
fleiri smærri flokka hafa setið á
fundum með forsetanum.
TRAUST FYRIR MENDES
Leiðtogi sósíalista, Piney, hef-
ur lýst því yfir eftir fund sinn
með forsetanum, að sósíalistar
muni ekki fylgja þeirri stjórn
að málum, sem sneri frá stefnu
Mendes France i Indó-Kína
málum, Norður-Afríkumálum
um og í efnahagsmálum.
Fyrir þeirri stjórn er mynduð
verður liggur fyrst og fremst það
að mynda ákveðna stefnu 1 mál-
um Túnis svo og að taka afstöðu
til Parísarsáttmálans, sem enn
eru óstaðfestir í efri deild franska
þingsins.
ILLA TEKIÐ
Fréttin um fall stjórnar Mendes
France hefur víða komið mönn-
um á óvart, einkum eru menn
kvíðafullir út af afdrifum Parísar
sáttmálans.
Þýzka stjórnin í Bonn hefur
látið í ljósi vonbrigði út af falli
frönsku stjórnarinnar. Leiðtogi
frjálsra demokrata kvaðst nú
mjög kvíðafullur út af því að nú
væri staðfesting Parísarsáttmál-
ans í hættu. Og einn af leiðtog-
um kristilega demokrataflokksins
sagði, að fall Mendes-France hefði
borið að á erfiðum tímum í stjórn
málum Evrópu. En hann lét í ljós
von um að Frakkland mundi
halda áfram samvinnu við Vestur
E vrópuþj óðirnar.
Sumargjöf vill selja
Reykjavíkurbæ
fjarnarbcrg
BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumar-
gjöf, hefur skrifað bæjarráði og
boðið bæjarfélaginu til kaups hús
eignina nr. 33 við Tjarnargötu
(Tjarnarborg) en hún er ekki tal-
in henta vel til reksturs barna-
heimilis eða leikskóla. Ef úr kaup
um vei’ður, mun félagið hafa hug
á að koma sér upp öðru húsnæði
fyrir slíka starfsemi.
Bæjarráð hefur falið borgar-
stjóra að semja við „Sumargjöf“
um kaup á eigninni
í tilkynningu Bandaríkjastjórnar segir, að Bandaríkja-
menn hafi tilkynnt Þjóðernissinnastjórninni að þeir
myndu hjálpa henni við varnir ýmissa þeirra staða, sem
Þjóðernissinnar nú halda, og Bandaríkjastjórn telur þýð-
igarmikla fyrir varning Formósu og Peskadoreseyja.
Austurriskur
verkfræAingur
bæjarverkfræðlngs
AUSTURRÍSKUR verkfræðing-
ur, Hans Strutz, hefur skrifað
borgarstjóra og boðið að ráða sig
til verkfræðistarfa hér um stund,
en hann mun hafa mikla þekk-
ingu og reynslu í gatna- og vega-
gerð. Til bæjarverkfræðings hafa
ekki fengizt eins margir íslenzkir
verkfræðingar og á þarf að halda,
Mál þetta var sent séttarfélagi
verkfræðinga til umsagnar og að
henni fenginni heimilaði bæjar-
ráð bæjarverkfræðingi að ráða
austurríska verkfræðinginn til
sín.
Atil góðs
Lauk tilkynningunni með því, að
látin var í ljós von um að þessar
athafnir mættu verða til þess að
tryggja ástandið þar eystra og þar
með að tryggja íriðinn.
4 skipum
var sökkt
Fyrr í dag höfðu flugvélar
þjóðernissinnastjórnarinnar gert
harðar loftárásir á stoðvar kom-
múnista na^st Tacheneyjum. Fóru
flugvélarnar í árásarleiðangur-
inn fyrir dögun í fjórum flokkum
og söktu þær fjórum skipum kom
múnistastjórnarmnar og löskuðu
tvö önnur. Aðrar gei’ðu árásir á
virki á Yi Kiang Shen ey •— þá
er kommúnistar tóku með leiftur
innrás fyrir skömmu.
Er hatursherferð gegn
ingum hufin í brezkum
íslend-
blöðum?
Rógur og upplognar sakir fá vœngi
í Lundúnapressunni
SVO VIRÐIST sem brezkir togaramenn og brezk blöð séu
nú að hefja rógsherferð gegn íslendingum. Mbl. skýrði
frá því í gær. að stórblaðið Daily Mail hefði birt grein þar
sem íslendingar voru sagðir eiga sök á dauða hinna brezku
sjómanna, sem fórust á togurunum tveimur í fárviðrinu
fyrir norðan land. Voru þessar ásakanir byggðar á svo
miklum fjarstæðum að það er erfitt að ímynda sér hvers-
konar illgirni og siðleysishugarfar býr þar á bak við.
50 BLAÐAMENN HLÝÐA
AFRASOGN
Nú hefur sú frétt bæzt við
frá Lundúnum að brezkur tog
araskipstjóri að nafni Robert
Rivert, hafi haldið blaða-
mannafund með 50 blaða-
mönnum frá öllum helztu dag
blöðum Breta. Skipstjóri þessi
var á togara einum, sem var í
óveðrinu skammt frá togurun-
um sem fórust og lýsir hann
hamförum veðráttunnar.
SÖKIN ÍSLENDINGA!!
Síðan skellir hann aliri
skuldinni af slysinu á fslend-
inga. Segir hann að vegna
hinnar nýju landhelgislínu ís-
lendinga gátu brezku togar-
arnir ekki leitað skjóls. Þeir
verða nú að fiska miklu norð-
ar en þeir gerðu áður og lentu
þessvegna í þessu liræðilega
fárviðri, segir hann.
ER HATURSÁRÓÐUR
HAFINN?
Fjölda mörg brezk blöð hafa
þessi ummæli eftir togaraskip
stjóranum og gera engar at-
hugasemdir um það að aðstaða
brezkra togara gagnvart frið-
unraráðstöfunum er nákvæm-
leg sú sama og aðstaða ís-
lenzkra togara. Þau geta þess
heldur ekki að enskur togari
var sannarlega í vari undir
Grænuhlið í fárviðrinu. Virð-
ist sem blöðin séu af ásetlu
ráði að hefja hatursáróður
gegn íslandi og kæra sig því
ekkert um að vita lxið rétta í
þessu máli.
SleoSsaar
nÉ&tsr
— ylir
Cula
hatinu
TOKIO, 5. febr.: — YIRSTJÓRN
flughers Bandaríkjanna í Tokyo
tilkynnti í dag að bandarískar
orrustuflugvélar hefðu skotið nið
ur tvær MIG-15 þrystiloftsflug-
ur kommúnista á alþjóðasvæði
vestur af Kóreu.
Sagði í tilkynningunni að stór
bandarísk herflugvél hefði verið
á flugi yfir Gula-hafið og henni
verið fylgt af allmörgum þrýsti-
loftsflugvélum. Komu þá 8 MIG-
15 "vélar og hófu árás fyrirvara-
laust. Árásinni var hrundið með
fyrrnefndum afleiðingum en
hinar 6 vélarnar sneru undan til
landsvæða kommúnista. Sagði í
tilkynningunni að MIG-15 vél-
arnar hafi virzt vera rússnesk
byggðar, en ekki var sagt hvort
þær hafi tilheyrt rússneska eða
kínverska flughernum.